Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2009, Blaðsíða 19
Hver er konan? „Maður er svo
margt; einstaklingur, kona, móðir,
kærasta, dóttir, vinkona.“
Hvar ertu uppalin? „Ég er uppalin
í Garðabæ en síðan flutti ég að heim-
an og keypti mér mína fyrstu íbúð 17
ára. Hún var í miðbænum.“
Hvað drífur þig áfram?
„Kikkið að klára hlutina, gera vel og
láta gott að mér leiða.“
Hvað langaði þig að verða þegar
þú yrðir stór? „Ég er enn að reyna
að finna út úr því.“
Hvar vildirðu búa ef ekki á
Íslandi? „Næslandi.“
Hvernig safnar maður orku
í tóbakshorn? „Ég elti flottar
fyrirmyndir og safnaði orkunni sem
af þeim gustaði í alla vasa. Tæmdi
síðan vasana en þegar allar hirslur
voru orðnar fullar heima skellti ég
orkunni í trekt og kom henni þannig
í tóbakshornin.“
Hvaðan er hugmyndin upp-
sprottin? „Fyrsta sem mér datt í
hug eru allar þessar flottu konur sem
eru að gera frábæra hluti innan og
utan heimilisins. Ísland er rík þjóð
er kemur að mannauði. Ég fór því á
stúfana og fyllti alla vasa af kvenorku
og tappaði henni á tóbakshorn.“
Voru konurnar alveg viljugar til
að gefa hlut af sinni orku? „Það
var erfitt að velja hvaða konur ég
vildi elta en það réðst að hluta af því
hverjar ég rakst á á tímabilinu.“
Er íslenska kvenorka sterk?
„Hún er alveg einstök og hefur vakið
alheimsathygli gegnum árin.“
Hvar verður svo hægt að kaupa
orkuna? „Tóbakshornin vera stútfull
af þessari einstöku orku og seld
í Eymundsson Skólavörðustíg 11
(áður SPRON) á morgun þriðjudag
klukkan 12-18. Hornin kosta 1.000
íslenskar krónur og rennur allur
ágóðinn í innkaup fyrir iðjuþjálfun
heimilismanna á Hrafnistu í Reykjavík
og Hafnarfirði og á Grund.“
Mega karlmenn líka kaupa
kvenorku? „Þokkalega! Innihald
tóbakshornsins hentar ungum
Íslendingum á öllum aldri, jafnt
konum sem körlum.“
Fylgdist þú með þjóðFundinum?
„Já, í sjónvarpi og blöðum. Mér leist
mjög vel á hann.“
KristÍn JóHannEsdóttir
48 áRa bóKaRI
„Ekki eins mikið og ég gat. Ég skildi
hann ekki alveg. Ég fatta ekki hvaða
völd fólkið hefur. Þessi gildi, eins og
heiðarleiki, hafa alltaf verið mikilvæg.“
anna BEnKoVic MiKaElsdóttir
45 áRa aTvINNulauS KENNaRI
„Nei. Ég var á fótboltaæfingu hjá
Stjörnunni.“
JúlÍa Ösp BErgMann
HElgadóttir
10 áRa
„Nei. Ég er búinn að vinna fimmtán
tíma að meðaltali síðustu vikuna.“
ElMar snær HilMarsson
20 áRa vERSluNaRSTaRFSMaðuR
Dómstóll götunnar
andrEa róBErtsdóttir
fjölmiðlakona selur á þriðjudaginn
tóbakshorn stútfull af kvenorku í til-
efni alþjóðlegrar athafnaviku. Tóbaks-
hornið fer vel í hillu en kvenorkan er
góð sem áburður nú eða inntöku, þá
ein teskeið á hverjum morgni.
Íslenska kven-
orkan er einstök
„Ertu ekki að grínast? Ég svaf fjóra tíma
í nótt og þrjá nóttina áður.“
Jón gErald sullEnBErgEr
45 áRa EIGaNdI KOSTS
maður Dagsins
Í byrjun október sl. barst mér bréf
frá Morgunblaðinu, undirritað af
yður, í kjölfar þess að ég sagði upp
áskrift minni að blaðinu. Ástæða
uppsagnar minnar á blaðinu er sú
ein, að mér misbýður verulega það
dómgreindarleysi eigenda Morg-
unblaðsins að gera yður að öðrum
tveggja ritstjóra þessa hingað til
ágæta blaðs.
Í bréfi yðar buðuð þér mér eins
mánaðar fría áskrift að Morgun-
blaðinu í október til þess að leggja
mat á hvernig blaðið muni þróast
undir yðar ritstjórn. Jafnframt ósk-
uðuð þér í bréfinu eftir athugasemd-
um mínum um störf yðar, án þess að
tilgreina sérstaklega við hvaða störf
er átt.
Ég tek yður á orðinu og skal nú
verða við hvoru tveggja.
störf yðar
Sem forsætisráðherra nutuð þér
lengi vel trausts og virðingar þjóð-
arinnar og höfðuð sem slíkur á yður
hið „landsföðurlega“ yfirbragð, sem
svo mikils er metið.
En við einkavæðingu ríkisbank-
anna urðu yður á afdrifarík mistök.
Í stað þess að dreifa eignarhaldinu
eins og lofað hafði verið, handstýrð-
uð þér bönkunum í hendur manna,
sem ekki reyndust traustsins verð-
ir. Með því lögðuð þér því mið-
ur grunninn að þeim hörmungum
sem nú hafa dunið á íslenskri þjóð,
og ekki sér fyrir endann á.
Í hlutverki Seðlabankastjóra gáf-
uð þér bönkunum að því er virð-
ist lausan tauminn og gátu þeir því
óhindrað stækkað, safnað óheyri-
legum skuldum og belgst út án þess
að þeim væru nein takmörk sett. Af-
leiðingin birtist m.a. í því skemmd-
arverki sem vinir yðar í Landsbank-
anum skópu og nefndu Icesave.
Misheppnuð tilraun yðar til yf-
irtöku á Glitni olli dómínóáhrifum
svo ekki varð aftur snúið. Setning
hryðjuverkalaga á íslenskar eigur
í Bretlandi hefur þar að auki verið
rakin beint til orða yðar í Kastljósi
um að skuldir íslenskra „óreiðu-
manna“ erlendis yrðu ekki greiddar.
Hvað varðar Icesave-deiluna við
Breta og Hollendinga getið þér ekki
heldur þvegið hendur yðar af því að
hafa sem seðlabankastjóri í nóvem-
ber 2008 undirritað viljayfirlýsingu
þar sem því var lofað að Íslendingar
tækju ábyrgð á innlánsreikningum
Landsbankans erlendis.
Sem forsætisráðherra og síð-
ar sem seðlabankastjóri berið þér
óumdeilanlega mikla ábyrgð á af-
drifaríkum ákvörðunum, sem reynst
hafa rangar og leitt hafa miklar
hremmingar yfir íslenska þjóð. Því
miður reyndust þér, þegar á hólm-
inn var komið, alls ekki valda því
bankastjórastarfi sem þér höfðuð
áður úthlutað yður sjálfum.
Þróun blaðsins
Í ljósi ofangreindra stikla af starfs-
ferli yðar eru efnistök Morgunblaðs-
ins, eftir að þér hófuð þar störf, eink-
ar ógeðfelld. Blaðið hefur á þessum
stutta starfstíma yðar ítrekað reynt
að vísa allri ábyrgð á Icesave klúðr-
inu yfir á núverandi ríkisstjórn, sem
þó er í raun réttri einungis að sinna
björgunarstörfum við erfið skilyrði.
Auk þess hafa ýmsar tilraunir verið
gerðar á síðum blaðsins til þess að
„útskýra“ orsakir gjaldþrots Seðla-
bankans yður í hag, t.d. í Reykja-
víkurbréfi þann 18. október. Í stuttu
máli er það mat mitt á þróun Morg-
unblaðsins á þessum fyrsta mánuði
yðar í ritstjórastól að blaðið hafi í
raun misst allan sinn fyrri trúverðug-
leika. Ritskoðun af yðar hálfu gerir
það einfaldlega að verkum að hvorki
er lengur hægt að treysta fréttavali né
efnistökum í fréttum blaðsins.
Það sjá það líklega flestir skyni
bornir menn, hvílík reginfirra það er
að gera yður að ritstjóra blaðs, sem
ekki kemst hjá því á umbrotatímum
í lífi þjóðarinnar að fjalla beint og
óbeint um ofangreind störf yðar á
opinberum vettvangi. Þér eruð ein-
faldlega engu skárri í nýjum „Mogga-
fötum“ en keisarinn frægi í sögu H.C.
Andersens, sem allir sáu að var nak-
inn nema hann sjálfur. „Moggaföt-
in“ fela ekki fortíð yðar frekar en nýju
fötin nekt keisarans. Er yður hér með
kurteislega bent á það.
Biðjið þjóðina afsökunar
Með framgöngu yðar í opinberu
starfi á undanförnum árum hafið þér
því miður valdið íslenskri þjóð stór-
kostlegu tjóni. Þótt slíkt hafi eflaust
ekki verið ætlun yðar, þá tala samt
staðreyndirnar sínu máli. Hvort
sem yður líkar það betur eða verr,
þá eruð þér Hrunkóngur Íslands.
Þann titil munið þér aldrei losna
við, hversu mjög sem þér reynið að
ritstýra og hagræða sannleikanum
í yðar þágu á síðum fyrrum „blaðs
allra landsmanna“.
Það eru gömul sannindi og
ný að hrokinn gerir menn smáa en
auðmýktin stóra. Væri yður sæmst
að horfast í augu við þátt yðar í hinu
efnahagslega hruni Íslands og biðja
þjóðina afsökunar á því sem að yður
snýr í auðmýkt og iðrun hjartans.
Yrðuð þér þá maður að meiri. Ég er
sannfærður um að amma yðar hefði
ráðlagt yður hið sama, væri hún enn
á lífi.
Uppsögn mín á Morgunblaðinu
stendur þar til þér víkið af velli sem
ritstjóri blaðsins.
Reykjavík, 30. október 2009
(Stytt útgáfa. Bréfið er birt í heild
sinni á dv.is)
Opið svarbréf til ritstjórans Davíðs
kjallari
mynDin
1 Borgarfulltrúi keypti sumarbú-
stað af milljarðamæringi
Þorbjörg Helga vigfúsdóttir, og
eiginmaður hennar keyptu sumarbústað á
Þingvöllum af Eiríki Sigurðssyni stofnanda
10-11. Kaupverðið var 40 milljónir króna.
2 Ásdís rán: synti nakin í jökullóni
Ísdrottningin ásdís Rán Gunnarsdóttir fer
mikinn í viðtali við Playboy.com sem birt
var um helgina.
3 „Væri betur varið í icesave“
Guðmundur ólafsson, lektor við Háskóla
Íslands og Háskólann á bifröst, telur að
inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði
séu mistök.
4 lilja: allir vildu komast í
bankana
lilja Mósesdóttir starfaði í háskólum frá
2002 til 2007. Þar var fólk framtíðarinnar
sem langaði mest til að komast í bankana
og lifa ljúfa lífinu.
5 skype að fá samkeppni
Google hyggst velgja Skype-veldinu undir
uggum á sviði tölvusímaþjónustu.
6 Vafasamar sígarettur haldlagð-
ar á spáni
Tollgæslumenn á Spáni lögðu hald á
gríðarlegt magn af fölsuðum sígarettum
sem voru ætlaðar til sölu.
7 grét sig í svefn í kommúnista-
búðum
athafnakonan ásta Kristjánsdóttir segir í
viðtali við Nýtt líf að vinstrisinnaðir
foreldrar hennar hafi sent hana í
kommúnistabúðir í a-Þýskalandi þegar
hún var ellefu ára.
mest lesið á dv.is
ingi gunnar JóHannsson
fyrrverandi áskrifandi Morgunblaðsins skrifar
umræða 16. nóvember 2009 mánudagur 19
dansað í hálfleik Nemendur í dansskóla Jóns Péturs og Köru sýndu listir sínar í hálfleik á leik vals og Fram í efstu deildinni í
handbolta á sunnudag. Mynd raKEl ósK