Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2009, Síða 22
22 mánudagur 16. nóvember 2009 VIÐTaL
„Það er frábært en krefjandi að vera
kona á Íslandi. Ísland á flottar kon-
ur og flottar fyrirmyndir. Það er gott
að vera kona og gott að vera femín-
isti. Ég myndi aldrei vilja skipta á
hlutverkum,“ segir Guðný Gústafs-
dóttir, talskona Femínistafélags Ís-
lands.
Guðný er doktorsnemi og
stundakennari í kynjafræðum
við Háskóla Íslands þar sem lögð
er áhersla á að skoða líffræðileg-
an og menningarlegan mun kynj-
anna. Hún tók við keflinu sem
talskona Femínistafélagsins á að-
alfundi þess síðastliðið vor og fyrir-
myndin er langamma hennar sem
barðist á peysufötum fyrir kosn-
ingarétti kvenna. Guðný ólst upp í
Neskaupstað þar sem hún kynnt-
ist fyrst launamisrétti kynjanna er
hún vann ung í fiski. Hún er móð-
ir tveggja drengja, lék sér sjálf með
bíla þegar hún var yngri, kann að
skipta um dekk en vill helst láta bif-
vélavirkja sjá um viðhald heimilis-
bílsins. Hún segir femínisma um-
fram allt ekki keyra á karlahatri.
Karlar eKKi heilalausir
„Nei, almáttugur. Við erum flest-
ar giftar eða í samböndum, eigum
syni og dætur og eigum góða menn
sem standa við bakið á okkur. Okk-
ar barátta byggist alls ekki á óbeit
á karlmönnum, þvert á móti. Við
einblínum líka á það að koma karl-
mönnum frá þeirri ímynd að vera
heilalausar kynverur sem kaupa sér
konur eins og pitsur eða sportbíla.
Ég get ekkert nema gott sagt um
karla enda á ég mjög góða karla að,
karlinn minn og syni,“ segir Guðný
brosandi. Spurð um kynjahlutverk-
in á heimili hennar segir hún jafn-
rétti ríkja.
„Stundum elda ég heima, stund-
um ekki. Ég kann að skipta um
dekk á bílnum og hef gert það. Ég
er hins vegar ekkert sérstaklega góð
í bílum og það er voðalega gott að
komast upp með að setja bara á
hann bensín og keyra. Ég er með
rosalega góða menn í vinnu á verk-
stæðinu sem sjá um bílinn.“
rótgróin hlutverK
Guðný segir mikilvægt að samfé-
lagið sé sveigjanlegra þegar kemur
að hinum rótgrónu og hefðbundnu
kynhlutverkum. Aðspurð segir hún
syni sína tvo hafa leikið sér bæði
með dúkkur og bíla í æsku. „Þeg-
ar börn fæðast er þeim skipt upp í
þessi ákveðnu kynhlutverk. Kynj-
Femínismi
er fallegur
„Að vera kona er frábært en krefjandi,“ segir guðný gústafsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands. Tólf
ára gömul áttaði hún sig á ójafnrétti samfélagsins og telur Íslendinga standa frammi fyrir því tækifæri
að rísa upp sem þjóð sem berst fyrir jafnrétti og mannréttindum. Sjálf myndi hún aldrei bera slæðu fyrir
andlitinu, hún hefur ekki gaman af bílum og biður eigendur strippstaða að finna sér almennilega vinnu.
„Við einblínum líka á það
að koma karlmönnum
frá þeirri ímynd að Vera
heilalausar kynVerur sem
kaupa sér konur eins og
pitsur eða sportbíla.“