Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 8
8 föstudagur 28. maí 2010 fréttir fullt starf? n Ábyrgð borgarfulltrúanna 15 í höfuðborginni er mikil og hafa þeir stundum lýst því sjálfir hversu langur vinnudag- ur þeirra getur verið. Enda er borgarfulltrúa- starfið talið fullt starf. Einar Örn Benediktsson, framkvæmda- stjóri og tónlistarmaður með meiru, skipar annað sæti Besta listans í Reykjavík. Hann var spurður að því á förnum vegi hvort hann væri farinn að búa sig undir nýtt starf eftir borg- arstjórnarkosningarnar um helgina. Hann yrði jú að fórna öðrum verkum. Einar Örn svaraði um hæl að hann hefði ekki miklar áhyggjur. Hann væri búinn að láta kanna málið og niðurstaðan væri að starf borgarfull- trúa væri um það bil 40 prósenta starf. augljósa skýringin n Gísli Marteinn Baldursson, sem er fimmti maður á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, birti fyrir fáeinum dögum upplýsingar um hvaðan honum bárust styrkir í prófkjörum og kosningabaráttu árin 2005 til 2007. Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvers vegna hann dró á langinn að birta upplýsingarnar. Nokkrir hugsuðir og stjórnmála- skýrendur benda þó á skýringu sem kann að vera nærtæk. Hún er sú að það hafi vafist fyrir Gísla Marteini að birta upplýsingar um styrki frá Vestmannaeyjaveldi Guðbjargar Matthíasdóttur og öðrum mönnum handgengnum Davíð Oddssyni á sama tíma og ljóst var að hann hafði þegið styrki frá erkióvinunum, Baugi, FL- Group og Kaupþingi. öðruvísi mér áður brá n Í sveitarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum hömpuðu sjálfstæðismenn í Garðabæ upp- rennandi foringjaefni sínu Bjarna Benediktssyni. Faðir hans, Benedikt Sveinsson, hafði lengi verið meðal helstu flokksbrodda í Garðabæ og Engeyjarættin öll frekar vel kynnt þar. Nú bregður hins vegar svo við að í kosningagögnum fer lítið sem ekki neitt fyrir Bjarna þó svo að spár og vonir margra heimamanna hafi ræst um að hann yrði einhvern tíma for- maður flokksins. Þar að auki gengur flokkurinn nú klofinn til kosning- anna í bæjarfélaginu um helgina og hefur stöku bloggari lýst þungum áhyggjum af framtíð formannsins fari illa fyrir flokknum í heimabyggð. sandkorn RáðheRRaR deila um stóRiðju við húsavík Vinstri-grænum hugnast ekki að ráðist verði í uppbyggingu stóriðju á Bakka við Húsa- vík. Hún kemur engu að síður best út úr frumathugun verkefnisstjórnar um orkunýt- ingu í Þingeyjarsýslum. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vill að orkan sé nýtt til þess að skapa sem flest störf og skapa sem mest verðmæti. Vinstri-græn eru ósammála mati verkefnisstjórnar um orkunýtingu í Þingeyjarsýslum sem Katrín Júlíus- dóttir iðnaðarráðherra skipaði í okt- óber á síðasta ári. Verkefnisstjórnin kynnti stöðu orkurannsókna og hugs- anlega orkukaupendur á fjölmennum fundi á Húsavík á þriðjudag. Þar skipti hún upp fyrirtækjunum í þrjá flokka. Þau sem voru í efsta flokki voru talin raunhæfust og áhugaverðust út frá fjármögnun og tæknistigi. Aðeins tvö verkefni heyrðu undir þann hluta. Ál- vinnslur Alcoa og kínverska álfram- leiðandans Bosai Mineral Group. Samkvæmt heimildum DV taldi verk- efnisstjórnin ekki hagkvæmt að ráð- ast í verkefni sem hefði orkuþörf und- ir 250 MW vegna raforkuflutninga og tengdra fjárfestinga. Samkvæmt áliti verkefnisstjórnarinnar er talið víst að tryggja megi allt að 440 MW á svæð- inu miðað við núverandi forsendur. Til stóð að viðræður hæfust við áhugaverða orkukaupendur strax og mat verkefnisstjórnarinnar lægi fyr- ir. Heimildir DV herma að þau áform geti nú verið í uppnámi vegna þess að vinstri-græn vilja frekar horfa til ann- arra kosta en álvera. Þar skipti höf- uðmáli að skoða þá kosti frekar sem heyra undir annan eða þriðja efnis- flokk verkefnisstjórnarinnar. Þar eru meðal annars hugmyndir um gagna- ver og fyrirtæki sem hafi lýst yfir áhuga sínum á að koma inn í rann- sóknir og uppbyggingu háhitavirkj- ana sem nýta megi til efna- og elds- neytisframleiðslu. Tugir aðila sýnt áhuga Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri At- vinnuþróunarfélags Þingeyinga, segir tugi aðila hafa sýnt orkunni í Þingeyj- arsýslum áhuga frá því rannsóknir hóf- ust á nýtingu hennar. Þar megi nefna papp- írsverksmiðju, pólýólverk- smiðju, eldsneyt- is- og efna- fram- leiðslu, álfyrirtæki, vinnslu glúkósam- íns og timburþurrkun sem dæmi. Hann segir að staða verkefnisins hafi breyst mikið síðustu misseri þar sem iðnframleiðslufyrirtæki hafi sýnt grænni orku áuga eins og vatnsafli og jarðvarma sem hluta af þeirra fram- leiðsluferli. Hingað til hafi álfyrirtæki aftur á móti sýnt mestan áhuga á at- vinnuuppbyggingu á svæðinu. Gunnlaugur Stefánsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, er mjög ósáttur við þau svör sem iðnaðarráðherra gaf gestum á kynningar- fundinum á Húsavík. Þar hafnaði iðnaðarráðherra því að hann legðist gegn uppbyggingu álvinnslu á Húsavík en ríkisstjórn- in tali tveimur tungum í málinu. Gunnlaugur segir álit verkefnisstjórnar- innar staðfesta að óþarfi sé að skoða aðra kosti svo nákvæmlega. Raunhæf- ustu kostirn- ir liggi fyrir. Alcoa hafi lagt mikla fjármuni í rannsóknir á kostum og göllum upp- byggingar stóriðju á Bakka við Húsavík. Gunnlaugi finnst miður ef verkefninu og ákvörð- un um orkusölu verði frestað frekar vegna þessa. „Við erum þeirrar skoð- unar að ekkert dugi nema öflugar aðgerðir í byggðamálum. Hér hefur grunnskólabörnum fækkað um 140 á tíu árum. Þetta er ógnvænleg þró- un sem stjórnvöld vilja ekki horfast í augu við,“ segir Gunnlaugur. Vilja aðra kosti frekar Þeir aðilar vinstri-grænna sem DV hefur rætt við vegna málsins eru ekki sammála mati verkefnisstjórnarinn- ar um að hagkvæmast sé að finna stórkaupanda að orkunni á svæðinu. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð- herra segir heppilegra ef aðrir kostir á atvinnuuppbyggingu á svæðinu verði skoðaðir nánar. Hún telur þjóðhags- lega óhagkvæmt ef öll orkan verður seld einum aðila. Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra tekur í sama streng. Hann telur að sala til margra smærri aðila geti skilað sér í hærra raforkuverði þegar á heildina er litið. Vill myndarlega atvinnuuppbyggingu Katrín bendir á að verkefnisstjórnin sé enn að störfum og að álit henn- ar hafi aðeins byggst á frumathugun þar sem kostnaður vegna raforku- flutninga hafi helst verið til skoðun- ar. Hún bendir einnig á að það sé ekki hlutverk ríkisstjórnarinnar að hlutast til um orkukaupendur held- ur taki Landsvirkjun ákvörðun um það hverjum selja skuli orkuna. Sú ákvörðun sé byggð á hagkvæmnis- sjónarmiðum. Landsvirkjun hafi nú þegar varið ellefu til tólf milljörð- um króna í rannsóknir á svæðinu. Þegar hafi 130 MW verið tryggð og vanti ekkert annað en fjármagn til að virkja þau og selja. „Ég tel Þingeyjar- sýslur heppilegt svæði fyrir myndar- lega atvinnuuppbyggingu sem gæti orðið mótvægi við suðvesturhornið. Ég ætla ekki að handvelja fyrirtæki. Ég vil að orkan verði nýtt til að skapa sem flest störf og sem mest verð- mæti,“ segir Katrín. Katrín segir ekkert nýtt að vinstri- græn séu á móti uppbyggingu álvers á Bakka við Húsavík. Hún segist ekki eiga von á því að ákvörðun um hugs- anlegan orkukaupanda muni frest- ast eitthvað vegna viðhorfa þeirra. „Það er hlutverk Landsvirkjunar að taka ákvörðunina á viðskiptalegum forsendum. Það er þjóðarhagur að koma stórum atvinnuverkefnum af stað,“ segir Katrín. RóBERT hlynuR BalDuRSSOn blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Ég ætla ekki að handvelja fyrirtæki. Katrín Júlíusdóttir Segir þjóðarhag að koma stórum verkefnum af stað. Svandís Svavarsdóttir Telur þjóðhagslega óhagkvæmt að selja orkuna til eins stórs aðila. „Ljóst er að það er ekki hagkvæmt að ráðast í umfangsmiklar fjárfestingar nema til komi orkunýting til lengri tíma í því magni sem skilar viðunandi arðsemi á allar þessar fjárfestingar, hvort heldur sem er með samningi við einn stóran aðila eða marga litla, eða samblandi af samningum við einn stóran aðila og nokkra smærri...“ ÚR áliTi VERKEfniSSTJóRnaRinnaR óhagkvæmt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.