Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Qupperneq 21
„Ég finn góða straum frá 16. sætinu.“ Héðinn Snær ArnArSSon 16 ára nemi „14. sæti, mér finnst lagið ekki gott.“ EddA MAríA KjArtAnSdóttir 19 ára vinnur á american Style „af því að ég er Íslendingur þá segi ég að hún lendi í 3.sæti þó ég hafi aldrei heyrt lagið. “ ÞorStEinn dAgur rAfnSSon 15 ára nemi „20. sæti.“ rEbEKKA VAlbErg 16 ára nemi „7. sæti.“ SVAnA MAríA friðriKSdóttir 20 ára nemi Í hvaða sæti heldurðu að hera Björk lendi Í eurovison? Þessa dagana býður sumarskóli Háskóla Íslands upp á námskeið um Hrunið, sem er á allan hátt hið áhugaverðasta. Það er undarlegt til þess að hugsa að þessir haustdag- ar 2008, sem eru senn fjarstæðu- kenndir og um leið eins og þeir hafi gerst í gær, eru strax orðnir að sögu- legu tímabili og um leið að bók- menntagrein. Þó er ritun sögunn- ar enn í fullum gangi, bæði á síðum blaðanna og innan veggja Háskól- ans. Og þó að allir geti verið sam- mála um að ástæður hrunsins séu margvíslegar og flóknar, rétt eins og ástæður stríða og annarra stórvið- burða, er þó líklegt að fyrr eða síðar muni einhver einn aðili eða hópur standa upp sem meginsökudólgur, að minnsta kosti í almannavitund- inni. Hinir grunuðu eru enn í fullu fjöri og eru flestir enn í áhrifastöð- um, því eiga þeir mikið undir að beina sjónum að öðrum en sjálfum sér. Hingað til eru fjórir hópar sem nefndir hafa verið til sögunnar, og er ólíklegt að fleiri bætist við, þar sem hugmyndin um að Lehman Broth- ers eða mannvonska Gordon Brown hafi valdið Hruninu hafa að öllum líkindum fallið með rannsóknar- skýrslunni. Áttavilltir vinstrimenn Fyrsti sökudólgurinn er frjálshyggj- an sjálf. Ef til vill hlaut hún að leiða hamfarir í för með sér, sama hver hefði verið við völd, og því má rekja upphafið að endalokunum til heim- sóknar Miltons Friedman til Íslands árið 1984. Þó verður að hafa í huga að vandamálin sem fyrstu frjáls- hyggjumennirnir voru að gagnrýna voru raunveruleg. Ísland hafði lengi verið fast í viðjum spillts flokka- kerfis. Það vildi bara svo til að lækn- ingin var verri heldur en sjúkdóm- urinn. Með þetta í huga fer maður einnig að skilja hversvegna hún virkaði svona heillandi á marga Ís- lendinga. Hún átti að vera patent lausn á öllum þeim vandamálum sem fylgdi íslensku fyrirgreiðslu- pólitíkinni. Vinstrimenn höfðu enga sambærilega lausn. Í staðinn voru þeir settir í þá stöðu að þurfa að verja kerfi sem þeir höfðu raun- verulega aldrei trúað á til að byrja með. Byltingunni hafði verið stolið af þeim, það er því ekki að undra að þeir hafi verið hálfáttavilltir. Þetta var ein ástæða þess að allar gagn- rýnisraddir hurfu hægt og rólega. davíð, enn og aftur Næsti sökudólgur eru stjórnmála- flokkarnir, þá Sjálfstæðisflokkur- inn sérstaklega og ekki síst Davíð Oddsson sjálfur. Framsóknarmenn voru einnig með á þeim tímum þeg- ar stærstu ákvarðanirnar voru tekn- ar, og það er harmleikur Samfylk- ingarinnar að hafa tekið við þeirra hlutverki á lokasprettinum. Haust- ið 2008 var of seint að afstýra Hrun- inu, þó vissulega megi efast um þær ákvarðanir sem þá voru teknar. Snemma árs 2006 hefði slíkt verið hægt efnahagslega, en það er sam- dóma álit sagnfræðinganna Guð- mundar Magnússonar og Guðna Th. Jóhannessonar, sem mikið hafa fjallað um þessi mál, að slíkt var þá pólitískt ómögulegt. Það var enginn vilji fyrir því, hvorki meðal stjórn- málamanna, bankamanna eða al- mennings að skera bankana niður, og slíkt hefði mætt mikilli andstöðu alls staðar frá. Hvenær hefði þá mátt koma í veg fyrir Hrunið? Líklega liggur meginsökin í sjálfri einka- væðingu bankanna og því hvernig að henni er staðið. Hlýtur þar hlut- verk Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar að vega þyngst. Auðmennirnir og við Auðmennirnir eru þeir sem hafa þurft að sæta þyngstum sökum, bæði hjá almenningi og nú einnig að einhverju leyti hjá dómskerfinu. Enda voru það þeir sem á endanum frömdu verknaðinn, hvernig sem aðstæður voru. Það er ljóst að staða þeirra í sögunni mun verða mjög slæm, spurningin er frekar hvort að þeir verði þegar fram líða stundir taldir einu sökudólgarnir eða hvort fleiri munu verða nefndir. Þó ber að hafa í huga að þótt lög hafi verið brotin var ekki um beint bankarán að ræða í hefðbundnum skilningi. Frekar er hægt að tala um svindl, og ránið var aðeins loka- þáttur svindlsins. Líklega er erfitt fyrir marga að horfast í augu við þetta. Sá sem er rændur ber enga sök sjálfur, slíkt getur í raun hent hvern sem er. Sá sem er svindlað á hlýtur hins vegar að vera að ein- hverju leyti auðtrúa. Og án þess hefðu hinir sökudólgarnir þrír varla komist jafnlangt og raun ber vitni. Sagan í framtíðinni umræða 28. maí 2010 föstudagur 21 myndin Hver er maðurinn? „Davíð Þór rúnarsson.“ Hvað drífur þig áfram? „Fegurð lífsins á hverjum einasta degi og það að fá að hitta val í Buttercup á hverjum degi.“ Hvar ertu uppalinn? „Sauðarkróki.“ Hver eru þín helstu áhugamál? „Fótbolti, póker og eiga góða stund með góðum vinum.“ Með hvaða liði heldur þú á HM í sumar? „er það ekki bara þetta klassíska, argentína?“ Af hverju pókermót? „Því það er það sem ég geri best.“ Hverjir koma að skipulagningu þess? „velunnarar og vinir á Gullöldinni í Grafarvogi. Það þekkja allir alla hérna við viljum leggja okkar af mörkum til að styðja við fjölskylduna á þessum erfiðu tímum. Ég vil taka það fram að þetta er sameiginlegt átak marga einstaklinga þó svo að ég sé í forsvari hér.“ Var auðvelt að safna vinningum fyrir mótið? „við komum alstaðar að opnum dyrium og fólk sýndi þessu mikinn samhug. icelandair var eina fyrirtækið sem ekki vildi gefa vinning því það vildi ekki láta bendla sig við póker. manni finnst það skjóta skökku við þar sem fyrirtækið berst fyrir því að spilavíti verði leyfð á landinu.“ Hvað býst þú við mörgum þáttakendum? „Ég býst við mörgum. Samhugurinn og samúðin er það mikil í kringum þetta hræðilega fráfall.“ Hefur þú skipulagt eitthvað þessu líkt áður? „Já, ótal oft.“ maður dagsins dómstóll götunnar kjallari VAlur gunnArSSon rithöfundur skrifar „Fyrsti söku- dólgurinn er frjálshyggj- an sjálf.“ Veitt í Vífilstaðavatni Fuglar og menn hafa notið veðurblíðunnar á suðurlandi undanfarna daga. Þessi nútímalegi veiðimaður lét veiðina ekki aftra sér frá því að svara í símann úti í miðju vífilstaðavatni. engum sögum fer af aflabrögðum með þessari nýstárlegu aðferð. Mynd Sigtryggur Ari dAVíð Þór rúnArSSon hélt í gær ásamt samstarfsmönnum sínum á Gullöldinni í Grafarvogi og fleiri aðilum pókermót til styrktar fjölskyldu drengsins sem lést nýverið af slysförum í leiktæki. Davíð segir samhuginn vera mikinn í hverfinu og að lítið mál hafi verið að fá vinninga fyrir mótið hjá öllum nema icelandair. Samhugurinn mikill í hverfinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.