Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 22
Kosningabarátta vorsins hefur sannarlega verið einkennileg. Framan af minnti hún helst á vin- áttulandsleik þar sem leikmenn hugsa meira um að sleppa fyrir horn án frekari meiðsla en beita sér af grimmd og afli. Enda ansi fáir í stúk- unni. Stjórnmálaflokkarnir mættu laskaðir til þessa leiks; þrír þeirra komu með staf, hækju og í hjólastól út úr eldskýrslu Rannsóknarnefndar og sá fjórði líður fyrir erfiða ríkisstjórnarsetu, klofning og Icesave. Á milli þessara gömlu flokka er eins og átökin vanti. Enginn þorir að ganga fram af afli af ótta við að slíkt muni beina illu ljósi að honum sjálf- um. Hvar eru frambjóðendurnir? Hvar eru hug- myndirnar? Hvar er neistinn? Fólk sem eitt sinn ætlaði sér í borgarstjórastól er nú horfið undir hann. Fólk sem áður var á útopnu í öllum miðl- um er nú með lokaðan síma. Fólk sem bloggaði daglega í prófkjörsbaráttu þegir þegar á hólm- inn kemur. Og sjálf stendur borgarstýran í rán- dýrri auglýsingu og þorir ekki að horfast í augu við kjósendur heldur talar framhjá vélinni. Kannski er þetta bara frekar feluleikur heldur en vináttuleikur? En því ætti fólk að kjósa fram- bjóðendur sem fela sig fyrir því? 2007-lúkkið Sé horft á kosningabaráttuna er greinilegt að gömlu flokkarnir hafa lítið lært af viðburðum síðustu missera. Áfram er keyrt á illa smörtu auglýsingastofulúkkinu, eins og 2007 hafi aldrei fengið sitt skaup. Vel farðaðir frambjóðendur fara með almennt orðaða frasa. Hvergi glittir í önnur vinnubrögð, uppgjör, hvað þá grasrót eða „raunverulegt fólk“, nema þá helst hjá Vinstri grænum, sem tóku sig til og stálust til að ump- otta heilli umferðareyju og kölluðu „rángarð- yrkju“. Einn flokkurinn virðist meira að segja hafa játað sig sigraðan fyrir fram og flaggar eng- um stefnumálum heldur hrópar upp úr gröf sinni: „Þú meinar Einar!“ Eftir lengsta kjörtímabil sögunnar, stútfullt af hinum fáránlegustu skandölum, sem átti að gefa okkur langþráðar kosningar, er hin réttláta reiði víðsfjarri. Því miður. Minnisleysi Íslend- inga fer síst minnkandi. Flokkurinn sem seldi sig fyrir 1% mann í borgarstjórastól er enn með tveggja stafa fylgi. Og hinir flokkarnir eru hættir að minna fólk á syndir hans. Það er engu líkara en að 30 ár séu liðin frá því Vilhjálmur Þ. og Ól- afur F. voru borgarstjórar í Reykjavík. Fyrir rúmu ári fóru fram alþingiskosning- ar, nokkrum mánuðum eftir að efnahags- og stjórnmálakerfi landsins hrundi með tilheyr- andi heimsfréttaflutningi. Í sjónvarpsumræð- um á lokakvöldi kosningabaráttunnar gleymdist þó alveg að minnast á þessa staðreynd. Stjórn- málafólkið fékk engar spurningar um Hrunið. (Sá sem þar sat og spurði er nú reyndar floginn til Osló. Kastljósstjórinn nýi telur Eurovision mikilvægari kosningu en þá sem fram fer sama dag til sveitarstjórna á Íslandi.) Og nú virðist það sama uppi á teningnum. Borgarstjórinn sleppur við allar erfiðar upprifjanir en stendur brosandi með þrjár brýr brenndar að baki sér og talar um að nú þurfi fólk að vinna saman. Sú sem áður varði svikaverkin vill nú verða góða stelpan. Og inn í þetta ástand kemur Besti flokkur- inn og stelur öllum senum, nakti maðurinn sem hleypur inn á völlinn í miðjum vináttulandsleik, sem fyrir vikið verður minnst fyrir það eitt að stöðva þurfti leik í miðjum klíðum. „Lausnarinn“ Sagan sýnir okkur að alltaf þegar kerfi hrynja koma læti, óeirðir ef ekki bylting, þá þreyta, síðan uppgjöf, og loks „vonarstjarnan“, frægt eða ófrægt hressingarmenni sem fær fólk til að gleyma „leiðindunum“ og erfiðleikunum í ein- földum frösum. Þegar allir eru dauðir í Hamlet gengur hinn sterki Fortinbras inn á sviðið og tekur við völdum í ríki efans. Franska byltingin gat af sér Napóleon. Ítalska hrunið færði þeim Berlusconi. Þegar þreytan og reiðin hafa lamað lýðinn birtist hinn óvænti lausnari og stígur inn á blóði drifinn völlinn. Við vissum vel að einhver slík- ur kæmi. Við honum var að búast. En einhvern veginn sá maður fremur fyrir sér einhvern hommahatandi brjálæðing utan af kanti eða vel reykta reiðirödd innan af Rúmfatalager. En nei. Í staðinn fengum við einn af miðjunni, sjálfan vinsælasta mann landsins. Djók eða ekki djók Að þessu sinni stígur lausnarinn fram í gríni. Það er öruggara. Þannig líður öllum betur og enginn hefur neinu að tapa. Ef illa fer má alltaf segja „djók!“ Ef vel fer má líka segja „djók!“. Og með því að hafa grínið nógu loðið er hægt að láta glitta í alvöruna og rugla fólk í ríminu. Enda er staðan nú þannig að enginn (ekki einu sinni stuðningsmenn Besta flokksins) vita hvort boð- ið er fram í gríni eða alvöru. En þótt efsti mað- ur á lista geti verið fyndinn rjátlast af mönnum grínið eftir því sem neðar dregur og inni á Fés- bókinni fara fulltrúar flokksins fram í fullri al- vöru. Þar er Besta flokknum lýst sem raunveru- legu svari við gjaldþroti hinna flokkanna. Þar er hlaupið í varnir fyrir misgrínaktuga frambjóð- endur og jafnvel verðlaunaskáld sem aldrei áður hafa skipt sér af pólitík leggja sig í það að útskýra mislukkaða brandara foringjans. Allt hringir þetta bjöllum. Hryllingsbjöllum. Eða hvenær gerðist það síðast hér á landi að nokkra undirforingja þurfti til að réttlæta orð yfirforingjans í hvert sinn sem hann opnaði munninn. Muna menn ekki frasana? „Er ekki málfrelsi á Íslandi?“ „Má Davíð ekki tala?“ Ástandið er strax farið að minna á Ítalíu Berlusconis þar sem verið hefur nánast ólíft undanfarin ár fyrir persónu forsætisráðherr- ans. Nær öll pólitísk umræða fer í að vinda ofan af heimskulegum ummælum og ósmekklegum bröndurum foringjans. Hér þarf fólk, sem helg- að hefur sig borgarmálum og unnið alla mögu- lega heimavinnu, skoðað hundrað skýrslur og unnið ítarlegar aðgerðaráætlanir, á sér heitar hugsjónir og hefur barist fyrir þeim allt sitt líf, að játa sig sigrað fyrir manni sem segir lítið annað en: „Þetta er bara leiðinlegt. Reykjavík á að vera skemmtileg borg. Ísbjörn í Húsdýragarðinn!“ „Stórmerkileg samfélagstilraun“ Og þessum orðum er fagnað. Jafnvel víðförlir og vellesnir menntamenn taka trúðskapnum opn- um örmum og kalla „stórmerkilega samfélags- tilraun“. Þjóð sem enn sýpur seyði af einni slíkri skal demba sér strax í næstu. Þá er því framboði hrósað sem „tekst að tala til fjöldans“ því engin önnur fjöldahreyfing íslensk hafi vaxið svo hratt. En menn gleyma því þá að hrattvaxandi fjölda- hreyfingar eru viðsjárverðar í eðli sínu, ekki síst þegar þær snúast meira og minna um persónu eins manns, eins og Besti flokkurinn gerir. Mannkynssagan segir okkur: Eftir hrun kem- ur skrum. Popúlismi og persónudýrkun hafa löng- um tekið við af úreltum og gjaldþrota stjórn- málakerfum en sjaldnast skilað þjóðum á betri stað. Ég get vel tekið undir þá gagnrýni að sla- gorð stjórnmálaflokkanna „Vinnum saman!“ og „Vekjum Reykjavík!“ eru lítið gefandi og eiga skilið grínhögg á við „Ísbjörn í Húsdýragarðinn“. Vandinn hefst hins vegar þegar Ísbjarnarfólkið er komið í meirihluta, þegar Spaugstofan sest við ríkisstjórnarborðið. Það hlýtur að mega ótt- ast uppgang ólíkindatóls sem aldrei hafði áhuga á pólitík en tekst á nokkrum vikum að fá meiri- hluta borgarbúa til að kjósa sig til borgarstjóra. „Varðhundar fjórflokksins“ En vogi menn sér í þá átt eru þeir hins vegar út- hrópaðir „varðhundar fjórflokksins“, hins gjald- þrota stjórnmálakerfis. Ekki má gagnrýna grín- ið, jafnvel þótt það sé nú komið með meirihluta í borgarstjórn. En það er í eðli gríns og djóka að um leið og þau fá völdin missa þau hláturs- magnið. Grínari sem segir gyðingabrandara er bara þriðja flokks grínari (janvel þótt hann hafi verðlaunaskáld til að „útskýra“ djókið eftir á) en borgarstjóri sem segir gyðingabrandara er skömm allra borgarbúa. Við Íslendingar höfum lengi verið duglegir að taka hlutina ekki of alvarlega. „Hvað, voða- lega eru menn eitthvað viðkvæmir,“ er eitt það versta sem Íslendingur getur sagt við annan. Maður var að vona að Hrunið hefði hér ein- hverju breytt, að fólk sæi nú sem er að hjá- seta, þöggun og sofandaháttur, sem setti sitt átómatíska X við D í öll þessi ár, getur haft hinar hræðilegustu afleiðingar. En því er ekki að heilsa. Hér virðist þjóðin fremur ætla að refsa sér fyrir að hafa sofið og treyst á tröllin öll þessi ár með því að gera hreinlega grín að atkvæði sínu og kjósa kúlið og tómhyggjuna. „Allskonar fyrir aumingja!“ Það er sama gló- pabjartsýnin og heltekur okkur í hverri Júró- visjón sem fær fólk til að trúa því að Jón Gnarr verði góður borgarstjóri. Siðferðishluti Rannsóknarskýrslunnar virð- ist lítil áhrif ætla að hafa. „Best-í-heimi“-hrok- inn verður vart jarðaður með “Besta flokknum” sem í bíræfni sinni gerir auk þess þekktasta „út- rásarlagið“ að einkennislagi sínu. Þjóðin veit upp á sig skömmina en í stað þess að bæta ráð sitt og dýpka umræðuna er öllu slegið upp í grín. Kjósendur „hrunflokkanna“ fyllast sjálfshatri og refsa sér með því að kjósa skrumið eitt. Ég vona svo sannarlega að ég hafi rangt fyrir mér en þó er ansi hætt við því að timburmennirnir eft- ir þetta nýjasta þjóðarfyllerí verði öllu meiri en sigurgleðin á kosninganótt. Æ, góði Besti Sem grínframboð er Besti flokkurinn langt frá því nógu beittur. Hundrað glötuð tækifæri blasa við. (Styrkjamál, mútugreiðslur, verk- takaræði, skipulagsklúður, orkuveitusukk, meirihlutaflakk og hinir furðulegu borgar- stjórnarfundir þar sem ræðumaður talar út í tómið á meðan allir hinir lesa Fésbók.) En það er auðvitað skiljanlegt þar sem framámenn Besta hafa ekki haft neinn áhuga á pólitík hing- að til. Sjálfur hafði foringinn aldrei fylgst með stjórnmálaumræðum í fjölmiðlum né vissi hann hver Hanna Birna var áður en kosninga- baráttan hófst, að því er hann sjálfur segir. Grínið gat því vart orðið mjög beitt. Sem alvöruframboð er Besti flokkurinn svo auðvitað frekar varhugavert. Ísbjörn í Hús- dýragarðinn kostar að líkindum hátt í milljarð, og telst þó varla „atvinnuskapandi stórfram- kvæmd“. En sjálfsagt getur borgarstjórinn nýi út- skýrt niðurskurðinn á leikskólunum fyrir börn- unum með því að segja að ísbjörninn hafi étið listnámið þeirra, og hlegið sínum kunna hlátri á eftir. Grín með broddi hefur vald. En grín með valdi hefur þann eina brodd sem potar og pirrar. Tómarúmstryllir Tómarúmið sem Hrunið og Skýrslan skilja eftir sig kallaði auðvitað á eitthvað annað en dauðasvalt tómhyggjugrín. Hér var tækifæri fyrir gamla flokka að leggja sig niður og stokka sig upp eða fyrir ný framboð með hugsjónir handa „Nýju Íslandi“, raunverulegar endur- bætur. Ekkert af því finnst í Besta. Jón Gnarr er fyrst og fremst að gera grín, sem skerpuleysis vegna verður svo loðið og lævíst að sumir taka það alvarlega en aðrir í fullri alvöru, grínlaust. Stöku sinnum skín þó í pólitík í máli hans. Orð hans um frelsi til súludansa og krakkreykinga bjóða upp á síðpólitíska túlkun: Þegar loftið lak úr frjálshyggjunni gerðist hún galtóm að innan og breyttist í gargandi grínandi tóm- hyggju. Gnarrinn stígur inn í erfitt ástand og notfær- ir sér það. „Exploiting the Masses“ er frasi sem kemur upp í hugann. Og kunningjarnir eru til í tuskið, stökkva á vagninn og hrífa vinina með. Flestir eru stuðningsmennirnir fólk sem aldrei gaf sig upp í pólitík, stóð þögult og meðvirkt hjá allan Davíðstímann og þorði ekki út á götur eft- ir Hrun af ótta við að lenda á mynd með Sturlu Jónssyni. „Hallærislegt“ voru orð þess um „lið- ið“ sem stóð gegn græðgisvæðingunni og „hall- ærislegt“ yrði það sjálft með búsáhöld sín á göt- um úti. Kúlið var þeirra kóngur. Og nú trommar bestafólkið fram með sína listfínu og stílborg- aralegu versjón af byltingunni, undir merkjum „anarkó-súrrealisma“, löngu úreltu töfraorði sem enn má þó nota til að opna merkingardjúp úr hvaða rugli sem er. Græneygt fyrir hættum valdsins geysist fólk fram og spyr hvorki sjálft sig né aðra að leikslokum. Ég má til með að vara það við: Valdið gerir hvern mann að trölli. Til að lifa slíkt af þarf hann tröllatrú kjósenda sinna. Flippið og fjörið dugir aðeins hálfa leið. Byltingarát En auðvitað hefur enginn einkarétt á bylting- unni. Fólki er frjálst að gera það sem það vill, kjósa það sem það vill. En öðrum er líka frjálst að vara við. Því hér rætist sagan aftur og enn: Þeir sem börðust hvað harðast, þeir sem felldu ríkis- stjórn með eldi framan við Þjóðleikhúsið, urðu of þreyttir til að bera merkið áfram. Og þá stíga fram þau sem heima sátu. Napóleon hafði ekk- ert með frönsku byltinguna að gera en reis þó upp á öxlum þess merka fyrirbæris. Byltingin étur börnin sín og síðan kemur ein- hver og étur byltinguna. Jón Gnarr er ekkert svar við Hruninu. Hann er bara tómarúmstryllir. Hvað skal kjósa? En hvað eigum við þá að kjósa, við sem ekki hrífumst með straumnum? Hjálmar Sveins- son er réttasti maðurinn inn í skipulagsráð en Samfylkingin er illa hrjáð af styrkjaveikinni og hefur ekki leitað sér lækninga. Á móti kem- ur að atvinnustefna Dags er raunhæf leið út úr kreppunni. Vart þarf að leiða hugann að yfir- hrunsflokknum, Sjálfstæðis, sem situr uppi með ljótasta leik í íslenskri pólitík síðustu ára er hann gerði Ólaf F. að borgarstjóra. Framsókn er sem fyrr segir dauður flokkur. Vinstri græn eru sak- laus af Hruni og því ómaklega talin með „hrun- flokkunum“. Fljótt á litið virðist VG vera eina skjólið fyrir okkur vinstrimenn sem viljum kom- ast úr smithættu og lítum ekki við grínismanum. En svo eru það litlu framboðin öll, sem maður man varla hvað heita. Kannski skeður eitthvað í lokaumræðunum? Bestur fyrir kosningar? Jón Gnarr má eiga það að honum tókst að gera kosningarnar spennandi. Vináttulandsleik- urinn snerist að lokum upp í alvöru slag. En ábyrgð hans er mikil og mun vaxa enn að lið- inni kosninganótt, í takt við spennuna sem fylgir þessu ólíkindaframboði. Er flokkurinn kannski „Bestur fyrir 29.05.10“? Hvað verður um Gnarr á mánudaginn? Möguleikarnir eru nokkrir: A) Hann fær hreinan meirihluta, segir „djók!“ og hættir. B) Fær hreinan meirihluta og verður grínborgarstjóri. C) Fær hreinan meiri- hluta og verður alvöru borgarstjóri. D) Lend- ir í minnihluta, segir „djók!“ og hættir. E) Verð- ur í minnihluta og hangir inni, með uppistand á borgarstjórnarfundum. F) Fær ekki hreinan meirihluta og fer í samstarf við annan flokk. G) Verður í minnihluta en breytist í „venjulegan“ stjórnmálamann sem kemur sterkur til baka í næstu kosningum. Möguleikar A, B og D munu gera alla brjál- aða. Möguleiki C mun fær okkur nýjan Davíð og nýja ljótuklíku. Möguleiki E virkar saklausastur. Möguleiki F mun sjá okkur fyrir fréttum næstu fjögur árin og möguleiki G mun færa okkur ís- lenskan Berlusconi. Og við sem héldum að „ruglið í Reykjavík“ hefði náð hámarki … En komi hrun eftir skrum má alltaf kalla á VG til að þrífa eftir partíið. 22 föstudagur 28. maí 2010 tómarúmstryllirinn „Valdið gerir hvern mann að trölli. Til að lifa slíkt af þarf hann tröllatrú kjósenda sinna. Flippið og fjörið dugir aðeins hálfa leið.“ HaLLgrímur HeLgaSon rithöfundur skrifar KOSNINGAR2010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.