Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 25
Fegrum hverfin Græna byltingu í Reykjavík. Veljum endurnýjun Ný hugsun í íslenskum stjórnmálum er nauðsynleg og heitir endurnýjaður listi Framsóknar því að starfa með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi og sýna þeim kurteisi, virðingu, trúnað og heiðarleika í viðmóti og umræðu. ÞÚ MEINAR Einar Skúlason skipar 1.sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hann er með BA gráðu í stjórnmálafræði og MBA gráðu frá Edinborg. Einar stjórnaði Alþjóðahúsinu um árabil við góðan orðstír. Hann er þriggja barna faðir í Hlíðunum. EINAR Sköpum störf Við ætlum að búa til störf með viðhaldi á húsum, meiri ferðamennsku, með því að endurvekja Aflvaka, með því að nota Orkuveituna til að laða að fyrirtæki og svo framvegis og svo framvegis. Margt smátt gerir eitt stórt. Verjum velferðina Þetta er vissulega klisjukennt slagorð, en kannski er bara ekki hægt að segja þetta öðruvísi. Það verður að verja velferðina, standa vörð um hana. Tímarnir eru erfiðir. Fólk má ekki lenda á götunni, börnin verða að fá góða menntun, það þarf að hugsa um eldri borgarana og það þarf að tryggja börnum leikskólapláss. Þannig er það bara. Aukum lýðræðið Við viljum að 5% borgarbúa á öllum aldri geti með undirskriftum komið máli á dagskrá borgarstjórnar. Hækkum ekki skatta Fjölskyldur eiga nógu erfitt með að láta enda ná saman. Við munum ekki hækka skatta og gjaldskrár umfram verðbólgu. framsokn.is/reykjavik FRAMSÓKN Í REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.