Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Qupperneq 34
34 föstudagur 28. maí 2010
Fékk að kyssa drauma-
stúlkuna í flöskustút
Baldvin Jónsson, oddviti
Reykjavíkurframboðsins
1. Hvað gerðir þú síðastliðið laugardags-
kvöld? Ég bar út bæklinga í Vesturbænum fyr-
ir Reykjavíkurframboðið. Lauk kvöldinu síðan
með smá vafri og sjónvarpsglápi.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun? „Yes,
konan vaknar með börnunum í dag!“ Við skipt-
um gjarnan með okkur frídögunum til að annað
okkar geti sofið aðeins lengur.
3. Hvað lýsir þér best? Úff, er ekki komið nóg
af sjálfumglöðum yfirlýsingum fólks um eigið
ágæti?
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku? Týnd-
ur á 17. júní á Kópavogstúninu, líklega árið
1975. Hinar minningarnar urðu flestar ánægju-
legri sem betur fer.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti koss-
inn? Í bekkjarpartíi, líklega í ellefu ára bekk. Við
vorum í flöskustút og ég hitti á að mega kyssa
draumastúlkuna mína.
6. Hefur þú einhvern tímann fengið sælu-
hroll? Ef já, hvenær og af hverju? Já, ég fæ ít-
rekað sæluhroll. Fæ stöðugan sæluhroll þegar
börnin mín eru í kringum mig. Þegar konan mín
knúsar mig. Og þegar ég sit einhvers staðar úti í
náttúru Íslands, anda djúpt og horfi í kringum
mig. Við erum svo rík sem þjóð að búa í þessari
paradís.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur gert?
Ég var hálfgerður vandræðaunglingur og gerði
margt sem ég þurfti síðar að bæta fyrir. Í dag
felst „villan“ í mér aðallega í því að fá útrás í
fjallaferðum á ýmiss konar vélknúnum tækj-
um og gönguferðum. Hef líka ofsalega gaman
af köfun.
8. Hefur þú verið nakinn í óbyggðum? Að
sjálfsögðu.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en áfengi?
Reykt hass? Já, komst fljótlega að því að ég réði
ekki við neitt þeirra og hef því látið það allt vera
í 20 ár.
10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Ekki
viss. Ég týndi bíl í gamla daga sem fannst aldrei
aftur. Því miður mundi ég ekki fyllilega sjálfur
hvað ég hafði gert við hann.
11. Hefur þú verið tekinn af lögreglunni? Já,
ég átti erfitt með að aka innan hraðatakmark-
ana fyrstu árin eftir að ég fékk prófið. Strákar á
aldrinum 17–23 ára eru því miður fremur léleg-
ir bílstjórar í raun en trúa því allt of margir að
þeir séu besti bílstjórinn í bænum.
12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar
væri það? Væri til í að kíkja við í næstu víddum
eins og þær eru settar fram í þríleik Philips Pull-
man, His Dark Materials.
13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja
prófa? Sjá? Gera? Mig langar að prófa fallhlíf-
arstökk einn daginn, það hefur heillað mig allt
frá því að ég fór í teygjustökk.
Sjá? Mig langar að sjá þjóðina sameinast aftur
um samfélagið okkar. Samfélagsleg ábyrgð hef-
ur sjaldan verið minni og orsakavaldar hruns-
ins hafa litla ábyrgð tekið.
Gera? Mig langar að koma heiminum öllum í
skilning um að sjálfbærni er betri bissness. Að
það sé arðbærara fyrir alla til lengri tíma litið að
viðhafa sjálfbærni í öllum rekstri.
14. Hver er besta stundin sem þú hefur upp-
lifað? Fæðing barnanna minna. Það hljóm-
ar klént en þetta var bara svo ótrúleg upplif-
un. Ekkert hefur breytt mér jafn mikið og jafn
skyndilega og það að verða pabbi.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast? Ég
kyssti konuna mína bless þegar ég fór að heim-
an áðan.
16. Hefur þú gleymt afmælisdegi einhvers
sem skiptir þig máli? Allt of oft, ég var ömurleg-
ur varðandi afmælisdaga og viðburði í lífi fólks-
ins míns þar til nútímatækni fór að minna mig
á.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu síð-
ast? Ég hef tvisvar gleymt barninu mínu og það
hvoru í sínu lagi. Í bæði skiptin vegna þess að ég
gleymdi því að það var ég sem átti að sækja þau
á leikskólann.
18. Hver er einmanalegasta stundin sem þú
hefur upplifað? Er ekki viss, ég upplifi sjaldan
einmanaleika, held ég. Ég verð helst einmana
þegar ég er einn heima í einhverja daga. Heim-
ilið er eitthvað svo tómt þegar konan og börnin
eru ekki á staðnum. Leysi það yfirleitt bara með
því að halda mér uppteknum við eitthvað ann-
að.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur
fengið? Það er erfitt að benda á eina staka mál-
tíð, en er ofsalega hrifinn af snöggsteiktri ís-
lenskri villibráð.
20. Hefur þú svikið einhvern? Já, allt of oft.
Hin hliðin á oddvitunum
Þeir eru alls staðar þessa dagana, þessir oddvitar. Samt hefur þú aldrei kynnst þessari hlið á þeim. Við fengum
þá nefnilega til þess að svara nokkrum persónulegum spurningum af einlægni og heiðarleika. Þeir svitnuðu
allir við tilhugsunina og Sóley sagði að þetta væri það erfiðasta sem hún hefði gert í pólitík. Hún gerði það
samt, eins og þau öll, og þau gerðu það vel. Þetta er hin hliðin á oddvitunum.
KOSNINGAR2010