Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Page 40
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Sigurbjörg Viggósdóttir
verslunarmaður og bóndi í rauðanesi iii
Sigurbjörg fæddist í Rauðanesi og
ólst þar upp. Hún lauk unglingaprófi
frá Miðskólanum í Borgarnesi 1955
og stundaði nám við Húsmæðra-
skólann í Varmalandi 1958-59.
Sigurbjörg starfaði á ýmsum
stöðum á Akranesi og í Borgarnesi á
árunum 1956-61. Hún byggði, ásamt
eiginmanni sínum, nýbýlið Rauða-
nes III 1963 og hefur verið búsett þar
síðan.
Sigurbjörg hóf störf við Mjólkur-
samlagið i Borgarnesi 1980 og starf-
aði þar samfellt þar til mjólkurbúið
hætti starfsemi sinni. Hún stofnsetti
verslunina Ostahornið í Borgarnesi
1997 og starfrækti hana til 2000. Hún
hefur síðan starfað á Hyrnunni og í
Samkaupum í Borgarnesi.
Sigurbjörg var virk í félagsstörf-
um á vegum ungmennahreyfingar-
innar um árabil og sat í stjórn Ung-
mennasambands Borgarfjarðar um
skeið. Hún hefur setið í sóknarnefnd
Borgarkirkju og verið meðhjálpari
við kirkjuna um árabil. Þá er hún nú
félagsmaður í Lionsklúbbnum Öglu i
Borgarnesi.
Fjölskylda
Sigurbjörg giftist 29.8. 1959 Ingi-
bergi Bjarnasyni, f. 13.7. 1933, d.
13.9. 2005, bifvélavirkja og bónda
að Rauðanesi III. Hann var sonur
Bjarna Theódórs Guðmundssonar,
sjómanns að Kletti í Nesjum í Aust-
ur-Húnavatnssýslu og síðar lengst af
sjúkrahússráðsmanns á Akranesi, og
Ingibjargar Sigurðardóttur húsmóð-
ur sem lést 1933. Stjúpmóðir Ingi-
bergs er Þuríður Guðnadóttir, ljós-
móðir á Akranesi.
Börn Sigurbjargar og Ingibergs
eru Bjarni Ingibergsson, f. 3.8. 1961,
byggingatæknifræðingur, kvæntur
Hallborgu Arnardóttur, f. 17.10. 1966,
og eru börn þeirra Berglind Anna, f.
14.5. 1990, og Arnar Freyr, f. 16.11.
1994; Ingveldur Herdís Ingibergs-
dóttir, f. 23.6. 1966, bóndi i Rauða-
nesi III, var gift Sigmari Helga Gunn-
arssyni, f. 22.11. 1965, og eru börn
þeirra Íris Hildur, f. 28.7. 1986, Valdís
Hrönn, f. 1.12. 1991, og Elín Heiða, f.
22.6. 1995; Margrét Ingibergsdóttir,
f. 26.10. 1970, iðnaðartæknifræðing-
ur og starfsmaður hjá Arion banka
en eiginmaður hennar er Helgi Jó-
hannesson og eru börn þeirra Elísa-
bet Inga, f. 6.9. 2006, og Karen Ósk, f.
9.3. 2009.
Sigurbjörg giftist 2009 Kristjáni
Jóhannssyni, f. 13.10. 1945, starfs-
manni hjá Mjólkursamlaginu í Búð-
ardal.
Systkini Sigurbjargar eru Guð-
jón Viggósson, f. 12.2. 1939, bóndi
í Rauðanesi II; Herdís Viggósdóttir,
f. 23.6. 1945, læknaritari á Akranesi;
Rósa Margrét Viggósdóttir, f. 19.4.
1949, bóndi í Rauðanesi I; Steinar
Bragi Viggósson, f. 8.7. 1950, d. 19.5.
2001, skipatæknifræðingur í Hafnar-
firði.
Foreldrar Sigurbjargar voru Viggó
Jónsson, f. 27.12. 1908, d. 19.5. 1999,
bóndi i Rauðnesi, og k.h., Ingveldur
Rósa Guðjónsdóttir, f. 2.8. 1916, d.
31.7. 1993, húsfreyja að Rauðanesi.
70 ára á laugardag 60 ára á sunnudag
Þórdís Ragnheiður Malmquist
félagsliði við Hss í grindavík
Þórdís fæddist í Gaulverjabæ í Árnes-
sýslu og ólst þar upp fyrstu fimm árin.
Hún flutti síðan að Melbreið í Stíflu í
Fljótum í Skagafirði þar sem hún bjó
hjá móður sinni og stjúpfóður til árs-
ins 1963. Þá flutti hún til föður síns í
Reykjavík, og eiginkonu hans, Ástu
Thoroddsen Malmquist, þar sem hún
bjó á gagnfræðaskólaárunum. Hún
var síðar búsett í Reykjavík á árunum
1991 til 2003.
Þórdís lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar og
stundaði síðar nám við öldungadeild
MH og við Tölvuskóla Íslands. Hún
útskrifaðist sem félagsliði frá Borgar-
holtsskóla 2003 og stundar nú sjúkra-
liðanám við FSS.
Þórdís starfaði við félagslega
heimaþjónustu hjá Reykjavíkurborg í
sjö ár og við sambýli og á hæfingarstöð
fyrir fatlaða á vegum SMFR í meira en
áratug. Hún starfar nú við aðhlynn-
ingu á hjúkrunarheimili aldraðra hjá
HSS í Grindavík.
Þórdís starfaði í málfreyjudeild-
inni Vörðunni í Keflavík, sem varð
síðar þekkt sem deild í ITC á Íslandi,
sat þar í stjórn og var ritari um skeið,
var trúnaðarmaður starfsmanna við
heimaþjónustu Reykjavíkurborgar að
Skógarhlíð 6 og síðar trúnaðarmaður
Félags íslenskra félagsliða og sat einn-
ig í stjórn bæði sem ritari, formaður
og síðast sem gjaldkeri. Hún er félagi
í líknarfélaginu Bergmáli. Þá er hún
einnig í stjórn Boðunarkirkjunnar að
Hlíðasmára 9 og tekur virkan þátt í
starfi hennar, sem sjá má og heyra á
FM 105,5 og á netútsendingum Boð-
unarkirkjunnar.
Fjölskylda
Þórdís giftist 29.5. 2004 Konráð Óla
Fjeldsted, f. 14.12. 1943, bifreiðaskoð-
unarmanni hjá Frumherja í Reykja-
nesbæ. Þau hjónin búa í húsi sem þau
byggðu í Steinási 16 í Njarðvík. Konráð
var ekkjumaður og á fimm uppkomin
börn. Saman eiga þau 16 barnabörn
og eitt barnabarnabarn.
Þórdís giftist 18.12. 1971 Ólafi Har-
aldssyni, f. 30.1. 1938, vörubifreiða-
stjóra í Keflavík. Þau skildu 1991.
Börn Þórdísar og Ólafs eru Sturla
Ólafsson, f. 31.7. 1971, ÍAK einkaþjálf-
ari og sjúkraflutninga- og slökkviliðs-
maður við Brunavarnir Suðurnesja,
í sambúð með Gunnlaugu Olsen en
hann á eina dóttur, Heiðbjörtu Dís,
og son, Víking Snorra, með fyrrv. eig-
inkonu, Helgu Ingimarsdóttur, auk
þess sem Sturla á tvo syni, Vigni Þór,
með Lilju Ómarsdóttur, og Aron Jens,
með Sæmundu Sigurjónsdóttur; Vig-
dís Ólafsdóttir, f. 30.12. 1975, grafísk-
ur hönnuður, gift Einari Jónssyni hdl.
en þau eiga tvo syni, Bjart Kára og Nóa
Má; Hlynur Ólafsson, f. 23.9. 1980, rek-
ur eigin húðflúrstofu við Hafnargötu í
Reykjanesbæ.
Hálfsystkini Þórdísar, sammæðra:
Bergur Ketilsson, f. 27.10. 1951; Rögn-
valdur Valbergsson, f. 4.2. 1956, org-
anisti; Aðalbjörg Valbergsdóttir, f. 4.6.
1957, starfsmaður við skammtíma-
vistun fatlaðra á Sauðárkróki; Valdís S.
Valbergsdóttir, f. 28.9. 1958, kennari á
Akranesi; Hannes Valbergsson, f. 24.7.
1962, rafeindafræðingur; Magnús Val-
bergsson, f. 6.10.1964, d. 31.10. 1980;
Snæbjörn Freyr Valbergsson, f. 25.5.
1973, tölvufræðingur.
Hálfbræður Þórdísar, samfeðra:
Guðmundur Malmquist, f. 13.1. 1944,
fyrrv. forstjóri Byggðastofnunar í
Reykjavík; Jóhann Pétur Malmquist,
f. 15.9. 1949, prófessor í tölvufræði við
HÍ.
Foreldrar Þórdísar: Eðvald Brun-
stead Malmquist, f. 24.2.1919, d. 17.3.
1985, yfirmatsmaður garðávaxta,
og Áshildur Magnúsdóttir, f. 29.9.
1930, húsmóðir. Edvald bjó lengst af
í Reykjavík en Áshildur er búsett á
Sauðárkróki í Skagafirði.
Ætt
Eðvald Brunstead var sonur Jóhanns
Péturs Malmquist, b. í Borgargerði í
Reyðarfirði Jóhannssonar, b. í Áreyj-
um Péturssonar. Móðir Jóhanns
Péturs var Jóhanna Indriðadóttir,
hreppstjóra í Seljateigi Ásmundsson-
ar. Móðir Eðvalds var Kristrún ljós-
móðir, systir Hildar, ömmu Regínu
fréttaritara og Guðrúnar, ömmu Eyj-
ólfs Kjalars Emilssonar heimspek-
ings. Bróðir Kristrúnar var Pétur, afi
Gunnars S. Magnússonar myndlistar-
manns. Kristrún var dóttir Bóasar, b.
í Stakkagerði og á Stuðlum i Reyðar-
firði, bróður Bóelar, langömmu Geirs
Hallgrímssonar og Karls Kvaran list-
málara.
Foreldrar Áshildar voru Magnús
Þórarinsson Öfjörð, bóndi að Gaul-
verjabæ í Árnessýslu, og Þórdís Ragn-
heiður Þorkelsdóttir húsfreyja.
Þórdís ætlar að bjóða upp á súpu
og létt meðlæti í sal Boðunarkirkjunn-
ar að Hlíðasmára 9, 3. hæð í Kópa-
vogi, laugardaginn 29.5. (á morgun)
kl. 16.00. Vonar að vinir og vanda-
menn sjái sér fært að líta við og njóta
þess sem er í boði og eiga góða stund
saman.
Guðrún fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún hefur alla tíð unnið við
verslunar- og kjötiðnaðarstörf, bæði
sölu og vinnslu á kjötvörum. Hún
starfaði m.a. í versluninni Krónunni
í Hlíðunum, og víðar, en lengst af
starfaði hún í versluninni Kjötmið-
stöðinni, fyrst á Laugavegi og síðan á
Laugalæk. Þá starfaði hún um árabil
við kjötvinnslu hjá Ferskum kjötvör-
um í Síðumúla.
Jafnframt verslunarstörfum
sinnti Guðrún húsmóðurstörfum..
Fjölskylda
Guðrún giftist 16.4. 1961 Jóni G.
Bergssyni, f. 26.1 1933, vélvirkja.
Hann er sonur Bergs Páls Sveins-
sonar, f. 5.10 1910, d. 5.8 1978, vél-
stjóra, og Ágústu Ragnheiðar Páls-
dóttur, f. 10.8 1913, d. 21.7 1963,
húsmóður í Reykjavík.
Börn Guðrúnar og Jóns eru Sig-
ríður Ágústa Jónsdóttir, f. 23.8. 1961,
meðferðarfulltrúi í Sandgerði, var
gift Marteini Ólafssyni, f 4.1.1959,
starfsmanni Olíufélaganna á Kefla-
víkurflugvelli, og eiga þau Þórdísi
en hún á tvö börn, Martein Eyj-
ólf, og Sigríði Ástu, Jón Guðmund,
Hafstein Alexander, og Valgeir Elís;
Björn, f. 25.9. 1963, bankastarfs-
maður, kvæntur Sigríði Berndsen,
f. 13.8. 1965, og eiga þau Karl Birgi,
Guðrúnu Söndru og Björn Inga;
Sigrún, f. 14.7.1965, verkakona, í
sambúð með Jóhannesi Snorrasyni,
f. 3.4. 1963, búsett i Reykjavík; Páll,
f. 16.9.1973, birgðastjóri hjá Baugi-
Aðfóngum, búsettur í Sandgerði, í
sambúð með Rebekku Rós Ellerts-
dóttur, f. 12.7. 1974 sem starfar við
meðferðarheimili og eiga þau Ág-
ústu Ragnheiði, Thelmu Dögg og
Björn Ellert.
Bróðir Guðrúnar er Þorvarður
Björnsson, f. 16.4. 1947, búsettur í
Svíþjóð.
Foreldrar Guðrúnar voru Björn
Guðmundsson, f. 27.12. 1910, d.
21.1. 1983, skipstjóri á Magna og
skipum Eimskipafélagsins og síðar
verkstjóri hjá Eimskip síðari árin, og
Sigríður Hansdóttir, f. 8.12. 1916, d.
14.12. 1983, húsmóðir.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
70 ára á föstudag
Guðrún B. Björnsdóttir
fyrrv. verslunarmaður
Steinunn Anna Sigurjónsdóttir
sálfræðingur á seltjarnarnesi
Steinunn fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Vesturbænum í Kópavogi.
Hún var í Kársnesskóla og Þing-
hólsskóla, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð, lauk
BA í sálfræði frá HÍ 2008 og er nú að
ljúka Cand.Psych.-prófi frá HÍ.
Steinnunn var verslunarstýra
við verslunina Völu á Sólheimum í
Grímsnesi árið 2001. Hún starfaði
eitt sumar hjá SÁÁ, hefur starfaði
við leikskóla á sumrin og sinnt stoð-
kennslu við HÍ samhliða námi.
Steinunn söng með Kársnes-
kórunum og Hamrahlíðarkórunum.
Hún sá um Málstofu Sálfræðideild-
ar HÍ 2008-2009, var deildarfulltrúi
nemenda í BA-náminu og í fram-
haldsnáminu.
Steinunn og Þóra Marteinsdótt-
ir unnu samkeppni um Kópavogs-
lagið í tilefni stórafmælis Kópavogs-
kaupstaðar árið 2005. Þóra samdi
lagið en Steinunn textann.
Fjölskylda
Maður Steinunnar er Þórður Rafn
Ragnarsson, f. 5.9. 1976, vörustjóri
hjá Stoð í Hafnarfirði.
Sonur Þórðar Rafns er Kári Alex-
ander Þórðarson, f. 5.7. 1999.
Dætur Steinunnar og Þórðar eru
Halldóra Ísold, f. 22.8. 2004; Áróra
Gunnvör, f. 15.1. 2007.
Systkini Steinunnar eru Stefán
Unnar Sigurjónsson, f. 17.7. 1975,
framkvæmdastjóri Miðstrætis;
Linda Björg Sigurjónsdóttir, f. 25.10.
1985, nemi og starfsmaður Álfa-
borgar; Logi Snær Emilsson, f. 19.5.
1995, nemi; Monika Lind Emilsdótt-
ir, f. 30.1. 1997, nemi.
Foreldrar Steinunnar eru Sigur-
jón Pétur Stefánsson, f. 11.7. 1955,
sölumaður og einn eigenda Hraun-
taks í Hafnarfirði, og Halldóra Þor-
gerður Leifsdóttir, f. 20.6. 1957, dag-
móðir og hómópati.
Steinunn byrjar afmælisdaginn
með því að fagna með dóttur sinni
sem þá er að útskrifast úr leikskól-
anum.
Steinunn og Þórður eiga sjö ára
sambandsafmæli sama daga og
munu því eyða deginum saman.
Síðan ætlar Steinunn að sitja í
sólinni, ásamt fjölskyldu og vinum,
í bakgarðinum hjá vinkonu sinni við
Hringbraut og grilla þar pylsur að
kvöldi afmælisdagsins.
30 ára á föstudag
40 föstudagur 28. maí 2010