Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Blaðsíða 48
48 föstudagur 28. maí 2010
NafN og aldur?
„Alfreð Finnbogason, 21 árs.“
atviNNa?
„Sumarstarfsmaður og skiltastjóri á fallegasta velli
landsins, Kópavogsvelli.“
Hjúskaparstaða?
„Einhleypur.“
fjöldi barNa?
„Ekkert sem ég veit af.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Ég og dýr eigum ekki samleið, þetta eru svo óút-
reiknanleg kvikindi. Hef þó þurft að lifa við það að
systur mínar hafi átt sinn skammt af þeim.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Dikta á Nasa. Hrikalega góðir.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Tandurhreint sakavottorð.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Jakkafötin, manni líður bara alltaf svo vel „suit
up“.“
Hefur þú farið í megruN?
„Nei, hef farið í aðhald en aldrei verið það illa kom-
inn að ég hafi kallað það megrun.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl-
um?
„Nei, ég læt aðra um það.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Eitthvað hlýtur að taka við.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að
Hafa Haldið upp á?
„MMMBop með Hanson Brothers var uppáhalds-
lagið mitt í svona 8 ár, true story.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Danska Eurovision-lagið 2009, Believe með Niels
Brinck, Kveikir alltaf í manni.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Sumarsins og allra áskorana þess.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aft-
ur?
„Old School og Happy Gilmore. Báðar óendanlega
fyndnar á sinn hátt.“
afrek vikuNNar?
„Fá 2M tvo leiki í röð.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, ekki fyrir svoleiðis.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Get gripið í gítarinn í neyð, ekki mikið meira en það.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Hef ekki kynnt mér málið nógu vel til að mynda
mér skoðun.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Að eiga góða vini og fjölskyldu og að njóta lífsins
meðan maður getur.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Davíð Oddsson, bara af því að hann er kóngurinn.
Væri samt til í að fara í drykkjuleik með Jóhönnu
Sigurðar og Þorgerði Katrínu til að sjá hvernig það
myndi enda.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst
vilja Hitta og af Hverju?
„Tiger Woods, til að fá það alveg á hreint hvað þetta
voru margar.“
Hefur þú ort ljóð?
„Einhvern tímann í grunnskóla, hélt mig bara við
fótboltann hins vegar.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Plataði Guðmund Kristjánsson, leikmann Breiða-
bliks, yfir í heimsókn í dulargervi stelpu á Face-
book.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Amma segir að ég sé líkur Ben Affleck.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Nei, þeir eru allavega ennþá leyndir fyrir mér.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Nei, áfengi er yfirdrifið nóg fyrir þessa þjóð.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Heima er alltaf best.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa?
„Klæði mig úr fötunum.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Jákvæðni.“
Alfreð Finnbogason, sóknarmaður í Breiðabliki, hefur farið á
kostum í byrjun sumars og líklega verið besti leikmaður deild-
arinnar til þessa. Hann á ekki samleið með dýrum og finnst
ekkert betra en að klæða sig í jakkaföt.
líkur affleck,
segir ammawww.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
Bylting í
haglabyssum
Benelli Vinci
er komin
Vesturröst
Sérve rs lun ve ið imanna Laugaveg 178 - 551 6770
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift