Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Qupperneq 56
EldrEfur fyrir iPad Mozilla hefur tilkynnt að von sé á sérútgáfu Firefox-vafrans fyrir iPad. Í vafr- anum verður hægt að virkja samhæfni við Firefox í annarri tölvu notandans þannig að bókamerki og vefrápssaga (history) séu þau sömu í báðum tölvum. iPad-útgáfa vafrans verður þó hálfnakin í samanburði við hefðbundnu útgáfuna en Firefox er einmitt þekkt- ur fyrir fjölhæfni varðandi stillingar og viðbætur. Í fyrri hluta júnímánaðar kemur Streak á markað, fyrsta Android-smá- tölva (tablet) Dell-fyrirtækisins. Smá- tölvan sem er smærri í sniðum en iPad sækir inn á annan markað en hin vinsæla tölva Apple-fyrirtækisins því Streak er líka 3G sími auk þess að hafa innbyggða 5 megapixla myndavél með flassi, fjölvinnslu (multitasking), útskiptanlega rafhlöðu og getur tek- ið við allt að 32GB MicroSD kort- um. Streak er búin 5 tommu snerti- skjá (800x480 pixla upplausn) með fjölsnertiviðmóti (pinch and zoom), Wi-Fi og Blátönn. Tölvan kemur fyrst á markað í Bretlandi og því næst í Bandaríkjunum. Áhugaverð smátölva frá Dell lítur dagsins ljós í næsta mánuði: Ofursími Eða smátölva? sjálfvirk salErni Japanir eru þekktir fyrir að feta ótroðnar slóðir þegar kemur að salernum en japanska fyrirtækið Toto sem framleiðir hreinlætistæki reynir nú fyrir sér á Evrópumarkaði með þessu sjálfvirka salerni. Salernið hefur innbyggða stúta sem sprauta volgu vatni að framan og aftan, stúta sem dæla heitu lofti til að þurrka viðkomandi eftir skolið og upphitaða setu. Sjálft lokið á klósettinu sígur niður sjálfkrafa þegar viðkomandi hefur lokið sér af. Þessi dýrð er allsendis ekki í ódýrari kantinum og kostar flottasta útgáfan hátt á þriðju milljón króna. Höfða mál gEgn WarnEr Warner-kvikmyndaframleiðandinn er að lenda í heldur grátbroslegum aðstæðum þessa dagana. Árið 2003 fékk Warner þýskt fyrirtæki til að sýna sér tæknilegar lausnir sem fyrirtækið hafði þróað til að rekja uppruna kvikmynda sem settar voru á netið til ólöglegs niðurhals. Samkvæmt þýska fyrirtækinu innleiddi Warner þessar lausnir ári síðar án þess að gera samning um aðgang eða greiðslu vegna hugverkaréttinda. Þýska fyrirtækið hefur nú höfðað mál í Þýskalandi og Bandaríkjunum vegna þessa og stefnt kvikmyndarisanum. facEbOOk Enn Og aftur Facebook kynnti í fyrrakvöld fyrirhugaðar breytingar sem fyrirtækið ætlar að gera á notenda- stillingum vefsvæðins sem hafa legið undir miklu ámæli undanfarnar vikur og mánuði. Breytingarnar munu líta dagsins ljós á næstu vikum en Mark Zuckerberg, annar af stofnendum Facebook, lýsti því yfir að allt viðmót yrði einfaldað varðandi friðhelgis- stillingar. Zuckerberg sagði við sama tilefni að fyrirtækið væri ekki að reyna að komast yfir persónulegar upplýsingar heldur hefði röð mistaka átt sér stað við þróun viðmótsins. UMSJón: PÁll SvanSSon, palli@dv.is Ógöngur micrOsOft Á aðeins einum áratug hef- ur Apple-fyrirtækinu með Steve Jobs við stjórnvölinn tekist að auka virði sitt margfalt. Í vikunni var sögulegum áfanga náð þeg- ar markaðsvirði fyrirtækisins var metið á rúmlega 222 milljarða Bandaríkjadala, en fyrir áratug var þessi tala tæpir 16 milljarðar. Með þessu skrefi steig Apple í fyrsta skipti fram úr keppinaut sínum, Microsoft, en markaðsverðmæti Microsoft er nú um 219 milljarð- ar Bandaríkjadala og hefur verið á hægri en stöðugri niðurleið und- anfarna mánuði. Þrátt fyrir þennan sögulega áfanga virðist toppinum þó ekki vera náð í uppgangi Apple en fyr- irtækið opnar fyrir sölu á iPad- tölvu sinni í níu löndum í vikunni og kynnir næstu kynslóð iPhone- snjallsímans í næsta mánuði. Apple er þegar orðinn stærsti söluað- ili smátölva (tablets) í heiminum í dag þrátt fyrir að aðeins séu tæp- lega tveir mánuðir síðan iPad kom á markað í Bandaríkjunum. Almenni markaðurinn Þessi þróun á sér ef til vill einfaldar skýringar, stór hluti tekna Micro- soft hafa frá fyrstu tíð falist í hug- búnaðarlausnum til fyrirtækja, á meðan Apple hefur einbeitt sér að þróa vél- og hugbúnað sem ætlað- ur er hinum almenna notanda. Og almenni markaðurinn er í dag orð- inn mun stærri tekjulind en það fjármagn sem felst í sölu til fyrir- tækjageirans. Snúa sér annað Þau tíu ár sem Steve Ballmer, fram- kvæmdastjóri Microsoft, hefur stýrt þessu stórfyrirtæki, virðist fyrirtæk- ið hafa glatað því hlutverki að vera leiðandi þegar kemur að nýrri tækni. Sem dæmi má nefna að þrátt fyr- ir uppstokkun á Windows Mobile stýrikerfinu nýverið hafa stærri við- skiptavinir og samstarfsaðilar Micro- soft snúið sér annað með hugbúnað fyrir smátölvur og snjallsíma. HTC, einn helsti viðskiptavinur Microsoft vegna Windows Mobile um árabil, er nú orðinn einn af stærstu notend- um Android-kerfisins frá Google. Hewlett Packard ákvað að kaupa frekar Palm nýverið og nota WebOs fyrir sínar smátölvur/snjallsíma og Dell hefur einnig snúið sér að And- roid en fyrirtækið hefur sölu á Dell Streak smátölvunni (tablet) í næsta mánuði. Stærra vandamál Android-stýrikerfið er sennilega mun viðameira vandamál fyrir Micro soft en Apple þessa dagana. Google afhendir vél- og hugbúnað- arþróendum kerfið frítt til notkunar í vörum sínum og með auðveldum hætti getur hvert fyrirtæki síðan þró- að eigin útgáfur af hugbúnaði með Android sem grunnkerfi. Microsoft getur ekki keppt á þessum mark- aði lengur án þess að fara svipaðar leiðir. Hvort Ballmer hafi kjark til að stíga það skref er óvíst en hluthafar Microsoft eru eflaust orðnir órólegir vegna stöðu fyrirtækisins. Framtíðarsýn? Það er kannski vert að rifja upp um- mæli Ballmers þegar iPhone kom á markað árið 2007: „Það er ekki möguleiki á því að iPhone komi til með að ná verulegri markaðshlut- deild. Ekki möguleiki“. Framtíðarsýn framkvæmdastjór- ans virðist vera jafn ábótavant á öðr- um sviðum ef horft er í þær aðstæð- ur sem blasa við í dag. palli@dv.is 56 föstudagur 28. maí 2010 HElgarblað Í huga flestra hefur Microsoft verið eitt öflugasta og stærsta tæknifyrirtæki heimsins um árabil. Ógöngur fyrirtækisins undanfarinn áratug með Steve Ballmer við stjórnvöl- inn hafa hins vegar leitt til þess að markaðsvirði fyrirtækisins lækkar stöðugt og er nú orðið minna en hjá Apple. Steve Ballmer Framkvæmdastjóri Microsoft á ekki bjarta daga fram undan miðað við þær ógöngur sem fyrirtækið er komið í. Dell Streak Er eflaust tæki sem mörgum þykir fengur í.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.