Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 67
STÖÐ 2 EXTRA
SjónvARpiÐ STÖÐ 2
07:00 Stóra teiknimyndastundin
07:25 Lalli
07:35 Harry and Toto
07:45 Hvellur keppnisbíll
08:00 Algjör Sveppi
09:30 Tommi og Jenni
09:50 Íkornastrákurinn
10:15 Scooby Doo
10:35 The Haunting Hour: Don‘t Think
About It
12:00 Fréttir Stöðvar 2
12:25 Nágrannar
12:45 Nágrannar
13:05 Nágrannar
13:25 Nágrannar
13:50 American Idol (40:43)
14:35 American Idol (41:43)
15:25 Grey‘s Anatomy (23:24)
16:10 Monk (16:16)
16:55 Oprah
17:40 60 mínútur
18:30 Fréttir Stöðvar 2
19:30 Frasier (19:24)
19:55 Sjálfstætt fólk
20:35 Cold Case (21:22) 7,7 Sjöunda spennuþátta-
röðin um Lilly Rush og félaga hennar í sérdeild
lögreglunnar þar sem þau halda áfram að upplýsa
sakamál sem stungið hefur verið óupplýstum ofan
í skjalakassann.
21:20 The Mentalist
(20:23) Önnur
serían af frumlegri
spennuþáttaröð
um Patrick
Jane, sjálfstætt
starfandi ráðgjafa
rannsóknarlögregl-
unnar í Kaliforníu.
Hann á að baki
glæsilegan feril
við að leysa flókin glæpamál með því að nota
hárbeitta athyglisgáfu sína. En þrátt fyrir það nýtur
hann lítillar hylli innan lögreglunnar.
22:05 Twenty Four (18:24) 8,9 Áttunda serían af
spennuþættinum Twenty Four um leyniþjónustu-
manninum
Jack Bauer
sem þráir nú
ekkert heitar
en að fá að
draga sig í
hlé. Þegar
neyðar-
ástand
skapast
í New York renna þau áform út í sandinn.
Höfuðstöðvar CTU hafa verið færðar þangað og
nýtt fólk er við stjórnvölinn. Því á sérþekking
hans eftir að reynast mikilvægari nú en nokkru
sinni áður.
22:55 60 mínútur
23:40 Daily Show: Global Edition
00:05 That Mitchell and Webb Look (5:6)
00:30 The Tudors (5:10)
01:25 Eternal
03:15 It‘s Always Sunny In Philadelphia
(6:15)
03:40 Cold Case (21:22)
04:25 The Mentalist (20:23)
05:10 Monk (16:16)
05:55 Fréttir
STÖÐ 2 SpoRT
STÖÐ 2 bíó
STÖÐ 2 SpoRT 2
SkjáR Einn
ínn
14:00 Lyfjahornið
14:30 Golf fyrir alla
15:00 Frumkvöðlar
15:30 Eldum íslenskt
16:00 Hrafnaþing
17:00 Græðlingur
17:30 Tryggvi Þór á alþingi
18:00 Kokkalíf
18:30 Í kallfæri
19:00 Alkemistinn
19:30 Í kallfæri
20:00 Hrafnaþing
21:00 Eitt fjall á viku
21:30 Eldhús meistaranna
22:00 Hrafnaþing
23:00 Hrafnaþing
23:30 Golf fyrir alla
08.00 Morgunstundin okkar
08.01 Húrra fyrir Kela! (20:26)
08.24 Lítil prinsessa (35:35)
08.34 Þakbúarnir (37:52)
08.47 Með afa í vasanum (37:52)
09.00 Disneystundin
09.01 Fínni kostur (34:35)
09.23 Sígildar teiknimyndir (36:42)
09.30 Finnbogi og Felix (21:26)
09.51 Hanna Montana
10.15 Ég elska mig
11.15 Medium Raw
11.30 Leiðin á HM
12.00 Aukafréttatími
12.30 Silfur Egils
13.50 Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva
17.20 Táknmálsfréttir
17.30 Friðþjófur forvitni (5:10)
17.55 Stundin okkar
18.25 Út og suður (6:15)
19.00 Fréttir
19.30 Veðurfréttir
19.35 Emma (4:4)
20.35 Berlinerpoplene (3:8) 6,8 Norskur
myndaflokkur
frá 2007 byggður
á vinsælum
skáldsögum eftir
Anne B. Ragde
um hversdagslegt
en um leið
óvenjulegt líf
Neshov-fjölskyld-
unnar. Leikstjórar
eru Anders T.
Andersen og Sirin
Eide og meðal
leikenda eru Nils
Sletta, Espen Skjønberg, Bjørn Sundquist, Jon
Øigarden, Andrine Sæther, Morten Rose.
21.30 Sunnudagsbíó - Der Besuch der
alten Dame 6,5 Þýsk sjónvarpsmynd frá 2008
byggð á þekktu leikriti eftir Friedrich Dürrenmatt.
Auðug eldri kona snýr aftur til heimabæjar síns til
að hefna sín á þeim sem hrakti hana burt þaðan
40 árum áður. Leikstjóri er Nikolaus Leytner
og meðal leikenda eru Lisa Kreuzer, Michael
Mendel, Muriel Baumeister, Christiane Hörbiger
og Dietrich Hollinderbäumer. Leikritið var sett
upp í Borgarleikhúsinu í fyrra undir heitinu
Milljarðamærin.
23.00 Silfur Egils Endursýndur þáttur frá því fyrr
um daginn.
00.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
15:05 The Doctors
15:45 The Doctors
16:25 The Doctors
17:05 The Doctors
17:45 Wipeout USA
18:30 ET Weekend
19:15 Ísland í dag - helgarúrval
19:45 Matarást með Rikku (4:8)
20:15 Auddi og Sveppi
20:45 Steindinn okkar
21:10 The Power of One
21:40 Supernatural (12:16)
22:20 Sjáðu
22:45 ET Weekend
23:30 Fréttir Stöðvar 2
00:15 Tónlistarmyndbönd frá Nova TV
08:20 The Seeker: The Dark is Rising
10:00 French Kiss
12:00 Hairspray
14:00 The Seeker: The Dark is Rising
16:00 French Kiss
18:00 Hairspray 7,2
20:00 Mystery Men 5,8 Skrautleg gamanmynd
sem fjallar um hóp lánlítilla ofurhetja. Hinn illi
Cassanova Frankenstein hefur ofurhetju borgarbúa
Kaptein Amazing í haldi og nú verða aðrar
ofurhetjur að láta til sín taka og bjarga deginum.
Þetta eru kannski ekki mestu ofurhetjur sem uppi
hafa verið enda kraftar þeirra oft ekki metnir að
verðleikum.
22:00 Old School 7,0
Grínmynd um þrjá félaga í
alvarlegri tilvistarkreppu.
Mitch, Frank og Beanie
hafa mátt þola ýmislegt en
þeir halda að lausn vandans
sé að upplifa ungdómsárin
aftur. Þremenningarnir
leigja sér stórt hús nærri
gamla skólanum sínum og taka upp gamla siði
og venjur. Ekki vantar fjörið en eftir dágóðan
gleðiskammt fara að renna tvær grímur á félagana.
00:00 Dying Young
02:00 Crank
04:00 Old School
06:00 Shopgirl
10:05 PGA Tour Highlights
11:00 Formúla 1 2010 (Tyrkland)
11:30 Formúla 1 2010 (Tyrkland)
14:15 F1: Við endamarkið
14:45 PGA Tour 2010
17:35 Pepsímörkin 2010
18:35 Inside the PGA Tour 2010
19:00 PGA Tour 2010
22:00 F1: Við endamarkið
22:40 NBA körfuboltinn (Boston - Orlando)
00:30 NBA körfuboltinn (Orlando - Boston)
14:45 Enska úrvalsdeildin (Bolton - Man. Utd.)
16:30 Premier League World
17:00 Football Legends
17:30 Enska úrvalsdeildin (Liverpool - Arsenal)
19:10 Enska úrvalsdeildin (Man. City - Stoke)
20:50 Enska úrvalsdeildin (Chelsea - Aston Villa)
22:30 Football Rivalries (Celtic v Rangers)
23:25 Enska úrvalsdeildin (Sunderland - Wolves)
06:00 Pepsi MAX tónlist
11:40 Rachael Ray (e)
12:25 Rachael Ray (e)
13:10 Dr. Phil (e)
13:50 Dr. Phil (e)
14:35 Dr. Phil (e)
15:15 The Real Housewives of Orange
County (6:12) (e)
16:00 Eureka (2:18) (e)
16:50 Survivor (1:16) (e)
17:40 Biggest Loser (5:18) (e)
19:05 Girlfriends (1:22)
19:25 Parks & Recreation (4:13) (e)
19:50 America‘s Funniest Home Videos
20:15 Psych (7:16) 8,8 Bandarísk gamanþáttaröð um
ungan mann með
einstaka athyglisgáfu
sem þykist vera
skyggn og aðstoðar
lögregluna við að
leysa flókin sakamál.
Gamall félagi Gus
er myrtur. Þeir voru
saman í söngkvartet
á háskólaárunum
og nú þurfa gömlu
söngfélagarnir að
koma saman á ný til að reyna að komast að því
hvers vegna hann var myrtur.
21:00 Law & Order: UK (4:13)
21:50 Californication (10:12) 8,7
22:25 Royal Pains (6:13) (e)
23:15 Life (6:21) (e)
00:05 Saturday Night Live 20:24) (e)
00:55 Pepsi MAX tónlist
DAGSKRá 28. maí 2010 FöSTUDAGUR 67
Hanna Birna og David Guetta
Nei, ég hef aldrei séð hana áður,“ sagði bróðir minn, við eldhúsborðið, þeg-
ar auglýsingin með Hönnu Birnu
hafði rúllað í sjónvarpinu og ég
hafði spurt hann hvort hann vissi
hvaða kona þetta væri. „Hanna
Birna,“ sagði ég og beið eftir því
að hann myndi kveikja á perunni.
„Anna Binna? Hver er það?“ spurði
hann hneykslaður. „Nei! Hanna
Birna! Borgarstjórinn í Reykjavík!
Veistu ekki hver er borgarstjóri í
Reykjavík? Ertu ekki að verða 19?“
spurði ég pirraðri en ég hafði ætlað
mér og bætti við: „Andri, fylgistu
ekkert með fréttum?“
„Nei, ég hlusta mjög sjaldan
á fréttir og einu fréttirnar sem ég
les eru þær sem þú póstar á Face-
book,“ sagði hann hneykslaður á
eldri bróður sínum. Hann bætti
svo við að hann læsi þær meira að
segja alls ekki alltaf.
Ég stakk gafflinum í pylsu og
pastaskrúfu á meðan ég reyndi að
gera upp við mig hver næstu skref
yrðu. Unnusta mín tók þá upp
hanskann fyrir bróður minn og
benti á að það væri kannski ekki
svo skrýtið að vita ekki hver er
borgarstjóri í Reykjavík. Þeir væru
búnir að vera allnokkrir undan-
farin ár. „Ég hélt að borgarstjórinn
héti Villi,“ sagði bróðir minn þá og
reyndi að klóra í bakkann.
Á þessari stundu rann það upp
fyrir mér hversu ólík tilvera fólks
er. Maður heldur, einhvern veginn,
að við séum öll steypt í sama mótið
en það er auðvitað ekki rétt. Þó ég
sé fíkill á fréttir, sem er mjög erfið
fíkn við að ráða á öld internetsins,
er fullt af fólki til sem aldrei hlust-
ar á eða les fréttir. Fólk sem læt-
ur sig kosningar og Icesave engu
varða; fólk sem veit ekki hver er
borgarstjóri í Reykjavík og líður
bara vel með það. Miklu betur en
mér í minni tilveru. Ég var í miðj-
um þessum hugleiðingum þeg-
ar litli bróðir sagði stundarhátt:
„Heyrðu, mannstu eftir þessu lagi,
þessu sem ég var að segja þér frá
um daginn?“ Ég reyndi að hlusta á
sjónvarpið en kveikti ekki á laginu.
„Með David Guetta,“ bætti hann þá
við. „David hver?“
Hann stóð upp og fór með disk-
inn sinn í vaskinn og sagði: „Ertu
ekki að grínast?“ Ég skildi sneiðina.
bAlduR guÐmundSSon SKRiFAR pressan
YOUTH IN REVOLT
n IMDb: 7,0/10
n Rotten Tomatoes: 69%
n Metacritic: 6,3/10
Kjósa er orð helgarinnar svo sann-
arlega, þá aðallega laugardagsins.
Á laugardaginn halda Íslendingar í
kjörklefann enn einu sinni, í þetta
skiptið til að velja sér fólk í borg-
ar- og sveitarstjórn fyrir næstu
fjögur árin. Á sama tíma fer fram
Eurovision þar sem Hera okkar
Björk stígur á svið eftir magnaða
frammistöðu í undanúrslitunum.
Því ganga Íslendingar til kosninga
og vonumst við á sama tíma svo
sannarlega til að Evrópa kjósi okk-
ur, eða þá Heru.
Sjónvarpið sér um báða hluti
og ætlar Stöð 2 ekki einu sinni að
reyna við kosningavöku. Það verð-
ur líka að segjast að Stöð 2 hefur
staðið sig ágætlega í því að bjarga
andliti Sjónvarpsins síðastliðna
mánuði þannig að fólk þar á bæ
getur vel tekið sér frí og horft á
kollegana vaka fram á nótt.
Eurovision hefst í sjónvarpinu
klukkan 19.00 á laugardagskvöld-
ið en fréttir verða færðar fram til
18.20. Eurovision stendur yfir í þrjá
tíma en þegar keppninni er lokið
er komið að kosningavöku Sjón-
varpsins sem hefst klukkan 22.00.
Verður þar fylgst með nýjustu töl-
um úr öllum sveitarfélögum, farið
yfir málin og spekingar fengnir til
að ræða málin eins og vaninn er.
Má reikna með miklu áhorfi á
kosningavökuna, ekki síst vegna
framgöngu Besta flokksins. Hann
hefur verið mældur í vikunni með
yfir 40 prósent atkvæða og sjö
menn inn í borgarstjórn. Verður
í meira lagi fróðlegt að sjá hvort
Reykvíkingar ætli sér að ganga
alla leið í gríninu með Jóni Gnarr
og gera Besta flokkinn að stærsta
flokknum í Reykjavík. Sjónvarpið
sér um málin á laugardagskvöldið.
í sjónvarpinu um helgina
KJóSUM OG VERðUM KOSIN
Einkunn á IMDb merkt í rauðu.sunnudagur
Egill
TEkuR viÐ
n Á laugardaginn verður Sjónvarpið
með aukafréttatíma klukkan 12 á
hádegi þar sem verður farið yfir
kosningarnar. Egill Helgason mætir
svo með Silfur Egils beint í kjölfarið
klukkan 12.30 þar sem kosningarnar
verða krufnar til hins ítrasta. Má
fastlega búast við dúndurþætti þar
sem reiknað er með áhugaverðum
hlutum í kosningunum, sérstaklega
í Reykjavík með Besta flokkinn. Egill
fær sínar 80 mínútur til að rýna í málin
með góðum gestum.
FRUMSýNINGAR
HELGARINNAR
CENTURION
n IMDb: 6,8/10
n Rotten Tomatoes: 50%
THE LAST SONG
n IMDb: 3,0/10
n Rotten Tomatoes: 20%
n Metacritic: 3,3/10