Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Síða 2
2 mánudagur 31. maí 2010 fréttir
Flokkarnir liFa á landsbyggðinni
Fjórflokkurinn er við hestaheilsu í flestum sveitarfélaga lands-
ins. Í sextán af tuttugu og sjö sveitarfélögum héldu sömu meiri-
hlutar og voru kosnir til áhrifa árið 2006 velli þótt margir þeirra
töpuðu fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn fékk sterka kosningu í sín-
um höfuðvígjum. Framsóknarflokkurinn sækir á.
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur halda velli eða eru í sókn í
sveitarstjórnakosningunum í átta af
þeim tuttugu og sjö sveitarfélögum
sem DV fór yfir niðurstöður kosning-
anna í. Ný framboð fá brautargengi
í flestum þeirra sveitarfélaga sem
þau bjóða fram í. Í sex sveitarfélög-
um náðu þau góðri útkomu. Vinstri-
græn ná sér ekki fyllilega á flug í
kosningunum og Samfylking nær
aðeins ásættanlegri kosningu í sex
af þeim sveitarfélögum sem skoðuð
voru.
Í sextán af þeim tuttugu og sjö
sveitarfélögum sem DV fór yfir héldu
meirihlutar velli þrátt fyrir að sum-
ir þeirra hefðu misst fulltrúa yfir til
annarra framboða. Í minni sveitarfé-
lögum landsins virðist fjórflokkurinn
vera við betri heilsu en í þeim stærri
og þá einkum í Reykjavík.
Athyglisvert er hversu slæma út-
reið fjórflokkurinn fær í nokkrum
af sveitarfélögum landsins. Þar er
Reykjavík auðvitað í brennidepli þar
sem Besti flokkurinn kom sá og sigr-
aði og fékk sex fulltrúa kjörna. Fram-
sóknarflokkurinn þurrkaðist út í borg-
inni og Sjálfstæðisflokkur, Samfylking
og vinstri-græn töpuðu öll fulltrúum.
Í Kópavogi náðu tvö ný framboð inn
fulltrúum, Næstbesti flokkurinn og
Listi Kópavogsbúa. Stórtíðindi sveit-
arstjórnarkosninganna eru þó ef til
vill úrslitin á Akureyri. Þar fékk L-list-
inn sex fulltrúa og hreinan meirihluta
í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn
fékk hræðilega útreið þar þegar hann
missti þrjá fulltrúa af fjórum í bæjar-
stjórn.
Vígi Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn heldur velli og
hreinum meirihluta í fjórum sveit-
arfélögum í nágrenni Reykjavík-
ur. Þetta eru Seltjarnarnes, Garða-
bær, Reykjanesbær og Hveragerði.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur einnig
hreinum meirihluta í Snæfellsbæ og
Vestmannaeyjum. Í Ölfusi, Árborg,
Vesturbyggð og á Seyðisfirði tapar
Sjálfstæðisflokkurinn niður hreinum
meirihlutum.
Á Akranesi bauð enginn flokk-
ur sig fram sem var utan hins hefð-
bundna fjórflokks. Þar má sjá einar
mestu sviptingar á fylgi hinna hefð-
bundnu flokka í sveitarstjórnarkosn-
ingunum ásamt Árborg. Þar tapar
Sjálfstæðisflokkurinn í báðum tilvik-
um mönnum yfir til annarra fram-
boða fjórflokksins.
Framsóknarflokkurinn
stenst veðrið
Framsóknarflokkurinn fær nokkuð
góða útkomu víðs vegar á landsbyggð-
inni og þá sérstaklega norðanlands og
austan. Í sveitarfélaginu Skagafirði og
Norðurþingi fær Framsóknarflokkur-
inn fjóra fulltrúa í hvoru sveitarfélagi.
Í Hornafirði nær Framsóknarflokkur-
inn hreinum meirihluta.
Samfylkingin fær sína verstu út-
reið í Hafnarfirði þar sem flokkurinn
tapar miklu fylgi yfir til Sjálfstæðis-
flokksins. Best kemur flokkurinn út
úr kosningunum á Akranesi þar sem
flokkurinn hefur verið í fararbroddi
í myndun nýrrar bæjarstjórnar með
Framsóknarflokknum og vinstri-
grænum. Helst er það fylgi Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar sem verður
fyrir skakkaföllum á landsvísu.
Það er ekki nóg að Steinunn Valdís
Óskarsdóttir segi af sér.
„Efasemdafólkið í baklandi ríkisstjórnarinnar hefur fengið vatn á
sína myllu og þetta auðveldar ekki kattasmölun þeirra Steingríms
og Jóhönnu,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við
Háskólann á Akureyri, um niðurstöður nýafstaðinna sveitarstjórnakosn-
inga.
Birgir segir niðurstöðurnar til marks um kröfu almennings um
að breytingar verði gerðar á íslensku stjórnmálalífi. Þrátt fyrir það
segist Birgir ekki taka undir þau sjónarmið að fjórflokkurinn sé í
andarslitrunum eins og leitt hefur verið líkum að í kjölfar sveitar-
stjórnakosninganna. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í
kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins að niðurstöðurnar boðuðu upphafið
að endalokum fjórflokkakerfisins. „Flokkakerfið og fjórflokkurinn er
eins og olíuskip. Hann er svolítið seinn að snúa sér en það mun gerast
skipulagslega, forystulega og stefnulega þar sem starfsaðferðir þeirra
verða endurskoðaðar til að mæta kröfum almennings. Fjórflokkurinn
er ekki dauður en hann mun ganga í endurnýjun lífdaga. Það er ekki
nóg að Steinunn Valdís Óskarsdóttir segi af sér. Það þarf einhverja
endurnýjun á starfsaðferðum og stefnumálum til þess að kerfið virki og
verði trúverðugt,“ segir Birgir.
Birgir segir sértækar aðstæður ráða för í hverju sveitarfélagi fyrir
sig þar sem miklu muni milli sveitarfélaga. „Stjórnmálamenn keppast
við að finna staði þar sem þeim hefur gengið vel. En það geta allir
fundið staði þar sem vel hefur gengið, eins og Sjálfstæðisflokknum í
Hafnarfirði eða Samfylkingunni á Akranesi,“ segir Birgir.
Aðspurður hvort það hafi komið Birgi á óvart að vinstri-græn hafi
ekki sótt betur í sig veðrið í kosningunum þar sem hann hafi verið með
hreint blað í hruninu, segir hann allar kannanir hafa bent til slæms
gengi flokksins. „Allar kannanir bentu til að vinstri-græn væru í sömu
óhreinatauskörfunni og hinir. Í kosningunum var öllu hent í þvotta-
vélina. Þetta sýnir ekki aðeins andstöðu við hrunið sjálft heldur líka
hvernig ríkisstjórnin er að taka á málinu,“ segir Birgir.
Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri:
„Auðveldar ekki kattasmölunina“
Birgir Guðmundsson Segir niðurstöður
kosninganna þrýsta á um allsherjar endurskoðun
stjórnmálaflokkanna.
RóBeRt hlynuR BalduRSSon
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Besti flokkurinn, sigurvegari borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík með sex
fulltrúa kjörna, hefur hafið formlegar meirihlutaviðræður við Samfylkinguna.
Fulltrúar Besta flokksins sátu á löngum fundi í gær þar sem næstu skref voru
kortlögð. Samkvæmt heimildum DV hefur flokkurinn lagt áherslu á að breyt-
ingar verði gerðar á stjórnarháttum borgarinnar og endurnýjun. Viðræðunum
verður fram haldið í dag.
Jón Gnarr hefur sagt að hann geri enn kröfu um að verða borgarstjóri.
Hann segir að með viðræðunum í gær hafi hann viljað eyða því óöryggi sem
hafi sprottið upp gagnvart honum. Jón segir að Dagur hafi ekki fylgst með
þáttaröðinni The Wire og að hann mælist til þess að Dagur geri það. Samkvæmt
heimildum DV hafa einnig einhver samskipti átt sér stað milli Sjálfstæðisflokks
og Besta flokksins.
Besti flokkurinn vill endurnýjun:
Ræða við Samfylkinguna
Mikil gleði á kosningavöku
Kátt var á hjalla hjá Besta
flokknum í Iðusölum
aðfaranótt sunnudags.
Sigrún Björk Jakobsdóttir Fyrrverandi
bæjarstjórinn var eini sjálfstæðismaðurinn
sem var inni eftir kosningarnar á Akureyri.
lúðvík Geirsson Bæjarstjórinn var
í baráttusæti hjá Samfylkingunni í
Hafnarfirði en náði ekki kjöri.
Gunnar Birgisson Lenti aftarlega á lista
Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri hans fyrir
kosningar en náði inn í kosningunum.