Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Síða 7
31. maí 2010 MÁNUDAGUR 7
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
FRÉTTIR
„Vissulega finnst mér sárt að
réttlætið nái ekki fram að ganga
því drengurinn þarf hugsanlega
hjálp, annars óttast ég að hann
endurtaki leikinn,“ segir móð-
ir sextán ára stúlku sem sakar 14
ára gamlan vin sinn um að hafa
nauðgað sér. Sökum eðlis málsins
vill hún ekki láta nafns síns getið
og hið sama á við um dótturina.
Nauðgunina segja mæðgurnar
hafa átt sér stað fyrir tæpu ári á
heimili þeirra í Hafnarfirði. Móð-
irin var þá heima og varð ekki
vör við neitt. Mæðgurnar leit-
uðu ásjár neyðarmóttöku vegna
nauðgana á Landspítalanum og
í kjölfarið segir móðirin að mál-
ið hafi farið á borð barnavernd-
aryfirvalda í bænum. Þaðan til
lögreglu, sem eftir skýrslutökur
ákvað að fella nauðgunarkæru
niður sökum þess að hinn meinti
fjórtán ára nauðgari væri ekki
sakhæfur.
„Erfiðasta sem getur
komið fyrir mann“
„Mér skilst að drengurinn hafi
játað allt saman í skýrslutöku hjá
lögreglu. Síðan frétti ég ekki neitt
fyrr en málið var fellt niður hjá
lögreglu sökum þess að hann er
ekki sakhæfur. Það er vont. Ég er
ofsalega reið yfir þessu og dóttir
mín er alveg niðurbrotin,“ segir
móðirin.
Í samtali við DV tekur dóttirin
undir orð móður sinnar og lýsir
sárum vonbrigðum með þá nið-
urstöðu að vinur hennar fyrrver-
andi sleppi með verknaðinn. „Að
vera nauðgað er örugglega það
erfiðasta sem getur komið fyrir
mann. Þetta er ofboðslega sárt og
miklu verri líðan af því að þetta
var vinur minn sem gerði þetta.
Hann sagði mér sjálfur að ég væri
besta vinkona hans og ég hélt
ég gæti treyst honum. Það gerir
þetta svo sárt og mér finnst órétt-
látt að hann fái enga refsingu.
Þó hann hafi verið fjórtán ára,
þá framdi hann fullorðinsglæp.
Hann eyðilagði líka uppáhalds-
lagið mitt, Thriller með Michael
Jackson, en undir því gerðist
þetta. Nú heyri ég það lag alls
staðar og þá fer mér að líða illa,“
segir dóttirin.
Mamman var heima
Aðspurð segir móðirin bæði
skýrslutökur lögreglu og áverka-
vottorð neyðarmóttöku styðja
framburð dóttur sinnar en þrátt
fyrir það falli málið niður sök-
um aldurs drengsins. „Þetta hef-
ur tekið verulega á okkur, eink-
um þar sem hún var hrein mey
og henni þótti það mikilvægt að
velja sér þá sérstöku stund. Það
var þarna tekið af henni og það er
ofboðslega sárt að vita til þess að
það var gert af þáverandi góðum
vini hennar. Það er alveg skelfi-
legt,“ segir móðirin.
„Morguninn eftir fór ég með
hana á neyðarmóttökuna og þar
fengum við frásögn hennar stað-
festa með alls konar sýnum. Í
kjölfarið fór málið til barnavernd-
arnefndar og síðar lögreglu. Þar
fengum við svo þau svör að þessi
kæra myndi ekkert þýða því hann
væri svo ungur, þrátt fyrir að ekk-
ert í skýrslutökum hjá lögreglu
benti til þess að frásögn hennar
væri tilbúningur.“
Of ungur
Hjá kynferðisbrotadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu
fékkst það staðfest að málið barst
deildinni frá barnaverndaryfir-
völdum í Hafnarfirði sumarið
2009. Þar var það rannsakað að
fullu og síðan sent til ríkissak-
sóknara. Á þeim bæ var ákveðið
að fella málið niður vegna þess
að drengurinn var ósakhæfur
sökum aldurs og málið endaði
því aftur í meðferð barnavernd-
aryfirvalda.
Hér á landi telst einstaklingur
ekki sakhæfur fyrr en hann hef-
ur náð fimmtán ára aldri. Börn-
um yngri en fimmtán verður því
ekki refsað samkvæmt almenn-
um hegningarlögum, ólíkt því
sem tíðkast til dæmis á Englandi
þar sem börn teljast sakhæf eftir
tíu ára aldur. Engu að síður get-
ur lögregla komið að rannsókn
sakamála þar sem ósakhæf börn
eiga í hlut en þá ekki í þeim til-
gangi að leiða til ákæru heldur
sem aðstoð við barnaverndaryf-
irvöld.
Meydómur og traust horfið
„Fyrir móður er hrikalegt að upp-
lifa þetta og lengi vel var ég í al-
gjöru sjokki. Ég sjálf var í húsinu
þegar þetta gerðist, það er of-
boðslega erfitt að vita til þess.
Við gerðum það besta í stöð-
unni, fluttum af landinu og erum
að vinna úr þessu þar því dóttir
mín er svo hrædd eftir þetta. Ég
er bara að gera mitt besta til að
halda utan um hana og vernda
hana eftir áfallið,“ bætir móðirin
við.
Aðspurð segist dóttirin hafa
misst allt traust til annars fólks og
bendir á að sökum hræðslu óttist
hún að aðrir komi nálægt sér. „Ég
er hrædd við alla. Ég get engum
treyst enn þá í dag og það er svo
erfitt þegar þessi atburður kem-
ur aftur upp í hugann. Það gerist
mjög reglulega. Ég á ekki eftir að
geta fyrirgefið þetta og held að ég
muni aldrei geta gleymt þessu,
meydómurinn minn var mér svo
dýrmætur og það vissi hann,“
segir dóttirin.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Fjórtán ára drengur sleppur
undan ásökunum vinkonu sinnar
um nauðgun sökum ungs aldurs
þar sem lögregla taldi ekki hægt
að fara með málið lengra eftir
kæru. Nauðgunina segir hún
hafa átt sér stað á heimili hennar
í Hafnarfirði og á meðan móðir
hennar var heima. Stúlkan unga
telur sig aldrei fyllilega komast
yfir atburðinn því með honum
hafi meydómurinn og allt traust
til annarra manneskja horfið.
Hræðileg upplifun
Unga stúlkan segir upplifunina
hafa verið hræðilega enda um
einstakling að ræða sem hún
taldi vera góðan vin sinn.
SVIÐSETT MYND
OF UNGUR
FYRIR DÓM
Vinirnir Hannes Hólmsteinn og Frið-
björn Orri svara engu.
Benda báðir
á Þorvald
Gylfason
Friðbjörn Orri Ketilsson, ritstjóri
fréttavefjarins AMX, svarar engu til
um eignarhald sitt á félaginu Con-
ferences and Ideas ehf. sem á bras-
ilískt rannsóknar- og fræðisetur í
borginni Rio de Janeiro. Þrátt fyr-
ir ítrekaðar fyrirspurnir DV til rit-
stjórans svarar hann engu.
Samkvæmt ársreikningum fé-
lagsins eignaðist félag í eigu Frið-
björns Orra, Skipaklettur ehf.,
rannsóknarsetrið og eignarhalds-
félag þess árið 2008. Setrið er verð-
lagt á tæpar 25 milljónir en það var
áður í eigu Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar, prófessors í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands. Svo
virðist sem vinur Hannesar, rit-
stjórinn Friðbjörn Orri, hafi tek-
ið við eignarhaldinu árið 2008 en
hvorugur þeirra svarar nokkru til
um ástæðu þessara breytinga.
DV hefur ítrekað óskað svara
hjá Friðbirni Orra en engin fengið.
Hannes hefur aðeins svarað því til
að hann hafi fyrir nokkru áttað sig
á því að betra væri að láta aðra sjá
um sín fjármál og að hann reyni að
eiga ekki neitt. „Ég hef reynt að eiga
ekki neitt og láta aðra, sem eru til
þess færari, sjá um mín fjármál. Ég
hef komist að því sem gamall grísk-
ur spekingur, Bíon frá Borisþenes,
sagði“: „Hann hefur ekki eign-
ast auð; auðurinn hefur eignast
hann,““ sagði Hannes Hólmsteinn
í samtali við DV.
Á sama tíma og hvorugur þeirra
svarar spurningum um brasilíska
rannsóknarsetrið og félagið Con-
ferences and Ideas ehf. hafa þeir
báðir bent á að meira tilefni sé til
að skoða málefni Þorvalds Gylfa-
sonar, prófessors í hagfræði við Há-
skóla Íslands. Á meðan fjallað er
um Hannes finnst þeim félögum
ósanngjarnt að Þorvaldur sleppi.
trausti@dv.is
Smjörklípa? Á sama tíma og
félagarnir Hannes og Friðbjörn svara
engu um sín mál benda þeir báðir á
að meira tilefni sé til að skoða málefni
Þorvalds.