Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Síða 10
10 mánudagur 31. maí 2010 fréttir SOFFANÍAS STEFNIR LANDSBANKANUM Útgerðarfyrirtækið Soffanías Cecilsson hefur stefnt Landsbankanum vegna hlutabréfakaupa félagsins í honum árið 2007 og 2008. Bankinn fjármagnaði kaupin. Forsvarsmenn félagsins telja að hlutabréfakaup- in hafi ekki staðist lög og eru ósáttir við að sitja uppi með skuldina. Útgerðarfyrirtækið Soffanías Cec- ilsson hf. á Grundarfirði hefur stefnt Landsbanka Íslands vegna hlutabréfakaupa félagsins í bank- anum árið 2007 og 2008. Félagið keypti 0,72 prósenta hlut í Lands- bankanum á þessum árum og var stærsti hluti þeirra keyptur í jan- úar árið 2008. Hluturinn var metinn á um 1,6 milljarða króna við bankahrunið árið 2008 og tapaði félagið honum með falli bankans. Landsbankinn lánaði Soffaníasi fyrir stærstum hluta bréfanna og var veðið fyrir láninu í bréfunum sjálfum. Sam- tals námu lán frá Landsbankan- um til félagsins um 4,9 milljörðum króna, samkvæmt skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis, en félag- ið fjárfesti einnig í peningamark- aðssjóðum bankans fyrir lánsféð. Fjallað er nokkuð ítarlega um þessi viðskipti í rannsóknarskýrsl- unni. Nokkur óvissa hefur ríkt um framtíð útgerðarfyrirtækisins frá bankahruninu út af skuldsetningu félagsins vegna hlutabréfakaup- anna. Um fimmtíu manns starfa hjá Soffaníasi Cecilssyni. Félagið hefur ekki skilað ársreikningi síð- an árið 2007. Telja hlutabréfakaupin lögbrot Stjórnarformaður Soffaníasar Cec- ilssonar, Rúnar Sigtryggur Magnús- son, staðfestir að félagið hafi stefnt Landsbankanum en vill ekki ræða málið efnislega. „Þetta er ekkert orðin frétt strax. Það er ekki búið að taka þetta fyrir eða neitt. Ég held að það sé okkur ekki til framdráttar að vera að ræða þetta mikið í fjölmiðl- um. Þetta er svolítið viðkvæmt mál,“ segir Rúnar en lögmaður Soffanías- ar er Ragnar Aðalsteinsson hæsta- réttarlögmaður. Málið er meðal annars viðkvæmt vegna þess að Soffanías Cecilsson er fjölskyldufyrirtæki og var langt í frá einhugur meðal eigenda og stjórn- enda félagsins um kaupin. Deilt hef- ur verið um viðskiptin innan fjöl- skyldunnar frá því þau áttu sér stað. Meðal annars út af þessu vilja að- standendur Soffaníasar lítið ræða um málið við fjölmiðla. Heimildir DV herma að ástæð- urnar fyrir stefnunni séu þær að for- svarsmenn Soffaníasar telja hluta- bréfakaupin hafa verið lögbrot. Einn af heimildarmönnum DV, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að stefnan snúist um „samskipti félags- ins við Landsbankann“. „Í sem fæst- um orðum gengur þetta út á það að kanna hvort hlutabréfaviðskipti Soffaníasar Cecilssonar hafi verið í samræmi við lög. Hvort hlutabréfa- kaupin hafi verið skuldbindandi eða ekki,“ segir heimildarmaðurinn en ágreiningurinn við bankann snýst um það hvort Soffanías Cecilsson eigi að greiða skuldina við Lands- bankann til baka. „Það er ágreining- ur um þessa skuld,“ segir heimildar- maðurinn en reikna má með því að skuldin við Landsbankann sé mikil byrði á félaginu og að framtíð þess snúist um það hvort það verði dæmt til að greiða skuldina eða ekki. Ósætti um hlutabréfakaupin Mikið ósætti kom upp hjá Soffaníasi Cecilssyni út af hlutabréfakaupun- um þar sem einn af stjórnarmönn- unum þremur, Magnús Soffaní- asson, var á móti fjárfestingunni í Landsbankabréfunum. Í viðtali við DV í fyrra sagði Magn- ús að hann hefði litið á Soffanías Cecilsson sem útgerðarfélag en ekki fjárfestingarfyrirtæki. Hann höfð- aði mál gegn framkvæmdastjóra fé- lagsins, Sigurði Sigurbergssyni, og meirihluta stjórnar út af hlutabréfa- kaupunum því hann taldi að meiri- hluti stjórnarinnar hefði ekki haft umboð til að skuldbinda fyrirtækið með slíkum hlutabréfakaupum. Í september árið 2008 féll dóm- ur í héraðsdómi Vesturlands sem var Magnúsi í hag og var sá dómur staðfestur í Hæstarétti í september í fyrra. Samkvæmt dómnum hafði meirihluti stjórnarinnar ekki heim- ild til að veita framkvæmdastjóran- um umboð til að skuldbinda félagið í viðskiptunum við Landsbankann. Í viðtalinu við DV í fyrra sagði Magnús, þegar hann var spurð- ur um stöðu útgerðarfyrirtækisins: „Fyrirtækið er einn stærsti vinnu- veitandinn í bænum og auðvitað hafa menn áhyggjur en við vitum ekki ennþá hvernig við stöndum. Á næstu vikum munum við komast að því hvort fyrirtækið verði byggt upp aftur eða hvort það verður lagt nið- ur út af þessari fjárfestingu,“ segir Magnús en reikna má með að mála- ferlin gegn Landsbankanum snúist meðal annars um að reyna að svara þessum spurningum um framtíð fé- lagins. DV hefur ekki heimildir fyr- ir því hvenær mál Soffaníasar gegn Landsbankanum verður tekið fyrir í dómskerfinu en ljóst er að það er mjög mikilvægt fyrir Grundarfjörð þar sem félagið er einn stærsti at- vinnurekandinn í bænum. ingi f. vilhjálmSSon fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Í sem fæstum orðum gengur þetta út á það að kanna hvort hlutabréfavið- skipti Soffaníasar Cecils- sonar hafi verið í sam- ræmi við lög. Telja gerninginn lögbrot Stefna Soffaníasar Cecilssonar á hendur Landsbankanum byggist á því að hlutabréfavið- skiptin hafi verið lögbrot. Hér sjást höfuðstöðvar Soffaníasar Cecilssonar á Grundarfirði. Stefnir fyrir Soffanías Ragnar Aðalsteinsson er lögmaður Soffaníasar Cecilssonar sem stefnt hefur Landsbankaum út af hlutbréfakaupum félagsins í honum á árunum 2007 og 2008. Bankanum stefnt Stefna Soffaníasar Cecilssonar beinist gegn Nýja-Landsbankanum en er vegna viðskipta sem áttu sér stað í bankanum fyrir hrun. Sigurjón Árnason var banka- stjóri Landsbankans fyrir hrun og Ásmundur Stefánsson tók við eftir hrun. n „Soffanías Cecilsson hf. sótti um og fékk samþykkt nokkur lán í Landsbanka Íslands hf. og er megintilgangur með lántökunum sá að kaupa hlutabréf í Landsbankanum ásamt peningabréf- um útgefnum af sama banka. Í mars 2007 (afgreitt milli funda) fær félagið 3 milljarða kr. lán sem verja á til kaupa á peningabréfum og hlutabréfum í Landsbankanum. Lánið var kúlulán til þriggja ára og í erlendri mynt. Í ágúst 2007 (afgreitt milli funda) fær félagið 1,5 milljarða kr. kúlulán og er lánið til þriggja ára. Í apríl 2008 er afleiðurammi félagsins vegna skuldastýringar hækkaður um 400 milljónir kr. og verður 800 milljónir kr. Ástæða hækkunarinnar var veiking ISK og tap á samningum sem félagið hafði gert m.a. vegna hlutabréfakaupa. Samtals nema lánveitingar Landsbankans vegna verðbréfakaupa 4,9 milljörðum kr. Ofangreindar ákvarðanir voru allar teknar af lánanefnd Landsbanka Íslands hf.“ Úr skýrslu rannsóknarnefndar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.