Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Page 13
Svona kerfi hafa aldrei náð tökum á mér. Ég fór til dæmis í gegnum skóla- kerfið algjörlega á mínum forsend- um. Ég var ekkert að berjast gegn kerf- inu eða láta illa. Ég bara tók ekki þátt í því og gerði meira að segja fullt mjög skemmtilegt.“ Það var strax augljóst að Jón ætl- aði ekki bara að verða borgarfulltrúi heldur stefndi hann beint á sjálfan borgarstjórastólinn, sem nú hálfu ári síðar er innan seilingar. „Það er miklu meira spennandi en að vera borgar- fulltrúi og ég yrði pottþétt besti borg- arstjóri sem verið hefur. Þó að ég viti ekkert hvað felst í því. Ég myndi ekk- ert vera að gera eitthvað sem fólk væri mjög ósátt við. Ég myndi gera eitthvað sem fólk væri mjög glatt með.“ „Bráðgáfaður“ Jóhann G. Jóhannsson listamaður er mágur Jóns og þekkir hann persónu- lega. „Allt sem hann tekur sér fyr- ir hendur verður að snilld. Það má í raun segja að hann sé algjör snilling- ur. Það er ótrúlegt með þetta framboð, þetta er hugmynd sem poppar upp í hausinn á honum í nóvember og verður að veruleika í janúar. Í maí er hann kominn með 34% fylgi og þetta sýnir hversu frjór og mikill snilling- ur hann er. Pólitíkusar tala mikið, en það er bara ekki nóg að tala hratt og tala rétt, Jón nær að gera hratt og gera rétt. Allt sem hann hefur tekið sér fyrir hendur, það leikur í hönunum á hon- um,“ segir Jóhann. Hann segir Jón langt frá því að vera einhvern trúð í einkalífinu og sé alls ekki alltaf að grínast. Það sé stutt í grínið en hann sé enginn sprelligosi. „Hann er bara ósköp venjulegur mað- ur, bráðgáfaður og það er mjög gam- an að tala við hann. Hann lætur sig mál varða og hefur alltaf gert það í gegnum alla sína tíð. Hann hefur ekki bara girt niðrum sig fyrir grínið. Það hefur alltaf verið einhver „agenda“ hjá honum. Georg Bjarnfreðarson er ekki bara ofsalega fyndin persóna. Það er miklu meira og dýpra að baki og ein- hverjar meiningar,“ segir hann. Góður pabbi Jón Gnarr á fimm börn og Jóhann G. lýsir mági sínum sem miklum fjöl- skyldumanni. „Heima við er hann bara voðalega mikill heimalningur. Hann er yndislegur pabbi og er að sinna heilli kynslóð af börnum og ger- ir það mjög vel. Hann sinnir börnum og hundi og konu og þannig þekki ég hann best, sem fjölskyldumann.“ Jón er sem sé faðir fimm barna á öllum aldri og er giftur Jóhönnu Jó- hannsdóttir, þau búa saman ásamt börnum sínum í miðborg Reykjavík- ur. Í yfirheyrslu í helgarblaði DV sagði Jón að besta stund ævi sinnar hafi ver- ið þegar hann kynntist konunni sinni. Sú stund vari enn. Jóhann G. segir hreint ótrúlegt að vinna með Jóni. „Við höfum unnið að- eins saman og hent hugmyndum okk- ar á milli. Það er alveg ótrúlegt. Hann er svo mikill snillingur, það er svo gaman að vinna með honum, hann er svo frjór. Um leið og maður kem- ur með hugmynd, er hann strax kom- inn með fjóra aðra vinkla. Það opnast nýir heimar þegar maður spjallar við hann,“ segir Jóhann G. Maður fólksins Jóhann Ævar Grímsson kynntist Jóni árið 2006 þegar þeir voru að byrja að skrifa handritið að Næturvakt- inni. Þeir unnu svo saman í nokkur ár við að skrifa framhaldsþáttarað- irnar Dagvaktina, Fangavaktina og að lokum kvikmyndina Bjarnfreð- arson, ásamt leikurunum Jörundi Ragnarssyni, Pétri Jóhanni Sigfússyni og leikstjóranum Ragnari Bragasyni. „Öll þau skipti sem ég hef umgengist hann, þá er það eins og ævintýri og lítil saga út af fyrir sig,“ segir Jóhann Ævar, sem ber honum góða söguna. „Ég hef bara kynnst því að hann sé réttsýnn og mjög heiðarlegur, stund- um of heiðarlegur. Það er ekki löst- ur heldur kostur. Hann er með litla þolinmæli fyrir rugli og óheiðarleika annarra,“ segir Jóhann Ævar. „Hann hefur skoðun á öllu og hik- ar ekki við að tjá hana,“ segir Jóhann Ævar, en aðspurður hvort eitthvað í fari Jóns hafi bent til þess að hann ætl- aði í pólitík, svarar hann neitandi. „Ég sá þetta nú ekki fyrir. Jón er þannig týpa að hann er til alls líklegur og ég held að það hafi verið gegnumgang- andi hjá honum, þegar hann segist ætla að gera það, þá gerir hann það.“ Hvaða eiginleika telur Jóhann Ævar að Jón Gnarr hafi til að verða borgarstjóri? „Það er voðalega mik- il klisja að segja að hann hugsi út úr kassanum, en Jón hefur það. Ég veit ekki hvað hann gerir og ég hlakka til að vita það. Hann er maður fólksins, hvar sem hann er staddur, sérstak- lega við tökur á Vöktunum, þá held- ur hann öllu gangandi með jákvæðni og með því að taka þátt í lífi annarra, ef honum tekst að færa þetta yfir á stærri skala borgarinnar væri það mjög gott.“ „Jón er enginn kjáni“ Þegar Jóhann Ævar er beðinn um að leggja mat á hvort Jón Gnarr hafi spilað kosningabaráttuna eftir eyr- anu eða hvort hún hafi verið þaul- skipulögð fyrirfram, svarar hann: „Ég held að þetta sé sitt af hvoru tagi. Hann sér oft fyrir hluti sem ég viðurkenni að ég á engan sjens á að sjá, til dæmis var hann alveg sann- færður um vinsældir Vaktanna,“ segir Jóhann Ævar. Hann nefnir að Jóni hafi margsinn- ist tekist að enduruppgötva sjálfan sig sem listamann. Þegar fólk verður þekkt fyrir eitthvað sér almenning- ur ekkert annað en það. Jóhann segir að á öllum ferlinum hafi Jóni tekist að brjóta sig út úr hverju mótinu á fætur öðru og enduruppgötva sig. En hvers vegna tókst Jóni að brjóta upp gamla valdakerfið þegar eng- um öðrum hefur tekist það? „Það er þessi leiðtogahæfileiki. Hann á auð- velt með að fá fólk með sér í lið og það smitar út frá sér til hinna. Ég veit ekki hvernig ég á að túlka það sem hefur gerst, mér finnst það alveg jafnótrú- legt og öðrum, en ef einhver hefði get- að gert það þá er það Jón.“ Hann telur að Jón geti sinnt starf- inu vel. Blendnar tilfinningar hljóti að bærast í brjósti Jóns yfir þessari nýju áskorun. „Ég held að hann sé bæði í bland stressaður og rólegur. Hann hefur þennan eiginleika að geta farið í stresstímabil og meitlað þau á sinni áætlun. Ég held að þú þyrftir að vera kjáni til að vera ekki mjög stressaður fyrir þessu og Jón er enginn kjáni.“ fréttir 31. maí 2010 mánudagur 13 „SMALI SEM STUGGAR HJÖRÐINNI“ Hann hefur ekki bara girt niðrum sig fyrir grínið. Það hef- ur alltaf verið einhver „agenda“ hjá honum. Það opnast nýir heimar þegar maður spjallar við hann. Jón Gnarr „Hirðfífl og trúður eins og Jón, hann þekkir andlit lyginnar og hann er sérfræðingur í að skoða lygina. Það er hans vinna. Þannig leiðtoga þurfum við,“ segir Benedikt Erlingsson um Jón.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.