Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Qupperneq 17
FRÉTTIR 31. maí 2010 MÁNUDAGUR 17
Breski lottóvinningshafinn, Mich-
ael Carroll, hefur snúið aftur í sitt
gamla starf sem ruslakarl eftir að
hafa eytt rúmlega 18 milljarða
vinningi á átta árum. Hinn 26 ára
Caroll eyddi peningunum í eitur-
lyf, veðmál og þúsundir vændis-
kvenna og var alsæll þegar hann
var ráðinn aftur í ruslatínslu ná-
lægt heimili sínu í Norfolk í Bret-
landi. Í viðtali við The People
sagðist Carroll ánægður með um-
skiptin og að hann „gæti ekki beð-
ið eftir að komast í eðlilegt starf
aftur“. Hann sagðist einnig von-
ast til þess að hitta sína gömlu vini
aftur og að hann væri leiður á að
vera umkringdur sníkjudýrum
sem hefðu bara áhuga á pening-
um hans. Carroll lifði hratt í þau
átta ár sem vinningurinn dugði
honum en lífsstíllinn varð til þess
að hann missti eiginkonu sína og
dóttur.
Carroll viðurkennir að
vinningurinn hafi breytt honum
þannig að ekkert nema eiturlyf,
kynlíf og gull hafi lengur vakið
áhuga hans. Carroll, sem skreytti
sig með miklum gullhálsfestum
eftir að hann vann, montaði
sig reglulega af því að sofa hjá
fjórum vændiskonum daglega.
„Með hjálp dópsins gat ég haldið
áfram svo dögum skipti - svo ég
eyddi bæði nóttum og dögum
í hórurnar. Partíinu er nú lokið
og ég er feginn. Nú sný ég aftur í
raunveruleikann og á ekki krónu
með gati og þannig vil ég hafa það.
Mér reynist auðveldara að lifa á 42
pundum en milljónum punda.“
Breskur lottóvinningshafi sóaði rúmlega 18 milljörðum í dóp, veðmál og hórur:
Milljarðamæringur aftur í ruslið
Í rusli Michael Carroll er feginn að partíinu sé lokið og að honum gangi betur að
lifa af á klinki en milljörðum.
Móðir morðingja
týnd
Breska lögreglan leitar nú að móður
Stephan Griffiths, sem var í síðustu
viku handtekinn í tengslum við
morð á þremur vændiskonum, en
Moira Griffiths virðist hafa horfið af
yfirborði jarðar. Stephan hefur ver-
ið ákærður fyrir að hafa myrt þær
Suzanne Blamires, 36 ára, Shelley
Armitage, 31 árs, og Susan Rush-
worth, 43 ára. Lögreglan fann fleiri
líkamshluta í ánni þar sem konurn-
ar fundust og þarf því að ræða við
Moiru. Sögusagnir um að hún hafi
sjálf starfað sem vændiskona á árum
áður fara nú fjöllum hærra.
Dennis Hopper
látinn
Hollywood-leikarinn og leikstjórinn
Dennis Hopper er látinn, 74 ára að
aldri. Hopper hafði barist við
krabbamein í blöðruhálskirtli og varð
að láta í minni pokann fyrir
sjúkdómnum á sunnudagsmorgun en
Hopper lést á heimili sínu í Kaliforníu.
Hann er líklega best þekktur fyrir leik
sinn í myndinni Easy Rider en
kvikmyndaferill hans nær aftur til
ársins 1950. Aðrar þekktar myndir
Hoppers eru Apocalypse Now, Rumbl
Fisk og Blue Velvet. Dennis Hopper
var einn af villingum Hollywood en
hann hafði háð baráttu við áfengis- og
fíkniefnadjöfulinn.
Sofnaði og sonur-
inn brann
Breska mamman sem skildi fimm
mánaða gamalt barn sitt úti í steikj-
andi sólinni segist hafa orðið ofur-
ölvi af einum bjór. Cosmo Wilson
varð fyrir alvarlegum bruna á yfir
40% líkama síns þegar móðir hans
lét hann liggja óvarinn á einum
heitasta degi ársins en hitastigið fór
upp í 27 gráður. Móðir hans, Anna
Wilson, segist viti sínu fjær vegna
atburðarins. „Við faðir hans viljum
bara ala son okkar upp og gleyma
þessari skelfilegu martröð.“ Faðirinn
var ekki viðstaddur þegar sonurinn
brann en hann segist fullviss um að
kona hans hafi ekki verið að drekka
sig fulla. „Þetta var slys. Hún ætlaði
að byggja kastala með Cosmo en
sofnaði eftir að hafa drukkið eina
bjórdós.“
SAMFEÐRA KÆRUSTUPAR
á lífinu árið 1980. Eftir nokkra daga
ástarsamband slitnaði upp úr hjá
þeim en ekki fyrr en Carmel hafði
orðið ófrísk. Hún sagði ekki Tom frá
James og var komin í samband með
Vincent áður en hann fæddist. Tom
frétti fyrst að syninum þegar James
var fjögurra ára og fór í forræðisdeilu
sem hann tapaði. James man lítið frá
þeim tíma en rámar sálfræðiviðöl
og dómsmál. „Ég man eftir að hafa
þurft að benda á pabba minn, sem
á þeim tíma var Vincent, í dómsal
og veit núna að dómarinn var að
ákveða hvort það væri skynsamlegt
að bjóða nýjum pabba inn í líf mitt.
Ég vildi fá að hitta þennan dómara í
dag og spyrja hann hvort hann væri
ánægður með störf sín.“
James og Tom höfðu strax náð
vel saman og James segist hafa
öfundað Mauru af því að eiga svona
gott samband við pabba sinn. „Tom
finnst að við eigum ekki að vera
saman og því höfum við þurft að
slíta öllu sambandi við hann. Ég get
ekki ímyndað mér hvernig honum
líður. Hann vissi af mér þarna úti en
gat ekki fengið að vera pabbi minn.
Svona lagað getur gerst ef feður fá
ekki jafnan rétt á við mæður.“
Fjölskylda James og Maura halda nöfnum
sínum leyndum. Þau ætla að gifta sig og eignast
fleiri börn þrátt fyrir að vera hálfsyskini.