Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Page 20
Valtur formaður n Staða Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar, formanns Framsóknar- flokksins, er afleit eftir að flokkurinn féll í rústir í þétt- býlinu. En þrátt fyrir augljóst áfall hefur Sigmund- ur verið einkar brattur og kennt öllum öðrum um en sjálfum sér. Guðmundur Steingrímsson, þingmaður og flokksbróðir hans, er á öðru máli og hefur beinlínis lúskr- að á formanninnum. Þykir einsýnt að Guðmundur undirbúi að hjóla í formanninn og setjast sjálfur í stól- inn. Hann er þannig þriðji ættliður- inn til forystu í flokknum. Afi hans, Hermann Jónasson, var forsætisráð- herra líkt og Steingrímur Hermanns- son, faðir Guðmundar. KVöldsett hjá degi n Dagur B. Eggertsson, varaformað- ur og oddviti Samfylkingar, stendur á brauðfótum eftir afhroð í Reykja- vík. Horft hefur verið til Dags sem arftaka Jóhönnu Sigurðardóttur á formannsstóli. Nú má ljóst vera að hann er út úr þeirri mynd. Með sigri í Reykjavík hefði Dagur tekið flugið til æðstu metorða. En nú blasir við að það húmar að kveldi í hans pólitíska lífi. örVænting sóleyjar n Nokkra athygli vakti hversu mik- ið vinstri græn í Reykjavík notuðu Steingrím J. Sigfússon, formann flokksins, í baráttunni fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í Reykjavík. Á föstudag sáust Sóley Tómasdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson, efstu menn á lista vinstri grænna í borginni, spássera um Austurvöll með Stein- grím J. uppi á arminn. Á laugardag var svo auglýsing með Steingrími J. og Katrínu Jakobsdóttir framarlega í Fréttablaðinu þar sem verið var að kynna framboð VG í sveitarstjórna- kosningunum. Töluvert aftar í blað- inu var svo auglýsing með mynd af frambjóðendum vinstri grænna í Reykjavík. Ekkert annað framboð notaði leiðtoga sína í landsmála- pólitíkinni. Þótti þetta benda til ör- væntingar vinstri grænna í Reykjavík vegna lélegs árangurs í skoðana- könnunum. ellý og sambýlis- maðurinn n Ellý Ármannsdóttir, fyrrverandi þula, var í Ósló dögum saman til að fylgjast með Eurovision-keppninni fyrir hönd 365 miðla Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Fyrir nokkru hætti Ellý í fússi sem blaðamaður á visir. is eftir samskipti við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þáverandi frétta stjóra. Vakti brotthvarfið nokkra athygli enda höfðu klámskotnar fréttir hennar á Vísi verið mjög til umræðu. Eftir að Óskar Hrafn hætti störfum skaust Ellý aftur inn á ljóshraða og var umsvifalaust send til Óslóar. Þess má geta að sambýlismaður hennar, Freyr Einarsson, fer nú með það vald sem Óskar hafði áður. Svarthöfði fylgdist auðvitað með sveitarstjórnakosning-unum um helgina af áhuga líkt og aðrir Íslendingar. Ein helstu tíðindin eftir kosningarnar eru auðvitað þau hversu laskaðir leiðtogar margra flokkanna eru eftir slælegt gengi og telur Svarthöfði að nokkrir þeirra muni ekki bera sitt barr aftur eftir skellinn. Reyndar var það svo að strax á kosninganóttina var byrjað að kalla eftir endurnýjun í efstu sætunum innan úr flokkunum sjálfum. Þannig telur Svarthöfði til dæmis að það sé alveg ljóst að Dagur B. Eggertsson muni að öllum líkindum ekki leiða lista Samfylkingarinnar aftur í næstu borgarstjórnarkosn- ingum í Reykjavík. Hann hefur nú fengið tvö tækifæri í borgarstjórnar- kosningum sem oddviti Samfylking- arinnar en á enn eftir að bíða kosn- ingasigur. Flokkur hans missir tvo borgarfulltrúa, fer frá fimm og niður í þrjá, og ýmislegt bendir til þess að Dagur hafi verið strikaður nokkuð út í kosningunum. Tap Dags og kallið eft-ir breytingum á flokks-forystunni í borginni sást einna best á því að fyrrver- andi framkvæmdastjóri Samfylk- ingarinnar, Karl Th. Birgisson, sagði það á sjálfa kosninganóttina að end- urnýjunar væri þörf hjá Samfylk- ingunni í borginni. Orð Karls mátti skilja sem beina gagnrýni á oddvit- ann hrokkinhærða og má ætla að þessi skoðun sé nokkuð útbreidd meðal flokksmanna þar sem Karl er áhrifamaður innan hans. Dagar Dags sem leiðtogi Samfylkingarinn- ar í borginni eru því líklega senn á enda. Annar leiðtogi sem beið enn meira afhroð en Dagur er aumingja Einar Skúlason, vinalega góð- mennið úr Framsóknarflokknum sem átti eftirminnilegasta slagorð- ið í kosningabarátunni. Einar náði ekki einu sinni að slefa í þriggja prósenta fylgi og var langt frá því að komast inn í borgarstjórn. Ljóst er að Einar er langt frá því að höfða til kjósenda og mun líklega þurfa að finna sér annan starfsvettvang en stjórnmál. Ósigur Einars er senni- lega sá mesti hjá leiðtogunum í borginni ef undan er skilið fram- boð Ólafs F. Magnúsar sem rétt svo komst á blað með nokkur hundruð atkvæði. Fjórði leiðtoginn sem senni-lega mun ekki leiða aftur lista í borgarstjórnarkosn-ingum í Reykjavík er Sóley Tómasdóttir, oddviti vinstri grænna, en flokkurinn hennar tapaði einum manni frá því í síðustu kosningum og situr hún nú ein í borgarstjórn. Sóley stendur afar veikt sem leiðtogi vinstri grænna í borginni og voru margir úr hennar eigin flokki fullir efasemda um að hún væri heppi- legur fyrsti maður á lista, meðal annars út af öfgafullum skoðunum. Kosningarnar hafa sannað að þær áhyggjur voru réttmætar og mun Sóley líklega ekki fá annað tækifæri hjá VG í borginni. Svarthöfði telur einnig að staða Hönnu Birnu Kristjáns-dóttir hafi veikst eftir kosn-ingarnar þar sem Sjálfstæð- isflokkurinn tapar tveimur mönnum en þó er hennar staða talsvert betri en hinna leiðtoganna og stendur hún enn nokkuð sterk sem leið- togi sjálfstæðismanna í borginni. Hanna Birna mun hugsanlega fá annað tækifæri í næstu kosningum til að leiða lista sjálfstæðismanna í borginni. Á meðan allir þetta fólk sleik-ir kosningasár sín sér Svart-höfði hvar spéfuglinn Jón Gnarr stendur og glottir út í annað og þegir. Enginn veit hvar Jón Gnarr stendur í stjórnmálum eða hvað hann ætlar að gera ef hann verður borgarstjóri en ljóst er að hann lagði keppinauta sína með því að ræna af þeim fylginu og fulltrú- unum. Eftir standa laskaðir leiðtogar í Reykjavíkurborg og telur Svart- höfði að fáir þeirra muni snúa aftur í næstu kosningum út af gamansamri leikfléttu Jóns Gnarr. LASKAÐIR LEIÐTOGAR „Já, það hefur alltaf verið stefnan og við ætlum ekkert að hvika frá því,“ segir Karl sigurðsson, nýkjörinn borgarfull- trúi Besta flokksins. Eitt mest áberandi stefnumál Besta flokksins var að fá ísbjörn í Húsdýragarð- inn. Nú er komið að flokknum að standa við stóru loforðin. Fáum vIÐ íSbjöRn í HúSdýRAGARÐInn?  „Ég hef prófað allt sem Obama hefur prófað.“ n Jón Gnarr aðspurður hvort hann hafi prófað fíkniefni. Obama hefur viðurkennt að hafa neytt kannabis og kókaíns á sínum yngri árum. Helmingur oddvita flokkanna í Reykjavík sögðust hafa reykt hass. -DV. „Þarna er rosa- lega gott dæmi um skaðsemi staðalímynda.“ n Halla Gunnarsdóttir, talskona Femínistafé- lags Íslands, um kynjaskiptingu nemenda í Auðarskóla. Stelpurnar fóru á snyrtinámskeið og fengu fyrirlestur um ótímabæra þungun en strákarnir fóru á fyrirlestur hjá Eve Online. -DV. „Amma segir að ég sé líkur Ben Affleck.“ n Alfreð Finnbogason leikmaður Breiðabliks um hvaða fræga einstaklingi hann líkist mest. -DV. „...þar sem fyrirtækið berst fyrir því að spilavíti verði leyfð.“ n Davíð Þór Rúnarsson pókerspilari um að það skjóti skökku við að Icelandair hafi ekki viljað styrkja góðgerðarpókermót sem hann skipulagði fyrir fjölskyldu drengsins sem lést nýverið í slysi í leiktæki. Fyrirtækið vildi ekki láta bendla sig við póker. -DV. „Það held ég að hljóti að gerast.“ n Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, um að aðrir þingmenn sem þáðu styrki hljóti að endurskoða stöðu sína eftir afsögn Steinnunnar Valdísar Óskarsdóttur. -RÚV Alls konar aumingjar Sigur Besta flokksins í Reykjavík felur í sér einhver stærstu tíðindi lýðveldissögunnar. Leikarinn og skemmtikrafturinn Jón Gnarr gerði sér lítið fyrir og dró með sér fimm borgar- fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur und- ir slagorðinu „Alls konar fyrir aumingja“. Besti flokkurinn kom eins og stormsveip- ur inn á sviðið og lagði í rúst stóran hluta af gamla, íslenska flokkakerfinu. Fram- sóknarflokkurinn þurrkaðist út í Reykja- vík. Samfylking og vinstri grænir urðu fyrir stóráfalli. Og Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihluta með því að tapa manni og samstarfsflokknum í heild sinni. Jón Gnarr er ekki sekur um að hafa lofað gulli og grænum skógum. Hann sagðist í upp- hafi vera að leita sér að þægilegri inni- vinnu sem borgarstjóri. Og hann ætlar að koma með ísbjörn í Húsdýragarðinn. Besti flokkurinn vann ekki kosninga- sigur sinn út á loforðin. Hann vann sig- ur sinn vegna þess að allir kjósendur hans eru að dæma stjórnmálastéttina í Reykjavík. Mörgum er ofboðið vegna síðasta kjörtímabils sem reis hæst með þeim ósköpum að Ólafur F. Magnússon var gerður að borgarstjóra til þess eins að Sjálfstæðisflokkurinn héldi völdum. Sigur Besta flokksins er þó ekki síst til- kominn vegna ríkisstjórnar sem er ein sú lélegasta í lýðveldissögunni. Undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur er lítið aðhafst og æpandi kyrrstaða ríkir. Samstarfsflokk- urinn logar í illdeilum og ráðamönnum þar er líkt við ketti. Þetta ástand varir á sama tíma og þjóðin þarfnast leiðtoga sem sameinar krafta stjórnmálanna til að koma Íslendingum úr djúpum dal kreppunnar. Og það hefur fátt lagast hvað varðar spillingu í mannaráðningum. Rík- isstjórnin hefur ráðið tugi manna án aug- lýsingar og gæðingar hennar raða sér á garðann. Ríkisstjórn jöfnuðar og yfirlýsts heiðarleika hefur krossbrugðist. Sigur Besta flokksins varpar skýru ljósi á það að innan fjórflokksins eru alls konar aum- ingjar sem þriðjungur kjósenda vill senda út í hafsauga. Svo mikil er reiðin að þús- undir þeirra kjósa óskrifað blað. Það er tilraunarinnar virði að gera Besta flokk- inn að ráðandi afli í Reykjavík. Og það er algjörlega ljóst að leifar fjórflokksins geta ekki útilokað Jón Gnarr frá meirihlutan- um. Menn verða að horfast í augu við orð- inn hlut. Vonin er sú að Jón verði eftir allt saman góður borgarstjóri og fólkið á lista hans muni siðvæða stjórnmálin. REYnIR TRAuSTASOn RITSTjóRI SKRIFAR. Leifar fjórflokksins geta ekki útilokað Jón Gnarr. 20 mánudagur 31. maí 2010 umræða sandkorn LyNgHáLs 5, 110 REykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja skaftadóttir framkvæmdaStjóri: Bogi Örn Emilsson ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is dv á netinu: Dv.Is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. leiðari spurningin svarthöfði bókstaflega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.