Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Síða 26
Þó lokatölurnar líti vel út var 4-0 sigur
Íslands á Andorra í æfingaleik á Laug-
ardalsvellinum allt annað en falleg-
ur. Það var þó ekki strákunum okkar
að kenna, heldur vildi svo til að KSÍ
hafði óvart boðið í heimsókn leiðin-
legasta liði Evrópu, og eflaust þó víð-
ar væri leitað. Andorra-menn virtust á
köflum hafa lítinn áhuga á fótbolta en
þeir lögðu allt sitt kapp á að brjóta illa
á íslenska liðinu, tefja leikinn meira
að segja tveimur til þremur mörk-
um undir og færðu sig varla fram yfir
miðju.
Íslensku strákarnir réðu þó ekkert
við verkefnið í fyrri hálfleik sem olli
gríðarlegum vonbrigðum. Með tvo
spennandi sóknartengiliði, Gylfa Þór
Sigurðsson og Birki Bjarnason, vonað-
ist maður eftir leiftrandi sóknarleik en
hvorugur gerði mikið af viti í fyrri hálf-
leik þó Birkir hafi sýnt ágætis takta.
Markið kom ekki fyrr en á 32. mínútu
og það úr vítaspyrnu sem var kolrang-
ur dómur. Ísland heppið að hafa skor-
að í fyrri hálfleik.
Forystan var tvöfölduð snemma í
seinni hálfleik þegar fyrirliði dagsins,
Heiðar Helguson, skoraði sitt annað
mark með glæsilegum skalla. And-
orra-menn urðu svo manni færri tut-
tugu mínútum fyrir leikslok en seinni
mörkin tvö komu ekki fyrr en nokkr-
um mínútum fyrir leikslok. Það síð-
asta frá Kolbeini Sigþórssyni var eink-
ar laglegt.
Sigurinn var heilt yfir ágætis þolin-
mæðisverk gegn hundleiðinlegu liði
Andorra. Með jafntekníska og léttleik-
andi stráka og spiluðu leikinn mátti
auðveldlega gera kröfu á betri og
hraðari fótbolta. Oft hefur Ísland þó
fallið á prófinu að klára svona leiki en
gerði það ekki í dag. Stórt spurninga-
merki verður þó að setja við hvað ís-
lenska liðið fær út úr svona leik gegn
jafnslökum og leiðinlegum mótherj-
um. Sigurinn stendur þó og var góður.
„Leikurinn var vissulega ekki sá
fallegasti og það tekur okkur tíma að
brjóta svona lið niður,“ sagði Ólafur
Jóhannesson landsliðsþjálfari eftir
leikinn. „Okkur gekk illa í fyrri hálfleik
að komast í gegnum þá, við vorum
svolítið staðir og lítil hreyfing á liðinu.
Boltinn gekk hægt og illa. Svo lagaðist
það í seinni hálfleik og hann var betri
þó hann hafi ekki verið neitt sérstakur.
Ég er ánægður með að við náðum
að halda þolinmæðinni og kláruðum
leikinn. Við fórum ekki út í eitthvað
kæruleysi og stæla,“ sagði Ólafur sem
var ánægður með leik ungu piltanna í
leiknum. „Mér fannst ungu strákarnir
sýna mér fína takta. Þetta eru strákar
sem eru í fínu lagi,“ sagði Ólafur.
tomas@dv.is
Ísland lagði Andorra örugglega, 4-0, á Laugardalsvelli:
Góður siGur á vondu liði
Úthýst vegna eurovision Veigar Páll Gunnarsson kom inn á sem varamaður í
4-0 sigri Íslands á Andorra og skoraði eitt mark úr víti. Veigar leikur með Stabæk í Noregi sem hefur ekki
haft heimavöll síðastliðinn mánuð þar sem höllin þeirra, Telenor Arena, hefur verið heimavöllur Eurov-
ision-keppninnar. Þegar DV spurði Veigar eftir leik hvort liðinu hafi einfaldlega verið sagt að Hera Björk
og félagar væru að mæta og Stabæk þyrfti að fara annað svaraði framherjinn með bros á vör: „Já, eig-
inlega.“ Stabæk hefur þess í stað spilað heimaleiki sína á Ulleval, þjóðarvelli Noregs. „Við erum taplausir
þar, með tvo sigra og eitt jafntefli, þannig að þetta hefur ekki verið svo slæmt,“ segir hann en eftir erfiða
byrjun á tímabilinu hefur Stabæk verið að rífa sig upp. „Okkur gengur miklu betur núna. Með bikar-
leiknum um daginn erum við búnir að vinna fimm í röð. Þetta er allt á uppleið,“ segir Veigar Páll.
UMSJóN: TóMAS Þór ÞórðArSON, tomas@dv.is
26 mánudaGur 31. maí 2010 sport
MoLar
ætlar að halda
sér í hópnum
n „Við sýndum alls ekki okkar besta
fótbolta en það er ekki hægt að
kvarta yfir 4-0 sigri,“ sagði Kolbeinn
Sigþórsson, framherji íslenska liðs-
ins, eftir sigur-
inn á Andorra.
Kolbeinn kom
inn á í seinni
hálfleik og skor-
aði gott mark,
hans annað í
þremur lands-
leikjum. Hann
stefnir á það að
vera í hópnum í haust þegar undan-
keppni Evrópumótsins hefst. „Það
er mitt markmið að halda mér inni í
þessu og vonandi hef ég náð að sýna
Óla eitthvað,“ segir Kolbeinn sem
leikur með hollenska liðinu AZ Alk-
maar eins og annar landsliðsmað-
ur, Jóhann Berg Guðmundsson.
KlessuKeyrði
félaGann
n Lewis Hamilton á McLaren fékk
sigurinn í tyrkneska kappakstrin-
um á silfurfati á sunnudaginn þeg-
ar hann vann sitt fyrsta mót á árinu.
Red Bull-félagarnir Mark Webber
og Sebastian Vettel leiddu keppn-
ina og stefndi allt í tvöfaldan sigur
þeirra. Vettel reyndi þá framúr-
akstur á Webb-
er en klessti á
dekk á bíl hans
og hringsner-
ist sjálfur út
af brautinni.
Webber þurfti að
fá nýja trjónu á
bílinn á viðgerð-
arsvæðinu og á
meðan stungu McLaren-mennirn-
ir, Hamilton og Button, af og höfðu
tvöfaldan sigur. Webber var þriðji
og heldur forystunni í stigamótinu.
mátti reyna
framúraKstur
n Eftir atvikið milli Vettel og Webb-
er fórnuðu þeir báðir höndum liðs-
stjóri Red Bull, Christian Horner,
og tæknistjórinn, Adrian Newey.
Hinn margreyndi Formúluspeking-
ur BBC, Eddie Jordan, sagði þó um
atvikið í beinni útsendingu. „Þetta
er ekki svona svart og hvítt eins og
yfirmenn Red Bull halda. Það var
greinilega eitthvað að hjá Webb-
er og því mátti Vettel alveg reyna
framúrakstur. Mistökin voru þó að
ógna honum fyrst þannig að Webb-
er setti sig í varnarstellingar. Sökin
er algjörlega Vettels en hann var í
fullum rétti að reyna þetta.“
„Það var fagnað vel og lengi og þær
áttu það svo sannarlega skilið,“ seg-
ir Júlíus Jónasson, þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins í handbolta, en
stelpurnar tryggðu sér sæti í loka-
keppni EM á laugardagskvöldið í
Austurríki. Þær töpuðu leiknum með
þremur mörkum, 26-23, en höfðu
betur í innbyrðis viðureignum lið-
anna og fylgja því Frakklandi í úr-
slitakeppnina. Þetta er í fyrsta skiptið
sem íslenska kvennalandsliðið leikur
á lokakeppni stórmóts. Fá Íslending-
ar því algjöra handboltaveislu um og
eftir áramót en stelpurnar leika á EM
í Danmörku og Noregi í desember
og svo hefja strákarnir leik í janúar á
næsta ári á HM í Svíþjóð.
Mótlætið gerði þetta sætara
Íslensku stelpurnar fóru vel af stað í
leiknum og leiddu snemma í seinni
hálfleik með tveimur mörkum, 17-15.
Hlutirnir fóru þá að snúast í höndun-
um á þeim og þegar rétt ríflega mínúta
var eftir hafði Austurríki yfir, 26-23. Ís-
lensku stelpurnar héldu þó hreinu
síðustu mínútuna og tryggðu sér far-
seðilinn með frábærri vörn og mark-
vörslu en Berglind Íris Hansdóttir fór
á kostum í leiknum og varði 20 skot.
„Spennustigið var alveg mjög gott
og stelpurnar voru sallarólegar, það
var ekki málið. Við lentum aftur á móti
mikið í tveggja mínútna brottvísun-
um og þær koma Austurríki inn í leik-
inn. Það var líka eðlilega mikill hávaði
í höllinni og allir á móti okkur. Dóm-
ararnir voru heldur ekkert alveg okk-
ar megin en allt þetta gerði sigurinn
bara enn sætari. Stelpurnar voru alveg
svellkaldar allan tímann og spiluðu
eins og við lögðum upp,“ segir Júlíus
hæstánægður.
Leika nú við stóru stelpurnar
Júlíus tók við landsliðinu fyrir fjórum
árum og var strax sett langtímamark-
mikið að komast á stórmót. „Við byrj-
uðum á því að yngja hópinn. Síðan
þá hefur verið markmiðið að koma
liðinu á stórmót. Það eru tvö ár síðan
við spiluðum við Rúmeníu umspil-
sleiki um sæti á HM sem við töpuð-
um reyndar sannfærandi. Þar fundum
við aðeins lyktina af þessu og vildum
virkilega reyna að komast á stórmót,“
segir Júlíus en þessi árangur skilar Ís-
landi mun lengra en bara á EM.
„Þetta er í raun og veru eins og að
fara úr 1. deild upp í úrvalsdeild. Nú
fáum við miklu fleiri möguleika hvað
varðar mótaval og okkur verður boðið
á sterkari mót. Andstæðingarnir verða
sterkari og við munum upplifa betri
umgjörð í kringum leikina. Þetta eiga
stelpurnar líka skilið. Þær eru bara al-
gjörar hetjur,“ segir Júlíus stoltur.
Keppa í mekka handboltans
EM í desember fer áður eins og áður
hefur komið fram í Danmörku og Nor-
egi. Þar hafa verið ein langsterkustu
landslið undanfarinna áratuga og
segir Júlíus að mótið ætti að vera hið
glæsilegasta. „Þetta er ekki bara ein-
hver úrslitakeppni á EM. Við erum að
fara að keppa í mekka handboltans,
ekki Litháen eða Hvíta-Rússlandi.
Þarna verða fullar hallir og allt alveg
ógeðslega flott. Þetta er ekki ósvipað
því þegar strákarnar spiluðu í Þýska-
landi 2007,“ segir Júlíus.
„Við hittumst ekkert fyrr en í sept-
ember aftur,“ bætir hann við aðspurð-
ur að lokum um undirbúninginn. „Ég
er samt farinn að leggja inn orð hjá
stelpunum um að fara að undirbúa
sig fyrir þetta. Það hefur verið mark-
viss og þrotlaus vinna að koma okk-
ur svona langt og nú bíður enn meira
spennandi verkefni handan hornsins,“
segir fyrsti maðurinn til þess að koma
íslenska kvennalandsliðinu á loka-
keppni stórmóts, Júlíus Jónasson.
Blað Brotið
í austurríki
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik skrifaði nýjan kafla í íslenska íþróttasögu
á laugardaginn þegar það tryggði sér þátttökurétt á Evrópumótinu sem fram fer í Dan-
mörku og Noregi í desember. Aldrei áður hefur kvennalandsliðið leikið í lokakeppni
stórmóts. „Þetta eru algjörar hetjur,“ segir landsliðsþjálfarinn.
tóMAS þór þórðArSoN
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Flogið í úrslit Stelpurnar okkar
verða í Danmörku og Noregi 6.-
19. desember í lokakeppni EM.
MyNd róBert reyNiSSoN
Glæsimark Kolbeinn Sigþórsson skoraði
sitt annað mark í þremur landsleikjum
með glæsilegu skoti á 89. mínútu.
MyNd toMASz KoLodzieJSKi