Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Side 31
...sjónvarps-
þættinum
Cougar Town
Konungleg
skemmtun.
...myndinni
Get Him to
the Greek
Stórskemmti-
leg og
krassandi
grínmynd.
...myndinni
Snabba
Cash
Mjög góð
glæpamynd
með sterka
raunveruleika-
tengingu
...handbókinni
um Heims-
meistara-
keppnina 2010
Grátlegt að sjá hve
illa er farið með
gott efni í þýðingu
bókarinnar.
föSTudaGur
n 1 árs afmæli Spot
Skemmtistaðurinn Spot í Kópavogi
fagnar eins árs afmæli á föstudag.
Fjölbreytt dagskrá verður fram á nótt
en fram koma meðal annars hljómsveit-
irnar Dalton, Íslenska sveitin, meðlimir
Hunangs og Spútnik.
n Jónsvaka á Nasa
Tónlistarhátíðin Jónsmessa stendur yfir
fimmtudag, föstudag og laugardag á
Nasa. Hægt er að kaupa miða og nálgast
frekari upplýsingar á midi.is. Föstudags-
kvöld koma fram Foreign Monkeys, For
A Minor Reflection, Mammút, Agent
Fresco, Seabear og Ensími. Húsið er
opnað klukkan tíu og aldurstakmark er
20 ára.
n Afrískt ball í Iðnó
Afríka 20:20 stendur fyrir afrísku balli
í Iðnó. Húsið er opnað klukkan 22.00
og klukkan 22:30 munu trommarar frá
Gíneu stíga á svið ásamt afródönsurum.
Aðgangseyrir er 1000 kr.
lauGardaGur
n Herraklúbburinn Fancy á 800 Bar
Herraklúbburinn Fancy heldur skemmti-
kvöld á 800 Bar á Selfossi á laugardag.
Fram koma Steindi Jr., Blaz Roca og Bent,
Bobbinn og fleiri góðir. Húsið er opnað
klukkan 23.00 og er miðaverð 1000
krónur. Ýmislegt annað verður á dagskrá
eins og listasýning hjá hinum unga og
upprennandi listamanni Ílan.
n Klaufaball á Flúðum
Hið árlega Klaufaball verður á Flúðum
um helgina. Ef þú ert óheppinn verður
þú að mæta. Heimamenn eru beðnir um
að mæta í gúmmítúttum.
n Jónsvaka á Nasa
Tónlistarhátíðin Jónsmessa stendur
yfir fimmtudag, föstudag og laugardag
á Nasa. Hægt er að kaupa miða og
nálgast frekari upplýsingar á midi.is.
Laugardagskvöld koma fram Hudson
Wanye, Sudden Wether Change, Kimono,
Hjaltalín og Bloodgroup. Húsið er opnað
klukkan hálf ellefu og aldurstakmark er
20 ára.
n Bílaball á Delludögum
Bílaball verður haldið í fyrsta sinn á Sel-
fossi um helgina í tilefni af Delludögum
en þeir eru haldnir af bílaáhugamönnum
á Suðurlandi sem eru jú nokkrir.
Miðaverð er 2000 krónur en félagsmenn
í akstursmannaklúbbunum á svæðinu fá
500 króna afslátt.
Hvað er að
GERAST?
Pabbar gætu grátið
Addi er á leið að heiman í háskóla
og er hættur að leika sér með leik-
föngin sín. Í stað þess að fara á
háaloftið enda leikföngin fyrir mis-
skilning á barnadagheimili, þar
sem þau hitta fyrir stóran hóp leik-
fanga, þar á meðal dúkkuna Ken
(Michael Keaton) og bleika kær-
leiksbjörninn Lotso (Ned Beatty).
Þó er ekki allt með felldu í nýju
heimkynnunum og ákveða leik-
föng Adda að flýja. Það er þó langt
frá því að vera auðvelt.
Eins og nafnið gefur sterklega til
kynna er þetta þriðja myndin í Toy
Story-bálknum. Fyrsta myndin var
frumsýnd árið 1994 og þótti bylt-
ingarkennd á sínum tíma, enda
fyrsta tölvuteiknimyndin í fullri
lengd. Hún fékk, ásamt framhalds-
myndinni sem frumsýnd var 1999,
einróma lof gagnrýnenda og eru
væntingar til þriðju myndarinnar
þar af leiðandi í algjöru hámarki.
Það er óhætt að segja að Toy Story
3 standist allar þær væntingar og
jafnvel meira en það.
Leikraddir eru að mestu eins
og í fyrri myndunum. Tom Hanks
og Tim Allen eru sem fyrr góðir
sem Viddi og Bósi og Ned Beatty
er frábær sem illi og þjáði kær-
leiksbjörninn Lotso. Þar að auki er
Michael Keaton ótrúlega fyndinn
sem Ken, sem verður strax ástfang-
inn af Barbí á dagheimilinu.
Söguþráðurinn spennandi og
frumlegur en myndin byrjar á frá-
bæru atriði og eftir það er ekki aft-
ur snúið. Myndin heldur athygli
manns og áhuga allan tímann og
missir aldrei dampinn eða verð-
ur leiðigjörn á nokkurn hátt. Upp-
byggingin er svo þægileg að maður
gleymir algjörlega stund og stað.
Karakterarnir eru lifandi og
fjölbreyttir og fyrir löngu orðnir að
heimilisvinum hjá mörgum. Til-
finningaríkir áhorfendur munu
berjast við tárin og jafnvel mestu
karlmenni munu klökkna undir
lokin þegar langri sögu leikfang-
anna og Adda er lokað á smekkleg-
an hátt.
Toy Story 3 er frábær mynd og
enn ein rósin í hnappagat Pixar,
sem enn hefur ekki tekist að gera
slæma mynd. Allt í myndinni virk-
ar. Hún hefur frábæran söguþráð,
persónurnar eru vel skrifaðar og
talsetningin virkilega góð. Þar fyr-
ir utan er hún alveg ótrúlega fynd-
in. Þetta er sannarlega mynd fyrir
alla.
Jón Ingi Stefánsson
...myndinni
The a-Team
Hraður og
hávær Holly-
wood-hasar
sem flestir ættu
að geta skemmt
sér yfir.
...myndinni
The losers
Stórskemmtileg
föstudagsmynd
fyrir þá sem vilja
slökkva aðeins
á heilanum í lok
vikunnar.
föstudagur 25. júní 2010 fókus 31
toy story 3
Leikstjóri: Lee Unkrich.
Leikraddir: Tom Hanks, Tim Allen,
Joan Cusack, Ned Beatty og Michael
Keaton.
kvikmyndir
Úlfur í sauðagæru? Lotso sýnir
leikföngunum nýju heimkynnin.
Í Sömu aðSTæðum
oG aðalperSónan
og ímynda sér eina kvöldstund að
það þeir séu í útlöndum. „Þetta er til
dæmis ágætis kvöldstundarferð fyr-
ir Íslendinga á Íslandi. Svona dálítið
eins og þeir séu í útlöndum. Þetta er
snilld fyrir hjón,“ segir Þórunn á léttu
nótunum.
Verkið er ekki það eina sem Þór-
unn leggur til ferðamannabransans í
ár því hún ætlar einnig að syngja fyrir
ferðamenn í sumar. „Ég er í samstarfi
við Valgeir Guðjónsson. Við erum
með prógramm sem verður á dag-
skrá fyrir erlenda ferðamenn,“ seg-
ir Þórunn sem er einnig þekkt fyrir
sönghæfileika sína. Valgeir er ásamt
eiginkonu sinni að opna sal í Slippn-
um þar sem verða hinar ýmsu menn-
ingarlegu uppákomur ásamt því að
bjóða upp á léttar veitingar. Saman
ætla þau Þórunn og Valgeir að syngja
þekkt íslensk þjóðlög fyrir ferðamenn
og því nóg að gera hjá Þórunni í sum-
ar. „Þetta er svona hálfgert ferða-
mannasumar hjá mér, meðan ég er
í fríi. Maður vonar bara að eldfjöll-
in haldi sér í skefjum,“ segir Þórunn
kímin.
Skemmtilegra að brosa
Þórunn segist hafa lært mikið af
hlutverkinu sem hún leikur í Selló-
fón. „Að leika þetta hlutverk hefur
kennt mér rosalega mikið. Það hefur
sýnt mér að það er miklu skemmti-
legra að fara í gegnum lífið bros-
andi.“ Ég fæ líka afskaplega mikla út-
rás fyrir blótþörf í verkinu, persónan
sleppir sér öðru hverju,“ segir Þór-
unn og hlær.
Það er nóg fram undan hjá Þór-
unni. Í haust heldur hún áfram að
leika í Þjóðleikhúsinu þar sem hún
er samningsbundin. Þar mun hún
leika áfram í Íslandsklukkunni sem
hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda
auk þess að leika í nýju finnsku verki
sem nefnist Finnski hesturinn. „Það
er mjög kómískt og jafnframt djúpt
verk,“ segir Þórunn spennt og bætir
við: „En það er ekki fyrr en í haust,
þangað til ætla ég að njóta sumarsins
og ferðast um allt land og tjalda með
fjölskyldunni,“ segir þessi brosmilda
leikkona að lokum.
viktoria@dv.is
ÞóruNN LáruSDóttIr Getur
speglað sig að vissu leyti í verkinu.
MYND HÖrÐur SVEINSSON
Þetta er að mestu leyti
spegill á útivinnandi
konu sem hefur mik-
ið að gera og ætlar að
standa sig vel.