Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Qupperneq 4
HIRÐMENN DAVÍÐS
n Ólafur Arnarson, bloggari og
hagfræðingur, er ofarlega á óvin-
alista Davíðs Oddssonar og hirð-
manna hans.
Varla líður sá
dagur að amx.
is reki ekki horn
sín í álitsgjaf-
ann. Venjulega
fylgir Eyju-
bloggarinn
Skafti Harðar-
son á eftir og
Staksteinar Moggans reka gjarn-
an lestina. Allt þetta lið hælir svo
hvert öðru í kross. Nýverið hefur
Davíð fært sig upp á skaftið og
notar hann leiðara til að hæla
hirðmönnum sínum. Fylgir þá
gjarnan hringekjan á eftir og hæl-
ir foringjanum.
SJÁLFSHÓL
FORINGJANS
n Þótt Ólafur Arnarson, álitsgjafi
og bloggari, búi að langlundar-
geði kom sá tími að hann hjólaði
af hörku í Davíð
Oddsson, rit-
stjóra og einn
af höfuðpaur-
um hrunsins.
Ólafur skrifaði
bloggfærslu á
Pressuna sem
er nístandi háð
um gamla for-
ingjann sem hann kallar við-
kvæma og jafnvel brothætta sál.
Fer Ólafur nokkrum orðum um
sjálfshól hins fallna og smáða for-
ingja sem einkennir leiðara, Stak-
steina og Reykjavíkurbréf Mogg-
ans. Hæst reis sjálfsupphafningin
í Reykjavíkurbréfi þar sem Davíð
birti með textanum þrjár myndir
af sjálfum sér með mikilmennum
á heimssviðinu.
RÁÐHERRA GEGN
YFIRLÆKNI
n Þorsteinn Jóhannesson, yf-
irlæknir á Ísafirði, er í slæmum
málum eftir að DV upplýsti um
greiðslur sem
hann sjálf-
ur ákvarðaði
einkahlutafé-
lagi sínu, Skurð-
lækninum ehf.
Félagið tók sjö
milljónir á ári
fyrir bakvakt-
irnar í gegnum
spítalann með góðfúslegu leyfi yf-
irlæknisins sem sjálfur stóð vakt-
irnar. Álfheiður Ingadóttir heil-
brigðisráðherra hefur nú boðað
rannsókn á framferði yfirlæknis-
ins sem situr allt í kringum borðið
og deilir út bitlingum.
ÆVISAGA BÍTLAVINA
n Tónlistarmaðurinn Jón Ólafs-
son gerði það gott fyrir síðustu jól
með ævisögu sinni um Vilhjálm
Vilhjálmsson söngvara sem féll
frá langt um aldur fram. Nú vinn-
ur Jón að ævisögu Rafns heitins
Jónssonar tónlistarmanns sem
lést í blóma lífsins eftir áralanga
baráttu við MND-sjúkdóminn.
Rafn og Jón voru miklir félagar en
þeir stóðu meðal annars að Bítla-
vinafélaginu. Ekki er ólíklegt að
bókin um Rafn eigi eftir að verða í
toppslagnum á jólabókamarkaði.
SANDKORN
4 FRÉTTIR 13. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
Dómsmálaráðherra vísar í skilgreiningar Europol á Hells Angels:
Vítisenglar sagðir glæpasamtök
Evrópulögreglan, Europol, skilgrein-
ir alþjóðlegu mótorhjólasamtökin
Hells Angels, Vítisengla, sem skipu-
lögð glæpasamtök. Það kemur skýrt
fram í nýlegri fréttatilkynningu Euro-
pol um Vítisengla.
Í þeirri von að útrýma skipulagðri
glæpastarfsemi er Europol farið að
beina sjónum sínum að alþjóðleg-
um mótorhjólasamtökum, meðal
annars Vítisenglum. Í tilkynningu
lögreglunnar er fullyrt að samtök-
in hafi af fullu afli tengst skipulagðri
glæpastarfsemi af ýmsum toga, eink-
um sölu fíkniefna. Þar er meðlimum
lýst á þann veg að þeir telji sig alfarið
hafna yfir öll lög og að samtökin hafi
náð hraðri útbreiðslu á undanförn-
um árum.
Ragna Árnadóttir dómsmála-
ráðherra kreppir nú hnefana og
undirbýr löggjöf til að koma í veg
fyrir að Vítisenglar nái fótfestu hér
á landi. Forsvarsmenn Vítisengl-
anna eru ósáttir og íhuga að leita
réttar síns gagnvart ráðherra vegna
ærumeiðandi ummæla í þá veru
að flokka samtökin hérlendis sem
glæpasamtök. „Það er að sjálfsögðu
ekkert við það að athuga að menn
leiti til dómstóla telji þeir á sér
brotið. Það hefur hins vegar legið
fyrir um árabil að sú starfsemi sem
Hells Angels samtökin hafa stað-
ið fyrir víða um heim er af erlend-
um lögregluyfirvöldum flokkuð
sem skipulögð glæpastarfsemi. Nú
síðast kemur þetta fram í nýlegri
fréttatilkynningu Europol frá 30.
júlí síðastliðinn þar sem starfsemi
Hells Angels vélhjólaklúbbsins er
lýst,“ segir Ragna.
Ragna Árnadóttir Segir Europol ekki hika við að skilgreina Hells Angels sem
skipulögð glæpasamtök.
Landsbankinn kveðst ekki hafa lánað Lyfjaþjónustunni 250 milljónir króna fyrir kaup-
um á lyfjadreifingarfyrirtækinu Parlogis. Viðurkennt er að Landsbankinn afskrifaði
að minnsta kosti einn milljarð vegna fyrirtækisins. Kristján Jóhannsson lektor við Há-
skóla Íslands og viðskiptafélagar hans hafa nú tögl og hagldir í Icepharma og Parlogis.
MILLJARÐUR
AFSKRIFAÐUR
Landsbankinn vísar á bug að óheið-
arlega hafi verið staðið að sölu lyfja-
dreifingarfélagsins Parlogis ehf. í lok
júlí. Þá segist bankinn ekki hafa lán-
að Lyfjaþjónustunni ehf. fyrir kaup-
unum og ranglega sé haldið fram í
frétt DV á mánudaginn var að afskrif-
aðar hafi verið háar fjárhæðir við söl-
una.
Málsatvik eru þau að Landsbank-
inn hóf sölumeðferð Parlogis við
Krókháls í Reykjavík snemma í maí
í vor. Vestia, dótturfélag Landsbank-
ans (NBI) átti 80 prósent en Atorka
20 prósent í félaginu eftir gjaldþrot
fyrri eigenda. Í raun fór Landsbank-
inn með allt vald yfir félaginu þar
sem bankinn er jafnframt stærsti
kröfuhafinn í Atorku.
Tapað fé
Ljóst er að við söluna á Parlogis varð
um það bil eins milljarðs afskrift af
hálfu Landsbankans að veruleika.
Skýringuna er að finna í ársreikn-
ingi Parlogis fyrir árið 2009. Þar kem-
ur fram að hlutafé félagsins hafi ver-
ið aukið um 1.253 milljónir króna
með skuldbreytingu. Þetta merkir
að Landsbankinn ákvað eftir lang-
vinna rekstrarerfiðleika fyrri eigenda
Parlogis að breyta kröfum sínum í
hlutafé. Þegar Kristján og fleiri stað-
greiddu 250 milljónir króna fyrir fé-
lagið í lok júlí hafði bankinn því end-
anlega tapað og þar með afskrifað
liðlega einn milljarð króna.
Kristján Kristjánsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsbankans, segir að
skuldbreytingin og þar með afskrift-
in hafi farið fram fyrir löngu enda
hafi það verið forsenda þess að halda
Parlogis í rekstrarhæfu ástandi. „Það
er engan veginn viðeigandi að kaup-
endur hafi fengið Parlogis á silfur-
fati,“ segir Kristján og bætir við
að nýir eigendur taki við 1.100
milljóna króna skuldum.
DV hélt því ekki fram að
Landsbankinn hefði lánað
Lyfjaþjónustunni 250 millj-
ónir króna fyrir kaupunum
en leiddi þó að því nokkr-
ar líkur að svo hefði
verið þar sem ný-
lega birtar upplýs-
ingar um önnur
félög, sem tengjast
Kristjáni Jóhanns-
syni og fleiri mönn-
um, virðast ekki hafa haft fé til að
lána Lyfjaþjónustunni fé til kaup-
anna. Þannig var til dæmis eigið fé
Akureyjar ehf. í eigu Kristjáns og
fleiri manna neikvætt um nærri 1,3
milljarða króna í árslok 2008. Akurey
er að sínu leyti aðaleigandi Lyngs
ehf. sem á Icepharma að öllu leyti.
Mikilvægir samningar eru fyrir hendi
millli Icepharma og Parlogis um sölu
og dreifingu lyfja og tækja í heilbrigð-
isþjónustu sem gera síðarnefnda fé-
lagið háð Icepharma til ársloka 2011.
Með kaupum Kristjáns og fleiri á Par-
logis er því búið að koma á nánum
eignatengslum milli Icepharma og
Parlogis sem fer með um 30 prósent
lyfjadreifingarinnar í landinu.
Hjá Creditinfo var Kristján Jó-
hannsson upphaflega einn skráður
eigandi Lyfjaþjónustunnar ehf. sem
er nýtt félag. Landsbankinn upplýsir
nú að eigendurnir séu fleiri. Óútskýrt
er því hvers vegna Kristján var upp-
haflega einn skráður fyrir Lyfjaþjón-
ustunni.
Tengsl
Inga Rósa Guðmundsdóttir lyfja-
fræðingur hjá Lyfjastofnun var til-
greind sem eigandi eignarhalds-
félagsins Akureyjar ásamt Kristjáni
en hún er tengdadóttir Kristjáns. Að-
spurð kveðst hún ekki vera meðal
eigenda Akureyjar lengur. Slíkt hefði
enda getað bakað henni hagsmuna-
árekstra og vanhæfi meðal annars
vegna trúnaðarupplýsinga sem
Lyfja stofnun býr yfir.
„Þegar starfsmenn Lyfjastofnun-
ar hefja störf þurfa þeir lögum sam-
kvæmt að undirrita yfirlýsingu um að
þeir eigi engra hagsmuna að gæta,“
segir Rannveig Gunnarsdóttir, for-
stjóri Lyfjastofnunar, í samtali við DV
og bætir við að viðkomandi starfs-
maður njóti fulls trausts.
Kristján Jóhannsson er tekjuhæsti
háskólamaðurinn í landinu sam-
kvæmt álagningarskrám með um 2,2
milljónir króna á mánuði. Hann var
framkvæmdastjóri AB-bókaforlags-
ins þegar það varð gjaldþrota fyr-
ir um 20 árum og starfaði þá með-
al annars með Brynjólfi Bjarnasyni,
núverandi forstjóra Skipta. Þess má
geta að Gunnar Helgi Hálfdánarson,
núverandi stjórnarformaður Lands-
bankans, er aldavinur Kristjáns.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Þegar Kristján og fleiri stað-
greiddu 250 milljónir
króna fyrir félagið í lok
júlí hafði bankinn því
endanlega tapað og þar
með afskrifað liðlega
einn milljarð króna.
Vel tengdur
Kristján Jóhanns-
son og félagar
fengu ekki lánaðar
250 milljónir hjá
Landsbankanum til
kaupa á Parlogis
Nátengd
fyrirtæki Ósvarað
er hvort einn eða
fleiri aðilar hafi á
endanum lagt fram
skuldbindandi tilboð í Par-
logis sem nú er í höndum
eigenda Icepharma.
Ekkert á silfurfati
Kristján Kristjánsson
segir að ekki sé um
nýja afskrift að ræða
við söluna á Parlogis.
Hún hafi farið fram
þegar bankinn tók við
fyrirtækinu.