Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Side 10
10 fréttir 13. ágúst 2010 föstudagur
Reykjavík Geothermal hefur fundið
jarðhita sem hægt er að nýta til upp-
byggingar kælikerfis í Masdar í Abu-
Dhabi. Boraðar voru þrjár rannsókn-
arholur og hefur fyrirtækið skilað
þeim öllum af sér. Guðmundur Þór-
oddsson, forstjóri fyrirtækisins, segir
verkefnum fyrirtækisins í Masdar þar
með lokið.
Eftir á að gera frekari rannsóknir
á holunum og virkja þær. Að öllum
líkindum verða þær nýttar í kælikerfi
borgarinnar. Masdar er borg í mót-
un, en markmiðið er að notast að-
eins við endurnýjanlega orkugjafa til
að halda henni gangandi. „Þessum
áfanga verkefnisins er lokið. Það er
búið að finna jarðhitann og sanna að
hann er til staðar,“ segir Guðmundur.
Guðmundur var forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur og síðar Reykjavík
Energy Invest þar til hann hætti störf-
um þar í kjölfar REI-málsins svokall-
aða. Hann stofnaði síðan Reykjavík
Geothermal árið 2008. Hjá fyrirtæk-
inu vinna nú ellefu manns. Fyrirtæk-
ið er með skrifstofu í Abu-Dhabi þótt
höfuðstöðvar þess séu í Reykjavík. Í
Abu-Dhabi eru líka höfuðstöðvar Al-
þjóðastofnunarinnar um endurnýj-
anlega orkugjafa.
Guðmundur segir fyrirtækið nú
vera með ýmis verkefni í Afríku í píp-
unum, þar á meðal í Kenía. Í Afríku
sé mikill áhugi á að nýta jarðhita til
orkuframleiðslu. Ætla megi að hægt
sé að búa til um fjórtán þúsund
megavött af raforku í Afríku með nýt-
ingu jarðhita. Í Kenía sé möguleiki á
að virkja fjögur þúsund megavött. Þá
hefur Reykjavík Geothermal einnig
verið með verkefni í undirbúningi í
Rússlandi og Indlandi. „Staðan (fyr-
irtækisins: innskot blaðamanns) er
ágæt. Við skiluðum hagnaði á síðasta
ári og þetta ár lítur vel út,“ segir Guð-
mundur.
Fjöldi fyrirtækja í útrás
Reykjavík Geothermal er aðeins eitt
af mörgum félögum sem stofnuð
hafa verið utan um verkefni í nýtingu
endurnýjanlegra orkugjafa erlendis.
Geysir Green Energy hefur verið um-
svifamikið í ýmiss konar verkefnum
á erlendum vettvangi, einkum í Kína
og Bandaríkjunum. Meira að segja
opinbera fyrirtækið Landsvirkjun
stofnaði félagið Hydrokraft Invest
utan um vatnsaflsverkefni hennar
erlendis. Þá hefur verkfræðistofan
Mannvit sótt í auknum mæli verk-
efni út fyrir landsteinana vegna þess
hversu mikið þeim hefur fækkað hér-
lendis.
Í maí skrifuðu svo átta fyrir-
tæki í jarðhitanýtingu undir sam-
starfssamning um að vinna saman
að verkefnum erlendis. Þetta voru
Orkuveita Reykjavíkur og Íslensk-
ar orkurannsóknir auk arkitekta- og
verkfræðistofanna EFLU, Mannvits,
Verkís, T.ark – teiknistofu og Lands-
lags. Orkuveita Reykjavíkur hefur
meðal annars leitað eftir samstarfi
við japanska banka og þróunarsjóði
um að þeir komi að fjármögnun jarð-
hitaverkefna í þróunarríkjum. Þetta
er síðasta útrás íslenskra fyrirtækja
þótt hún verði kannski ekki sú síð-
asta.
Útrásin er í samræmi við þá
stefnu sem stjórnvöld hafa markað á
síðustu árum um að íslenskar verk-
fræðistofur og orkufyrirtæki vinni
að verkefnum um nýtingu endur-
nýjanlegra orkugjafa til orkuvinnslu
í útlöndum. „Hér er einnig óhjá-
kvæmilegt að nefna möguleika á að
nýta íslenska jarðhitaþekkingu á er-
lendri grundu því ef verkefnaskort-
Mannvit hannaði hitaveitu í Ungverjalandi Á annan tug starfsmanna hefur
starfað fyrir Mannvit úti í Ungverjalandi. Hér sést Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra ásamt starfsmönnum Mannvits. Pál Kovács, vararáðuneytisstjóri þróunar-
málaráðuneytis Ungverjalands, og Márk Gyõrvári, borgarstjóra Szentlőrinc, þegar
hornsteinn var lagður að byggingu hitaveitu í Szentlőrinc.
Reykjavík Geothermal, fyrirtæki Guðmundar Þóroddssonar, hefur fundið jarðhita sem getur nýst til upp-
byggingar kælikerfis í borginni Masdar í Abu-Dhabi. Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
hafa einsett sér að borgin notist aðeins við endurnýjanlega orkugjafa í framtíðinni. Íslenskar verkfræðistof-
ur hafa í auknum mæli sótt verkefni út fyrir landsteinana, einkum í jarðhitageiranum.
Bandaríkin og kanada
Reykjavík Energy Invest á ásamt
tveimur bandarískum félögum í Ice-
land America Energy. Félagið veit-
ir ráðgjöf til fyrirtækja í orkuiðnaði.
Geysir Green Energy átti í tveimur
orkufyrirtækjum vestanhafs, West-
ern Geopower og Ram Power, sem
unnu að uppbyggingu jarðhitavirkj-
ana í Kaliforníu- og Nevada-fylkj-
um Bandaríkjanna. Þá vann Glitnir,
síðar Glacier Partners, með ýmsum
orkufyrirtækjum í Bandaríkjunum
og Kanada.
El Salvador
Íslenskar orkurannsóknir vinna að
verkefni með LaGeo í El Salvador.
Samstarfið felur meðal annars í sér
að Íslenskar orkurannsóknir fari yfir
rannsóknir á San Vicente-jarðhita-
svæðinu. Íslenskar orkurannsóknir
hafa meðal annars veitt fyrirtækinu
ráðgjöf um borun rannsóknarhola.
Vonir standa til að Íslenskar orku-
rannsóknir komi að fleiri rannsókn-
um í Mið-Ameríku með þessu verk-
efni en þar eru miklir möguleikar á
nýtingu jarðhita til orkuvinnslu.
níkaragva
Þróunarsamvinnustofnun Íslands
og Íslenskar orkurannsóknir sam-
einuðu krafta sína í jarðhitaverk-
efni í Níkaragva sem stendur yfir til
ársins 2012. Samkvæmt samningn-
um munu Íslenskar orkurannsóknir
veita sérfræðiaðstoð á sviði jarðhita.
Verkefnið er hluti af þróunaraðstoð
Íslands. Þess má geta að orkufyr-
irtækið Ram Power, sem var í eigu
Geysis Green Energy, vann einnig að
jarðhitaverkefni í Níkaragva í sam-
starfi við Magma Energy, núverandi
eiganda HS-Orku.
FrönSku
vEStur-indíaEyjar
Reykjavík Energy Invest vann að
rannsóknum á jarðhitatækifærum í
Bouillante á Frönsku Vestur-Indía-
eyjum í Karíbahafinu. Einnig vann
fyrirtækið að þróun verkefna á eldri
nýtingarsvæðum.
SílE og Suður-amEríka
Glitnir hafði mikinn áhuga á jarð-
hitaverkefnum í Suður-Ameríku.
Geysir Green Energy kannaði mögu-
leikann á að ráðast í slík verkefni í
Argentínu. Íslenskar orkurannsókn-
ir stofnuðu ásamt verkfræðistofunni
Verkís félagið Geothermhydro utan
um ráðgjöf vegna jarðhitaverkefna í
Síle. Stjórnvöld þar höfðu lagt aukna
áherslu á að nýta jarðhita til orku-
vinnslu vegna hækkandi olíu- og
gasverðs á heimsmarkaði. Mannvit
hefur einnig verið með starfsemi í
landinu vegna lághitaverkefna.
djíBútí
Reykjavík Energy Invest undirritaði
samning um uppbyggingu jarðhita-
virkjunar á Assal Rift-svæðinu í Djí-
bútí. Reykjavík Energy Invest hefur
unnið alla forvinnu vegna málsins
og er bygging virkjunarinnar nú í
undirbúningi. Vonast er til þess að
fyrsti hluti virkjunarinnar verði tek-
inn í notkun árið 2014.
aBu-dhaBi
Reykjavík Geothermal, félag Guð-
mundar Þóroddssonar, hefur verið
leiðandi í jarðhitaverkefni í Masdar
í Abu-Dhabi. Þar stendur til að nota
aðeins endurnýjanlega orkugjafa í
framtíðinni. Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, var hvatamað-
ur að því að ráðist var í verkefnið.
Reykjavík Geothermal hefur samið
við alþjóðlega fjárfestingarsjóðinn
Ambata Capital Partners um fjár-
mögnun verkefna fyrirtækisins.
kEnía
Íslenskar orkurannsóknir hafa unn-
ið að jarðhitaverkefnum með Jarð-
hitaskólanum og KenGen í Ken-
íu. Meðal annars hafa verið haldin
námskeið í yfirborðsrannsóknum á
jarðhitakerfum. Verkefnið er liður í
þróunaráætlun Íslands og framlagi
þess til þúsaldarmarkmiða Samein-
uðu þjóðanna.
rúanda
Fulltrúar Íslenskra orkurannsókna
og Orkustofnunar hafa fundað með
stjórnvöldum í Rúanda um mögu-
SíðaSta
út Si
RóbeRt hlynUR baldURsson
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
sjálfbær borg Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa sett sér háleit
markmið um uppbyggingu í borginni Masdar. Hér sést framkvæmdastjóri verkefnis-
ins, Al-Jaber, kynna verkefnið fyrir George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna,
í janúar árið 2008.