Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 12
12 fréttir 13. ágúst 2010 föstudagur SAFNAÐU ÁHEITUM hlaupasty rkur.is Skemmtileg leið til að safna áheitum Ef þú ætlar að hlaupa til góðs í Reykjavíkurmaraþoninu getur þú búið til skemmtilegt myndband af þér á hlaupastyrkur.is. Myndbandið getur þú sent til vina og vandamanna með tölvupósti, á Facebook eða Twitter og vakið athygli á þinni áheitasöfnun. Skráðu þig strax til leiks og byrjaðu að safna áheitum. - Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997 borgin stofni banka fólksins Jón Þór Ólafsson er í vinnuhópi um úrbætur á fjármálakerfi Íslands. Hann mun hitta Jón Gnarr borgarstjóra á næstu dögum og kynna fyrir honum hugmynd um að Reykjavíkurborg stofni banka – sem ber vinnuheitið „Besti bankinn“ – sem bæri hag borgarbúa fyrir brjósti og sparaði borgarsjóði háar fjárhæðir. Hugmyndin er sótt til Norður-Dakóta í Bandaríkjunum. Jón Þór Ólafsson, meðlimur í vinnu- hópi um úrbætur á fjármálakerfi Ís- lands, segir að hugmynd hópsins um stofnun banka í eigu borgaryfirvalda í Reykjavík hafi mælst vel fyrir hjá borg- arstjórnarmeirihlutanum. Bankinn hefur hlotið vinnuheitið „Besti bank- inn“. Að sögn Jóns Þórs er hugmyndin að mörgu leyti fengin frá Norður-Da- kóta-fylki í Bandaríkjunum en þar hef- ur fylkisstjórnin starfrækt banka, Bank of North Dakota, í yfir níutíu ár. Hann segist vongóður um að borgarfulltrú- ar muni fara vandlega yfir þessar hug- myndir sem gætu orðið að veruleika innan skamms. Banki sem hygli borgarbúum „Í stuttu máli er vandamálið sem borg- arbanki leysir það að borgarsjóður get- ur ekki tekið lán í Seðlabankanum. Í reglum Seðlabankans segir að einung- is fjármálafyrirtæki hafi þau forréttindi að eiga viðskipti við Seðlabankann. Þar sem reglurnar hygla fjármálafyrirtækj- um er lausnin sú að borgin stofni fjár- málafyrirtæki, borgarbanka, sem hygli borgarbúum,“ segir Jón Þór. „Borgar- bankinn getur tekið lán hjá Seðlabank- anum á stýrivöxtum sem borgarsjóður notar svo til að borga upp dýrari lán borgarinnar. Borgin sparar sér vaxta- muninn að frádregnum kostnaði við rekstur bankans. Samkvæmt ársreikn- ingi Reykjavíkurborgar 2009 eru heild- arskuldir borgarinnar og fyrirtækja í hennar eigu um 300 milljarðar. Vaxta- lækkun um eitt prósent sparar borg- inni þrjá milljarða á ári.“ Hann segir að borgarfulltrúar Besta flokksins hafi tekið vel í hugmynd- ir vinnuhópsins og að fundað verði með Jóni Gnarr borgarstjóra á næstu dögum. „Tillaga okkar er að Jón Gnarr borgarstjóri fái fólk til þess að skoða hvort stofnun borgarbanka sé arðbær og lögleg,“ segir Jón Þór en bendir á að í mörg horn sé að líta enda sé um að ræða háar upphæðir. Núverandi kerfi hyglir þeim ríku „Fylkisbankamódel Bank of North Dakota hefur tryggt að fylkið er ekki skuldugt og skilar hagnaði í banka- kreppunni,“ segir Jón Þór. Hann seg- ir að stöðugleiki náist með fjármála- stofnun sem hafi hagsmuni fólksins í borginni að leiðarljósi. Banki af þess- ari gerð myndi leiðrétta óréttlætið sem felist í því að fjármagnseigendur njóti meiri réttinda en venjulegir launþeg- ar. „Fjármálafyrirtækin hafa lögvarin forréttindi til að taka lán á stýrivöxt- um í Seðlabankanum og til að lána út meiri peninga en þau hafa innistæðu fyrir. Þetta skapar meira lánsfé, sem gerir það ódýrara, en veldur verð- bólgu. Bróðurpartur lánsfjárins fer til hinna efnamestu sem hafa mesta lánsvild. Á meðan fer verðbólgan verst með fátæka þegar verð á nauð- þurftum hækkar. Hið lögbundna fjár- málakerfi Íslands niðurgreiðir lánsfé til hinna ríku með verðbólguskatti á almenning,“ segir Jón Þór en fullyrðir að auðvelt sé að breyta því. Grundvallarkerfisvilla „Ef Samfylkingin og Vinstri Græn- ir vilja meiri jöfnuð í samfélaginu þurfa þau að leiðrétta þessa grund- vallarkerfisvillu í fjármálakerfinu sem gerir ríka ríkari og fátæka fá- tækari, og það er einfalt. Fyrst þarf að breyta reglum Seðlabankans sem gera fjármálafyrirtækjum kleift að lána út meiri peninga en þau hafa innistæðu fyrir. Svo þarf að breyta reglum Seðlabankans sem gefa fjár- málafyrirtækjum forréttindi til að fá lán hjá Seðlabankanum á stýrivöxt- um,“ segir Jón Þór. helGi hrafN GuðmuNdssoN blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Borgin stofni banka JónÞórÓlafssonteluraðbankiíeiguborgarinnargætiskapaðborgarbúumauðlegðogleiðréttþá „grundvallarkerfisvilluífjármálakerfinusemgerirríkaríkariogfátækafátækari“.myNd rÓBert reyNissoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.