Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Síða 16
16 fréttir 13. ágúst 2010 föstudagur
Vilja
eignast
rækjuVinnslu
Kanadíska fyrirtækið Fish 24/7 Inter-
national hefur boðið um 320 milljón-
ir króna í þrotabú rækjuvinnslunnar
Bakkavíkur í Bolungarvík. Kanadíska
fyrirtækið hefur lagt fram óformlegt
tilboð upp á 160 milljónir króna í
Bakkavík auk fyrirheits um að leggja
160 milljónir í hlutafé fyrirtækis-
ins að auki. Þá hefur fyrirtækið gert
samning um að flytja um 2.500 tonn
af rækju til vinnslunnar í Bolungar-
vík frá Kanada. Heimildir DV herma
að skuldir Bakkavíkur nemi um 200
milljónum króna.
Íslendingur í rækjunni
Kristinn Skúlason fer fyrir Fish 24/7
International. Hann er ættaður frá
Vestfjörðum og hefur unnið í rækju-
vinnslu til fjölda ára. Hann átti með-
al annars í fyrirtækinu Optimal Ltd.
sem hefur verið með starfsemi á Ný-
fundnalandi og í Grindavík. Opti-
mal beitti sér fyrir rannsóknum á
aukaefnum í sjávarafurðum, aðal-
lega vegna rækjuvinnslu. Kristinn
seldi sig út úr Optimal árið 2005.
Hann hefur starfað við rækjuvinnslu
í Kanada í tólf ár. Hann er nú fram-
kvæmdastjóri rækjuvinnslu þar ytra
sem vinnur úr um sjö þúsund tonn-
um af rækju á ári.
Fish 24/7 International hefur
mestmegnis unnið að kaupum og
sölum á rækju. Félagið hefur meðal
annars keypt gáma með rækju til að
selja til Evrópu, Asíu og Bandaríkj-
anna. Kristinn stofnaði það fyrir fjór-
um árum.
Tvö kauptilboð
Fyrirtækið hefur tvisvar lagt fram
kauptilboð í þrotabú Bakkavíkur.
Annað þeirra lagði fyrirtækið fram
stuttu eftir að Bakkavík fór í þrot
en því var hafnað. Kristinn segir að
hann hafi ekki átt að virða viðlits.
Eftir að DV grennslaðist fyr-
ir um málið hjá Byggðastofn-
un bauð Tryggvi Guðmundsson,
skiptastjóri þrotabúsins, honum
aftur á móti til fundar með sér
vegna kauptilboðsins. Áður hafði
Tryggvi svarað Kristni því að hann
efaðist um að tilboðið gæti geng-
ið. Byggðastofnun myndi ekki líta
við því. Tryggvi vildi ekki tjá sig
um stöðu málsins enda hefði hann
ekki heimild til að tjá sig um ein-
staka kauptilboð.
„Mér fannst líka slæmt að þessu
skyldi ekki vera svarað vegna þess
að ég var kominn með fjármögnun á
afurðum til vinnslunnar frá útlönd-
um. Því hefði ég ekki þurft að leita
til bankanna á Íslandi vegna hennar.
Því fannst mér skrýtið að þeir skildu
allavega ekki hafa samband við mig
fyrr. Það var eins og það ætti ekkert
að gera með þetta fyrirtæki. Bara láta
það veslast upp gjörsamlega,“ segir
Kristinn.
Góðar forsendur til rekstrar
Kristinn segist hafa gert ráð fyrir því
að hafa um tuttugu manns í vinnu
við rækjuvinnsluna í Bolungarvík
gengju kaupin eftir. Hann hafði ekki
hugsað sér að vera með útgerð en
segir þó rekstrarforsendur til hennar
hafa breyst verulega eftir að veiðarn-
ar voru gefnar frjálsar. Í Kanada hafi
kvótinn verið skorinn niður síðustu
tvö árin. Hins vegar sé eftirspurn eft-
ir rækju góð. Íslensk fyrirtæki séu að
mörgu leyti samkeppnishæfari en
þau kanadísku vegna aðgengi þeirra
að evrópskum mörkuðum.
Áður hefur DV greint frá því að
útgerðarfyrirtækið Birnir hafi tekið
við láni upp á 160 milljónir króna úr
þrotabúi Bakkavíkur sem fyrirtæk-
ið hafði vegna kaupa á kvóta í rækju.
Bakkavík var að sautján prósentum í
eigu Byggðastofnunar. Birnir er aðal-
eigandi rækjuvinnslunnar Kampa en
sjálf á Byggðastofnun yfir þrjátíu pró-
senta hlut í fyrirtækinu.
Þrjú hundruð milljónir
DV hefur greint frá því að Byggða-
stofnun hafi lagt mikla áherslu á að
fá sem mest fyrir eignir Bakkavíkur.
Í því sambandi hefur verið nefnt að
stofnunin vilji fá allt að þrjú hundruð
milljónir fyrir fyrirtækið. Aðalsteinn
Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofn-
unar, segir eignanna vandlega gætt
enda sé þar einhver fullkomnasta
rækjuverksmiðja Evrópu. „Opinberri
stofnun eins og Byggðastofnun ber
skylda til þess að hámarka það sem
hún fær fyrir sölur fullnustueigna,“
segir Aðalsteinn.
Aðalsteinn segir Byggðastofnun
ekki hafa sett verðmiða á verksmiðj-
una, enda væri slíkt mjög erfitt. „Ef
hann væri 300 milljónir króna, væri
það þá hátt,“ segir Aðalsteinn.
Aðalsteinn segir ekki um form-
legt tilboð að ræða, en viðræð-
ur hefjist um málið á næstu dög-
um. Engin áreiðanleikakönnun
hafi verið gerð á þeim kaupanda
eða getu hans til að reka fyrirtæk-
ið áfram. „Fyrsta skrefið verður að
hitta þá. Vonandi skilar þetta allt
ásættanlegri niðurstöðu,“ segir Að-
alsteinn.
Kanadíska fyrirtækið Fish 24/7 Inter-
national hefur tvisvar sinnum boðið í
þrotabú rækjuvinnslunnar Bakkavíkur í
Bolungarvík. Fyrir nokkrum vikum lagði
fyrirtækið fram 160 milljóna tilboð auk þess
sem það hét að leggja fram sömu upphæð
í hlutafé Bakkavíkur. Kristinn Skúlason,
eigandi fyrirtækisins, er ósáttur við tregð-
una í málinu. Honum var boðið til fundar
eftir að DV grennslaðist fyrir um málið.
RóbeRT HlynuR balduRSSon
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Það er eins og það eigi ekkert að gera
með þetta fyrirtæki.
Setti strik í reikninginn
OlíulekinnáMexíkóflóasetti
strikíreikninginnhjábanda-
rískumrækjuveiðimönnum.
Flutti út fyrir tólf árum KristinnSkúlasonerframkvæmdastjórirækjuvinnsluá
Nýfundnalandi.FyrirtækiíhanseiguhefurlagtframkauptilboðíþrotabúBakkavíkur.