Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Side 31
... leik-
ritinu
Hallveig
ehf.
Skemmtilegt
og fræðandi
leikrit í
öðruvísi rými.
... leiksýningunni
Hetja
Gleðilegt þegar íbúarn-
ir standa svona vel að
því að halda sinni eigin
menningu á lofti og
taka svo myndarlega á
móti gestum sínum.
... myndinni The
Sorcerer‘s Apprent-
ice
Disney-mynd
eins og
þær gerast
verstar.
föSTudAgur
n 13. á Prikinu
Föstudagurinn 13. verður haldinn hátíð-
legur á Prikinu í kvöld og er tekið fram
að þeir sem hafi séð svartan kött eða
brotið spegil fái frítt á barnum. Franz og
Kristjó hefja kvöldið með ljúfum tónum
og svo tekur Dj Danni Deluxxx við.
n Hverfisbarinn
Dj Jói ætlar að tæta upp dansgólfið á
Hvebbanum í kvöld. Nóg af gleði, nóg
af dansi og dass af tryllingi. Getur ekki
klikkað.
n Rökkurró í 12 tónum
Önnur plata Rökkurróar, Í annan heim,
kemur út á vegum 12 Tóna fimmtudag-
inn 12. ágúst. Af því tilefni ætlar Rökk-
urró að halda fögnuð í verslun 12 Tóna
á Skólavörðustíg. Platan verður til sölu
á tilboðsverði, vín í boði og almennur
hressleiki verður í hávegum hafður!
n Gleði í Venue
Klukkan 11 stíga á svið stelpur úr Gallery
Crymo og Nyhil og lesa ljóð og flytja
gjörninga.
Að því loknu flytur Sultan Eldmóður
hljóðverk. Klukkan 01.00 blúsar Elín Ey
þetta upp áður en Flugvél og Geimskip
tekur við og Dj Músíkölski lokar
kvöldinu.
lAugArdAgur
n Don Randi á Broadway
Don Randi & Quest ásamt Ragga Bjarna,
Agli Ólafssyni, Kristjáni Jóhannssyni,
Eddu Borg og fleirum. Einnig koma
fram nokkrir af bestu hljóðfæraleikurum
landsins úr Stórsveit Reykjavíkur og
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Má þar nefna
Þóri Baldursson sem útsetur bæði fyrir
stórsveit og Don Randi.
n Hverfisbarinn
Dj Stef mætir á Hverfisbarinn. Það er
völlur á kallinum. Hann heldur út til
Danmerkur von bráðar svo ekki missa af
honum. Í guðanna bænum.
n Cocoon á Prikinu
Árni Cocoon mannar vaktina á Prikinu
á laugardaginn. Og fastlega er búist við
því að það verði dansað.
Hvað er að
GERAST?
Leikfélag Akureyrar boðar glæsilegt leikár:
Þrjú ný verk frumsýnd
Dagskrá leikárs Leikfélags Ak-
ureyrar var tilkynnt í vikunni í
glæsilegum bæklingi. Leikárið
hefst af miklum krafti með sýn-
ingunni Rocky Horror, í leikstjórn
Jóns Gunnars Þórðarssonar. Um
er að ræða glæsilega uppfærslu
á sígildu verki Richards O‘Brien.
Valinn maður er í hverju horni,
en Andrea Gylfadóttir sér um
tónlistina og Steinunn Ketils-
dóttir semur dansa. Meðal leik-
enda eru Magnús Jónsson, Ey-
þór Ingi Gunnlaugsson, Bryndís
Ásmundsdóttir og Atli Þór Al-
bertsson. Næsta frumsýning í
kjölfarið verður á verkinu Þögli
þjónninn, sem er eftir engan
annan er Harold Pinter. Þeir Atli
Þór Albertsson og Guðmundur
Ólafsson bregða sér í hlutverk
tveggja leigumorðingja sem bíða
eftir næstu skipun í kjallaraher-
bergi. Þá verður farsinn Farsæll
farsi settur upp í mars, en leik-
stjóri verður leikhússtýran sjálf
María Sigurðardóttir. Leikhópar
að sunnan verða einnig dugleg-
ir við að heimsækja LA í vetur og
má þar nefna Jesú litla og Harry
og Heimi auk þess sem Sveppi
mætir með sýningu sína, Dag í lífi
drengs.
...
myndinni
Inception
Lagskipt
snilld, sem
talar til
manns á ótal
sviðum.
...
myndinni
Karate
Kid
Ekkert
nýtt undir
sólinni.
föstudagur 13. ágúst 2010 fókus 31
... heim-
ildar-
myndinni
Babies
Stór-
skemmtileg
dýralífsmynd
hér á ferð.
Leikfélag Akureyrar Boðar
þrusu leikár.
er hún annað hvort bara góð eða
vond tónlist.“
Sjálfur hefur Grétar tekið virk-
an þátt í íslensku tónlistarlífi og í
djasssenunni um árabil. Hann fór
til Bandaríkjanna í tónlistarnám
á sínum tíma og snéri aftur heim
árið 1985. „Síðan þá hefur mað-
ur séð alveg ótrúlegar breytingar.
Núna er fólk að fara út í nám með
sömu þekkingu og maður kom
heim með á sínum tíma. Íslensk-
ir djasslistamenn eru að vinna til
alþjóðlegra verðlauna og svo eig-
um við brautryðjendur á borð við
Mezzoforte sem er enn þann dag
í dag uppbókað á hátíðir um allan
heim.“
Django og Jon
Þó svo að íslenskir listamenn
leiki stórt hlutverk í dagskrá há-
tíðarinnar þá skipa stóru erlendu
nöfnin sinn sess líkt og áður. Að
þessu sinni eru stærstu nöfnin
breski píanistinni Django Bates og
bandaríski trompetleikarinn Jon
Hassell en einnig má nefna Don
Randi sem mun leika með Geir
Ólafssyni á hátíðinni. Randi hef-
ur leikið með og útsett fyrir stór-
stjörnur á borð við ABBA, Beach
Boys, Elvis Presley, Frank Sinatra,
Frank Zappa og marga fleiri.
„Jango Bates er líklega þekkt-
asta númerið að þessi sinni. Hann
er búinn að vera mjög framarlega
í hartnær 20 ár. Hann fer þó mikið
víðar en í djass en það er skemmti-
leg tilviljun að hann gaf út plötu á
árinu með tónlist djassgoðsagnar-
innar Charlies Parker.
Svo er það Jon Hassell sem hef-
ur í mörg ár verið mikil fyrirmynd
fyrir þá sem leita að nýjum túlk-
unarmöguleikum fyrir trompetið.
Hann byggir einnig á fjölbreytt-
um efnivið í tónlistinni. Allt frá
djass yfir í heimstónlist og raftón-
list. Hann er mikill hugmynda-
fræðingur um tónlist og ætlar að
tala um hana líka á tónleikum sín-
um. Hann hefur verið að vinna slík
verkefni áður með Brian Eno
Einn passi
Gestum Jazzhátíðar verður boðið
upp á að kaupa passa á hátíðina
sem kostar 8.000 krónur og gild-
ir á alla viðburði hennar. Passann
er meðal annars hægt að kaupa á
midi.is. „Það er frábært verð og
fljótt að borga sig upp fyrir þá gesti
sem ætla sér að mæta oftar en einu
sinni. Það verður einnig hægt að
kaupa miða á staka viðburði og
þar verður miðaverði einnig stillt
í hóf.“
Þá er bæklingur hátíðarinnar
kominn í dreifingu og mun hann
liggja frammi bæði á tónleikastöð-
um sem og á kaffihúsum borgar-
innar. „Netið er þó áreiðanlegasti
miðillinn og þar er sífellt verið að
uppfæra en hægt er að nálgast all-
ar frekari upplýsingar á heimasíð-
unni reykjavikjazz.is.
lengrI JAzzHáTíð
Pétur Grétarsson
Framkvæmdastjóri
Jazzhátíðar í Reykjavík.
Taktfastur Pétur er einn færasti slagverksleikari landsins.