Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Blaðsíða 33
föstudagur 13. ágúst 2010 viðtal 33
Harmar og sigrar söngkonu
árin.“ Systir hennar var myndlistarmaður og fær í
sínu fagi. „Hún vann hin ýmsu störf bróðurpart-
inn af þessum tíma og var í námi. Hún var ótrú-
lega dugleg.“ Síðustu árin versnaði ástand henn-
ar og svo fór að lokum að hún varð að fá stöðuga
umönnun.
„Undir það síðasta, svona síðasta árið, þá
gat hún ekki búið lengur heima. Þar áður bjó
hún heima með hjálp mjög mikillar aðstoðar
mömmu og pabba og dóttur sinnar sem er 17 ára.
Þau aðstoðuðu hana svo hún gæti búið heima.
Kerfið er líka flókið og það er ekkert auðvelt fyrir
hvern sem er að fá sjúkrapláss. Hún fékk pláss á
endanum en það þurfti að hafa fyrir því. Þetta var
auðvitað mjög mikið álag fyrir alla.“
Erfitt að vEra Ekki á staðnum
Þegar Ingileif var sem veikust var Sigríður á mikl-
um þvælingi með Hjaltalín. „Þessi tími var svo-
lítið skrýtinn því svona ári áður en hún deyr var
ég mikið úti og ekki endilega með það á hreinu
hvernig hlutirnir voru. Það var mjög erfitt að
hafa þessar áhyggjur en hafa ekki yfirsýn yfir það
hvernig málin stóðu.
Síðustu mánuðina var alveg vitað hvert
stefndi, þetta fór hægt yfir. Sjokkið var ef til vill
frábrugðið því sem gerist þegar manneskja á
besta aldrei fer allt í einu. Þá fær maður smátíma
til að átta sig. En þetta er alltaf erfitt,“ segir hún.
Þessi reynsla breytti hugsun hennar og gildum.
„Ég held að þetta hafi breytt ýmsu hjá mér og
fólkinu í kringum mig. Það verður viss hugarfars-
breyting. Ég hef áttað mig á því að lífið er hverfult
og er farin að hugsa um hvað skiptir máli. Þetta
þroskar mann. Ég vil gera sem mest úr tímanum
án þess að mér finnist ég þurfa sífellt að gera eitt-
hvað ótrúlegt. Ég vil frekar nýta tímann til að vera
með fólki sem mér þykir vænt um. Þetta er samt
tvíeggjað sverð.
Annars vegar hefur mér dottið í hug að gera
allt, bara eitthvað, alveg sama hvað það er. Bara
lifa hratt. Það er ein hugmynd. Þú getur alveg
lifað hratt en þá gætirðu kannski verið að gera
einhverja hluti sem þig langar ekkert til að gera.
Þannig að ég er frekar farin að hallast að því að
velja vel og njóta þess.“
Platan sEm var í
raun afmælisgjöf
Það er nóg að gera hjá Siggu en hún hefur ver-
ið mikið bókuð bæði með hljómsveitinni og ein
síns liðs. Hún gaf út diskinn „Á Ljúflingshól“
ásamt Heiðurspiltum árið 2009. Þar söng hún lög
Jóns Múla Árnasonar við undirleik Heiðurspilta.
Hún segir útgáfu disksins hafa komið til á
skemmtilegan hátt. „Ég fékk tækifæri til að gefa út
plötu alveg upp úr þurru. Það var mjög fyndið og
skemmtilegt. Það var þannig að mamma vinkonu
minnar kemur að máli við mig. Það liggur fyrir að
foreldrar hennar eiga stórafmæli og hana langaði
til að gefa þeim einhverja sérstaka afmælisgjöf.
Hún stakk upp á því að við myndum gera plötu
og hún yrði gjöf til þeirra. Það var alveg ótrúlega
fallegt, fyndið og skemmtilegt verkefni því þetta
var alls ekki plata sem mér hefði sjálfri dottið í
hug að gera. Hún sagði mér frá hugmyndinni og
ég talaði strax við Guðmund Óskar því mér finnst
ótrúlega gott að hafa hann með mér.
Ég er svolítið þannig, mér finnst gott að hafa
einhvern með mér þannig að ég geti svona skot-
ið helmingnum yfir á hinn,“ segir hún og hlær.
„Hann var með mér frá upphafi og svo völdum
við í sameiningu hina með okkur á plötuna. Við
ákváðum svo þau efnistök sem hentuðu okkur
og foreldrum hennar sömuleiðis. Við hefðum
ekki getað verið með músík sem kæmi þeim ekki
við. Við hefðum ekki heldur viljað láta velja ofan
í okkur. Síðan komumst við að þeirri niðurstöðu
að það væri gaman að gera söngplötu með lög-
um eftir Jón Múla því það hafði ekki verið gert, að
minnsta kosti ekki með söngvara sem syngi að-
eins lög eftir hann.
Það hafa verið gerðar nokkrar plötur sem
innihalda engan söng og því varð þetta útgangs-
punkturinn hjá okkur, plata sem innihéldi lög
Jóns við texta bróður hans, Jónasar Árnasonar.
Við völdum lögin svo en mamma vinkonu minn-
ar var auðvitað alltaf í sambandi við okkur. Þetta
var alveg ótrúlega magnað og frjálslegt, við feng-
um mikið frelsi til að gera þetta. Ég hefði ekki
fengið þessa hugmynd sjálf en er mjög ánægð
með að hafa gert þetta. Ég fíla þessi lög og þyk-
ir vænt um þessa músík en þetta er samt ekki
eitthvað sem mér hefði dottið í hug að gera. Ég
geri mér líka alveg grein fyrir því að það eru ekki
margir sem fá svona verkefni upp í hendurnar.
Þetta var ótrúlega fallegt og gott tilboð sem gekk
upp,“ segir hún. Gömlu hjónin voru himinlifandi
með afmælisgjöfina en þau spiluðu líka stórt
hlutverk á umslagi plötunnar. „Þau eru framan
á plötunni, gömul mynd af þeim í partíi og svo
erum við klippt inn í. Mjög skemmtilegt.“
fordómalaus í garð vErkEfna
Sigga er óhrædd við að fara sínar eigin leiðir og
er ekki þekkt fyrir að elta það sem er vinsælast
hverju sinni, samanber plötuna með lögum Jóns
Múla. „Það hefur alltaf farið svolítið í taugarnar á
mér hvað fólk er oft hrætt við að gera eitthvað nýtt
og er meðvitað um sjálft sig og sitt kúl. Það verð-
ur þeim fjötur um fót því það þorir ekki að gera
ákveðna hluti eða taka að sér einhver verkefni því
það er svo ofboðslega meðvitað um ímynd sína.
Það er mjög auðvelt að detta í þann pakka en
auðvitað verðurðu líka að passa þig að gera ekki
bara allt sem þér býðst einfaldlega vegna þess
að það er kannski ekki gott fyrir þig og þú færð
ekkert út úr því,“ segir hún ákveðin. „Ég reyni að
vera frekar fordómalaus í garð verkefna. Ef mér
finnst það sjarmerandi á einhvern hátt eða held
að mér gæti þótt það gaman þá vil ég frekar gera
það heldur en ekki. En svo vil ég aftur á móti ekki
gera einhverja hluti sem fara illa í mig sem ég veit
allan tímann að mér finnast ekki vera réttir.
Auðvitað lendir maður í því líka að taka eitt-
hvað að sér sem maður sér eftir. Það er þunn lína
sem liggur þarna á milli. Hins vegar má heldur
ekki segja bara nei við öllu, það er svo leiðinlegt.
Ég vil vinna með alls konar fólki og fá sem mesta
reynslu út úr því. Það finnst mér skemmtilegast.“
kaffihús og hundur
Hún segir allt óráðið um framtíð sína enda eigi
hún erfitt með að skipuleggja sig fram í tímann.
Það sé þó ýmislegt sem hana langi að gera. „Ég
veit ekki hvort ég verð söngkona alla ævi. Ég held
að maður hætti því ekki endilega en taki kannski
önnur verkefni að sér líka. Mig langar að gera ým-
islegt. Ég veit ekki hvað ég endist lengi í hverju,
ég get ekki verið að hugsa of mikið um það því
þá yrði ég alveg biluð. Mig langar til að fara ein-
hvern tíma í meira nám. Og svo er ég með einn
ógeðslega klisjukenndan steríótýpískan draum.
Mig hefur alltaf langað til að eiga lítið, sætt kaffi-
hús. Kannski geri ég það þegar ég er orðin gömul.
Fæ mér hund og opna kaffihús og verð með mat-
jurtagarð í garðinum.“
viktoria@dv.is
sár systurmissir „Þessi tími var svolítið skrýtinn því svona ári áður en hún deyr var ég mikið úti og ekki
endilega með það á hreinu hvernig hlutirnir voru.“ mynd róbErt rEynisson
hjaltalín Sigríður segir hljómsveitar-
meðlimi ekki lifa neinu lúxuslífi þótt
þau ferðist mikið. mynd hörður svEinsson
m
yn
d
r
ó
b
Er
t
rE
yn
is
so
n