Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 36
36 ÚTTEKT 13. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR Gunnar Rúnar Matthíasson segist hvorki vilja launung né þöggun en neitar samt að láta nokkrar upplýs- ingar af hendi um mál einstaklings sem vikið var úr starfi kirkjunnar vegna kynferðisbrota. Ragnhildur Benediktsdóttir á biskupsstofu segir það ljóst að umrætt mál hafi ekki farið dómstólaleiðina. KYNFERÐISBROTAMÁL INNAN KIRKJUNNAR FÓR LEYNT Gunnar Rúnar Matthíasson, for- maður fagráðs gegn kynferðis- brotum innan kirkjunnar, get- ur ekki svarað spurningum um hvað varð til þess að starfsmaður kirkjunnar lét af störfum vegna kynferðisbrota í fyrra. Þetta kom fram í fréttum RÚV á miðviku- dagskvöldið. Í frétt RÚV var einnig sagt að málinu hefði verið vísað til barnaverndaryfirvalda en Gunn- ar vísar því til föðurhúsanna. „Það var borið upp á mig. Ég sagði það ekki. Það eina sem ég staðfesti var að einum starfsmanni kirkjunnar hefði verið vísað úr starfi á síðasta ári vegna kynferðisbrota.“ Ekki prestur Gunnar Rúnar vill ekki gefa það upp hvort brotið hafi verið á barni eða fullorðnum einstaklingi, hvort viðkomandi hafi verið starfsmað- ur kirkjunnar eða sóknarbarn eða hvort brotið hafi falist í óvið- eigandi orðalagi, káfi eða öðru. Hann vill ekki heldur gefa það upp hvort um ítrekuð tilvik hafi ver- ið að ræða eða ekki, í hvaða sókn atburðurinn átti sér stað eða hve- nær. Það eina sem hann gefur upp er að viðkomandi brotamaður var ekki prestur. Í kvöldfréttum RÚV á fimmtudag kom fram að viðkom- andi hafi starfað í æskulýðsstarfi. Hann neitar jafnframt að gefa það upp hvort málið hafi farið til barnaverndaryfirvalda eða dóm- stóla. Þá segir hann að ef málinu hef- ur verið beint til barnaverndaryfir- valda hafi hann ekki haft neitt með það að gera. „Ef einhver gerist sek- ur gagnvart barni er okkur skylt að vísa málinu beint til barnavernd- aryfirvalda. Við göngum bara úr skugga um að málinu sé fylgt eftir og að viðkomandi fái áheyrn.“ Málið fór aldrei fyrir dóm Á biskupsstofu varð Ragnhildur Benediktsdóttir fyrir svörum um málið. „Veistu, ég hugsaði það líka þegar ég sá þetta í kvöldfréttum í gær, hver er þetta eiginlega? Ég hef aldrei heyrt af þessu máli áður. Okkur hér á biskupsstofu hefur ekki borist neitt erindi um það.“ Ragnhildur segir að af því megi ráða að málið hafi aldrei farið fyr- ir dómstóla. „Þá væri búið að birta umfjöllun um þetta mál. Eins og þegar mál séra Gunnars Björns- sonar kom upp, það er ekki eins og það hafi farið leynt.“ Hún bendir á að það séu 280 sóknir innan kirkjunnar og í hverri sókn geti komið upp mál sem leyst séu á staðnum. „Auðvitað geta komið upp mál sem ekki er talað um. Þau eru afgreidd og síðan eru þau ekki rædd meira.“ Ragnhildur ætlaði að kanna málið en taldi ólíklegt að geta veitt nokkur svör um það.  „Það gæti til dæmis verið þannig að það hafi aðeins leikið grunur á broti. Bisk- upsstofu er ekki skylt að fjalla um mál manna sem eru grunaðir um að hafa brotið af sér. Fólk er alltaf saklaust uns sekt er sönnuð.“ Ekki vitað um fjölda mála Gunnar Rúnar neitaði að gefa það upp hve mörg mál hafi komið til kasta fagráðsins. Nú hefur Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, hvatt hann til þess að gera það. Hann seg- ist ætla að verða við þeirri áskorun. „Ég sé það núna að við ættum að taka mark á þessari áskorun Guð- rúnar og við munum gera það. Við viljum ekki að það sé hylmt yfir með brotamönnum. Við leggjum áherslu á að enginn geti með orðum, gjörð- um eða fasi vegið að öðrum vegna kynferðis þannig að honum sé ekki fært að sinna starfi sínu. Það er óásættanlegt. Fagráð um kynferðis- brot er nefnd utan stjórnar kirkjunn- ar sem er starfrækt til þess eins að halda utan um einstaklinga og styðja þá í því að finna málum sínum far- veg.“ Gunnar Rúnar segir að þessari nefnd sé aðeins ætlað að styðja ein- staklinga til þess að leita réttar síns en þetta sé ekki rannsóknarnefnd. „Við viljum ekki launung og reynum að tryggja að mál séu ekki þögguð niður. Þess í stað vísum við málum áfram og komum í veg fyrir að þau séu leyst í innsta hring þeirra sem eiga hlut að máli þar sem líklegast er að þeim sé ýtt til hliðar.“ Kristján Björnsson, sóknarprest- ur í Eyjum, segir að það sé afar sjald- gæft að kynferðisbrot komi upp inn- an kirkjunnar en engar upplýsingar séu til um fjölda mála, hvorki hjá barnaverndarstofu né biskupsstofu. Sem fyrr segir neitar formaður fagr- áðs að gefa þær upplýsingar upp sem hann hefur undir höndum. Máli sínu til stuðnings segir Kristj- án að hver sókn sé lítill vinnustað- ur og að á hverjum stað sé fylgst vel með starfinu. „Annars er það alltaf þannig að refurinn er þar sem lömb- in eru. Það er alltaf hætta fyrir hendi alls staðar þar sem börn eru, líka inni í fjölskyldum og inni á heimilum fólks. Við erum aldrei örugg.“  Tekur á móti þolendum kirkjunnar Thelma Ásdísardóttir, ráðgjafi í kynferðisbrotamálum, hefur ver- ið með nokkra skjólstæðinga sem hafa orðið fyrir barðinu á kirkjunn- ar mönnum. Hún getur ekki gefið upp fjölda þeirra mála né upplýs- ingar um einstök mál þar sem hún er bundin trúnaði við skjólstæð- inga sína. Thelma setur spurningarmerki við störf fagráðsins. „Ég vil vita hversu mörg mál þeir hafa feng- ið inn á sitt borð. Hversu margir voru reknir eftir að það var tilkynnt um brot þeirra? Hvar er ársskýrsl- an? Mér finnst þetta mjög skrýtið. Ég ímynda mér að það hafi marg- ir leitað til ráðsins þar sem ég hef sjálf hitt nokkra sem hafa reynslu af starfsmönnum kirkjunnar. Það eykur á alvarleika málsins að prest- ar njóta fyrirfram svo mikils trausts fólks. Því finnst mér að þegar svona mál kemur upp innan kirkjunnar eigi það að virka eins og spreng- ing sem setur allt í gang þannig að þetta komi ekki fyrir aftur. Ég hef ekki orðið vör við það að fagráð- ið sé mjög virkt. Til mín hefur eng- inn komið sem hefur fengið lausn mála sinna í gegnum fagráðið. En það má líka vera að þeim sem tekst að vinna vel úr sínum málum með fagráðinu skili sér ekki í viðtöl til mín.“ Hvað eru þeir að hugsa? „En ég veit að það er auðvitað gott fólk í kirkjunni sem vill vel. Svo virðist bara vera sem kirkjan sé svifasein og þung stofnun. Það kemur skýrt fram í máli Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur sem hefur beðið í meira en ár eftir svari við bréfi sínu. Hvað eru þeir að hugsa? Þegar fólk sýnir slíkt hugrekki að stíga fram og ræða erfið og sársaukafull mál á það að fá svör. Ætli nokkuð hefði gerst í málinu ef hún hefði ekki ít- rekað þessa ósk sína og sent kirkju- ráði annað bréf? Ef kirkjan tel- ur þetta eðlilegt þá má hún skoða vinnubrögð sín.“ ingibjorg@dv.is Thelma Ásdísardóttir gagnrýnir vinnubrögð kirkjunnar fyrir að láta Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur bíða í meira en ár eftir svörum. Starfsfólk Biskupsstofu þekkti ekki til máls þar sem manni var vikið úr störfum kirkjunnar vegna kynferðisbrota. Ragnhildur Benediktsdóttir segir að af því megi ráða að málið hafi ekki komist til kasta yfirvalda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.