Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Side 42
Eins dauði Er annars brauð
John Bodkin Adams var af írskum ættum. Að áeggjan móður sinnar lærði hann til læknis og settist að í
Eastbourne á Englandi. Hann þótti ekki hæfur læknir en tókst að safna ótrúlegum auði, að því sem talið er
með vafasömum hætti.
Hann hét John Bodkin Adams
og fæddist í Antrim á Írlandi árið
1899. Af föður sínum lærði John
að skjóta af byssu og meta bif-
reiðar. En John lærði fleira af föð-
ur sínum því faðir hans var með-
limur í Plymouth-bræðrareglunni
og predikaði eld og brennistein.
Hann leit á mistök sonarins sem
syndir sem skyldi refsað fyrir með
barsmíðum. Skrokkurinn býr yfir
minni og því lærði John fljótlega að
ljúga og svíkja sér til bjargar.
Írland bernsku Johns hafði
löngum verið vettvangur átaka sem
að lokum leiddu til skiptingar eyj-
unnar grænu. En í Evrópu átti sér
stað enn meiri hildarleikur, heims-
styrjöldin fyrri, sem kostaði fjölda
samtíðarmanna Johns lífið. Sjálf-
ur slapp hann með skrekkinn því
samkvæmt hefð móðurættarinnar
lærði John til læknis. En fleira átti
John vart sameiginlegt með fyrir-
rennurum sínum í læknastétt því
hann var slóði til náms og rétt náði
prófum. Faðir hans lést þegar John
var á táningsaldri og ekki löngu
síðar andaðist yngri bróðir hans,
sem jafnframt var besti vinur hans,
úr spænsku veikinni. John Bodkin
var einn eftir í félagsskap ráðríkrar
móður sinnar.
Í félagsskap aðalsins
Árið 1922, með fulltingi Plymouth-
reglunnar og undir áeggjan metn-
aðarfullrar móður sinnar, fór John
Bodkin til Eastbourne á Englandi.
Í fylgd með honum var móðir hans
sem vildi tryggja að hann kæmi
undir sig fótunum í almennum
lækningum.
Í þessa daga var Eastbourne
nánast eins og vé hinna auðugu
og áhrifamiklu á suðurströnd Eng-
lands. Íbúar svæðisins voru að-
alsmenn, sendiherrar sem sestir
voru í helgan stein, herforingjar,
háttsettir opinberir starfsmenn
og auðugir iðnjöfrar. Hryggjarsúla
Breska heimsveldisins.
Í byrjun ferils síns fór hinn ungi
John Bodkin í vitjanir á reiðhjóli,
en þess var skammt að bíða að þar
yrði breyting á. Uppspretta þess
sem átti eftir að verða ótrúlegur
auður Johns Bodkin var ekki þókn-
anir sem hann innheimti af sjúk-
lingum sínum, heldur arfur hon-
um til handa frá öldruðum konum
sem hann hafði heillað. Þær áttu
það sameiginlegt að þær hurfu yfir
móðuna miklu skömmu eftir að
hann hafði aðstoðað þær við að
gera nýja erfðaskrá. Í erfðaskrán-
um var góði læknirinn allajafna
nefndur til sögunnar sem eini erf-
inginn og kveðið á um að líkið
skyldi brennt.
Scotland Yard skoðar málið
John Bodkin var ekki annálaður
fyrir hæfni í læknisstörfum og árið
1956 lifðu vangaveltur og grun-
semdir um uppsprettu auðs Johns
góðu lífi á meðal starfsbræðra
hans. Hvískrað var um samkyn-
hneigð og eiturlyfjabrask, en ekk-
ert var aðhafst lengi vel.
Það var ekki fyrr en vinsæll leik-
ari, Leslie Hanson, vakti athygli
lögreglunnar í Eastbourne á dul-
arfullu dauðsfalli góðrar vinkonu
sinnar sem hafði verið sjúklingur
Johns að dagblöðin fengu veður af
málinu og það var sent til Scotland
Yard, rannsóknarlögreglunnar í
Lundúnum.
Rannsókn lögreglunnar var op-
inber og málalyktir urðu þær að
John var handtekinn og ákærður
fyrir morð. Lögreglan svipti hulunni
af skýrslum sem náðu tíu og hálft ár
aftur í tímann og opinber meina-
fræðingur sagði 160 dauðsföll vera
„grunsamleg“. Áhugi almennings
var gríðarlegur og fjöldi fólks, þess
á meðal starfsfólk verjanda Johns
sjálfs, var þess fullviss að læknirinn
væri sekur. Því var ekki að undra að
dómurinn „saklaus“ vekti töluverða
undrun og eftirtekt.
Valdamiklir vinir
Þannig var mál með vexti að John
Bodkin Adams átti innan vébanda
stjórnmálamanna valdamikla vini.
Leiddar voru sterkar líkur að því að
John ætti í kynferðislegu sambandi
við háttsettan stjórnmálamann á
svæðinu.
En einnig mátti ætla að ein-
hverjir háttsettir menn vildu sjá
John Bodkin dæmdan, þeirra á
meðal hugsanlega Harold Macmill-
an, þáverandi forsætisráðherra, og
Reginald Manningham-Buller sem
var ríkissaksóknari, en þeir voru
báðir skyldir einu meintra fórnar-
lamba Johns Bodkin.
Þann 24. ágúst 1956 sendi
breska læknasambandið undar-
leg fyrirmæli til allra lækna í East-
bourne þar sem þeim var sagt að
hafa í huga þagnareið lækna ef
þeir yrðu yfirheyrðir af lögreglu
vegna máls Johns Bodkin. Eins og
við var að búast hugnuðust Her-
bert Hannam, rannsóknarlögreglu-
manni hjá Scotland Yard sem fór
fyrir rannsókn málsins, ekki fyrir-
mæli læknasambandsins. Sama
var uppi á teningnum hjá Reginald
Manningham-Buller sem reyndi
að fá læknasambandið til að falla
frá tjáningarbanninu. Læknasam-
bandið lét undan, en þegar upp
var staðið voru aðeins tveir læknar
í Eastbourne sem létu lögreglunni
í té einhverjar sannanir varðandi
John Bodkin.
Stjórnmál bjarga John Adams
En það hékk fleira á spýtunni því
þrátt fyrir yfirgnæfandi líkur á sekt
Johns þá höfðu menn áhyggjur af
afleiðingunum ef John yrði sak-
felldur. Þannig var mál með vexti
að dauðarefsing var enn við lýði í
Bretlandi og margir, þeirra á með-
al Reginald Manningham-Buller,
höfðu áhyggjur af því að læknar
gerðu uppreisn ef John yrði leidd-
ur í gálgann, en slíkt hefði haft afar
slæmar afleiðingar fyrir heilbrigð-
iskerfi landsins sem var veikt fyrir.
Til að bæta gráu ofan á svart
hafði John Bodkin hótað að „nefna
nöfn“ við áfrýjun málsins EF hann
yrði sekur fundinn.
Ekki er fráleitt að ætla að ríkis-
stjórn landsins hafi talið sektardóm
yfir John Bodkin léttari á vogar-
skálunum en líf stjórnarinnar sem
þá naut ekki vinsælda vegna flærð-
ar hennar og nýlegrar afsagnar
Anthonys Eden úr embætti forsæt-
isráðherra vegna klúðursins sem
umlék deiluna um Súez-skurð-
inn. Ætla mátti að mál sem varðaði
morð læknis á öldruðum sjúkling-
um, mikilvæga stjórnmálamenn
og kerfiskalla og lyfjahneyksli þeim
tengt, kynlíf – einkum og sér í lagi
samkynhneigð, að ekki sé talað
um aftöku læknis og meðfylgjandi
tjón á heilbrigðiskerfinu, riði ríkis-
stjórninni að fullu.
Hvað sem þeim vangaveltum
líður var John Bodkin Adams sýkn-
aður af morðákærum þann 9. apríl
1957 og það tók kviðdóm aðeins 44
mínútur að komast að niðurstöðu.
John Bodkin Adams andaðist
árið 1983 í Eastbourne.
42 sakamál umsjón: kolBeinn þorSteinSSon kolbeinn@dv.is 13. ágúst 2010 föstudagur
Árið 1956 lifðu vangaveltur og
grunsemdir um upp-
sprettu auðs Johns
góðu lífi á meðal
starfsbræðra hans.
Brosmildur John
Bodkin Adams
sýknaður þrátt fyrir lítil
áhöld um sekt hans.