Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Síða 48
48 lífsstíll umsjón: indíana ása hreinsdóttir indiana@dv.is 13. ágúst 2010 föstudagur Eldri fá það frEk- ar Samkvæmt rannsókn á 600 konum á aldrinum 18-95 ára sem birtist í Brit- ish Journal of Urology Internation- al eru erfiðleikar við að ná fullnæg- ingu og skortur á áhuga algengustu kynlífsvandamál kvenna. Stór hluti eða tveir þriðju aðspurðra kvenna sögðust eiga við einhver vandamál að stríða þegar kemur að kynlífi. 48 prósent sögðust þjást af lítillri kynlífslöngun, 45 prósent áttu í erf- iðleikum með að ná fullnægingu og 36 prósent sögðust finna til sársauka við samfarir. Konur á aldrinum 31- 45 ára mældust stunda mest kynlíf en vandamálin virðast aukast með aldrinum nema með tilliti til full- nægingar. Eldri konur virðast frekar fá það en yngri. BEtra að rEyna strax aftur Samkvæmt franskri rannsókn ættu konur sem missa fóstur að reyna strax að verða ófrískar aft- ur. Í rannsókninni kemur fram að líkur á heilbrigðri meðgöngu séu meiri ef konan verður þunguð innan sex mánuða eftir fóstur- missi en ef hún bíður lengur. Niðurstöðurnar birtust í tímarit- inu British Medical Journal og þykja umdeildar en Alþjóðlega heilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur hingað til mælt með að konur bíði í allavega sex mánuði með að verða aftur barnshaf- andi eftir að hafa misst fóstur. Rannsóknin byggði á gögnum 30 þúsund kvenna sem höfðu misst fóstur og orðið ófrískar aftur á ár- unum 1981-2000. frjósam- ar vElja Eggjandi föt Konur kaupa kynþokkafyllri föt þegar þær eru með egglos, sam- kvæmt nýrri bandarískri rann- sókn. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar kaupa konur klæðaminni og meira eggjandi föt þegar þær eru á sínu frjósam- asta skeiði. Vísindamenn sem stóðu að rannsókninni segja þessa tilhneigingu ekki tilkomna vegna löngunar til að ganga í augu karlmanna heldur til að slá út aðrar konur í kynþokka og þannig standa betur að vígi. Rannsóknin birtist í tímaritinu Journal of Consumer Research og er ein af fáum rannsóknum sem tekur á áhrifum hormóna á inn- kaupahegðun kvenna. Sýn þín á aðra segir mikið um þig: Jákvæðir hamingjusamari Hvaða augum þú lítur aðra seg- ir mikið um hvaða mann þú hefur að geyma. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem framkvæmd var í Wake Forest-háskólanum í Banda- ríkjunum og birtist í tímaritinu Jo- urnal of Personality and Social Psy- chology. Vísindamennirnir fundu út að þeir einstaklingar sem lýsa öðr- um á jákvæðan máta eru líklegri til að vera jákvæðir og hamingjusam- ir einstaklingar sjálfir. „Sýn okkar á annað fólk segir mikið um persónu- leika okkar,“ segir Dustin Wood að- stoðarprófessor í sálfræði við Wake Forest og höfundur rannsóknarinn- ar. „Þeir sem horfa jákvæðum augum á aðra eru líklega sjálfir ánægðir með líf sitt og vel liðnir af flestum í kring en á hinn bóginn eru þeir sem horfa neikvæðum augum á annað fólk lík- legri til að tileinka sér kaldhæðni og ófélagslega hegðun,“ bætir Wood við. Wood segir þá þátttakendur í rannsókninni sem lýstu öðrum á neikvæðan máta einnig hafa mælst þunglyndari en þeir sem lýstu öðr- um jákvætt. Hann telur að með því að kenna fólki að temja sér jákvæðni í garðs annars fólks sé hægt að vinna litla sigra í baráttunni við þunglyndi. Wood segir enn fremur að ef við vilj- um gera okkur grein fyrir hvaða mann ákveðnir einstaklingar hafi að geyma sé gott ráð að biðja þá um að lýsa samstarfsfólki sínu. „Með því lærirðu meira um þann sem lýsir en þá sem lýst er. Ef notuð eru mörg neikvæð orð gefur það til kynna að vinnufélagarnir séu leiðinlegir en getur einnig þýtt að sá sem þeim lýsir sé óhamingjusamur eða taugaveiklaður.“ sólveig eiríksdóttir lærði af ömmu sinni og mömmu að nýta náttúruna til matar- gerðar. Solla setur gras, fífla, arfa og smára í morgundjúsinn sinn og gefur okkur hér uppskrift að girnilegu og hollu hörfræjakexi með fjólum og morgunfrúm. Best að prófa sig hægt áfram „Amma kenndi mér, en hún var mik- il jurtakona“ segir Sólveig Eiríksdótt- ir heilsugúrú, betur þekkt sem Solla græna, þegar hún er spurð hvort hún nýti sér það sem vaxi villt í náttúr- unni. „Ég var mikið í Kerlingarfjöll- um á sumrin sem barn og var þá send að tína fjallagrös og annað sem óx úti. Mamma ræktaði líka mikið og því var ég alin upp við að þessi nýtni væri eðlileg og fékk því þenn- an áhuga,“ segir Solla sem í dag býr í úthverfi Reykjavíkur og er því enga stund að komast út í guðs græna náttúruna. „Bakgarðurinn minn er sá allra flottasti. Ég er ekki nema tvær mín- útur að komast að berjalyngi, elt- ingu, valhumli, arfa, hundasúrum og smára. Þetta tek ég allt, ásamt venju- legu grasi, og set ofan í morgundjús- inn minn. Margir telja hóffífílinn skaðræði í görðum en ég nota hann líka í djúsinn og nánast allt, nema skriðsóleyna,“ segir Solla og bætir við að flestir Íslendingar búi við þann munað að geta komist á græna bletti innan tíu mínútna. Solla segir mikla hugarfarsbreyt- ingu í þessum efnum. „Fólk er farið að opna augun og efnahagsástandið hefur hjálpað. Við keyrðum okkur út í horn í ofneyslu og duttum svo fram af brúninni og erum að byrja aftur en með þá þekkingu og reynslu sem við höfum aflað okkur.“ Solla hvetur fólk til að prófa sig áfram þegar kemur að villtum jurt- um og öðru sem íslensk náttúra hef- ur upp á að bjóða. „Flestir eiga nóg af rabarbara og sjálf geri ég gjarnan sultu úr honum ásamt ætihvönn. Stundum tek ég blóðberg og aðrar íslenskar jurtir í poka og sýð með til að fá næringuna og bragðið. Best er að prófa sig hægt áfram með það sem er öðruvísi og taka þannig til- lit til fjölskyldunnar og því sem hún er vön. Rabarbarasulta hefur mjög ákveðið bragð en ef þú setur smá hvönn með dregurðu úr bragðinu og þarft að setja minni sykur fyrir vikið. Einnig er gott að bæta engi- ferrót út í og kanelstöng sem virka eins og náttúruleg rotvörn og gefur kryddbragð. Ef þú vilt minnka syk- urinn geturðu byrjað á að setja 10 prósent minni sykur og þar af helm- inginn til dæmis hrásykur, döðlur eða agave-síróp. Þannig tekurðu til- lit til venja fjölskyldunnar og færð alla með þér í lið.“ Kex úr hörfræjum, fjólum og morgunfrúm: 500g hörfræ – lögð í bleyti í 1 ltr. af vatni yfir nótt (bæði fræin og útbleytivatnið er notað). 500g grænmeti, sem búið er að mauka í matvinnsluvél eða rífa með rifjárni. 1 msk. hunang (má sleppa). 1 msk. garam masala. 1 1/2 tsk. sjávarsalt. 1 tsk. paprikuduft. 1 tsk. cayenne-pipar. 15 fjólur (blómin). 2 morgunfrúr (blómin). Blandið öllu nema blómunum í skál eða hrærivélarskál. Þegar allt hefur blandast vel saman er blómunum hrært varlega saman við. aðferð: 1) setjið bökunarpappír á bökunarplötu. 2) Á hverja plötu setjið þið 3-4 bolla af deigi. 3) Dreifið jafnt úr deiginu á plötuna, til dæmis með sleikju, þetta á að vera 1/2 - 1 sm þykkt. 4) Bakið við 100°C í um 6 klst. eða þar til kexið er orðið alveg gegnum bakað og þurrt. 5) Gott er að snúa deiginu á hvolf og fjarlægja bökunarpappírinn og halda áfram að baka eftir um 4 klst. 6) Ef þið eigið þurrkofn þá bakið þið þetta kex við 105°F eða 47°C í 12 klst., snúið og klárið að baka í 2-3 klst. Úti í garði solla býr í útjaðri borgarinnar og er enga stund að fylla skál af bláberjum, vallhumli eða hundasúrum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.