Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Síða 50
50 ÚTTEKT 13. ágúst 2010 föstudagur
HEimsEndaTasKa
Það eru margar þrálátar flökku-sögur sem ganga um Ríkisút-varpið, hvort sem þær tengjast yfirbyggingu fyrirtækisins, völ-
undarsmíð hússins í Efstaleiti, óvanalegum
kenjum fyrri stjórnenda eða fjarsjóðum sem
leynast í fylgsnum leikmyndadeildarinn-
ar. Til að mynda segir ein sagan að svalirn-
ar sem umkringja húsið séu einmitt nógu
breiðar til þess að hægt sé að munda riffil á
þeim. En húsið var byggt eftir danskri teikn-
ingu af útvarpshúsi og samkvæmt þeim
stöðlum er algjörlega nauðsynlegt að geta
varist byltingu frá svölunum. Svona flökku-
sögur standast þó sjaldnast skoðun og er
það kannski ekki sannleiksgildi þeirra sem
er merkilegast. Lífseigasta flökkusagan í
tengslum við Ríkisútvarpið er þó sönn. En
það er hin dularfulla neyðartaska sem er
kirfilega skorðuð af á vegg í hljóðstofu út-
varpsins. DV fór í málið og skoðaði heims-
endatöskuna frægu.
Vasaljós, rafhlöður, mappa
og geisladiskar
Taskan minnir helst á eitthvað úr James
Bond-kvikmynd. Hörð og óspennandi skel,
gerð til að þola hvers konar barning og læti,
svipuð þeim sem innihalda skotkóða eld-
flauga eða viðkvæmar upplýsingar illmenna.
En innihaldið er ekki svo spennandi. Það
fyrsta sem maður rekur augun í er stórt vasa-
ljós, sem er víst algjör nauðsyn í loftárás til að
mynda, langvarandi rafmagnsleysi eða svip-
uðum aðstæðum. Varla væri hægt að stýra
útsendingum í myrkri, að minnsta kosti ekki
af mikill natni. Þá er að finna aukarafhlöður
að sjálfsögðu og lítið útvarpstæki svo hægt
sé að fylgjast með útsendingum. Mappa frá
Almannavörnum tekur langmesta plássið en
þar er að finna ítarlegar leiðbeiningar frá Al-
mannavörnum við ótal uppákomum. Svo er
fjöldinn allur af geisladiskum. Flestir disk-
anna innihalda leiðbeiningar og tilkynning-
ar frá Almannavörnum og eru merktir „fár-
viðri“, „eldingar“, „snjóflóð“ og þess háttar.
Mesta athygli vekja þó tónlistardiskarnir
sem einnig eru flokkaðir eftir neyðarástandi
en hvert ástand virðist hafa eigin hljóðrás.
Mezzoforte fullvissar
fólk um að allt sé í lagi
Klassísk tónlist er algengust í möppunni en
hún er helst spiluð þegar orðið hafa mann-
skaðar. Meðal höfunda má nefna Mozart, Ro-
bert Shaw og fleiri. Eðlilega verður klassíska
tónlistin fyrir valinu; undarlegt væri að spila
diskó eða danstónlist ef til dæmis Bretar réð-
ust inn í Reykjavík, gráir fyrir járnum og rauð-
ir í framan af reiði út af Icesave-málinu. Þeg-
ar svokallað óvissuástand ríkir er hins vegar
spiluð öllu léttari tónlist, væntanlega til að
halda fólki rólegu. Til dæmis Roberto Perera
og Earl Klugh Late Night Guitar. Vel valið hjá
Ríkisútvarpinu. Enda kannski ekki vænlegt
að spila þungarokk þegar óvissuástand ríkir
í þjóðfélaginu: „Góðir landsmenn! Verkefni
stjórnvalda á næstu dögum er skýrt: að koma
í veg fyrir að upplausnarástand skapist ef ís-
lensku bankarnir verða óstarfhæfir að ein-
hverju marki. Þangað til
er það Sepultura
...“ Að lokum
er einn disk-
ur merktur
„Ástand allt í
lagi“ en þá er
spilað Garden
Party með Mezz-
oforte. Auðvitað.
Engin hljómsveit
væri betur til þess
fallin að gleðja
en Mezzoforte.
Í útsendingarstofu
Ríkisútvarpsins leynist
sérstök taska sem er að-
eins opnuð í neyðartil-
fellum. Í henni má finna
ýmsan neyðarbúnað og
sérstaka hljóðrás til að
útvarpa ef hörmungar
skekja þjóðina. Þar er
bæði að finna leiðbein-
ingar frá Almannavörn-
um og tónlist. Ekki hef-
ur enn þurft að notast
við töskuna samkvæmt
heimildum DV.
n Mappa með öryggisráðstöf-
unum frá almannavörnum
n 1 stk. vasaljós
n 4 stk. rafhlöður
n 1 stk. vasaútvarp
n diskar með leiðbeiningum
frá almannavörnum
inniHald TösKunnar:
Neyðartaska RÚV Verður opnuð
þegar hörmungar dynja á landinu.