Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Síða 51
föstudagur 13. ágúst 2010 ÚTTEKT 51 HEimsEndaTasKa rúv opnuð TónlisTin í TösKunni roberto perera Tilefni - Óvissuástand Roberto Perera spilar latin-djass. Hann kemur frá Úrúgvæ og hefur vakið mikla athygli fyrir leik sinn á paragvæska hörpu, sem er sjaldgæft hljóðfæri með 36 strengi. Roberto hóf feril sinn sem atvinnu- tónlistarmaður árið 1973, þegar hann flutti frá Úrúgvæ til Bandaríkjanna. Seinna flutti hann til Miami og hefur hann síðan þá gefið út fjölda geisladiska. Árið 2003 var hann svo tilnefndur til Latin Grammy-verðlaunanna. Earl Klugh Tilefni - Óvissuá- stand Earl Klugh er bandarískur djass- gítarleikari sem hefur verið að frá 13 ára aldri, eða síðan árið 1953. Hann hefur gefið út yfir 30 plötur, sem hafa margar hverjar ratað beint í fyrsta sæti djassvinsældarlista Billboard í Bandaríkjunum. Hann hefur verið tilefndur til ótal Grammy-verðlauna og var árið 2006 sagður einn besti „akústík“-gítarleikari heimsins í dag, í tímaritinu Modern Guitar Magazine. Mezzoforte Tilefni - Allt í lagi Þegar óvissan er yfirstaðin er íslensku sveitinni Mezzoforte skellt á fóninn. Mezzoforte hefur verið starfandi frá árinu 1977, með hléum auðvitað. Hljómsveitin sló í gegn á heimsvísu með lagi sínu Garden Party árið 1983, en erfitt er að finna íslenskt lag sem boðar jafn látlausa gleði og einmitt það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.