Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 62
Tökum á myndbandinu við hið
umdeilda lag Við elskum þessar
mellur með röppurunum Blaz
Roca og Emmsé Gauta er lokið.
Tökur fóru meðal annars fram
á skemmtistaðnum Austur þar
sem þeir félagar voru umkringd-
ir ítölskum fyrirsætum. Kvartað
hefur verið undan laginu sem er í
spilun á FM 957 en forsvarsmenn
stöðvarinnar hafa neitað að taka
það alfarið úr umferð. Lagið verð-
ur að finna á væntanlegri plötu
Blaz eða Erps Eyvindarsonar sem
kemur út í lok ágúst. Aðeins á
eftir að taka upp eitt lag en þessa
dagana er verið að hljóðvinna
það efni sem er tilbúið.
Grínistinn Steindi Jr. hefur heldur
betur verið áberandi eftir að hann
sló í gegn með þættina Steindinn
okkar á Stöð 2 í vor. Hann hefur ver-
ið tíður gestur á skjám landsmanna
og auglýsingaskiltum um allt land
í sumar. Fyrst í auglýsingaherferð
Ring, þar sem öskrandi Árna John-
sen bar hvað hæst í kringum Þjóðhá-
tíð, og nú í námsmannaauglýsingum
Arion banka þar sem hann leikur
trítilóðann íþróttafræðing.
Samkvæmt heimildum DV eru
þó nokkrar auglýsingar væntan-
legar í viðbót þar sem Steindi mun
bregða sér í hlutverk markaðs-, guð-
og sálfræðings. Hver auglýsing með
Steinda er í raun eins og lítill grín-
skets og því hefur innkoma hans ver-
ið kærkomin á annars nokkuð þurr-
an auglýsingamarkaðinn.
Þeir Steindi og Ágúst Bent Sig-
bertsson eru þegar farnir að leggja
drög að næstu þáttaröð af Steind-
anum okkar. Þeir hófu nýlega að
skrifa handritið að næstu þáttaröð
og hafa fengið til liðs við sig þriðja
aðila. Sá er ungur listamaður að
nafni Magnús Leifsson en hann
hjálpaði einnig til við gerð fyrri þátt-
araðarinnar. Áætlað er að tökur hefj-
ist í byrjun október og þáttaröðin
fari í loftið í byrjun janúar.
Þá hefur grínistanum unga einn-
ig verið boðið lítið hlutverk í mynd-
inni Okkar eigin Osló sem Reynir
Lyngdal leikstýrir. Tökur hefjast á
næstunni en það er Þrosteinn Guð-
mundsson sem skrifaði handrit
myndarinnar og leikur aðalhlutverk
hennar. asgeir@dv.is
Fleiri Fræðingar
Ítalskar
Fyrir-
sætur á
austur
Steindi gerir það gott í auglýSingum:
Eftir að tilkynnt var um endalok
Spaugstofunnar í Sjónvarpinu
hefur verið uppi mikil umræða í
þjóðfélaginu hvort það hafi verið
tímabært eða hvort þeir félagar
ættu að halda áfram. Einn af að-
dáendum þeirra félaga harmar
að þátturinn sé að líða undir lok
og stingur upp á því á Facebook-
síðu Karls Ágústs Úlfssonar að
meðlimir Spaugstofunnar bjóði
sig fram til Alþingis allir sem
einn. „Það virðist enginn vera
eins glöggur á þjóðmál og þið.“
spaug-
stoFuna
á þing
62 fólkið 13. ágúst 2010 föstudagur
Baddi í Jeff Who?:
Steindi Jr. Á eftir að bregða sér í hlutverk markaðs-, guð- og sálfræðings.
„Þetta var smá adrenalínkikk,“ seg-
ir Bjarni Lárus Hall, söngvari Jeff
Who, sem kom upp um þjóf á dög-
unum. Bjarni starfar hjá símafyr-
irtækinu Alterna en þegar þangað
kom viðskiptavinur og flaggaði föls-
uðum skilríkjum fór tónlistarmað-
urinn í leynilögregluham. „Gaurinn
ætlaði að fá símkort í áskrift en ég
sá að myndin á skilríkjunum líktist
honum ekki mikið. Ég spurði hvort
þetta væri hann og fékk bara eitt-
hvað bullsvar um að hann hefði lent
í veikindum. Ég lét hann fá kortið
aftur en þegar hann var farinn fór
ég aðeins að rannsaka og gúgglaði
hann og svona. Þar fann ég gaurinn
sem átti kortið sem hann hafði not-
að og hringdi í hann. Sá sagðist ekki
hafa verið að kaupa sér símkort en að
bílnum hans hefði aftur á móti ver-
ið stolið í nótt og debetkortið hefði
verið í honum,“ segir Bjarni og bæt-
ir við að þeir tveir hafi ráðið ráðum
sínum.
„Við fórum að skipuleggja og
ákváðum að ég myndi hringja í
gaurinn og segja honum að kort-
ið væri gallað í von um að hann
kæmi aftur þar sem lögreglan
myndi bíða hans enda var gaur-
inn sem átti bílinn í sambandi
við lögregluna,“ segir Bjarni en
aldrei kom til þessa skipulags
þar sem lögreglan mætti fljótt
á svæðið til að ræða við Bjarna.
„Ég reyndi að lýsa manninum
og benda í hvaða átt hann hefði
farið. Síðan sýnist mér ég sjá gaur-
inn rölta hinum megin við götuna.
Þetta líktist honum allavega og ég
benti lögreglunni á hann sem tók
hann og félaga hans fasta.“
Bjarni var látinn bera kennsl á
manninn og var hinn stressaðasti við
að flækjast í sakamál. „Ég var frekar
smeykur en þeir voru hinir ánægð-
ustu, tóku í höndina á mér og hrós-
uðu mér fyrir tónlistina. Þetta voru
bara fíklar sem voru að reyna vera
töff,“ segir Bjarni og viðurkennir að
lífsreynslan hafi kveikt á einhverju
innra með honum. „Ég kom upp um
bílstuld og er ánægður með það. Mig
hefur alltaf langað að gerast einhvers
konar leynilögga og hef alltaf haft
gaman af þáttum eins og Murder
she Wrote og rithöfundinum Agöthu
Christie. Þessi reynsla hefur ekki
minnkað þann áhuga og það er
aldrei að vita nema maður ger-
ist „detective“ þegar tónlistar-
ferillinn endar.“
indiana@dv.is
Bjarni Hall setti sig í stellingar rannsóknar-
lögreglumanns þegar hann kom upp um þjóf
fyrir skemmstu. Hann á sér þann draum að
gerast leynilögga og segir þessa reynslu síst
hafa dregið úr því.
Bjarni
Hall
Þefaði uppi
þjófinn eins og
vanasti rannsókn-
arlögreglumaður.
Dreymir um að gerast
leynilögga Hefur alltaf
haft gaman af þáttunum
Murder She Wrote.
Kom upp
um þjóf