Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Qupperneq 2
2 fréttir 20. október 2010 miðvikudagur Í byrjun janúar og febrúar 2007 sendi Heiðar Már Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri hjá fjárfestingarfélag- inu Novator sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, tölvupósta til Björgólfsfeðga, eigenda Landsbank- ans, þar sem hann sagði að erlend- ir vogunarsjóðir myndu ráðast á ís- lensku krónuna í febrúar. Heilræði hans til feðganna í póst- inum í byrjun janúar var á þá leið að kasta íslensku krónunni og byrja að gera Landsbankann upp í erlendum gjaldmiðli. „Þetta mál er mjög brýnt. Erlendir vogunarsjóðir munu ráðast á krónuna í febrúar, þegar Fitch lækk- ar lánshæfiseinkunn ríkisins, nema þeir geri það fyrr.“ DV hefur tölvu- póstana undir höndum. Í póstinum benti Heiðar Már þeim Björgólfsfeðgum á mikilvægi þess að Landsbankinn byrjaði að gera reikningsskil sín í evrum en ekki íslenskum krónum líkt og verið hafði. Heiðar Már rakti það fyrir þeim feðg- um að Landsvirkjun hefði skömmu áður gefið það út að fyrirtækið hygð- ist færa bókhald sitt í bandarískum dollurum og var inntakið í orðum hans það að önnur fyrirtæki ættu að gera slíkt hið sama. „Nú er það stað- fest að Landsvirkjun mun færa reikn- ingsskil sín úr ISK yfir í USD á árinu. Það er þá fyrsta ríkisfyrirtæki sög- unnar sem hafnar ríkisgjaldmiðli, en þeim er nauðugur einn kostur út af erlendri fjármögnun verkefna.“ Heiðar Már sagði að hvorki Landsvirkjun né Kaupþing teldu sig geta beðið með þessar breytingar þar til eftir alþingiskosningarnar um vorið því þá myndi „botninn detta úr krónunni“. Hann taldi jafnframt að sú staðreynd að mörg önnur fyr- irtæki myndu ákveða slíka yfirfærslu í erlenda mynt í kjölfarið myndi setja „mikla pressu á íslensku krónuna“. Af tölvupóstinum er ljóst að Heiðari Má var mikið niðri fyrir og taldi hann brýnt að sem flest fyrirtæki köstuðu krónunni. Jafnframt má reikna með að þetta hefði leitt af sér gengislækk- un á krónunni. Áhyggjur og freistingar Soros eftir fundinn DV fjallaði á mánudaginn um tölvu- póst frá Heiðari Má í lok janúar þar sem hann sagðist hafa fundað með áhættufjárfestunum George Soros og Bruce Kovner í New York og að það freistaði þeirra að ráðast á íslensku krónuna. Á mánudeginum, eftir birt- ingu umfjöllunar DV, sendi blaðið Heiðari Má frekari spurningar um fundinn með Soros og Kovner, sem og spurningar um bréfin til Björ- gólfsfeðga. Þá svaraði Heiðar Már um fundinn með Soros og Kovner: „Ég hef alltaf sagt að krónan geti verið leiksoppur stórra sjóða. Krónan dugi því ekki. Við áttum rosalega mikið undir krónunni og því þurftum við að vita af áætlunum aðila.“ Jafnframt var sagt frá því í fréttinni að tveimur mánuðum síðar hefði Heiðar Már sent annan tölvupóst þar sem hann kvartaði yfir því hve gengi krónunnar héldist sterkt og að honum blæddi á því, það er að segja, hann tapaði fjármunum. Í þessu svari Heiðars Más felst því að eitt erindi fundanna með Soros og Kovner hafi verið að kom- ast að því hvernig áhættufjárfestarn- ir sæju stöðu krónunnar á þessum tíma. Óvíst er því hvað Soros og Kov- ner áttu að græða á fundinum með Heiðari en líklegt er að þeir hafi fal- ast eftir upplýsingum hjá honum um stöðu krónunnar – Heiðar Már er sá Íslendingur sem er hvað best tengd- ur við vogunarsjóði í New York og því kannski ekki óeðlilegt að leitað sé til hans varðandi Ísland. Að minnsta kosti hefur Heiðar sagt í svörum sín- um um fundinn að Soros, sem lík- lega er einn þekktasti gjaldmiðlaspá- kaupmaður heims eftir að hafa grætt milljarð dollara á stöðutöku gegn breska pundinu árið 1992, hafi bæði lýst yfir áhyggjum af íslensku krón- unni og jafnframt að það „freistaði“ hans að gera árás á krónuna. Eftir fundinn með Heiðari hafði Soros því bæði áhyggjur af íslensku krónunni og jafnframt freistaði það hans að ráðast á hana með það fyrir augum að græða. Ljóst er því að Heiðar hef- ur að minnsta kosti ekki talið Soros hughvarf um stöðutökuna með upp- lýsingum sínum. Heiðar sendi umræddan tölvu- póst um Soros og Kovner eftir að hann sendi þeim Björgólfsfeðgum póstinn þar sem hann sagði þeim að líklegt væri að vogunarsjóðirnir myndu ráðast á krónuna í mars. Orðrómur var um árás, segir Heiðar Aðspurður um þau ummæli í póst- inum til þeirra Björgólfsfeðga að vogunarsjóðir myndu ráðast á krón- una í febrúar 2007 segir Heiðar Már í svari til DV í tölvupósti að orðróm- ur hafi verið um þetta á markaði: „Vegna þess að Hugh Hendry [þekkt- ur skoskur fjárfestir og vogunarsjóðs- maður, innskot blaðamanns] gaf út yfirlýsingu um að erlendir sjóðir myndu gera það. Hann sagði það í fréttabréfi og á fundi. Erlendir sjóð- ir voru á þessum tíma byrjaðir að skortselja skuldabréf bankanna og orðrómurinn [var] að næst yrði það gjaldmiðillinn.“ DV sendi Heiðari Má frekari spurningar um bréfið til Björgólfs- feðga en fékk ekki svar frá honum við þeim. Spurningarnar hljóðuðu svo: „Hvað sagðir þú við Soros og Kovner, í ljósi þess að þremur vikum áður hafðir þú sent tölvupóst til Björgólfs Thors þar sem þú sagðir honum frá væntanlegri árás vogunarsjóða og í ljósi þess að lækkun á gengi krón- unnar þjónaði hagsmunum þín- um? Mín túlkun á tölvupóstinum frá þér er sú að þú hlýtur að hafa mælt með stöðutöku gegn krónunni, með- al annars í ljósi nokkurra mögulegra ástæðna lækkunar sem þú nefndir í tölvupósti tveimur mánuðum síðar. Þú segir að þú fundir með vogunar- sjóðum til að skiptast á upplýsingum við þá og vegna þess að báðir aðilar hafi áhuga á því að vita hvað hinn hefur að segja. Hvað sagðir þú við þá Soros og Kovner?“ Því liggur ennþá ekki fyllilega ljóst fyrir af hverju Heiðar Már fundaði með Soros og Kovner á þessum tíma þótt ein helsta niðurstaða fundarins liggi fyrir. Alveg ljóst verður þó að telj- ast að Heiðar Már fékk ekki eingöngu að funda með þeim til að fá frá þeim upplýsingar um hvort þeir ætluðu að ráðast á krónuna eða ekki. Soros og Kovner hljóta að hafa haft einhverja hagsmuni af fundinum enda tveir af þekktari áhættufjárfestum Banda- ríkjanna. „Nú fer hver að verða síðastur“ Í tölvupóstinum í janúar rakti Heiðar Már það fyrir Björgólfsfeðgum að sú staðreynd að Landsvirkjun og önn- ur íslensk fyrirtæki ætluðu að byrja að gera upp í erlendum gjaldmiðlum myndi setja mikla pressu á íslensku krónuna og að þetta myndi óhjá- kvæmilega leiða til veikingar hennar á næstu mánuðum. Heiðar Már var því væntanlega einnig með þessar upplýsingar í farteskinu þegar hann hitti Soros og Kovner. Heiðar Már sagði í póstinum: „Nú fer hver að verða síðastur. Vill Landsbankinn lenda í þeirri aðstöðu að ætla að þóknast stjórnvöldum og Seðlabanka en greiða fyrir það með 30% af eigin fé sínu? 30 prósent geng- islækkun hefur þau áhrif og þá er ótalin lengri tíma áhrif út af áföllum viðskiptavina. Stjórn Landsbankans þarf að taka fram fyrir hendur stjórn- enda bankans, ef þeir aðhafast ekk- ert út af þessu máli. 70 milljarðar eða meira eru í húfi,“ en með því átti hann við að lækkun á gengi krónunnar myndi eðlilega gera það að verkum að verðgildi fjármuna Landsbankans myndi minnka. Þar með myndi verð- gildi þeirra króna sem Landsbankinn átti, meðal annars til að standa í skil- um við erlenda lánardrottna, minnka um 30 prósent og því þyrfti bankinn fleiri krónur en áður fyrir hverja af- borgun af lánum. Heilræðið sem Heiðar gaf þeim Björgólfsfeðgum var því að stökkva til sem fyrst og byrja að gera upp í er- lendri mynt: „Við erum algerlega að ráða Landsbankanum heilt í þess- um efnum. Exista og FL Group, sem áður var talið að hefðu stöðu á móti krónunni, hafa hana ekki lengur. Samson sem hluthafi Landsbank- ans er að forða Landsbankanum og viðskiptavinum hans frá miklu, því nú er nánast allir orðnir langir króna [hafa tekið stöðu með krónunni, inn- skot blaðamanns] og eru sömu meg- in, en blikur eru á lofti og magn við- skipta þannig að aðeins þeir fyrstu sleppa með skrekkinn,“ en með því átti Heiðar Már væntanlega við að þeir gætu sloppið við tap út af verð- hruni krónunnar. Þessi tölvupóstur sýnir því að Heiðar Már var sannfærður um mikla gengislækkun krónunnar í ársbyrjun 2007 og ráðlagði Björgólfsfeðgum að búa Landsbankann undir þessa lækkun. Af lækkuninni varð þó ekki strax þarna á eftir líkt og Heiðar hélt og var krónan ansi sterk út sumarið 2007. Ástæðan fyrir því kann meðal annars að vera sú að aldrei kom til árásar vogunarsjóðanna líkt og Heið- ar Már taldi, meðal annars vegna fundanna með Soros og Kovner. Sendi bréf til ráðherra Sjálfstæðis flokksins Landsbankinn fylgdi hins vegar ekki þessum tillögum Heiðars. Rúmum mánuði síðar, þann 10. febrúar 2010, lá enn meira á að bankarnir byrjuðu að gera upp í evrum og sendi Heið- ar Már annan tölvupóst til Björgólfs- feðga með yfirskriftinni: „Bankarn- ir verda að skipta yfir í EUR adur en logum er breytt. Lata hluthafa sam- þykkja tetta a adalfundi.“ Líkt og kom fram í fyrri tölvupósti Heiðars Más var hann á þeirri skoðun að erlendir vogunarsjóðir myndu gera árás á krónuna í febrúar sem leitt hefði til verðhruns hennar. Í upphafi tölvupóstsins sagði Heiðar Már að hann hefði fyrr um daginn sent sama tölvupóst á nokkra ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins. Tengdafaðir Heiðars Más, Björn Bjarnason, var þá dóms- og kirkju- málaráðherra. Inntakið í tölvupósti Heiðars Más var að krónan væri búin að vera og að bankarnir þyrftu að kasta krónunni: „Enginn thorir að tala um tetta mal. Svo segir Er- lendur Hjaltason á vidskiptathingi að kronan se buin ad vera og tetta naer ekki i frettir. Stjornarformad- ur staersta bankans segir thad sama i Danmorku og thad ratar a sidu 14 inni i texta um annad. Kosningar eru 12. mai og thad a ad tegja tetta i hel fram ad thvi. Thad maetti hald ad oll thjodin vaeri i flokknum,“ en með því virðist Heiðar hafa verið að tala um Sjálfstæðisflokkinn en flokksmenn hans hafa almennt séð verið fylgj- andi íslensku krónunni. David Oddsson talar eins og versti sósíalisti. iNgi f. vilHjÁlmSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is „NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR“ Heiðar már guðjónsson sendi Björgólfsfeðgum tvo tölvupósta í janúar og febrúar 2007 þar sem hann varaði þá við 30 prósenta gengislækkun íslensku krónunnar. Hann sagði að erlendir vogunarsjóðir myndu ráðast á krónuna í febrúar. Ráðlegging hans var sú að Landsbankinn ætti að gera upp í erlendri mynt. Heiðar Már gagnrýndi Davíð Oddsson harkalega í póstinum og sagði Íslendinga ekki gera sér grein fyrir því að krónan væri búin sem gjaldmiðill og að allir bankarnir ættu að gera upp í evrum. Davíð líkt við sósíalista HeiðarMár líktiDavíðOddssyniseðlabankastjóra viðsósíalistaíeinumaftölvupóstunum útafandstöðuhansviðþaðaðíslensku bankarnirgerðuuppíerlendum gjaldmiðlum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.