Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Qupperneq 4
4 fréttir 20. október 2010 miðvikudagur
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Slakaðu á heima
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
Verið velkomin í verslun okkar
prófið og sannfærist!
Úrval nuddsæta
Verð frá 23.750 kr.
Helstu eigendur útgerðarfélagsins Samherja hafa tekið sér milljarða króna í arðgreiðsl-
ur út úr félaginu á síðustu árum. Mikill hagnaður var á rekstri félagsins á síðasta ári
og því lögðu Óskar Magnússon og félagar í stjórn til að 843 milljónir yrðu greiddar út
til hluthafa Samherja. Ljóst er að félagið er gífurlega verðmætt og í góðum rekstri.
MILLJARÐAR Í ARÐ
EFTIR BANKAHRUN
Helstu eigendur útgerðarfélagsins
Samherja hafa greitt sér milljarða
króna í arð á seinustu árum. Stjórn
félagsins lagði til í apríl síðastliðnum
að fimm milljónir evra, sem samsvar-
ar 781 milljón króna, yrðu greiddar
út í arð til hluthafa félagsins á þessu
ári fyrir rekstrarárið 2009. Í fyrra voru
greiddar út 3,6 milljónir evra, eða
562 milljónir króna, fyrir rekstrar-
árið 2008. Það ár greiddu eigendur
Samherja sér svo 5,4 milljónir evra,
eða 843 milljónir króna, fyrir árið
2007. Miðað er við núgildandi gengi
krónunnar gagnvart evrunni. Ef 781
milljón verður greidd út til hluthafa
á þessu ári, eins og stjórnin leggur til,
hafa eigendur útgerðarfélagsins tek-
ið sér meira en tvo milljarða, 2.186
milljónir króna, á tímabilinu sem um
ræðir.
Þrír aðaleigendur
Útgerðarfélagið Samherji er í eigu
Kristjáns V. Vilhelmssonar, sem á
þriðjungshlut, og þriggja fjárfesting-
arfélaga. Eignarhaldsfélagið Steinn
ehf., sem er í eigu fyrrverandi hjón-
anna Helgu S. Guðmundsdóttur og
Þorsteins Más Baldvinssonar, á einn-
ig þriðjungshlut.
Kristján og Steinn ehf. eiga fjár-
festingarfélagið Fjörð ehf., sem á 13
prósenta hlut. Bliki ehf. á 11 pró-
senta hlut í félaginu en óljóst er hver
er stærsti eigandi þess félags. Lang-
stærstu eigendur Samherja eru því
Kristján og hjónin fyrrverandi Helga
og Þorsteinn Már. Saman hafa þess-
ir eigendur útgerðarfélagsins fengið í
sinn hlut, í gegnum eignarhaldsfélög
sín, stærstan hluta þeirra risastóru
arðgreiðslna sem stjórn Samherja
hefur ákveðið að greiða út.
Saman á Mogganum
Þorsteinn Már er forstjóri Samherja
en stjórn félagsins skipa Eiríkur S.
Jóhannesson stjórnarformaður auk
þeirra Óskars Magnússonar, útgef-
anda Morgunblaðsins, og Kristjáns
Vilhelmssonar.
Eiríkur hefur látið mjög að sér
kveða í íslensku viðskiptalífi. Hann
hefur setið í stjórn fjárfestingarfé-
lagsins Gnúps fyrir hönd Glitnis og
verið forstjóri Kaldbaks fjárfesting-
arfélags, auk þess sem hann var for-
stjóri OgVodafone. Leiðir Óskars og
Þorsteins Más liggja síðan aftur sam-
an í gegnum Árvakur, útgáfufélag
Morgunblaðsins. Þorsteinn er einn
af hluthöfum Árvakurs, en Helga,
fyrrverandi eiginkona hans, situr í
stjórn Árvakurs.
Milljarða gróði
Samherji er eitt af stærstu útgerð-
arfélögum landsins. Sú nýbreytni
var gerð í rekstri félagsins á síðasta
ári að það gerir nú upp í evrum líkt
og HB Grandi. Samherji fjármagn-
ar engu að síður Morgunblaðið sem
fer ekki í grafgötur með þá skoð-
un sína að Ísland eigi áfram að nota
krónuna sem gjaldmiðil. Hagnaður
Samherja var 22,2 milljónir evra, eða
um 3,4 milljarðar króna. Eignir sam-
stæðunnar námu í lok síðasta árs alls
tæpum hálfum milljarði evra, um 78
milljörðum króna. Félagið er í sterkri
stöðu því að eigið fé félagsins var
137 milljónir evra, um 21 milljarður
króna, í loks síðasta árs.
ARÐGREIÐSLUR TIL EIGENDA
n 2010: 781 milljón
n 2009: 562 milljónir
n 2008: 843 milljónir króna
arðgreiðslur
HELSTU EIGENDUR SAMHERJA
n Kristján V. Vilhelmsson
n Helga S. Guðmundsdóttir
n Þorsteinn Már Baldvinsson
eigendur
vALGEIR öRN RAGNARSSoN
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Óskar Magnússon Situr í stjórn
Samherja en eigendur útgerðarfélagsins
leggja fé í rekstur Morgunblaðsins þar
sem Óskar er titlaður útgefandi.
Þorsteinn Már Baldvins-
son Græðir á tá og fingri á
útgerðar félaginu Samherja,
sem nú gerir upp í evrum.
Það ár greiddu
eigendur Samherja
sér svo 5,4 milljónir
evra, eða 843 millj-
ónir króna.
Út yfir gröf
og dauða
Það á ekki að elta þá sem fara í gjald-
þrot út yfir gröf og dauða. Þetta sagði
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra á fundi með blaðamönnum
eftir ríkisstjórnarfund í hádeginu á
þriðjudag. Þar var rætt um frumvarp
sem ríkisstjórnin samþykkti þess
efnis að skuldir fyrnist á tveimur
árum. Ríkisstjórnin samþykkti að
senda frumvarpið til umfjöllunar
til allra þingflokka. Verði það sam-
þykkt verður ekki hægt að viðhalda
skuldakröfum lengur en í tvö ár.
Þetta á við um skuldir meðal annars
við skattinn, banka og lífeyrissjóði.
Óþarft stjórn-
lagaþing
„Stjórnlagaþingið, sem núverandi
stjórnarflokkar eru svo áhuga-
samir um, er óþarft,“ segir Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í
stjórnmálafræði, og tekur undir orð
Sigurðar Líndal lagaprófessors þess
efnis.
Hannes segir á bloggi sínu á
Pressunni að stjórnlagaþingið sé
jafnframt kostnaðarsamt. „Þegar
við þurfum á öllu okkar fé að halda,
væri ekki betra, áður en stjórnar-
skránni er breytt, að fara eftir henni?
Og hafa þær stjórnarskrár ekki
reynst best, sem eru stuttar og lag-
góðar og hafa þann tilgang að setja
vondum valdsmönnum skorður en
veita kvörtunarskjóðum viðspyrnu?“
skrifar Hannes.
Veturinn kominn
Fyrsti snjórinn féll í Reykjavík á
þriðjudagsmorgun eftir að veðrið
hafði leikið við borgarbúa fyrri
hluta mánaðarins. Veturinn var
örlítið fyrr á ferðinni á Norður-
landi en á Akureyri frysti á mánu-
dag og snjókorn féllu í byggð.
Veðurstofan spáir áframhald-
andi kulda um mest allt land; á
fimmtudag er gert ráð fyrir að hiti
verði rétt yfir frostmarki á suð-
vesturhorninu en á norðanverðu
landinu verður frost og þó nokkur
snjókoma. Á Austurlandi verður
hitinn í kringum frostmark nán-
ast alla vikuna en úrkomulítið.
Þorsteinn Kragh, sem dæmdur var
í níu ára fangelsi fyrir innflutning á
tæplega 200 kílóum af hassi, hefur
enn ekki svarað ítrekuðum fyrir-
spurnum DV um bréf sem sam-
fangi hans, Jacob van Hinte, sendi
til fjölmiðla.
Í bréfinu lýsti Jacob því yfir að
Þorsteinn væri saklaus og sagði
hann fórnarlamb hollensks glæpa-
gengis. Fullyrt var að Þorsteinn
hefði beitt Jacob við ritun bréfsins
og að Þorsteinn hefði jafnvel ritað
bréfið sjálfur. DV hefur undanfarna
daga reynt að ná tali af Þorsteini
vegna málsins, án árangurs. Full-
yrðingarnar sem fram komu í bréf-
inu hafa því ekki fengist staðfestar
en Jacob mun ekki vera sleipur í
ensku og rennir það stoðum undir
að einhver hafi verið honum innan
handar við ritun bréfsins, sem er á
ensku.
Erfitt hefur reynst að hafa upp á
Jacobi til að staðfesta að bréfið sé
frá honum komið. Jacob var nýlega
framseldur til Hollands þar sem
hann afplánar restina af dómi sín-
um.
Ýmislegt bendir til að ekki sé
allt með felldu í tengslum við yf-
irlýsingu Jacobs um sakleysi Þor-
steins, en fyrir utan að Jacob þykir
ekki sleipur í ensku og hafi augljós-
lega notið hjálpar við gerð bréfs-
ins, fékk verjandi Þorsteins bréf-
ið ekki í hendurnar og vissi ekkert
meira um málið en greint var frá í
fjölmiðlum. Þá er það staðfest að
Jacob óskaði sjálfur eftir því að fara
frá Litla-Hrauni og ýtir það und-
ir þær fullyrðingar að hann hafi
verið beitt-
ur einhvers
konar þrýst-
ingi. Þögn
Þorsteins um
málið þykir
heldur ekki
til þess gerð
að draga úr efa-
semdum.
solrun@dv.is
Óvíst hver skrifaði bréf um meint sakleysi Þorsteins Kragh:
Þorsteinn Kragh þegir
Þorsteinn
kragh
Hefur ekki
brugðist
við skila-
boðum
blaða-
manns.