Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Qupperneq 10
10 fréttir 20. október 2010 miðvikudagur
Stærsti eigandi bifreiðaskoðunar-
stöðvarinnar Aðalskoðunar, Jafet
Ólafsson, sver það af sér að Finnur
Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra
og eigandi Frumherja, eigi skoð-
unarstöðina í gegnum skráða eig-
endur stöðvarinnar. „Það er gott
að þú spyrð mig að þessu. Það er
náttúrulega hvílík tjara að Finnur
Ingólfsson eigi eitthvað í þessu,“
segir Jafet sem á 75 prósent í Að-
alskoðun á móti 25 prósentum
sem eru í eigu Eyjólfs Árna Rafns-
sonar, verkfræðings hjá Mannviti.
Aðalskoðun er með um 40 pró-
senta hlutdeild á bifreiðaskoðun-
armarkaðnum á móti 60 prósenta
hlutdeild Frumherja.
Jafet segist hafa heyrt orðróm
þess efnis að Finnur sé raun-
verulegur eigandi Aðalskoðunar
þrátt fyrir að þeir Eyjólfur Árni
séu skráðir eigendur. „Við höfum
fengið spurningar um þetta inn á
skiptiborðið hjá okkur og því sett-
um við þetta bara inn á heima-
síðuna okkar.“ DV hefur heimildir
fyrir því frá fyrrverandi viðskipta-
vinum Aðalskoðunar að þeir hafi
hætt viðskiptum við skoðunar-
stöðina vegna gruns um að Finnur
sé raunuverulegur eigandi hennar.
Stjórnarformaður Frumherja
Ástæðan fyrir því að einhverjir hafa
talið Finn vera raunuverulegan
eiganda Aðalskoðunar eru tengsl
Finns við eigendurna og sú stað-
reynd að hann reyndi að láta Frum-
herja kaupa Aðalskoðun í ársbyrj-
un 2007 en Samkeppnis eftirlitið
hafnaði samrunanum. Finnur var
þá nýbúinn að kaupa Frumherja
og ætlaði að láta fyrirtækið kaupa
Aðalskoðun líka. Hið sameinaða
félag hefði þá verið allsráðandi á
bifreiðaskoðunarmarkaðnum.
Jafet átti að verða fyrsti stjórnar-
formaður Frumherja, samkvæmt
frétt í Morgunblaðinu í ársbyrjun
2007, en tók aldrei sæti í stjórn-
inni vegna þess að hann keypti
Aðalskoðun. Jafet sat einnig í stjórn
fjárfestingarfélagsins Giftar á sín-
um tíma en Finnur var stór hluthafi
í félaginu sem tók við eignum og
skuldum Samvinnutrygginga.
Eyjólfur tengist Finni sömuleið-
is þar sem Finnur er einn af hlut-
höfum Mannvits og sat Eyjólfur
meðal annars í stjórn Geysis Green
Energy fyrir hönd Mannvits.
Jafet segir hörkusamkeppni
í gangi
Jafet segir hins vegar að tengsl sín
við Finn Ingólfsson séu ekki
mikil. „Ég þekki Finn
bara á sama hátt og
ég þekki ýmsa aðra
menn í viðskipta-
lífinu. Að tengja
hann við Aðal-
skoðun er út í
hött. Í sjálfu
sér gæti Íslandsbanki alveg stað-
fest það að peningarnir komu bara
frá okkur Eyjólfi Árna sem stað-
greiðsla á þessum hlut þegar við
keyptum þetta fyrirtæki. Það eru
engin tengsl á milli Frumherja og
Aðalskoðunar og við erum í hörku-
samkeppni við þá og höfum verið
að taka af þeim markaðshlutdeild.“
Hann segir að kaupin á Aðal-
skoðun hafi átt sér stað þannig að
Mannvit hafi ætlað að kaupa skoð-
unarstöðina og að hann hafi ákveð-
ið að vera með. „Á sínum tíma
ætlaði Mannvit að kaupa skoðun-
arstöðina en það var ekki einhugur
um það hjá eigendum stofunnar.
Eyjólfur Árni fékk mig því til að
vera með, ásamt Ragnari Þóri
Guðgeirssyni, því hann átti for-
kaupsrétt að þessu í nokkra
daga. Ég keypti Ragnar svo út
fyrir tveimur árum.“
Hann segir að þeir Eyj-
ólfur Árni hafi séð tæki-
færi í rekstrinum og þegar
Samkeppniseftirlitið heim-
ilaði ekki samruna Frum-
herja og Aðalskoðunar hafi
þeir ákveðið að slá til. Jafet
segir að þetta hafi ekki verið
gert í samkrulli við Finn. „Nei,
nei, Samkeppniseftirlitið var
náttúrulega búið að banna
þeim að kaupa þetta og
við sáum þetta sem
kjörið tækifæri til
að fara inn á
þennan eftirlitsmarkað, ekki bara
í bifreiðaskoðuninni heldur líka
í eftirliti á matvælamarkaðnum,“
segir Jafet.
Staðan er því sú – að því gefnu
að Jafet sé að segja satt og rétt frá
um eignarhaldið – á bifreiðaskoð-
unarmarkaðnum að Finnur Ing-
ólfsson á Frumherja, aðilar tengdir
N1 eiga Tékkland og Jafet og Eyjólf-
ur eiga Aðalskoðun.
Tæplega 40 milljóna hagnaður
Staða Aðalskoðunar hefur breyst
gríðarlega frá því fyrirtækið var
selt árið 2007. Samkvæmt árs-
reikningi fyrirtækisins fyrir árið
2009 nam hagnaðurinn tæpum
fjörutíu milljónum króna, eigin-
fjárstaðan er 7,3 milljónir en fé-
lagið skuldar rúmar 600 milljónir
króna. Í ársreikningnum kemur
fram að félagið uppfylli ekki skil-
yrði lánasamninga um eiginfjár-
stöðu og að viðræður hafi stað-
ið yfir við stærsta lánardrottin
félagsins, Íslandsbanka, um höf-
uðstólslækkun gengistryggðra
lána félagsins.
Staðan í ársreikningnum árið
2006, áður en félagið var selt, var
hins vegar þannig að félagið skil-
aði hagnaði upp á nærri 26 millj-
ónir króna, eigið féð nam nærri 90
milljónum og skuldirnar voru um
16 milljónir króna. Ýmislegt hefur
því breyst hjá fyrirtækinu frá 2007
en ef marka má orð Jafets kem-
ur Finnur Ingólfsson þar hvergi
nærri.
Bifreiðaeigendur hafa hætt viðskiptum
við bifreiðaskoðunarstöðina Aðalskoð-
un vegna gruns um að Finnur Ingólfs-
son eigi fyrirtækið. Skráðir eigendur
Aðalskoðunar hafa stundað viðskipti
með Finni sem ætlaði að kaupa Aðal-
skoðun og sameina hana Frumherja
árið 2007. Stærsti hluthafi Aðalskoðun-
ar segir af og frá að eigendurnir séu
leppar Finns og að hörkusamkeppni
ríki á milli fyrirtækjanna tveggja.
IngI F. vIlhJálmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
JAFET SVER AF SÉR
FINN INGÓLFSSON
Ég þekki Finn bara á sama hátt
og ég þekki ýmsa aðra
menn í viðskiptalífinu.
Engin Finnur, segir Jafet JafetÓlafsson,
stærstieigandiAðalskoðunar,segirþaðtóma
tjöruaðFinnurIngólfssonséraunverulegur
eigandiAðalskoðunar.Finnurábifreiðaskoðun-
arstöðinaFrumherjasemermeð60prósenta
hlutdeildábifreiðaskoðunarmarkaðnum.
Segir hörkusamkeppni í gangi
Jafetsegiraðhörkusamkeppniséá
milliFrumherjaogAðalskoðunarog
aðmarkaðshlutdeildsíðarnefnda
félagsinsséum40prósent.