Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Page 22
22 úttekt 20. október 2010 miðvikudagur Löngu áður en ég vissi hvað fólst í orðinu „hommi“ vissi ég að það var eitthvað neikvætt,“ segir Davíð Guð-mundsson, 29 ára samkynhneigður karlmaður og þriggja barna faðir en Davíð kom út úr skápnum í fyrra. Nýlegar fréttir af sjálfs- morðshrinu ungra samkynhneigðra drengja í Bandaríkjunum höfðu mikil áhrif á Dav- íð og þegar hann sá fjólubláa daginn auglýst- an á netinu ákvað hann að stofna síðu á Fac- ebook og koma á fjólubláum degi hér á landi. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og innan skamms höfðu yfir 7 þúsund manns skráð sig á síðuna. „Fréttir af þessum sjálfsmorðum höfðu mikil áhrif á mig því þetta hefði alveg eins get- að verið ég á ákveðnum tímapunkti í lífi mínu. Dagurinn er haldinn til minningar um þessa drengi sem tóku líf sitt á undanförnum vikum og mánuðum, eftir einelti vegna kynhneigðar þeirra. Með þessu sýnum við þeim virðingu og í leiðinni sýnum við þeim samhug og samstöðu sem eru í sömu stöðu og sýnum að við líðum ekki að fólki sé sýnd svona grimmd.“ Passaði hvergi inn Davíð ólst upp úti á landi og gekk í fámennan barnaskóla. Hann segir einelti í hans garð hafa líklega byrjað í fjórða bekk. „Ég var kaffærður í snjónum, var kallaður stelpustrákur og upp- nefndur hommi. Ég vissi samt ekki hvað orðið þýddi enda var fræðslan lítil á þessum tíma. Það eina sem ég vissi var að samkynhneigð væri slæm og neikvæð og eitthvað sem ég vildi ekki fyrir nokkurn mun að einhver héldi að ég væri,“ segir Davíð og bætir við að hann hafi verið trúaður sem barn og í trúnni hafi hann einnig skynjað að samkynhneigð væri röng. „Ég sagði aldrei neinum frá eineltinu, hvorki kennurum né foreldrum mínum, því ég vildi ekki að ég yrði tengdur við samkynhneigð. Ég hef samt ungur verið farinn að gera mér ein- hverja grein fyrir kynhneigð minni því ég man að þegar ég var svona 11 ára, og hafði staðið mig vel í einhverju og fékk hrós fyrir, hugsaði ég með mér að ef fólk vissi sannleikann um mig þá yrði mér ekki hrósað. Ég passaði aldrei inn, hvorki í skóla, á heimilinu eða í kirkjunni. Samt átti ég alltaf mína vini og var aldrei gjör- samlega einn. Það voru frekar krakkarnir í bekkjunum fyrir ofan og neðan sem létu mig ekki í friði,“ segir Davíð sem hefur tekist að fyr- irgefa eineltið. „Þetta angrar mig ekki í dag og ég er ákveðinn í að sættast við fortíðina en ég held að það sé ekki hægt að skiljast við barn- æskuna. Ég efast ekki um að æskan hefði verið betri ef ég hefði ekki lent í þessari stríðni en það er erfitt að segja hvernig hlutirnir hefðu verið öðruvísi. Kannski hefði ég þá fallið meira inn í hópinn, tekið þátt í hópíþróttum og í félagslífinu almennt og jafnvel komið fyrr út úr skápnum og sloppið við að valda mér og barnsmóður minni þjáningum, en við áttum ekki innilegt hjónaband. Á móti kemur að ég á þrjú yndisleg börn, svo það er erfitt að vera bitur út í fortíðina. Það virkar bara ekki. Fyrst þegar ég kom út úr skápnum ætlaði að ég gera upp alla barnæskuna en ég sá fljótt að það væri leikur sem gengi ekki. Ég varð að sætta mig við það sem búið var að gerast.“ Reyndi að lækna sig Eftir að Davíð kláraði grunnskólann flutti hann að heiman til að fara í framhalds- skóla. Hann þagði enn yfir kynhneigð sinni og viðurkenndi hana varla fyrir sjálfum sér. „Ég man hvað öll neikvæð umræða um samkynhneigð fór illa í sálartetrið mitt. Ég átti mjög erfitt og ef ég var spurður hvort ég væri hommi fór ég alveg í kerfi og lagð- ist í rúmið. Ég tók allt það neikvæða inn og var hættur að sofa og þurfti á kvíðastillandi lyfjum að halda frá 17 ára aldri,“ segir Dav- íð sem segir feluleikinn hafa valdið því að hann hætti þrisvar í framhaldsskóla. „Í eitt skiptið hætti ég á miðri önn af því að strákur í skólanum hafði reynt við mig. Ég meikaði ekki að takast á við það og gat ekki hugsað Fjólublái dagurinn er í dag en dagurinn er haldinn til minningar um sjö bandaríska sam- kynhneigða drengi sem frömdu sjálfsmorð vegna eineltis vegna kynhneigð- ar þeirra. Fréttirnar höfðu mikil áhrif á Davíð Guðmundsson en davíð kom út úr skápn- um í fyrra eftir fimm ára hjónaband. Hann segir að þótt samfélagið sé orðið opnara sé einelti enn til staðar og vill þess vegna segja sína sögu. Hommi þýddi eitthvað neikvætt Ég er ekki vanur að drekka áfengi en þarna hafði ég drukkið í mig kjark svo þegar einn vinnufélaganna spurði hvað ég væri að gera þarna og hvort ég væri hommi svaraði ég bara játandi. Hamingjusamur í dag Davíð viðurkenndi samkynhneigð sína fyrir sjálfum sér og öðrum í fyrra. Honum líður vel og finnst hann í fyrsta skiptið á ævinni passa inn í samfélagið. myndiR SigtRygguR ARi JóHAnnSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.