Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Blaðsíða 25
Einn LEtti í Efstu dEiLd Lettland tilkynnti í
gær hópinn sem mætir íslenska landsliðinu í handbolta næstkomandi
miðvikudag þegar undankeppni EM 2012 fer af stað. Sex leikmenn í
lettneska hópnum leika í Þýskalandi en aðeins einn í efstu deild. Ai-
vis Jurdžs heitir hann og leikur undir stjórn Arons Kristjánssonar hjá
Hanno ver-Burgdorf. Er hann því samherji landsliðsmannanna Ásgeirs
Arnar Hallgrímssonar og Vignis Svavarssonar. Leikurinn gegn Lettum
verður í Laugardalshöll á miðvikudaginn eftir viku en síðan halda strák-
arnir til Austurríkis og mæta þar heimamönnum annan laugardag.
VaLsmEnn stofna 3. dEiLdar Lið Und-
anfarin ár hafa svokölluð varalið stærri félaga sprottið upp eins og
gorkúlur en þau leika öll í 3. deildinni. Valsmenn hafa nú stofnað sitt
eigið varalið sem ber nafnið Knattspyrnufélagið Hlíðarendi, KH. Fé-
lagaskiptakóngurinn Hallur Kristján Ásgeirsson mun þjálfa liðið. Fyrir
í 3. deildinni eru Víkingur (Berserkir), Leiknir (KB), Haukar (Marka-
regn), Fjölnir (Björninn), Stjarnan (KFG), Afturelding (Hvíti Riddarinn),
ÍBV (KFS), HK (Ýmir), ÍR (Léttir), Breiðablik (Augnablik), KR (KV) og Þór
(Draupnir) öll með annað hvort varalið eða venslafélög í 3. deildinni.
moLar
Snýr aftur 2013
n Flavio Briatore, fyrrverandi
liðstjóri Renault í Formúlu 1, hefur
ákveðið hvenær hann snýr aftur í
Formúluna. Árið
2013 mun marka
endurkomu hans
eftir að hann var
gerður útlægður
frá íþróttinni
fyrir að skipa
ökumanni
sínum að keyra
á svo Fernando
Alonso gæti unnið kappaksturinn
í Singapúr. Briatore var settur í
eilífðarbann frá íþróttinni sem
íþróttadómstóll í Frakklandi
hnekkti. Er nú spurningin hvað
Briatore gerir þegar hann snýr aftur.
Þau störf sem hafa komið til tals eru
talsmaður dekkjaframleiðandas Pir-
elli, starfsmaður Ferrari eða hægri
hönd Bernie Ecclestone, yfirmanns
Formúlunnar.
Slakar ekki á
n Ástralinn Mark Webber á Red
Bull er með heimsmeistaratitilinn
í Formúlu 1 í sínum höndum þegar
þrjár keppnir
eru eftir. Hann
hefur fjórtán
stiga forystu á
liðsfélaga sinn,
Sebastian Vettel,
en næst verður
keppt í Suður-
Kóreu um næstu
helgi. „Það verða
allir á núllpunkti þegar þeir mæta
til Kóreu þar sem þetta er ný braut.
Við verðum bara að standa okkur,
bæði ökumenn og tæknimenn. Mér
er alveg sama þó ég hafi eitthvað
forskot núna, ég má ekki hugsa um
það. Ég verð bara að halda áfram
mínu striki og halda áfram að sigra.
Takist mér það næ ég takmarki
mínu,“ segir Mark Webber.
Spila ekki leikinn aftur
n Ítölsk knattspyrnuyfirvöld hafa
neitað tilboði Serbíu um að spila
leikinn sem frestað var í undan-
keppni EM 2012
aftur. Leikurinn
var flautaður
af eftir aðeins
sex mínútur þar
sem serbneskar
bullur voru með
gríðarleg ólæti og
köstuðu blysum
og sprengjum
inn á völlinn. „Að spila leikinn aftur
fyrir luktum dyrum væri besta gjöfin
sem við gætum gefið serbneska
knattspyrnusambandinu en það
er einmitt að reyna að hindra að
sannleikurinn um þetta kvöld verði
allur sagður,“ segir talsmaður ítalska
knattspyrnusambandsins.
tiger lært margt
n Svona alla jafna besti kylfingur
heims, Tiger Woods, segir að hann
hafi aldrei lært meira á einu ári þrátt
fyrir að hann
hafi ekki unnið
einn einasta
titil. „Ég lærði
mikið um sjálfan
mig og hvernig
og afhverju
hlutirnir fóru
eins og þeir fóru.
Ég varð að líta
í eigin barm og endurmeta mína
eigin stöðu. Þar var fullt af hlutum
sem mér líkaði ekki. Það er samt
eitthvað sem ég varð að gera. Ég
gerði það og er ánægður með það.
Ég held að ég sé á mun betri stað
núna en ég hef nokkurn tíma verið,“
sagði Tiger Woods spekingslegur á
blaðamannafundi í gær.
miðvikudagur 20. október 2010 sport 25
Dregið var í forkeppni og 32 liða
úrslitum bikarkeppni KKÍ í gær, á
sama tíma og nýr styrktaraðili var
kynntur. Subway-bikarinn er úr
sögunni en í staðinn mun keppn-
in bera nafn Powerade, sem er
bæði gömul og ný hjálparhella í
körfuboltanum. Aðeins ein við-
ureign er á milli liða í efstu deild,
Iceland Express-deildinni, en það
er leikur Stjörnunnar og Njarðvík-
ur.
Stjarnan er þjálfuð af goðsögn-
inni úr Njarðvík, Teiti Örlygssyni,
en undir hans stjórn varð Stjarn-
an óvænt bikarmeistari 2008 þeg-
ar hún lagði stjörnum prýtt ofur-
lið KR í mögnuðum úrslitaleik.
Stjarnan varð þó að lúta í gras
fyrir Njarðvík í átta liða úrslitum
úrslitakeppninnar í vor. Hafði
Njarðvík þar sigur í þremur leikj-
um og vann báða leikina í Ásgarði.
Stjarnan mætir Njarðvík í bikarkeppni KKÍ:
Stórleikur í 1. umferð ForkEppni (2. deildar lið og b-lið)Álftanes - Víkingur ÓlafsvíkGrindavík b - Tindastóll b
Valur b - KR b
Patrekur - Fram
Fjölnir b - Njarðvík b
ÍBV - Stál-úlfur
32-liðA úrSliT
Grindavík b/Tindastóll b - KFÍ
Höttur - KR
Þór Ak - Grindavík
ÍBV/Stál-úlfur - Haukar
Hekla - Ármann
Valur b/KR b - Fjölnir
ÍG - Skallagrímur
Stjarnan - Njarðvík
Laugdælir - Leiknir
Stjarnan b - Fjölnir b/Njarðvík b
Patrekur/Fram - Keflavík
Þór Þ - FSu
Álftanes/Víkingur Ó - Snæfell
Reynir S - Hamar
Breiðablik - Tindastóll
Valur - ÍR
Drátturinn
MæTA njArðVík Stjarnan, sem varð
óvænt bikarmeistari 2008, mætir Njarðvík
í 32 liða úrslitum. Mynd róBErT rEyniSSon
Talið niður í kveðjusTund
leikmaður. Við
höfum gert allt
sem í okkar
valdi hefur
staðið fyrir
hann frá
því hann
kom til
félags-
ins.
Við
höf-
um
hjálpað honum í einkalífinu – slíkt
hefur alltaf verið gert í þessu félagi
og það eykur á tryggð leikmanna
gagnvart félaginu. Við verðum
samt að greiða götu hans, hann er
það góður leikmaður,“ sagði Fergu-
son á blaðamannafundinum.
reifst aldrei við rooney
„Dyrnar standa honum samt opnar
ef honum snýst hugur,“ sagði Fergu-
son á MUTV en honum var boðinn
samningur í júlí þar sem átti að gera
hann að launahæsta leikmanni fé-
lagsins. „Þessi ákvörðun hans veld-
ur mér persónulega miklum von-
brigðum. Ég trúi þessu varla. Hann
var nýbúinn að segjast ætla að vera
hér fyrir lífstíð og svo gerist þetta.
Við vorum til í að gera vel við hann.
Svo vel að hann hefði orðið launa-
hæsti leikmaður landsins.“
Nýjasta sagan í kringum Roon-
ey-málið var snérist um meint rifr-
ildi Rooneys og Fergusons. „Ég
reifst aldrei við Rooney á neinum
tímapunkti,“ sagði Ferguson en
einnig hafði verið mikið skrifað
og skrafað um hvort Rooney væri
meiddur þessar síðustu vikur þar
sem hann sat á bekknum hjá Un-
ited eða var ekki í hópnum. „Hann
var meiddur og strákurinn sagði
það sjálfur. Hann fór í myndatöku
þar sem það sést svart á hvítu.
Hann gat æft en var ekki heill
heilsu. Hvers vegna hann ákvað
samt að segja þetta skil ég ekki. Það
voru mér persónulega mikil von-
brigði að hann skildi haga sér á
þennan hátt,“ sagði Ferguson, sár-
svekktur.
Heillar real?
Kapphlaupið um Rooney hófst því
formlega í gærdag en Manchest-
er United verður að losa sig við
hann í janúar til þess að fá al-
vöru greiðslu fyrir. Samkvæmt
Webster-reglunni getur hann
keypt sig undan samningi
sínum fyrir fimm milljón-
ir punda eftir tímabilið en í sumar
mun hann eiga eitt ár eftir af samn-
ingi sínum við Manchester United.
Rooney kom átján ára gamall til
United og hefur skorað 132 mörk í
239 leikjum.
Real Madrid hefur alla jafna fylgst
vel með Rooney og þyrfti ekki að
koma neinum á óvart ef Rooney léki
í La Liga eftir áramót. „Ég lék með
honum í þrjú eða fjögur ár og hann
var alltaf frábær, ekki bara á þessu
tímabili. Hann hefur leikið mjög
vel á þessu tímabili og skorað mörg
mörk en hann er alltaf sami leik-
maðurinn. Hann er frábær og hann
er sigurvegari. Ég vonast til að fá að
spila með honum aftur einhvern
daginn,“ sagði Cristiano Ronaldo í
viðtali fyrr á árinu en hvort hann sé
í alvörunni tilbúinn að fá aðra ofur-
stjörnu til félagsins sem gæti skyggt
á hann er svo annað mál.
TiTlAr
Enska úrvalsdeildin:
3 (2006–07, 2007–08, 2008–09.)
Meistaradeildin:
1 (2007–2008)
Enski deildarbikarinn:
2 (2005–2006, 2008–2009)
Samfélagsskjöldurinn:
2 (2007, 2010.)
Heimsmeistarakeppni félagsliða:
1 (2008)
EinSTAklingSVErðlAun
leikmaður ársins hjá united:
2 (2004–2005, 2009–2010)
Besti leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar:
2009–2010
Bestur að mati blaðamanna:
2009–2010
ungi leikmaður ársins í
ensku úrvalsdeildinni:
2 (2004–2005, 2005–2006)
í liði ársins:
2 (2005–2006, 2009–2010)
leikmaður mánaðarins:
Fimm sinnum
ferill rooneyS
hjá uniteD
lEikir
289
Mörk
132
Það hefur ósjaldan gerst að Wayne Rooney hafi borið lof á Manchester United, sagt
það besta og stærsta félag heims og sagst ætla að eyða þar öllum ferlinum.
Ég ELska manchEstEr unitEd
Inside United-tímaritið apríl 2009
„Ég hef alltaf sagt að eins lengi og United vill hafa mig er ég meira en glaður að
vera hjá félaginu. Ég vil ekki fara. Ég elska Manchester United og ég hef enga
ástæðu til þess að hugsa einu sinni um að fara. Ég er viss um að ég verði hérna
lengi. Vonandi verð ég enn leikmaður hjá Manchester United þegar ég verð á
sama aldri og leikmenn eins og Ryan Giggs, Paul Scholes og Gary Neville.“
myndi skrifa undir
samning hVEnær sEm Er
Sunday Telegraph maí 2009
„Ég er ánægður hjá United og ég myndi skrifa undir nýjan samning hvenær sem
er. Ég vil vera hjá þessu félagi það sem eftir er af ferlinum. Ég mun skrifa undir
framlengingu á samningi mínum hvenær sem félagið biður um það.“
Langar að Líkjast giggs
Daily Mirror september 2009
„Ég vonast til þess að ná 800 leikjum fyrir Manchester United, eða jafnmörgum
og Ryan Giggs. Hve marga leiki hann hefur spilað fyrir liðið er ótrúlegt og ef ég
kæmist nærri því yrði ég hæstánægður. Ég hef alltaf sagt að ég vilji enda feril
minn hér og ef ég gæti gert það sama
og Giggs hefur tekist hjá þessu
félagi yrði það stórkostlegt
afrek hjá mér.“
loforð wayneS rooneyS
FEr VænTAnlEgA í
jAnúAr Það verður erf-
itt fyrir stuðningsmenn
United að kveðja
þennan magnaða
kappa.
Mynd rEuTErS