Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 3. nóvember 2010 ERLENT 17 Víruspestir eins og kvef gætu inn- an skamms heyrt sögunni til, ef marka má nýja rannsókn sem framkvæmd var í Cambridge-há- skóla á Englandi. Daily Telegraph greindi frá þessu. Hafa vísinda- menn nú fundið mótefni sem get- ur barist við veirur, jafnvel eftir að þær hafa náð bólfestu í heilbrigð- um frumum. Til þessa þekkjast eingöngu lyf sem geta varið frum- ur ágangi veira, en þau eru gagns- laus nái veiran að sýkja heilbrigðar frumur. Segja vísindamennirnir við Cambridge að þeir hafi upp- götvað mótefni sem brýtur sér leið inn í frumur á sama tíma og veiran, en mótefnið virkjar þar eggjahvítu- efnið TRIM21 sem hefur burði til að úthýsa henni. Dr. Leo James stjórnaði rannsókninni: „Það eru til fjölmörg lyf sem virka við bakt- eríusýkingum en fá lyf duga gegn veirusýkingum. Þó að við séum á fyrstu stigum þessara rannsókna erum við mjög spennt yfir þeim möguleikum sem þær bjóða upp á í lyfjaþróun.“ Talið er að ný lyf gegn veirusýkingum, og þar á meðal kvefi, geti litið dagsins ljós innan 10 ára. Fyrir þá sem hafa ekki þolin- mæði til að bíða í allt að 10 ár eft- ir lækningu við kvefi, má minn- ast á aðra rannsókn sem gerð var í Appalachian State University í Bandaríkjunum. Eftir að hafa fylgst með yfir 1.000 einstakling- um á 12 vikna skeiði veturinn 2008, kom í ljós að aukin hreyfing líkamans getur komið í veg fyr- ir kvef. Sýndi rannsóknin ótvírætt fram á að ónæmiskerfið styrkist til muna á meðan fólk hreyfir sig. Einnig sýndi rannsóknin fram á að hin gamla trú að neysla ávaxta styrki ónæmiskerfið er á rökum reist. björn@dv.is Vísindamenn við Cambridge-háskóla telja sig geta þróað lyf gegn kvefi innan skamms: Kvefpestir gætu verið úr sögunni Dilma Rousseff er fyrsta konan sem kosin hefur verið í embætti forseta í stærsta landi Suður-Ameríku. Hún naut stuðnings fráfarandi forseta, Lula da Silva, vinsælasta stjórnmálamanns í heimi. Brasilíumenn gengu á sunnudag í kjörklefa og kusu sér nýjan for- seta. Dilma Rousseff sigraði í kosn- ingunum með 56 prósent greiddra atkvæða, en andstæðingur henn- ar, Jose Serra, hlaut 44 prósent. Var þetta önnur umferð forsetakosn- inganna, þar sem Rousseff náði ekki að tryggja sér meira en helm- ing greiddra atkvæða í fyrstu um- ferðinni. Rousseff er þar með orðin fyrsta konan sem er kjörin til emb- ættis forseta í Brasilíu, stærsta landi Suður-Ameríku. Sagði hún meðal annars í sigurræðu sinni að hún ætti sér „þann draum að nú geti foreldr- ar ungra stúlkna litið í augu dætra sinna og sagt þeim: Já, kona getur allt“.“ Tekur við af vinsælasta stjórn- málamanni heims Rousseff mun taka við embætti 1. janúar á næsta ári og leysir þar af Luiz Inacio Lula da Silva en hann hefur notið gífurlegra vinsælda í Brasilíu. Um 80 prósent Brasil- íumanna eru ánægðir með störf hans og hefur Barack Obama, for- seti Bandaríkjanna, látið hafa það eftir sér að Lula, eins og hann er gjarnan kallaður, sé sennilega vin- sælasti stjórnmálaður í heimi. Lula er að ljúka sínu öðru kjörtímabili sem forseti og getur því ekki boð- ið sig fram í þriðja sinn, en það er ekki heimilt samkvæmt stjórn- arskrá Brasilíu. Stuðningur hans við Rousseff, sem eitt sinn gegndi stöðu starfsmannastjóra hjá Lula, var talinn lykilatriði í sigri hennar í kosningunum. Skrautleg fortíð Rousseff er 62 ára gömul og er tví- skilin. Hún er af búlgörskum ættum en faðir hennar var virkur meðlim- ur Kommúnistaflokksins í Búlgaríu á þriðja áratug síðustu aldar og flúði til Brasilíu vegna pólitískra ofsókna. Má því segja að marxismi hafi verið Rousseff í blóð borinn, en hún gekk til liðs við hreyfingu marxista á sjö- unda áratugnum og tók þátt í bar- áttunni gegn herforingjastjórninni í Brasilíu sem var við völd frá 1964 til 1985. Hún var handtekin árið 1970 og þurfti að dúsa í fangelsi í tvö ár en eftir að henni var sleppt hóf hún nám í hagfræði og fékk síðar starf í brasilísku stjórnsýslunni. Hef- ur hún ætíð verið talin hörð í horn að taka, sem leiddi til viðurnefnis hennar „járnfrúin.“ Gerir allt eins og Lula Blaðamaður DV hafði samband við Hannes Hólmstein Gissurar- son, prófessor í stjórnmálafræði og annálaðan áhugamann um Brasil- íu. Aðspurður um hvort breytingar væru í aðsigi í kjölfar kosninganna sagðist Hannes efast um það. „Ég geri ekki ráð fyrir því, Rousseff hef- ur lengi fylgt í fótspor Lula, gerir allt eins og hann. Þau eru bæði gaml- ir sósíalistar sem sætta sig við kap- ítalismann. Þeim er sama hvernig kötturinn er á litinn ef hann veiðir mýs. Rousseff var þó jafnvel lengra til vinstri en Lula, þegar hún var ung.“ En hver er þá arfleifð Lula, ef búast má við að Rousseff geri allt eins og hann? „Lula má eiga það að hann hróflaði ekki við þeim um- bótum sem forveri hans, Fernando- Henrique Cardoso, forseti Brasilíu, beitti sér fyrir og voru einkum tví- þættar: að taka upp traustari gjald- miðil en áður og að flytja talsvert af fyrirtækjum hins opinbera í hend- ur einkaaðila. Lula er ósköp geð- þekkur maður að sjá, og ekki skort- ir hann þrautseigjuna, en ég myndi ekki segja að hann sé mjög mikill stjórnmálamaður. Cardoso var hins vegar sannur brautryðjandi. Brasil- íubúar standa í mikilli þakkarskuld við hann.“ BJÖRN TEITSSON blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is Rousseff hefur lengi fylgt í fót- spor Lula, gerir allt eins og hann. BRASSAR KJÓSA SÉR FORSETA Lula og Rousseff Fráfarandi forseti og verðandi forseti Brasilíu fagna sigri. Ungbarn lifði af fall frá 7. hæð Ótrúlegt þykir að 15 mánaða barn hafi sloppið án nokkurra alvar- lega meiðsla eftir að hafa fallið af sjöundu hæð íbúðarhúss í París. Ástæðan er fyrst og fremst að kaffi- húseigandi á jarðhæð íbúðarhúss- ins hafði dregið fram sólskyggnið, sem hann gerir allajafna ekki fyrr en síðdegis, en slysið átti sér stað um hádegisbil. Mun barnið hafa lent á skyggninu og kastast þaðan beint í fangið á gangandi vegfaranda, sem sýndi frábær viðbrögð að sögn vitna. Höfðu foreldrar barnsins skilið það eftir í umsjón fjögurra ára systur sinnar, sem náði ekki að koma í veg fyrir fallið. Hagnaður hjá BP Olíufyrirtækið British Petrolium hagnaðist um 1,8 milljarða Banda- ríkjadala á þriðja ársfjórðungi. Er þetta mikill léttir fyrir stjórnend- ur fyrirtækisins en vegna olíuslyss- ins í Mexíkóflóa fyrr á árinu var tap BP alls um 17 milljarðar á öðrum ársfjórðungi, en það má rekja beint til slyssins. Frá apríl og fram í júlí dældust upp úr borholu BP á milli 500 þúsund til milljón tonn af hrá- olíu í stærsta olíuslysi í sögu Banda- ríkjanna. British Petrolium er talið þriðja stærsta orkufyrirtæki í heimi. Gerir lítið úr samkynhneigðum Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur svarað gagnrýnend- um sínum sem hafa sakað hann um að hafa sængað hjá táningsstúlku á dögunum. Hin 17 ára magadans- mær frá Marokkó, sem vill láta kalla sig Ruby, hefur reyndar verið tvísaga í málinu. En Berlusconi vill ekki að fólk missi sjónar á „aðalatriðinu í málinu.“ Á mótorhjólasýningu í Míl- anó í gær tók Berlusconi til máls og sagði: „Það er að minnsta kosti betra að hafa ástríðu fyrir stelpum heldur en vera samkynhneigður.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.