Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Qupperneq 19
Skerðing á tjáningarfrelsi og ritskoðun
og þöggun á sér oftast stað án beinna
aðgerða. Í lífi flestra reynir sjaldan á
þessi mörk enda tekur fólk gjarnan
þann kostinn að láta hæfileg afskipti
yfir sig ganga í nafni jákvæðni og halda
þannig friðinn en með vont bragð í
munni. Að baki allri kúgun eru ann-
arlegar hvatir og hagsmunagæsla. Það
er því sjaldgæft og óvanalegt að slík-
ar hvatir brjótist fram í afdráttarlaus-
um yfirlýsingum og með líkamlegri
tjáningu. Því er áhugavert að lýsa að-
eins nánar hvers konar tungutak og
látbragð er viðhaft þegar fólk gengur
óhikað fram í nafni opinberra stofn-
ana og þykist hafa umboð til að setja
hömlur á tjáningu með grófum hætti
með það að markmiði að beygja menn
til hlýðni við ímyndað vald. Valdbeit-
ing á sér rætur í hugarástandi og hug-
myndafræði á leiksviði hinna stóru, en
kraumar líka í hugum aukaleikaranna
á litla sviðinu.
Koddu
Sýninguna „Koddu“ átti að opna í
Listasafni Árnesinga í Hveragerði
fimmtudaginn 4. nóvember 2010. Hér
var um að ræða metnaðarfulla til-
raun safnsins til samstarfs við starf-
andi listamenn og var undirrituðum
falin sýningarstjórn. Nafn sýningar-
innar er sótt til hinnar velheppnuðu
auglýsingaherferðar „Inspired by Ice-
land“. Upplegg sýningarinnar spann-
aði allt frá tilurð þjóðlegs myndmáls
og virkni ímynda í samtímanum til
birtingarmynda og tákngervinga góð-
ærisins og hrunsins. Margir helstu
listamenn þjóðarinnar voru tilbún-
ir með ný verk sérstaklega unnin fyrir
sýninguna. Sýningarstjórar/listamenn
höfðu jafnframt lagt margra mánaða
vinnu í undirbúning þessarar sýningar
og byggðu þar á áralangri rannsóknar-
vinnu. Ritgerð ætluð í sýningarskrá
um tengsl hugmyndafræði og mynd-
máls var tilbúin til prentunar.
„Nei, nei, nei!“
Á fundi með Ingu Jónsdóttur, safn-
stjóra Listasafns Árnesinga, á loka-
spretti undirbúningsferlisins drógu
sýningarstjórar upp mynd af fram-
gangi sýningarinnar og áætlun um
uppsetningu hennar. Safnstjórinn
hafnaði þá einstökum verkum, mynd-
efni og textum og sýndi framkvæmda-
áætlun og efnistökum fálæti og van-
þóknun. Þegar að því kom á fundinum
að sýnt var myndefni fyrir boðskort
sýningarinnar „Koddu“ lamdi safn-
stjórinn í borðið, stökk upp og hróp-
aði: „Nei, nei, nei, þetta verður aldrei,
þetta verður aldrei!“ Þegar sýningar-
stjórar spurðu frekar út í þá þætti sem
safnstjórinn vildi taka út úr sýningunni
– meðal annars myndefni á boðskorti
og sýningarskrá, texta í sýningarskrá
auk verka sem voru í vinnslu – þrástag-
aðist safnstjórinn á fyrri afstöðu sinni
um að takmarka ætti listrænt frelsi
sýnenda með afgerandi hætti. Að
lokum bar Hannes Lárusson upp þá
spurningu hvort safnstjóri áttaði sig
á því að hér væri
um að ræða grófa
og fordæma-
lausa skerðingu
á tjáningarfrelsi
sem myndi eyði-
leggja þá sýn-
ingu sem stefnt
var að. Safnstjóri
svaraði þá: „Get-
urðu ekki komið
því inn í hausinn
á þér að það er
ég sem ræð.“ Þar
með var fundi slitið og sýningin sleg-
in af, samningum rift munnlega við
sýningarstjórana og þeir kvaddir með
orðunum: „... enda er þessi sýning og
textinn sem á að fara í sýningarskrána
of low fyrir þetta safn og skaðar ímynd
þess.“ Það er kaldhæðnislegt að sýning
sem fjalla átti um eðli myndmáls og
ímynda sé skilgreind sem skaðræðis-
gripur.
Í anda Þriðja ríkisins
Í stjórn Listasafns Árnesinga situr
Knútur Bruun sem formaður, með Ey-
þór Arnalds og Sigurlínu Kristinsdóttur
sér við hlið. Á fundi stjórnarinnar þar
sem þetta dæmalausa mál var til um-
ræðu var bókaður eindreginn stuðn-
ingur og velþóknun á ofangreindum
aðgerðum og framkomu safnstjór-
ans í Hveragerði. Við lifum á tímum
þar sem þörf er á greiningu, innsæi
og framtíðarsýn, en ekki skemmdar-
verkum og ritskoðun á verkum lista-
manna í anda bókabrenna Þriðja rík-
isins og frumstæðra eineltistilburða
Jónasar frá Hriflu gegn framsæknum
listamönnum. Svo furðulegt sem það
er hefur Knútur Bruun verið viðloð-
andi myndlistarheiminn áratugum
saman og þóst vinna að hagsmuna-
málum listamanna og löngum verið
lögfræðilegur ráðgjafi Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna. Stuðningur
hans við bókabrennuna í Hveragerði
verður að öllum líkindum hans síðasta
verk fyrir hönd stjórnar Listasafns Ár-
nesinga og í framhaldi af afsögn hans
og stjórnar safnsins mun hann láta
af frekara baksi og klúðri í málefnum
myndlistarmanna. Næst þegar Knút-
ur Bruun býður Sambandi íslenskra
myndlistarmanna ráðgjöf sína verður
vonandi barið í borðið og sagt: „Nei,
nei, nei!“
Rústabjörgun
Við lifum á tímum ímynda og tákna.
Kerfisbundin notkun á myndmáli
er lykilatriði í hvers kyns markaðs-
sókn og innrætingu. Straumlínulöguð
ímynd er verðmæti, gróðauppspretta
og valdatæki. Ímyndariðnaðurinn er
lífæð stjórnmálamanna og viðskipta-
mógúla, drifinn áfram af viljugu aug-
lýsingafólki þar sem hver græðir á
öðrum. Í hinni iðnvæddu og mark-
aðsdrifnu ímyndargerð eiga skilaboð-
in að vera hrein og klár. Valdið birtist
í ímyndinni.
Til eru aðrir myndgerningar sem
víkka skynsviðið, dýpka skilninginn,
koma stundum róti á tilfinningalíf-
ið, styrkja einstaklingseðlið og hjálpa
samfélaginu. Listaverk geta ýmist búið
yfir sprengikrafti eða sefjunarmætti.
Þess vegna er það orðið keppikefli jafnt
útrásarjöfra, nýsköpunarvíkinga, er-
indreka ráðuneyta og hins opinbera að
laða listamenn sér til fylgispektar. En
listaverk eru eldfim og ef ekki er varlega
farið geta þau sprungið framan í fólk.
Á tímum doða, þöggunar og hruns er
það samt þess virði að taka þá áhættu.
Þjóðfélag sem kúgar listamenn og sýnir
starfi þeirra fálæti og virðingarleysi rís
seint upp úr rústunum, missir tökin á
eigin táknmáli og selur sál sína.
Handboltamaðurinn OdduR
GRetaRssON átti frábæra innkomu í
sínum fyrsta landsleik þegar íslenska
landsliðið mætti Austurríki um
helgina. Oddur spilar með Akureyri en
hann byrjaði að æfa handbolta þegar
hann var sjö ára.
Guðjón Valur í
uppáhaldi
Krossferð Bubba Morthens 1
BuBBi morthens: ekkert
óeðlilegt að tala fallega um
einhvern gegn greiðslu
Bubbi segir ekkert óeðlilegt við það
að þiggja greiðslu fyrir að skrifa eða
tala fallega um fólk.
2 „við þurfum að hætta þessum aumingjaskap“
Rithöfundurinn Gerður Kristný var í
viðtali við DV um helgina.
3 tugir mótmælenda ætluðu að varna sýslumanni inngöngu
Tugir mótmælenda komu saman.
4 „þetta er Bara ill meðferð á fullorðnu fólki“
Til stendur að loka sambýlinu að
Mýrarási 2 um áramótin.
5 gleymdi að sýna 24 mínútna auglýsingu frá o’donnell
Bandarísk sjónvarpsstöð gleymdi
að senda út tuttugu og fjögurra
mínútna auglýsingu.
6 fékk golfkúlu í hausinn þegar hún var á trampólíni
Bandarísk kona hringdi á lögregluna
22. október síðastliðinn eftir að hafa
fengið golfkúlu í höfuðið .
7 árni til starfa hjá fao í rómFyrrverandi fjármálaráðherra hefur
verið ráðinn í nýtt starf.
mest lesið á dv.is myndin
Hver er maðurinn? „Oddur Gretars-
son handboltamaður.“
Hvar ertu uppalinn? „Fyrstu fimm
árin bjó ég í Danmörku og svo hef ég
verið á Akureyri.“
Hvenær byrjaðirðu að æfa hand-
bolta? „Þegar ég var sjö ára.“
uppáhaldslið í enska? „Manchester
United.“
Hvað drífur þig áfram? „Að komast
sem lengst í handboltanum.“
afrek vikunnar? „Að spila minn
fyrsta leik fyrir íslenska landsliðið.“
uppáhaldsmatur? „Grjónagrautur
og rjúpa.“
uppáhaldsíþróttamaður? „Það
hefur alltaf verið Guðjón Valur í
handboltanum og David Beckham í
fótboltanum.“
Hvar líður þér best? „Á Akureyri að
sjálfsögðu.“
Átt þú þér fyrirmynd? „Stóra bróður
minn.“
Hvað er fram undan? „Halda áfram
að vinna leiki í deildinni með Akureyri.“
maður dagsins
„Ég er að íhuga þetta mál.“
siGRúN sKaftadóttiR
22 ÁRA, FRíSTUnDAleiðBeinAnDi OG
STUðninGSFUllTRúi
„Já, verða ekki allir að vera með?“
elis VeiGaR
„Já, ég ætla að vera í henni, að
sjálfsögðu.“
siGRÍðuR RaGNaRsdóttiR
21 ÁRS, ÞJónUSTUSTúlKA Á HORninU
„Mér er alveg sama.“
MaRGRét HelGa WeissHappel
18 ÁRA, ÞJónUSTUSTúlKA Á HORninU
„Ég hef bara ekkert pælt í því.“
tRausti daGssON
29 ÁRA, nÁMSMAðUR
ætlar þú að vera í símaskránni hans gillzeneggers?
dómstóll götunnar
miðvikudagur 3. nóvember 2010 umræða 19
„Þetta verður aldrei”
kjallari
Norðurlandaráðsþing Árlegt þing norðurlandaráðs var sett í gær og stendur til fimmtudags. Á þinginu eru staddir allir forsætisráð-
herrar norðurlandanna. Þar er margt um manninn og öryggisgæslan ströng. Jóhanna Sigurðardóttir flytur hér ræðu. MyNd siGtRyGGuR aRi
hannes
lárusson
listamaður skrifar
Tinna GréT-
arsdóTTir
listamaður skrifar
ásmundur
ásmundsson
listamaður skrifar