Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Page 25
GUNNAR GENGINN Í RAÐIR FH Kantmað-
urinn eldfljóti Gunnar Kristjánsson skrifaði í gær undir tveggja
ára samning við bikarmeistara FH en hann kemur til liðsins frá
KR þar sem hann er uppalinn. Gunnar var lánaður til FH um mitt
sumar í ár en hann fékk lítið að spila með KR þrátt fyrir að hafa
verið þess skæðasti leikmaður á undirbúningstímabili. KR-ingar
vildu halda Gunnari í sínum röðum fyrir næsta tímabil en hann
valdi frekar að skrifa undir samning við FH. Hann er fyrsti leik-
maðurinn sem bikarmeistararnir fá til sín.
LEIKNISMENN FÁ VARNARMANN
Leiknir úr Reykjavík, sem var hársbreidd frá því að komast upp
í Pepsi-deildina í sumar, fékk góðan liðstyrk í gær en KR-ingur-
inn Eggert Rafn Einarsson skrifaði þá undir samning við liðið.
Eggert á að fylla stöðu Halldórs Kristins Halldórssonar í miðju
varnar Leiknis en Halldór samdi við Val í síðasta mánuði. Eggert
er fæddur árið 1990 en hann lék sinn fyrsta leik með KR aðeins
sautján ára gamall. Hann á að baki þrjátíu og einn leik með
yngri landsliðum Íslands.
MOLAR
RÚSSI TIL LIVERPOOL?
n Rússneskir fjölmiðlar segja augu
Liverpool nú beinast að rússneska
framherjanum Pavel Pogrebny-
ak sem leikur
með Stuttgart
í Þýskalandi.
Roy Hodgson er
sagður fá nægt fé
til að styrkja liðið
í janúar og fyrst
hafa farið í að
reyna að klófesta
hinn hávaxna
framherja. Alls fær Hodgson að
kaupa sex nýja leikmenn en Liver-
pool vantar sárlega annan framherja
þar sem spænska markamaskínan
Fernando Torres hefur ekki farið
vel af stað á tímabilinu. Alls hefur
Liverpool aðeins skorað tíu mörk í
tíu leikjum sem þykir nú ekki líklegt
til árangurs.
RUÐNINGUR VINSÆLLI
EN HAFNABOLTI
n Undanfarin ár hefur áhorf á
hafnabolta í Bandaríkjunum dregist
verulega saman. Þótti mönnum
vestanhafs þó
nóg komið á
sunnudaginn
þegar leikur New
England Patriots
og Minnesota
Vikings í amer-
íska fótboltanum
fékk meira áhorf
en fjórði leikur
úrslitarimmu hafnaboltans þar sem
áttust við San Francisco Giants og
Texas Rangers. Horfðu 18,1 milljónir
manna á fótboltann en 15,5 milljónir
á hafnaboltann.
ÓVÍST MEÐ NFL Í LONDON
n Meira af NFL-deildinni. Fjórða
árið í röð fengu áhugasamir Bretar
að sjá leik úr deildinni á Wembley-
leikvanginum
en í ár voru það
49ers og Broncos
sem spiluðu á
sunnudaginn
fyrir framan
fullan völl. 49ers
unnu, 24–16, en
óvíst er hvort
NFL-deildin snúi
aftur til Englands að ári liðnu. „Það
er mikil vinna framundan eftir það
sem gerðist hérna. Við þurfum að
ræða við leikmennina, dómarana
og þjálfarana um þessa ferð og það
munum við gera. Við vitum ekki
hvort við höldum þessu áfram fyrr
en allir eru á eitt sáttir um að þetta
sé leið sem við viljum fara,“ segir
Alistair Kirkwood, framkvæmda-
stjóri NFL í Bretlandi.
VILL EIGA MÖGULEIKA
Í ABU DHABI
n Úrslitin í Formúlu 1 ráðast núna á
innan við tveimur vikum en síðustu
tvö mótin fara fram næstu tvo
sunnudaga. Fyrst
verður keppt
í Brasilíu en
lokamótið verður
annan sunnudag
í Abu Dhabi.
Lewis Hamilton
er ekki í kjör-
stöðu, tuttugu og
einu stigi á eftir
forystusauðnum Fernando Alonso
á Ferrari, en hann er þó ekki búinn
að gefast upp. „Eins og staðan er vil
ég bara eiga tölfræðilega möguleika
á titlinum þegar við höldum til Abu
Dhabi. Ég stefni auðvitað á sigur
í Brasilíu en ég tek bara eitt skref
í einu. Brasilía var mér góð þegar
ég varð heimsmeistari og vonandi
gerast svipaðir hlutir í þetta skiptið,“
segir Lewis Hamilton.
MIÐVIKUDAGUR 3. nóvember 2010 SPORT 25
PULIS NIÐURLÆGIR ÍSLENDINGA
Dodda og tók frekar unglingsstráka
upp í liðið og ég veit ekki hvað,“ seg-
ir Tryggvi Guðmundsson sem var
samtíma Þórði hjá Stoke en dvaldi
ekki lengi þar sem hann var búinn
að gera samning við FH-inga um að
ganga í raðir þeirra fyrir árið 2005.
Pulis tókst þó að brydda upp á einu
því ótrúlegasta sem íslenskur at-
vinnumaður hefur lent í en Tryggvi
var látinn keyra bíl Kenwynes Jo-
nes á útileik, en það er einmitt sami
maður og var settur í liðið í stað
Eiðs í síðustu viku.
„Pulis var nú stundum góður
við okkur og leyfði okkur að vera
í hópnum,“ grínast Tryggvi. „Eitt
sinn áttum við útileik gegn Úlfun-
um suður frá í Wolverhampton. Við
vorum allir mættir, flottir í ferða-
gallanum fyrir utan Brittania-völl-
inn og ég búinn að tylla mér á minn
stað, aftast í rútuna. Kenwyne Jo-
nes var í láni frá Southampton og
hann mætti á bílnum sínum. Sout-
hampton er ekki langt frá Wolver-
hampton og hann spyr Tony Pulis
hvort hann megi ekki bara elta rút-
una á bílnum því hann ætli beint
heim eftir leikinn. Pulis leist ekki
vel á þetta því hann vill að menn
séu saman í rútunni og komi sam-
an út úr henni á leikstað, svona upp
á stemninguna. Hann brá þá á það
ráð að kalla á mig og spyrja hvort
ég gæti ekki bara keyrt bílinn. Ég
játti því að sjálfsögðu en þetta sýndi
manni nú hversu rosalega mikil-
vægur maður var eða þannig,“ segir
Tryggvi.
Fóru heim í hálfleik
„Svo lenti ég náttúrulega í bölv-
uðu veseni,“ segir Tryggvi um bíl-
ferðina á BMW-inum hans Kenwy-
nes Jones. „Rútan fékk náttúrulega
að keyra inn um hliðið hjá vellin-
um en ég þurfti að sveima um all-
an völlinn að leita að bílastæði. Það
var mjög erfitt að finna stæði því
Bretarnir mæta svo löngu fyrir leik
á völlinn. Á endanum fann ég nú
stæði en það kostaði mig tíu pund.
Ekki vildi ég nú að Kenwyne vinur
minn fengi sekt,“ segir Tryggvi létt-
ur. „Þegar ég kom svo inn í klefa var
búið að tilkynna að þeir tveir sem
væru utan hóps væru ég og Doddi.
Það kom alveg gríðarlega á óvart,“
segir Tryggvi sem horfði því á leik-
inn upp í stúku með Þórði.
„Okkur Dodda var nú bara nóg
boðið og tókum við leigubíl heim í
hálfleik. Við fengum okkur bara að
borða og skemmtum okkur vel um
kvöldið,“ segir Tryggvi en tekur þó
undir orð Þórðar að Pulis hafi aldrei
komið illa fram við þá á æfingum.
„Hann var ótrúlega góður við okk-
ur en það var alveg ljóst frá byrjun
að við myndum aldrei fá neinn séns
á grasinu. Ætli hann hafi ekki vor-
kennt okkur bara fyrir að detta inn í
þetta hjá Stoke þegar kergjan var að
byrja,“ segir Tryggvi.
Gaman að stinga upp í kallinn
Sá leikmaður sem fór hvað verst út
úr viðskiptum sínum við Tony Pul-
is var Skagamaðurinn Bjarni Guð-
jónsson. Bjarni var 23 ára og fastur
byrjunarliðsmaður í Stoke-liði Ste-
ves Cotterill áður en Tony Pulis tók
til starfa. „Þegar Pulis tók við var al-
veg ljóst í hvað stefndi,“ segir Bjarni.
„Hann ætlaði ekki að nota mig
en málið var að mér gekk svo vel
þarna að það var erfitt fyrir hann
að halda mér fyrir utan liðið. Oft og
tíðum var ég einfaldlega kallaður
inn á völlinn af áhorfendum. Það
var mjög gaman að stinga þannig
upp í kallinn,“ segir Bjarni. „Verst
var hvað hann talaði rosalega vel til
manns. Hann talaði alltaf um að ís-
lensku strákarnir væru svo vel upp-
aldir en svo kom á daginn að hann
sjálfur var ekki jafnvel upp alinn því
hann talaði ekki jafnvel um okkur
þegar við heyrðum ekki til. Það var
mikill tvískinnungur í honum,“ seg-
ir Bjarni.
Pakkaði strax niður í tösku
Bjarni hvarf á braut vegna Pulis
til Þýskalands í eitt ár en var síð-
an fenginn til Coventry sumarið
2004. Bjarna gekk mjög vel með
Coventry þar til Peter Reid var ráð-
inn stjóri liðsins. „Þegar Reid tekur
við hættir hann bara að velja mig
í hópinn. Ég fékk mig því lausan
þaðan og fór til Plymouth en þar
var maður sem heitir Bobby Willi-
amson sem fékk mig. Þegar hann
var rekinn frétti ég að valið stæði á
milli tveggja manna. Peters Reid og
Tonys Pulis. Þá fór ég nú bara strax
að pakka niður í tösku,“ segir Bjarni
og hlær.
Það fór líka svo að Pulis frysti
Bjarna um leið og hann mætti.
Hann vildi einfaldlega ekki nota
hann þar sem Bjarni þótti of smár
og góður með boltann. Pulis vill
stóra og sterka menn í sín lið.
„Hann var afskaplega viðkunna-
legur samt alltaf við mig og yfirleitt
þegar hann hitti mig þá knúsaði
hann mig. Hann er eini þjálfarinn
sem hefur gert það við mig,“ seg-
ir Bjarni og vitnar þar til tvískinn-
ungsins.
Pulis vildi koma Bjarna á lán til
annars af þeim tveimur liðum sem
höfðu áhuga á honum. Bjarni vildi
frekar fara til Bristol City eða Hels-
ingborgar sem höfðu áhuga en þau
lið gátu ekki keypt hann. Fór svo á
endanum eftir nokkurra mánaða
bekkjarsetu að Bjarni gerði starfs-
lokasamning við Plymouth og kom
heim til ÍA. Hann lék því sinn síð-
asta leik í atvinnumennsku und-
ir stjórn Tonys Pulis, aðeins 27 ára
gamall „Hann fór helvíti illa með
mig þarna undir lokin,“ segir Bjarni
Guðjónsson um Tony Pulis sem á
eitthvað óuppgert við Íslendinga.
ENGINN ÍSLANDSVINUR Tony Pulis
hefur ekki átt gott samstarf við Íslendinga í
gegnum tíðina.
130 MÍNÚTUR Eiður hefur spilað samtals 130 mínútur með Stoke.
30. OKT.
Everton 1–0 Stoke, úrvalsdeildin
(Ónotaður varamaður)
27. OKT.
West Ham 3–1 Stoke, deildarbikar-
inn (Varamaður, spilar 32 mínútur í
venjulegum leiktíma, framlengt um
aðrar 30)
24. OKT.
Man. United 2–1 Stoke, úrvalsdeild-
in (Varamaður, spilar 11 mínútur)
16. OKT.
Bolton 2–1 Stoke, úrvalsdeildin
(Varamaður - Spilar 17 mínútur)
2. OKT.
Stoke 1–0 Blackburn, úrvalsdeildin
(Ónotaður varamaður)
26. SEPT.
Newcastle 1–2 Stoke, úrvalsdeildin
(Varamaður, spilar 23 mínútur)
21. SEPT.
Stoke 2–0 Fulham, deildarbikarinn
(Ónotaður varamaður)
18. SEPT.
Stoke 1–1 West Ham, úrvalsdeildin
(Varamaður, spilar 17 mínútur)
13. SEPT.
Stoke 2–1 Aston Villa, úrvalsdeildin
(Ónotaður varamaður)
Leikir í hóp: 9
Byrjunarlið: 0
Varamaður: 5
Ónotaður varamaður: 4
Spiltími í mínútum: 130
FERILL EIÐS HJÁ
STOKE