Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Blaðsíða 2
Þráinn Bertelsson, þingmaður VG,
kvaddi sér hljóðs á Alþingi á þriðjudag
vegna upplýsinga í nýrri ævisögu um
Gunnar Thoroddsen um meintar per-
sónunjósnir Sjálfstæðisflokksins á síð-
ustu öld. Hann vildi vita hvort meintar
persónunjósnir væru stundaðar enn
á vegum Sjálfstæðisflokksins og hvort
afrakstur þeirra yrði birtur almenningi
á netinu.
Þráinn staldraði við tilvitnun í
DV í síðustu viku sem höfð er upp úr
bók Guðna Th. Jóhannessonar um
Gunnar Thoroddsen, en þar er sagt
frá kosningaundirbúningi í lok sjötta
áratugarins. „Flokksvélin mikla var í
meginatriðum óbreytt: Reykjavík var
skipt í 120 umdæmi og voru að jafn-
aði 5–10 fulltrúar í hverju þeirra (sam-
tals 654 snemma árs 1957). Þeir skráðu
stjórnmálaskoðanir nágranna sinna
og voru þær upplýsingar færðar í skrár
í Valhöll, höfuðstöðvum flokksins við
Suðurgötu. Svo kappsamir voru þeir
Baldvin og Birgir að þeir þekktu full-
trúana nær alla með nafni og mundu
jafnvel símanúmer þeirra. Á vinnu-
stöðum kom öflugt trúnaðarmanna-
kerfi einnig að gagni. Þar fylgdust sjálf-
stæðismenn með spjalli félaganna um
daginn og veginn og komu sjónar-
miðum þeirra í stjórnmálum á fram-
færi í Valhöll. Stefndi flokkurinn að því
að hafa trúnaðarmenn í öllum fyrir-
tækjum með fleiri en tíu í starfsliði og
skyldi sérhver þeirra vera „trúverðug-
ur og dugandi maður“ (árið 1957 átti
Sjálfstæðisflokkurinn 392 skráða trún-
aðarmenn á vinnustöðum).“
Áhugaverðar fréttir
„Þetta þykja mér áhugaverðar fréttir og
svona félagsfræðirannsóknir á vegum
stjórnmálaflokka sem styrktar eru af
almannafé. Og mig langaði til að spyrja
hvort þessar merkilegu sagnfræðiupp-
lýsingar verði ekki gerðar aðgengileg-
ar á netinu hið allra fyrsta vegna þess
að gaman væri fyrir þá sem uppi eru
núna að komast að því hvaða pólit-
ísk gen eru í þeim. Og svo sömuleið-
is þá langar mig til að vita hvort það
markmið, sem þarna er talað um, að
koma upp persónunjósnum hjá fyr-
irtækjum sem eru með fleiri en 10 í
starfsliði, hafi náðst,“ sagði Þráinn.
Ragnheiður E. Árnadóttir, Sjálf-
stæðisflokki, kvaðst þurfa að hryggja
Þráin með því að hún væri ekki búin
að lesa bókina um Gunnar en sagði
efnið áhugavert, einkum fyrir sagn-
fræðinga.
„Og ég verð nú að játa það að ég get
ekki svarað spurningu háttvirts þing-
manns um persónunjósnirnar vegna
þess að mér er bara alls ekki kunnugt
um það og hvort þær hafi einhvern
tíma átt sér stað. Ég veit það þó að þær
eru allavega ekki viðhafðar núna, alla-
vega ekki þannig að mér sé kunnugt
um það, þannig að það er mitt svar eft-
ir minni bestu vitneskju. Og hvað það
varðar að gera þetta efni aðgengilegt á
netinu, þá verð ég bara að vísa til þeirra
sem hafa aðgang að þessu efni en það
er ekki á mínu forræði þannig að þetta
er nú frekar snubbótt svar vegna þess
að meira veit ég ekki um málið.“
Tíðarandinn
Einar K. Guðfinnsson, Sjálfstæðis-
flokki, sté í ræðustól og sagði gott að
horfa til baka en ekki að festa sig í for-
tíðinni. „Ég get ekki fallist á það með
háttvirtum þingmanni að það geti á
einhvern hátt kallast persónunjósn-
ir sem menn voru að gera á þessum
tíma, að fylgjast með því sem var að
gerast, hvaða skoðanir menn hefðu
almennt talað, það eru ekki persónu-
njósnir. Þetta var hins vegar viðtekið í
stjórnmálaflokkunum á þessum tíma,
að fylgjast með og átta sig á því hver
staða þeirra væri í einstaka byggðar-
lögum. Við þekkjum dæmi um það
þegar rauði bærinn á Ísafirði féll, að þá
þekktu menn svo vel til skoðana ein-
stakra manna að þeir treystu sér nánast
til þess að spá nákvæmlega fyrir um úr-
slit kosninganna á þessum tíma. Þetta
eru auðvitað allt breyttar aðstæður. “
Jafnast á við STASI
Þráinn sté aftur í ræðustól og sagð-
ist hafa mestan áhuga á nútímanum.
„Þess vegna langaði mig til að ítreka
frekar þá spurningu sem ekkert svar
kom við áðan, ekki einu sinni snubb-
ótt. Og í framhaldi af eftirfarandi til-
vitnun í frétt DV, með leyfi forseta:
„[S]tefndi flokkurinn að því að hafa
trúnaðarmenn í öllum fyrirtækjum
með fleiri en 10 í starfsliði og skyldi sér-
hver þeirra vera trúverðugur og dug-
andi maður.“ … Þarna er verið að setja
upp stórfelldasta njónsnaprógramm
sem ég hef nokkurn tíma heyrt talað
um og hef ég þó lesið þýska sögu, bæði
Þriðja ríkisins og sögu Austur-Þýska-
lands þar sem hið eina sem fúnker-
aði var leyniþjónusta STASI. Ég spurði
að því áðan: Er þessi starfsemi enn í
gangi? Hefur þessu göfuga markmiði
verið náð? Náðist það einhvern tíma?
Hvað tókst að njósna mikið og hvenær
verða þessar niðurstöður njósnanna
aðgengilegar á netinu eða hefur þeim
verið tortímt?“
Birgir Ármannsson, Sjálfstæðis-
flokki, sagði að enginn á þingi gæti
sagt til um hvort menn hefðu fyrir 50
árum náð framangreindum markmið-
um sínum.
„Þetta er að sjálfsögðu eitthvað sem
sagnfræðingar hljóta að rannsaka.
Þetta er eitthvað sem menn hljóta að
ræða þegar slíkar rannsóknir liggja
fyrir. En ég leyfi mér að efast um að
Alþingi sé rétti vettvangurinn til þess
að ræða þetta frekar, frekar en starf-
semi annarra stjórnmálaflokka sem
líka hefur verið tekin til umfjöllunar í
nýlegum ritum sagnfræðinga…“ sagði
Birgir og átti við rit Þórs Whitehead
sagnfræðings um kommúnisma hér á
landi á öndverðri síðustu öld.
Flokkur í afneitun
„Það sem fram kemur í bók Guðna
Th. Jóhannessonar um Gunnar Thor-
oddsen er það að starfsemi Sjálfstæð-
isflokksins var nákvæmlega… ná-
kvæmlega, skref fyrir skref, á pari við
það sem ógnarstjórnir kommúnista í
Austur-Evrópu gerðu á síðari hluta síð-
ustu aldar og sem fasistastjórnir í Vest-
ur-Evrópu gerðu á fyrri hluta síðustu
aldar. Nákvæmlega eins,“ sagði Þór Sa-
ari, Hreyfingunni, í ræðustól. „Þetta
er póli tísk arfleifð sem er hroðaleg og
hana þarf að gera upp. Og Sjálfstæðis-
flokkurinn mun ekki taka það upp hjá
sjálfum sér að gera hana upp. Það er
eitt sem er alveg víst. Hann gerði til-
raun til að gera hér upp hrunið fyrir
um einu og hálfu ári síðan og var hrak-
inn heim með það aftur af Davíð Odds-
syni sem nú situr í Hádegismóum. En
þetta er arfleifð sem Sjálfstæðisflokk-
urinn þarf að ganga frá. Það er nauð-
synlegt fyrir Ísland sem önnur lönd að
hér sé starfandi starfhæfur og góður
borgaralegur stjórnmálaflokkur. Það
er einfaldlega fullt af fólki með þannig
skoðanir sem eiga heima í þannig
flokki. En það má ekki vera sá Sjálf-
stæðisflokkur með þá pólitísku arfleifð
sem núverandi flokkur er með og það
2 | Fréttir 15. desember 2010 Miðvikudagur
n Meintar persónunjósnir Sjálfstæðisflokksins ræddar á Alþingi
n Stórfelldasta njónsnaprógramm sem ég hef nokkurn tíma heyrt
talað um, segir Þráinn Bertelsson n Njósnir alla vega ekki viðhafðar
núna, segir Ragnheiður E. Árnadóttir n Þór Saari segir njósnirnar sam-
bærilegar við njósnir kommúnistaflokka Austur-Evrópu á síðustu öld
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
Er starfsemin enn í gangi? „Þetta
þykja mér áhugaverðar fréttir og svona
félagsfræðirannsóknir á vegum stjórn-
málaflokka sem styrktar eru af almannafé,“
sagði Þráinn Bertelsson.
„Stórfellt
njóSnaprógr mm“
„Er þessi starfsemi enn í
gangi? … Hvað tókst að
njósna mikið og hvenær verða
þessar niðurstöður njósnanna
aðgengilegar á netinu eða hef-
ur þeim verið tortímt?