Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Blaðsíða 31
Viðtal | 31Miðvikudagur 15. desember 2010 eru einhleypir. En sumar konur munu alltaf velja svona menn.“ Bjargaði lífi Jón kom fram í opinskáu viðtali á norðlensku sjónvarpsstöðinni N4 fyrir stuttu þar sem hann ræddi baráttu sína við þunglyndið. Nóttina eftir að viðtalið var sýnt hringdi í hann ókunnur mað- ur sem var að því kominn að fremja sjálfsmorð. „Ég bjargaði lífi þessa nótt. Maðurinn hafi fundið mig í símaskránni. Hann sat inni í stofu heima hjá sér með vínglas og hlaðna skammbyssu. Eitthvað sagði honum að hringja í mig. Ég var ekkert kurteis þegar hann sagði mér af aðstæðum sínum; hann átti konu sem hann elskaði, þótt hún væri farin frá honum, vini, aldr- aða móður og börn. Það fauk í mig og ég hund- skammaði hann. Verðmætin liggja ekki í bíl- druslu eða kofa. Þessi maður er nú búinn að leita sér hjálpar. Konan hans er komin aftur og börnin hans styðja við hann. Ég heyri reglulega í honum. Hann sagði mér að hann ætti hvorki hús né bíl en að sér væri hjartanlega sama. Mér fannst ég skipta máli að hafa afrekað þetta. Nú hef ég fundið minn tilgang,“ segir hann og bætir við að hann langi til að stofna hóp fyrir fólk sem vill hittast og ræða málin. „Mín reynsla er að besta lækningin sé einhver sem hlustar og tekur þátt í þjáningunni. Það eru margir í samfé- laginu sem eiga bágt og enginn skiptir sér af. Hér hjá mér komast ekki margir fyrir en ég væri til í að leyfa fólki að koma og ræða málin.“ Páfagaukurinn Johnny King Jón hóf tónlistarferil sinn í kringum 1980 sem eft- irherma Hallbjarnar Hjartarsonar og síðar sem kántrístjarnan Johnny King en það voru fjölmiðl- ar sem bjuggu til nafnið sem festist við hann. „Ég hef í rauninni aldrei verið sáttur við þennan kar- akter, Johnny King,“ segir hann og bendir á styttu á bak við barinn sem staðsettur er í stofunni en styttan er mannhæðarhá af kántrístjörnunni. „Þetta nafn hefur ekki gert mér neitt gott þótt ég hafði orðið frægur út á það. Fleiri þekkja mig sem þennan páfagauk en sem Jón Víkings. Vissu- lega var þetta kántríbrölt skemmtilegt – við vor- um að láta drauma okkar rætast – en okkur var tekið eins og trúðum, fíflum og bjánum og hann var einn af þeim,“ segir hann og bendir aftur á kántrístjörnuna. „Þessi herramaður hefur verið eitt mesta meinið í mínu lífi. Það var ekki hann sem samdi tónlistina. Það var ég. Ég er Jón Víkingsson og ég er að glíma við þunglyndi og það er ég sem vil hjálpa fólki. Ekki þessi trúður. Einn þáttur í þung- lyndinu er að fara alltaf í vörn en það er bara kjaft- æði. Í dag er mér alveg sama og geri sjálfur grín að sjálfum mér,“ segir Jón sem er enn að vinna í tónlistinni sem hefur tekið breytingum í gegnum árin. „Ég syng mikið til drottins og er alltaf að færa mig meira yfir í hip-hop-ið. Ég vil ekki vera ein- skorðaður við kántrí enda er ég alæta á tónlist og get samið allan fjandann.“ Hann segist einnig semja um ástina, þung- lyndið og trúna og jafnvel gríntexta. „Ég sem ekki mikið um dauðann, hann er ekki mitt uppáhalds- yrkisefni. Ég er frekar að leita að svörum í textum mínum og hef fengið að heyra að textarnir geti verið ansi djúpir. Þeir eru hreinskilnir eins og ég. Ég er ekki að fela neitt.“ Langar að kynnast konu Jón segir að þrátt fyrir þunglyndið líði honum ágætlega. Skammdegið sé honum þó erfitt og hann kvíði jólunum enda sé hann einn yfir hátíð- irnar. „Það er ekki á það bætandi fyrir þunglynd- issjúkling að muna hvernig var að eyða jólunum með fjölskyldunni og ég hef oft gert þau mistök að setja spólur frá þessum tíma í tækið. Það er eins og að stinga rýting í hjartað að sjá hversu gaman var. Eftirsjáin, sorgin og einmanaleikinn verður allsráðandi. Ég er einmana, þótt ég hafi ekki viljað viðurkenna það. Draumur minn er að kynnast konu sem ég get borið virðingu fyrir. Ég gerði sömu mistök- in og aðrir og tók konunum í lífi mínu sem sjálf- sögðum hlut. Ég hef meira að segja lagt hendur á konur. Sú skömm er ægilega djúp í mér. Það er ekki hægt að vera minni karlmaður. Þegar þú átt góða konu verðurðu að segja henni reglulega hvað hún er falleg og góð og hvað hún skiptir þig miklu máli. Þú verður alltaf að vera til staðar fyr- ir hana, líka þegar erfiðleikarnir koma upp,“ segir hann og bætir við að hann sé ekki bjartsýnn á að finna sér konu því hann eigi erfitt með að hleypa konum að sér. „Sú manneskja sem kemst í gegnum klakann hlýtur að vera sérstök. Bæði falleg að innan og utan. Hún verður að grafa sig inn og ef það tekst verður hún ekki svikin. Hún verður kæfð í róm- antík. Hér áður fyrr var ég kaldur og kúl og beitti hverju bragði til að ná konu heim. Nú er ég bara hræddur, hræddur við höfnun því ég er búinn að hafna sjálfum mér. Ég þyki skrýtinn og er álitinn hommi af því að ég fer alltaf einn heim af djamm- inu en mér dugar ekki lengur að finna mér konu á skemmtistað og fara með henni heim og sofa hjá henni. Ég þarf á meiru að halda,“ segir hann og viðurkennir að vissulega sjái hann eftir sumum kvennanna sem hann hafi verið með um ævina. „Flestar þeirra eru alveg yndislegar en ég sá það ekki. Ég var svo upptekinn af sjálfum mér og tók þeim sem sjálfsögðum hlut. Lífið er svo stutt og það fer skelfilegur hrollur um mig þegar ég hugsa um hvað ég er búinn að sóa mörgum árum í rugl.“ Sjálfsvíg er morð Jón er með skilaboð handa þeim sem líður illa og hafa hugsað um að binda enda á þetta allt saman. „Það á enginn skilið að líða illa. Leitaðu til vina sem þú getur treyst. Ég vil ekki tala niður til lækna en þeir sem hafa persónulega reynslu geta miðl- að og hjálpað, ekki síður en þeir sem eru lærðir á bókina. Kærleikurinn er góð hjálp.“ Jón segir einnig nauðsynlegt að opna á sár for- tíðarinnar. „Við verðum að hætta að fela okkur inni í þessum botnlausa skáp. Leitum fyrirgefn- ingar og fyrirgefum, teygjum okkur eftir hjálp- inni. Ef þú ert að hugsa um að binda enda á þetta mundu að þá ert þú ekki aðeins að fremja sjálfsvíg heldur líka morð. Ef þú sviptir þig lífi mun fólkið í kringum þig deyja inni í sér. Ég gaf mömmu loforð. Mamma er heilög í mínum huga og þótt það verði mikið tómarúm þegar hún hverfur af þessari jörð er ég þakklát- ur drottni fyrir að vera kominn með það mikinn þroska að ég get tekið á því þegar þar að kem- ur. Þótt maður sé náttúrulega aldrei tilbúinn að missa ættingja. Ég lofaði mömmu að svipta mig ekki lífi á meðan hún lifir og ég stend við það. Hvað gerist þegar hún er farin veit ég ekki. Það fer eftir því hvort ég finn að það sé virkileg þörf fyrir mig. Ég hef ekki trú á að ég svipti mig lífi, ég tel mig ekki þann heigul. Í dag verð ég reiður þegar ég heyri af fólki sem hefur framið sjálfsvíg og ég skammast mín fyrir mínar tilraunir og hef oft beð- ið drottin að fyrirgefa mér. Það réttlætir ekkert að þú takir eigið líf. Hvaða hugsanir skilurðu vini og ættingja eftir með? Að þú hafir frekar valið dauðann en að leita til þeirra? Ég átti góðan vin og við spjölluðum mikið um þunglyndi. Ég tók af honum loforð um að ef honum liði illa myndi hann koma til mín í kaffi. Einn daginn þegar ég kom heim úr búðinni var lögregla og sjúkrabíll fyrir utan húsið hans. Hann hafði hengt sig. Mér hefur aldrei fundist ég eins einskis nýtur. Vinátta mín og kærleikur var hon- um einskis virði. Hann settist í dómarasætið og ákvað að fólkið hans vildi ekki horfa á hann veslast upp og deyja. Ég var svo sár og reiður. Af hverju kom hann ekki til mín í stað þess að gera þetta? Þegar hann drap sig drap hann ákveðinn hluta í mér í leiðinni.“ Ævin fyrir fram ákveðin Erfiðasta lífsreynsla sem Jón hefur upplifað á æv- inni var kynferðisleg misnotkun þegar hann var 11 ára. Hann segir þá reynslu hafa orðið til þess að þunglyndið og skömmin gróf um sig í sál hans. „Að verða frægur var aldrei neinn draumur hjá mér. Ég var bara svo heimskur að halda að ef ég yrði eitthvað númer þá skipti þessi reynsla ekki máli. Svona alvarlegir atburðir hverfa ekki með frægð. Ég er búinn að burðast með þessa reynslu í gegnum árin og hef óskað þess að þessir menn verði á vegi mínum svo ég geti kálað þeim. Ég hef ekki tölu á þeim tárum sem ég grátið og niðurlæg- ingin og hatrið sem þetta atvik hefur valdið er gíf- urlegt. Í dag vil ég ekki drepa þessa menn, enda er annar þeirra látinn. Ég vil geta fyrirgefið þeim. Ég held að allt sem komi fyrir okkur um ævina sé fyrirfram ákveðið. Öll reynslan sé til þess gerð að undirbúa okkur fyrir það verkefni sem við eigum að leysa. Hingað til hef ég ekki verið tilbúinn en síðan ég fór að opna á fortíðina og taka á mínum málum hefur það breyst. Meira að segja rödd mín er að breytast. Ég er farinn að syngja betur. Mesti hetjuskapurinn er nefnilega að viðurkenna að við þurfum á hjálp að halda og þurfum að teygja okk- ur í björgina. Þá fyrst byrja kraftaverkin og lífið verður þess virði að berjast fyrir því.“ indiana@dv.is „Ég hef fengið yndisleg og ómetanleg hrós í gegnum æv- ina en aldrei frá þeim sem ég þráði mest. Jólin reynast þeim sem eru þunglyndir, einmana eða fátækir oft erfiður tími. Jólakvíði er hugtak sem stundum er notað yfir ákveðið þunglyndi sem margir eiga við að stríða fyrir jólin. Vertu vakandi fyrir því ef einhverjum í kringum þig líður illa og ræddu um erfiðleikana. Oft reynist erfitt að fá fólk til þess að tala um vandann eða breyta hegðun sinni en það að finna að þér standi ekki á sama getur samt hjálpað. Því fyrr sem fólk fær aðstoð því styttri og árangursríkari verður meðferðin. Algeng einkenni þunglyndis: n Vonleysi: Kvartað yfir ýmsu, svo sem peningaleysi, vinnu, hávaða, umhverfi, einsemd, skort á ást og umhyggju og erfiðleikum með einbeitingu. Sjálfs- vígshótanir, sjálfsvígstilraunir, aukin sektarkennd, vantraust á eigin getu og grátur. n Einangrun: Viðkomandi dregur sig til baka félags- lega, talar ekki við aðra, missir úr vinnu, á erfitt með að tjá sig og tala við aðra. Minni matarlyst, lágróma rödd, breytingar á þyngd, sterk tilhneiging til þess að liggja fyrir uppi í rúmi, minni kynferðislöngun, vanræksla um eigið útlit og minni ánægja yfir því sem áður þótti gaman. n Doði: Tómleikakennd, depurð, dofin tilfinning fyrir nánast öllu, síþreyta, taugaveiklun, eirðarleysi, leiði, áhugaleysi, finnst sem aðrir hafi yfirgefið sig eða gefist upp á sér og minnkaður áhugi á samskiptum við aðra, á kynlífi, mat, drykk, tónlist, o.s.frv. n Skert hæfni: Sífellt að væla eða láta sér leiðast, skert skopskyn, slök skipulagshæfni og vangeta til þess að leysa úr eða sjá út lausnir á minni háttar vandamálum. n Neikvæð viðhorf: Lélegt sjálfstraust, sjálfsmynd- in neikvæð, svartsýni, vonleysi, hjálparleysi, að gera ráð fyrir hinu versta, sjálfsásökun, sjálfsgagnrýni, sjálfsvígshugsanir. n Líkamleg einkenni: Erfiðleikar með svefn (erfitt að sofna, sofa mikið eða vakna snemma), kynhvöt í lágmarki, léleg matarlyst, þyngdaraukning eða þyngdarminnkun, meltingartruflanir, hægðatregða, höfuðverkir, svimi, sársauki og aðrar álíka kvartanir eða einkenni. Hvað er til ráða? n Breytt mataræði. Ef heilinn fær ekki næga næringu starfar hann ekki rétt. Of lítil næring og skortur á B-vítamíni getur verið orsök þunglyndis. Það getur því verið fyrsta skrefið í átt að betri líðan að borða vel og borða hollt. Kaffi, te, áfengi, sykur og hvítt hveiti er allt eitthvað sem vert er að forðast. B-vítamín, C-vítamín, kalíum og magnesíum eru efni sem líkaminn þarfnast. n Hreyfing er einnig sérlega góð við þunglyndi því hún örvar blóðrásina og losar vellíðunarhormónið serótónín í heilanum. Serótónín er aðaluppistaðan í þunglyndislyfjum. n Slökunaræfingar virka vel til að draga úr spennu. Léleg spennustjórnun, of mikið álag og streita, árekstrar eða deilur við fjölskyldu eða vinnufélaga hafa áhrif. n Fagleg aðstoð. Mikilvægt er að viðkomandi leiti sér aðstoðar hjá lækni. Mismunandi meðferðir henta mismunandi einstaklingum. Samtalsmeðferð, hugræn atferlismeðferð, tengslameðferð og lyfjagjöf eru á meðal þess sem er í boði. Fylgstu með þessum einkennum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.