Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 15. desember 2010 Miðvikudagur Opnunartími virka daga 12-18 laugardag 12-16 Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040 LAGERSALA www.xena.is Gönguskór St. 36-46 Verð áður 14.995 Verð nú 9.995 Skuldar 26 milljarða og skráningargjöld Katarski sjeikinn Mohamed Kha- lifa Al-Thani skuldar tæpa 26 millj- arða króna í eignarhaldsfélagi sínu Q Iceland Finance auk þess sem hann skuldar opinber gjöld vegna stofnkostnaðar móðurfélags þess. Þetta er meðal þess sem fram kem- ur í ársreikningum Q Iceland Fin- ance og móðurfélagsins, Q Iceland Holding, fyrir árið 2008. Ársreikn- ingnum var skilað til ríkisskatt- stjóra í lok síðasta árs. Félögin eru bæði í eigu Al-Thanis. Skuld Katarans er tilkomin vegna kaupa hans á fimm pró- senta hlut í Kaupþingi með lána- fyrirgreiðslu frá bankanum í sept- ember árið 2008. Viðskipti Q Iceland Finance með hlutabréfin hafa verið til rannsóknar hjá emb- ætti sérstaks saksóknara vegna gruns um að um markaðsmisnotk- un hafi verið að ræða, að tilgang- ur viðskiptanna hafi verið að hafa óeðlileg áhrif á gengi bréfa í Kaup- þingi og falsa tiltrú markaðarins á stöðu bankans. Embættið hefur látið vinna skýrslu um starfsemi Kaupþings, sem er sambærileg við nýlegar skýrslur um Glitni og Landsbankann, þar sem ætla má að meðal annars verði rætt um Al- Thani-viðskiptin. 26 milljarðar í neikvætt eigið fé Ársreikningar félaganna tveggja fyrir árið 2009 liggja ekki fyrir. Ljóst er hins vegar að þeirra bíður ekkert annað en gjald- þrot þar sem eina eign Q Iceland Finance voru hluta- bréf- in í Kaupþingi. Eina eign Q Iceland Holding var svo Q Iceland Finance. Í ársreikningi Q Iceland Finance kemur fram að tap félagsins vegna fjárfestinga árið 2008 hafi verið rúmlega 25,7 milljarðar króna. Þar kemur fram að lánið sem Q Iceland Finance fékk hafi verið skamm- tímalán frá bankastofnun. Skuldir félagsins nema nú þessari upphæð. Eiginfjárstaða félagsins er sömu- leiðis neikvæð um þessa sömu upphæð. Í samtali á milli tveggja starfs- manna Kaupþings, Halldórs Bjark- ars Lúðvígssonar og Lilju Stein- þórsdóttur, sem fram fór í kjölfar Al-Thani-viðskiptanna kom fram að Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson hefðu ver- ið aðalmennirnir í viðskiptunum og í reynd búið fléttuna til. DV hef- ur áður birt samtalið í heild sinni. Samtalið, sem fram fór í síma, hef- ur verið notað af embætti sérstaks saksóknara til að varpa ljósi á Al- Thani-málið. Í samtalinu sagði Halldór Bjarkar, sem hefur ver- ið yfirheyrður af sérstökum sak- sóknara vegna málsins, meðal annars: „Og það var í grunninn, þetta var Maggi (innsk: Magnús Guðmundsson) og Hreiðar (Már Sigurðsson) sem voru, sem voru að semja þetta allt saman sko.“ Í sam- talinu kom jafnframt fram að Al- Thani hefði fengið um 50 milljónir dollara, um 6,5 milljarða króna, fyr- ir að taka þátt í viðskiptunum. Skuld vegna skráningargjalda Þrátt fyrir umfang þessara viðskipta – hlutabréfin í Kaupþingi voru keypt fyrir tæpa 26 milljarða króna – stendur eftir tæplega 90 þúsund króna skuld inni í móðurfélaginu, Q Iceland Holding. Þar segir að ofan á tæplega 26 milljarða króna skuldir félagsins bætist ógreidd skráningargjöld, „Unpaid regist- ration cost“. Tap félagsins á árinu er jafnframt tilkomið út af þessum ógreiddu skráningargjöldum. Al-Thani fékk því tæpa 26 millj- arða króna lánaða frá Kaupþingi, án nokkurra ábyrgða, og fékk jafn- framt á sjöunda milljarð króna í vasann fyrir þátttökuna. Eftir standa tæknilega gjaldþrota félög sem tóku við láninu og hlutabréf- unum í Kaupþingi auk 90 þúsund króna útistandandi skuldar við Hlutafélagaskrá vegna stofnunar félagsins. n Eignarhaldsfélög Al-Thanis á Íslandi eru tæknilega gjaldþrota n Félögin tóku þátt í nærri 26 milljarða króna meintum sýndarviðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi n 26 milljarða skuldir eru inni í félögunum auk skuldar vegna ógreiddra skráningargjalda „Þetta var Maggi og Hreiðar sem voru að semja þetta allt saman. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Trausti Hafsteinsson með bestu umfjöllun um fátækt: Blaðamenn DV verðlaunaðir Trausti Hafsteinsson, blaðamaður DV, vann Íslandshluta fjölmiðlakeppni Evrópuráðs.  „Sá enga aðra leið en að svipta sig lífi“  er yfirskrift vinnings- greinar Trausta og birtist hún í blaðinu þann 4. desember 2009. Það var mat dómnefndarinnar að greinin væri vel ígrunduð og kannaði vandamál skuld- ara af mikilli dýpt. Fanga væri víða leit- að og góð mynd gefin af vandasamri stöðu skuldara. Greinin þótti vel skrifuð auk þess að grípa vel athygli lesandans og endurspegla lausn á vandamálinu. Fjölmiðlasamkeppni Evrópuársins 2010 – gegn fátækt og félagslegri ein- angrun, var opin öllum blaða- og frétta- mönnum sem fjallað höfðu um fátækt og/eða félagslega einangrun á árinu. „Fátækt og félagsleg einangrun er vandamál sem við viljum útrýma. Til að finna raunverulegar lausnir þurfum við að skilja rætur vandans og að gefa þeim rödd sem kljást við hann, og þar er starf fjölmiðla gríðarlega mikilvægt. Vönduð fjölmiðlun er nauðsynleg fyrir samfé- lagið okkar í heild og því er það sérlega ánægjulegt að veita Trausta þessi verð- laun,“ segir Guðbjartur Hannesson, fé- lags- og tryggingamálaráðherra. Í öðru sæti var greinin „Velkomin í fátækt“ eftir Ingibjörgu Dögg Kjartans- dóttur og Viktoríu Hermannsdóttur, sem birtist í DV. Í þriðja sæti var grein- in „Kvennasmiðjan var opinberun“ eft- ir Sigurð Boga Sævarsson á Morgun- blaðinu. Þingmenn allra flokka: Vilja breyta klukkunni Klukkunni á Íslandi verður seinkað um eina klukkustund vegna þess að miðað við gang sólar er klukkan á Ís- landi rangt skráð verði þingsályktun- artillaga sem fjórtán þingmenn hafa lagt fram á Alþingi samþykkt. Flutningsmenn tillögunnar eru þeir Guðmundur Steingrímsson, Framsóknarflokki, og Róbert Mars- hall, Samfylkingu. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að í stað þess að sól sé hæst á lofti um hádegisbil er sól á Íslandi hæst á lofti í Reykja- vík að meðaltali klukkan 13.28 og á Egilsstöðum hálftíma fyrr. „Verði klukkunni varanlega seink- að um eina klukkustund, eins og tillaga þessi gerir ráð fyrir, yrði sól hæst á lofti í Reykjavík að jafnaði klukkan hálf eitt og á Egilsstöðum í kringum tólf, eins og eðlilegt er,“ seg- ir í greinargerðinni. Þá segir að vegna þessarar tíma- skekkju kannist líklega flestir Íslend- ingar við þá nöpru tilfinningu að þurfa að vakna til vinnu eða skóla í svartamyrkri stóran hluta ársins. „Í raun er enn nótt á Íslandi, miðað við gang sólar, þegar Íslendingar fara til vinnu klukkan átta eða hálf níu miðað við núverandi klukku. Verði klukkunni seinkað um eina klukkustund verða morgnarnir hins vegar bjartir langt fram í nóvember og byrja aftur að verða bjartir síðari hluta janúar. Sólin rís oftar á undan fólkinu með tilheyrandi varma og birtu. Myrkum morgnum fækkar til muna.“ einar@dv.is Frímerki í tilefni af 100 ára afmæli DV Íslandspóstur stóð á þriðjudaginn fyrir útgáfuhófi vegna frímerkjaút- gáfu sem meðal annars var tileink- uð því að 100 ár eru liðin frá stofnun fyrsta eiginlega dagblaðsins, þegar Vísir, undanfari DV, kom fyrst út. DV hefur haldið upp á hundrað ára af- mælið síðustu daga. Á laugardaginn var haldin afmælishátíð á Ingólfs- torgi þar sem fjöldi skemmtikrafta kom fram. Má þar nefna Bubba Morthens, Bjartmar og Bergrisana, leikhópinn Lottu og Dr. Gunna. Lykilmennirnir Ólafur Ólafsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Al-Thani voru lykilmennirnir í Al-Thani-fléttunni með hlutabréf í Kaupþingi rétt fyrir hrunið 2008. 26 milljarða skuld Al-Thanis stendur eftir, sem og ógreidd skráningargjöld eins eignarhaldsfélagsins sem tók þátt í fléttunni. 26 milljarða skuldir Félögin í Al-Thani-fléttunni skulda samtals 26 milljarða króna. Verðlaun Guðbjartur Hannesson afhenti móður Trausta verðlaunin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.