Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Síða 15
Lifandi yfir hátíðirnar Þeir sem ákveða að kaupa lifandi tré
þurfa að hafa ýmislegt í huga varðandi meðferð trjánna til að þau haldist
sem ferskust yfir hátíðirnar. Á vefsíðu Gulu línunnar gefur Jón Geir Pétursson
skógfræðingur góð og einföld ráð við meðhöndlun trjáa. Gott er að geyma trén á
köldum stað fram að jólum og mælt er með að hafa þau úti á svölum eða í kaldri
geymslu. Eins er gott að láta þau standa í vatni en áður en þau eru sett upp
inni þarf að sneiða neðan af stofninum um fimm til tíu sentimetra þykka sneið.
Einnig er nauðsynlegt að fjarlægja kvoðutappa sem getur myndast við sárið.
Með því opnast æðar trésins og vatnsupptaka verður auðveldari.
Jólatrésfóturinn er mikilvægur Þegar hugað
er að jólatrésfætinum er mikilvægt að hafa í huga að hann taki nóg af
vatni. Tréð skal standa í góðum vatnsfæti en hann má helst ekki taka
minna en einn lítra. Fyrsta áfyllingin ætti að vera með heitu vatni,
80 til 100°C en talið er að það opni betur æðar trésins og örvi þar
með vatnsupptöku. Passa þarf að vatnið klárist ekki því tréð þarf að
standa í vatni yfir allar hátíðirnar. Þetta ætti að duga til þess að tréð
haldist ferskt. Eftir hátíðirnar á svo að skila trénu til endurvinnslu.
Neytendur | 15Miðvikudagur 15. desember 2010
1. Húsavíkurhangikjöt
Meðaleinkunn: 8,0
Kílóverð: 3.359 kr.
Rýrnun: 26,1%
Siggi Hall: „Sæmilegur ballans – salt en lítill reykur.“
Brynjar: „Gott bragð.“
Hrefna: „Dálítið mikið fitubragð af kjötinu en ágætt kjöt.“
Eygló: „Milt bragð – jöfn en unnin áferð á kjötinu.“
2. Íslandslamb
Meðaleinkunn: 7,6
Kílóverð: 2.598 kr.
Rýrnun: 25,4%
Siggi Hall: „Milt, ekki of salt – samt hangikjötsbragð.“
Brynjar: „Bragðlítið en gott samspil.“
Hrefna: „Lítið salt en mikið og gott reykbragð. Meira af fitu
en gengur og gerist. Mér finnst þetta best.“
Eygló: „Bragðlítið. Milligróf áferð.“
3. Hólsfjallahangikjöt
Meðaleinkunn: 7,4
Kílóverð: 3.198 kr.
Rýrnun: 11,2%
Siggi Hall: „Sæmilega reykt. Hangikjötsbragðið er í góðum
ballans.“
Brynjar: „Ágætt en virðist mikið sprautað.“
Hrefna: „Eitthvert skrýtið bragð af kjötinu sem ég er ekki
vön. Svolítið eins og kjöt í gamla daga.“
Eygló: „Milligróf áferð. Meðal reykbragð.“
4. Sambandshangikjöt
Meðaleinkunn: 7,2
Kílóverð: 2.998 kr.
Rýrnun: 15,3%
Siggi Hall: „Milt hangikjötsbragð en ekki eins gott og það
besta.“
Brynjar: „Mjög gott. Passleg fita og flott rúlla.“
Hrefna: „Gott reykbragð. Frekar þungt kjöt.“
Eygló: „Fíngerð rúlla, milt bragð.“
5. Gallerý kjöt
Meðaleinkunn: 7,0
Kílóverð: 3.990 kr.
Rýrnun: 19,9%
Siggi Hall: „Salt og miðlungsreykt.“
Brynjar: „Mjög gott og flott rúlla.“
Hrefna: „Salt, kjötið.“
Eygló: „Saltað og fín áferð. Reykt bragð.“
6. FK (Fjarðarkaup)
Meðaleinkunn: 6,8
Kílóverð: 2.898 kr.
Rýrnun: 15,9%
Siggi Hall: „Salt en ágætt í ballans.“
Brynjar: „Gott jafnvægi. Þétt og gott.“
Hrefna: „Milt reykbragð. Deyr fljótt í munninum. Heldur
mikið salt.“
Eygló: „Fín áferð – ljós litur á kjötinu.“
7. KEA hangikjöt
Meðaleinkunn: 6,6
Kílóverð: 2.598 kr.
Rýrnun: 17,6%
Siggi Hall: „Milt og bragðlítið.“
Brynjar: „Reykbragðið ágætt.“
Hrefna: „Milt kjöt. Frekar þurrt en bragðgott.“
Eygló: „Dökkur litur – frekar salt.“
8. KS - skagfirskt hangikjöt
Meðaleinkunn: 6,6
Kílóverð: 2.598 kr.
Rýrnun: 17,5%
Siggi Hall: „Milt bragð, ágætt samt.“
Brynjar: „Ágætt samspil.“
Hrefna: „Djúsí kjöt – frekar unnið.“
9. Esja hangikjöt
Meðaleinkunn: 6,4
Kílóverð: 3.198 kr.
Rýrnun: 21,8%
Siggi Hall: „Bragðdauft en ágætt jafnvægi samt.“
Brynjar: „Frekar þurrt.“
Hrefna: „Bragðlítið kjöt sem gerir það að verkum að þú
getur vel borðað meira af því.“
Eygló: „Gróf áferð. Miðlungs gott.“
10. SS birkireykt hangikjöt
Meðaleinkunn: 5,8
Kílóverð: 2.398 kr.
Rýrnun: 22,8%
Siggi Hall: „Brimsalt.“
Brynjar: „Bragðgott – ekta hangikjöt.“
Hrefna: „Saltmikið og mikið reykbragð. Kraftmikið
hangikjöt en það er ekki fyrir mig.“
Eygló: „Kryddað bragð.“
11. Norðlenskt kofareykt
Meðaleinkunn: 5,6
Kílóverð: 2.798 kr.
Rýrnun: 17,5%
Siggi Hall: „Bragðlítið og dauft – ekki góður reykur.“
Brynjar: „Bragðlítið.“
Hrefna: „Mjög salt – smá skinkulegt í útliti.“
Eygló: „Gróf áferð og reykt bragð.“
12. Fjallahangikjöt
Meðaleinkunn: 5,4
Kílóverð: 1.998 kr.
Rýrnun: 16,9%
Siggi Hall: „Sæmilegt hangikjötsbragð, bragðlítið. Salt
kjöt.“
Brynjar: „Gúmmílegt undir tönn. Sinar í kjötinu.“
Hrefna: „Gott eftirbragð – passlega salt.“
Eygló: „Eitthvert aukabragð.“
Allt um hangikjötið
Hangikjöt (hangilæri) Framleiðandi kr/kg án afsl. Verslun/afsláttur Rýrnun Hrefna Hilmar Brynjar Siggi H Eygló Meðaleinkunn
Húsavíkurhangikjöt Norðlenska 3359 Hagkaup/10% 26,1% 4 4.5 4 4 3.5 8
Íslandslamb Ferskar kjötvörur 2598 Bónus 25,4% 4.5 3.5 4 4 3 7.6
Hólsfjallahangikjöt Fjallalamb 3198 Fjarðarkaup/10% 12,2% 3 4 3 4 4.5 7.4
Sambands hangikjöt Norðlenska 2998 Krónan/20% 15,3% 4 3.5 5 2 3.5 7.2
Gallerý kjöt Kjötkompaní 3990 Kjöt kompaní 19,9% 2.5 4 5 3 3 7
FK (Fjarðarkaup) Kjarnafæði 2898 Fjarðarkaup/20% 15,9% 3 3.5 4 3.5 3 6.8
KEA hangikjöt Norðlenska 2598 Bónus/10% 17,6% 4 4 3 2.5 3 6.6
KS-Skagfirskt Kaupf. Skagf. 2598 Fjarðarkaup 17,5% 3.5 3 4 3 3 6.6
Esja hangikjöt Esja kjötvinnsla 3198 Hagkaup/15% 21,8% 3 3.5 3 3.5 3 6.4
SS birkireykt hangikjöt SS 2398 Bónus/10% 22,8% 2.5 3 4 2 3 5.8
Norðlenskt kofareykt Kjarnafæði 2798 Bónus 17,5% 2 4 3 2 3 5.6
Fjalla hangikjöt Norðlenska 1998 Bónus 16,9& 3.5 3 3 2 2 5.4
Húsavíkurhangikjötið er best
Feðgarnir á Höfninni Þeir Brynjar og Logi sáu um eldunina og umstangið. MyNdiR SiGtRyGGuR ARi JóHANNSSoN
Ævaforn geymsluaðferð
Talið er að um 90 prósent Íslendinga bragði hangikjöt um jólin. Algengast er að kjötið
sé borðað kalt á jóladag en sumir borða það þó á aðfangadagskvöld og á mörgum
heimilum er jólahangikjötið borðað heitt.
Reyking er ævaforn geymsluaðferð og líklegt er að landnámsmenn hafi borðað
hangikjöt. Fyrr á öldum hékk kjötið í hlóðareyknum í eldhúsrjáfrinu mánuðum saman
og varð dökkt af sóti, hart og nokkuð þurrt og ákaflega bragðmikið. Yfirleitt er um að
ræða lambakjöt en kjöt af fullorðnu er einnig reykt. Sauðakjöt þótti mörgum besta
hangikjötið áður en það er nú mjög sjaldséð. Kjöt af geldum ám þótti einnig mjög gott.
Kjötskrokkarnir voru oftast höggnir í fjóra hluta eða jafnvel hengdir upp í heilu lagi. Mest
er nú reykt af lærum, með beini eða úrbeinuðum, en frampartar eru einnig reyktir, oftast
úrbeinaðir og vafðir, og áður var mikið reykt af feitum síðum og bringukollum.
Kjötið er saltað, oftast lagt í saltpækil, og síðan hengt upp og reykt. Áður tíðkaðist
sumstaðar að salta það volgt og láta þorna áður en það var reykt. Misjafnt er hvaða
eldiviður er notaður. Sumum þykir taðreykt hangikjöt langbest, ekki síst sé það kofar-
eykt, þ.e. heimareykt, en aðrir taka viðarreykt hangikjöt fram yfir, einkum birkireykt.
Flestir eru þó sammála um að kjöt sem reykt er með beini sé bragðbetra en úrbeinað
kjöt, þótt hið síðarnefnda sé þægilegra í meðförum. Misjafnt er hve reykingartíminn er
langur; sumt af því hangikjöti sem nú er á markaði er aðeins reykt í 2–3 sólarhringa og
kjöt sem kallast léttreykt aðeins fáeina klukkutíma.
HEiMiLD: MATARÁST EFTiR NöNNu RöGNvALDARDóTTuR
Öflug dómnefnd Þau Siggi Hall,
Hrefna, Hilmar, Brynjar og Eygló tóku
hraustlega til matar síns.