Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Qupperneq 26
Þau öfl sem börð- ust hatrammleg- ast gegn Icesave- samningum á sínum tíma víg- búast og eru aft- ur á leið í skot- grafirnar. Herópin eru sem fyrr: Við borgum ekki skuldir óreiðu- manna! Skuldir einkabanka eru ríkinu óviðkom- andi! Við sjáumst í réttarsal! Land- ráðamenn einir leggja drápsklyfjar á þjóðina! Það er von að mikið sé lagt undir, enda sýnist þeim flestum sem stríðið sé tapað þegar á borðinu liggur samn- ingur sem viðurkennir sanngjarna ábyrgð íslenska ríkisins á innstæðum sparifjáreigenda í Hollandi og Bret- landi. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, liggur undir feldi. Það gera einnig framsóknarmenn og InDefence. Forsetinn hugsar sitt og veltir því fyrir sér hvort hann fái tæki- færi til skýla sér á ný bak við meint al- menningsálit þegar og ef til þess kem- ur að hann fái nýjan Icesave-samning til undirritunar. Pólitík og lög Þegar hörmungar bankahrunsins skullu á þjóðinni fylgdust stjórnmála- menn með yfirvofandi lausafjárkreppu banka í öðrum löndum. Starfsbræð- ur og -systur erlendis kepptust við að lýsa því yfir að ríkið ábyrgðist innstæð- ur í bönkum og vildu með því koma í veg fyrir áhlaup á bankana. Viðtekið var að bregðast við bankavandanum með pólitískum fremur en hreinum lagalegum hætti. Landsbankinn rið- aði til falls og bresk og hollensk stjórn- völd sögðu við sparifjáreigendur: „Við ábyrgjumst innstæður ykkar á Ice- save-reikningum jafnvel umfram það lágmark sem lög segja til um.“ Á sama tíma sögðu íslenskir ráð- herrar: „Við ábyrgjumst innstæð- ur ykkar kæru landsmenn,“ og áttu áreiðanlega einnig við Hollendinga og Breta á Íslandi. Seðlabankastjórinn Davíð Odds- son kom hins vegar fram í fjölmiðl- um í miðjum klíðum og sagði: „Við borgum ekki skuldir óreiðumanna.“ Aðrir tóku undir og sögðu: „Við borg- um ekki skuldir einkabanka.“ Liðs- menn InDefence sögðu: „We will see you in court.“ Í Moggagreinum sögðu lögspekingar: „Við höfum enga lagaskyldu til að borga lágmarksinn- stæðu.“ Þetta leiddi smám saman til þess að þjóðin klofnaði. Í öðrum hópnum voru þeir sem töldu sig vita að ríkið yrði að ábyrgjast greiðslur og rétt væri að krefjast sanngirni við samninga- borð. Í hinum hópnum voru þeir sem telja skuldir einkabanka ríkinu óvið- komandi. Verður það nokkuð skýrara? Síðarnefndi hópurinn er nú um það bil að tapa Icesave-stríðinu. Þess vegna er vopnaglamur í Hádegis- móum. Á borðinu liggur nýr samn- ingur sem felur í sér ábyrgð ríkisins á greiðslum til Breta og Hollendinga úr Tryggingasjóði innstæðueigenda til Breta og Hollendinga. Grundvöll- ur samningsins er að íslenska ríkið er ábyrgt og afsláttur er veittur um leið og sú ábyrgð er viðurkennd. Ábyrgð íslenska ríkisins var allt- af fyrir hendi. Þannig stendur til að mynda orðrétt í 36. grein laga um fjármálafyrirtæki: „Jafnframt skal Fjármálaeftirlitið senda lögbærum yfirvöldum gistiríkis upplýsingar um eigið fé fyrirtækisins, gjaldfærni, tryggingar innlána og bótakerfi sem verndar viðskiptavini útibúsins. Hlutaðeigandi fyrirtæki skal samtím- is tilkynnt að framangreindar upplýs- ingar hafi verið sendar. - Fjármálaeft- irlitið getur bannað stofnun útibús skv. 1. mgr. ef það hefur réttmæta ástæðu til að ætla að stjórnun og fjár- hagsstaða hlutaðeigandi fjármála- fyrirtækis sé ekki nægilega traust.“ Tökum eftir orðalaginu um vernd viðskiptavina útibús og heimild FME til að hafna stofnun útibús! Verður þetta öllu skýrara? Þyngra en tárum taki Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sem og skýrslur norskra og franskra sérfræðinga benda allar til þess að Landsbankinn hafi raunverulega verið ógjaldfær löngu fyrir hrun. Þessi staðreynd „týndist“ í íslenska stjórnkerfinu. „Ef til vill er samráðs- hópur forsætisráðuneytis, fjármála- ráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Ís- lands um fjármálastöðugleika og við- búnað sem skipaður var á árunum fyrir bankahrunið eitt afdrifaríkasta dæmið um samstarf þvert á ráðu- neyti, sem leið fyrir skort á skýrum skilgreiningum á hlutverki, umboði og ábyrgð,“ segir í nýrri skýrslu um endurskoðun laga um Stjórnarráðið. Í ljósi þess sem hér er sagt voru lög vísvitandi brotin þegar Lands- bankanum var heimilað svo seint sem 29. maí árið 2008 að láta greip- ar sópa í Hollandi og safna þar nærri 300 milljörðum á örfáum mánuðum. Öllu vatt hér fram með vitund, vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda. „Við borgum ekki-öflin“ skilja þetta um síðir. 26 | Umræða 15. desember 2010 Miðvikudagur Harðlínumenn tapa Icesave-stríði „Ég er að drepast í bakinu enda þurfti ég að fá hjálp frá tveimur nágrönnum mínum til að bera tréð upp fjórar hæðir.“ n Veitingamaðurinn Friðrik Weiss- happel keypti fjögurra metra hátt jólatré í Danmörku sem nær á milli tveggja hæða. – Fréttablaðið „Ég tek á endanum ákvörðun sem er rétt bæði fyrir mig og fyrir liðið.“ n Handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson á eftir að ákveða hvort hann treystir sér á HM í Svíþjóð í janúar. Hann er nýbyrjaður að spila aftur eftir tíu mánaða fjarveru vegna meiðsla. – Fréttablaðið „Á þeim tíma talaði ég ekki neina ensku.“ n Leikarinn Stefán Karl Stefánsson kunni ekkert í ensku þegar honum var boðið að leika Glanna glæp, eða Robb- ie Rotten, í bandarísku útgáfunni af Latabæ – DV „Falleg stúlka sem kemur nakin til manns með kaldan bjór og samloku til að tilkynna að leikurinn í enska boltanum sé byrjaður og spyr hvað maður vilji gera í leikhléi.“ n Hæstaréttarlögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson svarar því hvað kveiki í honum neistann í viðtali við ofurskutluna Hlín Einars. – bleikt.is „Ég vona að þetta viðtal sýni umfram vafa – að það ætti enginn að fikta með fíkniefni.“ n Skilaboð frá athafna- manninum Jóni stóra í nýrri bók um hann. – Jóns saga stóra Leyndarmál auðrónanna Það sem setti Ísland fyrst og fremst á hausinn var öll leyndarhyggjan og pukr- ið. Það hefur verið landlægt hér í áratugi að leyfa spillingunni að blómstra í skjóli leyndarinnar. Langflestir hafa lagt blessun sína yfir þetta fyrirkomulag sem verið hefur við lýði í stjórnsýslunni jafnt og í einkageiranum. Dæmi um leyndina er að finna hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þar störfuðu tugir manna í upplýs- ingadeild. Þetta fólk var þó ekki að veita upplýsingar nema í takmörk- uðum mæli. Þvert á móti var ver- ið að halda til baka því sem for- svarsmenn fyrirtækisins töldu að ekki ætti erindi við almenning. Svar upplýsingadeildar við smá- um og stórum spurningum fjöl- miðla var gjarnan nei og ástæðan sú að Orkuveitan heyrði ekki und- ir upplýsingalög. Í þessu skjóli var gróðafyrirtækið rekið í þrot. Gullið í námunni breyttist í grjót. Angi af leyndarhyggjunni á Íslandi er sýnilegur þegar dóms- mál standa yfir. Grunaðir glæpa- menn og dæmdir njóta þeirrar þjónustu lögreglunnar að fá lamb- húshettur til að dyljast. Sífellt erf- iðara er fyrir fjölmiðla að fá upplýs- ingar um það sem er að gerast fyrir dómstólum. Ákærum er leynt og allt gert til þess að halda sakamál- um leyndum. Nýjasta dæmið um slíka leyndarhyggju er að lögmað- ur morðingja úr Hafnarfirði vill loka réttarhöldum af tillitssemi við skjólstæðing sinn. Um er að ræða einn grimmdarlegasta glæp í sögu Íslendinga. Atvikum þar skal leynt. Bankar eru algjörlega lokað- ir þegar upplýsingar eru annars vegar. Í reykfylltum bakherbergj- um eru teknar ákvarðanir um að afskrifa milljarða króna af skuld- um auðmanna og útrásarvík- inga. Bankaleynd er borið við þeg- ar spurt er um afskriftir. Og þegar skuldir almennra borgara eru ann- ars vegar má lítinn afslátt gefa. Auðrónarnir eiga að halda sínu á meðan fólkinu blæðir. Svona var þetta fyrir hrun. Leyndarhyggjan var allsráðandi. Og svona er þetta eftir hrun. Sljó og duglítil stjórnvöld væla um skjald- borg fyrir fólk en reisa hana síð- an um bankana. Þess er vandlega gætt að afskriftir auðróna spyrjist ekki út. Leyndarmála valdastétt- anna er vandlega gætt af vinstri- stjórninni sem lofaði heiðarleika og gegnsæi. Jóhanna Sigurðardótt- ir og Steingrímur J. Sigfússon gera eins og löggan. Þau skaffa skúrk- unum lambhúshettur svo almenn- ingur sjái ekki framan í svínin. Pólitískt sprengiefni n Athyglisvert verður að sjá hvað menntamálanefnd mun gera til að bregðast við þeirri niðurstöðu að ráðherrunum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Árna Mathie- sen hafi verið óheimilt að fella niður 126 millj- óna króna skuld menntaskólans Hraðbrautar við ríkissjóð árið 2007. Hraðbraut tók til starfa vegna mikils stuðnings frá Sjálfstæðis- flokknum og Birni Bjarnasyni, þá- verandi menntamálaráðherra, árið 2003. Málið er hápólitískt enda hafa núverandi ríkisstjórnarflokkar allt aðrar hugmyndir um einkarekstur í skólakerfinu en Sjálfstæðisflokkur- inn. Frekari aðgerðir menntamála- nefndar gegn Ólafi Johnson, eiganda skólans, eða jafnvel Þorgerði og Árna verða því að öllum líkind- um túlkaðar sem pólitískar árásir á Sjálfstæðisflokkinn. Klár í formanninn n Innan Sjálfstæðisflokksins vel- kjast menn ekki í vafa um að Kristj- án Þór Júlíusson stefnir ákveðið á for- mannsstólinn. Kristján talar skýrt um ábyrgð allra flokka, ekki síst Sjálf- stæðisflokks- ins, og reynir ekki að draga úr sekt. Þá kemur hann fram sem manna- og flokkasættir. Kristján tapaði á sínum tíma formannsslag gegn Bjarna Benediktssyni sem í dag er í hinu versta ímyndarbasli. Kristj- án bíður á hliðarlínunni. Lágkúra og lífeyris- brask n Guðmundur Gunnarsson, formað- ur Rafiðnaðarsambandsins, er líklega á meðal fýldustu álitsgjafa. Guðmundur er einn af konungum lífeyrissjóðanna og ber sem slíkur einhverja ábyrgð á óförum þeirra. Þegar Spaugstofan gerði grín að þeim sem nærast á blóði lífeyris- þega trompaðist Guðmundur. Á bloggi sínu talaði hann um „lág- kúru í lægstu hæðum“ og vísaði til Spaugstofunnar. Einhver hefði talið að lágkúran ætti við um lífeyris- braskarana. Rótfastur á bekknum n Eiður Smári Guðjohnsen, marka- hæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, var rótfastur á bekkn- um hjá Stoke um helgina. Hann hefur verið áhorfandi að síðustu átta leikjum liðsins. Fátt heyrist frá honum lengur. Knattspyrnuþáttur- inn Sunnudagsmessan fór til Stoke um daginn og náði þar viðtali við þjálfara liðsins, Tony Pulis, en ekkert viðtal var við Íslendinginn sjálf- an. Hvort það hafi tengst frétt sem birtist á Stöð 2 daginn áður um lítið markaskor hans síðastliðin misseri skal ósagt látið. Það væri þó alla vega ekki í fyrsta skiptið sem Eiður fer í fýlu. Sandkorn TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Leiðari Kjallari Er KR orðið óska- barn þjóðarinnar? „Óskabörn þjóðarinnar hafa verið og eru öll í KR svo einfalt er nú það,“ segir Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, sem skrifaði í gær undir sam- starfssamning við óskabarn þjóðarinnar, Eimskip. Merki Eimskipa mun prýða búninga KR á næsta keppnistímabili. Spurningin Bókstaflega Reynir Traustason ritstjóri skrifar„Þau skaffa skúrkunum lambhúshettur. „Öllu vatt hér fram með vitund, vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda. „Við borgum ekki-öflin“ skilja þetta um síðir. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.