Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Síða 34
34 | Fólkið 15. desember 2010 Miðvikudagur Leikhópurinn Lotta: Vesturport fyrir börnin Barney drekkur ís- lenskt vatn Íslenska vatnið Icelandic Glacial sem athafnamaðurinn Jón Ólafsson er í forsvari fyrir er komið inn í enn einn risa- sjónvarpsþáttinn í Bandaríkjunum. DV greindi frá því um daginn að stjörnurnar í hinum geysivinsæla þætti The Big Bang Theory drykkju íslenska vatnið stíft sem hluti af óbeinni markaðsherferð í Bandaríkjunum. Nú síðast var Iceland Glacial drukkið í gamanþættinum How I met your mother en annar þeirra sem hélt á flösku var einn af vinsælli sjónvarpskarakterum nútímans, Barney Stinson, sem hinn hýri Neil Patrick-Harris leikur. Auk þessara tveggja þátta hefur Icelandic Glacial-vatnið verið mikið notað í þáttum á borð við House og Grey ś Anatomy. Nakin með bjór „Falleg stúlka sem kemur nakin til manns með kaldan bjór og samloku til að tilkynna að leikurinn í enska boltan- um sé byrjaður og spyr hvað maður vilji gera í leikhléi.“ Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson stjörnulögfræðingur að sé það sem kveiki neistann á milli sín og konu. Þetta segir hann í viðtali við vefinn bleikt.is en í viðtalinu ræðir hann um muninn á körlum og konum, hvað heilli hann í fari kvenna, kynjamisrétti og fleira. Hann segir meðal annars að það sé „combo af kynþokka og persónutöfr- um“ sem heilli sig mest í fari kvenna. „Núna erum við að undirbúa næsta sumar,“ segir Sigsteinn Sigurbergs- son, leikari í leikhópnum Lottu sem hefur verið starfræktur undanfarin fjögur ár. Lotta sérhæfir sig í barna- sýningum og er aðalsvið þeirra ut- andyra í Elliðaárdalnum. Lotta skemmti börnunum á afmælishátíð DV síðastliðinn laugardag og fékk góðar undirtektir. Börnin verða þó að bíða til næsta sumars þeg- ar Lotta fer aftur á fullt. „Við erum bara að skemmta einstaka sinnum núna um jólin. Þá erum við að sýna brot úr sýningunum okkar síðustu fjögur árin. En nú erum við bara að gera okkur klár fyrir næsta sumar en þá ætlum við að sýna Mjallhvíti og dvergana sjö og gera það á okk- ar hátt. Handritið, sem er skrifað af Snæbirni Ragnarssyni og Önnu Bergljótu Thoroddsen er bara að renna í gegn þessa dagana,“ segir Sigsteinn en Lotta er sérstök á þann hátt að í leikverkunum er mörgum frægum sögupersónum blandað saman. „Fyrstu árin vorum við með Dýrin í Hálsaskógi og Galdrakarlinn í OZ sem voru heilar sögur. Svo fór- um við að brjóta þetta upp og sett- um upp Rauðhettu með Hans og Grétu og Grísunum þremur saman. Síðan héldum við Hans úr Hans og Grétu og gerðum Hans klaufa með Öskubusku og vondu stjúpsystrun- um,“ segir Sigsteinn. Leikhópurinn Lotta lét gott af sér leiða í vikunni þegar hann setti 30 jólapakka undir tréð í Smáralindinni en í pökkunum voru DVD-upptökur af sýningum hópsins. Sigsteinn segir að vinsæld- ir hópsins aukast mikið ár frá ári og í fyrra hafi allt að 30.000 manns séð Lottu skemmta. „Á hverju ári gefum við líka öllum leikskólum lands- ins diskinn okkar. Þá förum við í leikskólann, sýnum atriði og gef- um diskinn. Krakkarnir þar teljast með í áhorfendatölunum. Ég held að við séum stærsti leikhópurinn á Íslandi fyrir börn. Það var kona sem sagði einu sinni við okkur að við værum eins konar Vesturport fyrir börnin. Okkur fannst það virkilega skemmtilegt,“ segir Sigsteinn Sigur- bergsson. tomas@dv.is Fóru á kostum Börnunum leiddist ekki á Ingólfstorgi síðastliðinn laugardag þegar Lotta skemmti. MYND PÁLL ÖNUNDARSON Ó lafur fékk góðu frétt- irnar nýverið og seg- ist varla ráða sér fyr- ir kæti. Hann hefst handa strax eftir tónleikana og hefur afar stuttan tíma til verks- ins, eða til 1. janúar. Myndin verð- ur sýnd í kvikmyndahúsum um miðjan janúar. „Mig langaði til að hoppa af húsþökum, ég trúi þessu varla enn. Ég þori þó ekki að segja mikið meira fyrr en ég hef undir- ritað samninginn. Þá fyrst get ég sagt frá því um hvaða mynd er að ræða.“ Ferðast til hundraða landa Ólafur hefur fyllilega unnið sér inn fyrir þessum merka og góða árangri en síðan 2007 hefur hann spilað á fleiri hundruð tónleikum úti um all- an heim. Auk þess sem hann hefur unnið ötullega að tónsmíðum. Í fyrra samdi hann tónlist við dansverk hins heimsþekkta dans- höfundar Waynes McGregors, Dyad 1909, og spilaði tónlistina „live“ á fimm sýningum í hinu 1.600 manna Sadler’s Wells Theater í Lond- on auk þess sem verkið var sýnt á sjónvarpsstöð BBC. Eftir þetta fékk norski danshöfundurinn Alan Luc- ien Ólaf til að semja tónlistina fyr- ir verk sitt Endalaus með Íslenska dansflokknum, sem einnig fékk frá- bærar viðtökur. Ólafur samdi einn- ig nýlega „original score“ fyrir kvik- myndirnar Blinky TM (með Max Records í aðalhlutverki) og íslensku myndina Óróa. Þá hefur tónlist Ól- afs verið notuð í ótal öðrum sjón- varpsþáttum og kvikmyndum. „Ég hef haft mikið að gera síðustu árin og árið í ár var sérstaklega anna- samt. Mér finnst skemmtilegt að semja tónlist fyrir verk, hvort sem það eru dansverk, kvikmyndir eða annað. Ég er líka heppinn að fá að ferðast svona mikið, ég hef ferðast frá Skandinavíu til Asíu í ár og til fleiri hundraða landa síðustu árin. Í ár fannst mér skemmtilegast að fara til Suður-Kóreu. Þar fékk ég stór- kostlegt menningarsjokk og það var gaman að spila fyrir tónleikagestina því þeir voru svo spenntir og áhuga- samir.“ Stórtónleikar í Tjarnarbíói Í maí 2010 kom út önnur breiðskífa Ólafs, … and they have escaped the weight of darkness, á vegum Kölska. Ljósasýning sem fylgir tónleikunum var hönnuð sérstaklega til að skapa fallega stemningu. Ólafur hyggst nú enda árið á stórtónleikum í Tjarn- arbíói þann 16. desember áður en hann leggst í tónsmíðar fyrir Holly- wood. „Ég set ekki upp allt ljósasjó- við í heild sinni í Tjarnarbíói en það verður samt án efa mjög fallegt. Eftir að tónleikunum lýkur leggst ég svo í tónsmíðarnar af mikilli alvöru.“ kristjana@dv.is ÓLAFUR TIL HOLLYWOOD Ólafur Arnalds ætlar að hrista öll spilin fram úr erminni á stórtónleikum sínum í Tjarnarbíói, fimmtudaginn 16. desember. Þetta verða síðustu stórtónleikar hans að sinni því hann mun verja jól- unum í það að semja tónlist fyrir stóra Hollywood- kvikmynd. ÓLAFUR ARNALDS: VER JÓLUNUM VIÐ TÓNSMÍÐAR Ólafur hefur skamman tíma til stefnu en hann á að skila af sér tónverkinu 1. janúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.