Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Qupperneq 2
2 | Fréttir 17.–19. desember 2010 Helgarblað
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
• Dregur úr vöðvaspennu
• Höfuð- háls- og bakverkjum
• Er slakandi og bætir svefn
• Notkun 10-20 mínútur í senn
• Gefur þér aukna orku og vellíðan
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Nálastungudýnan
Tilboð til
jóla 40%
afsláttur
!
Tilboðsverð 5.850 kr.
Hetjudáð Jóhannes-
ar á fóðurbílnum
n Jóhannes Guðnason kom að fóstursyni
sínum, Halldóri Elfari Hannessyni, ná-
fölum og meðvitundarlausum aðfaranótt
sunnudagsins 12. desember. „Ég hrökk
upp við þvílík læti um nóttina, ég hélt að
það væri verið að brjótast inn hjá mér.
Svo þegar ég kallaði á konuna
heyrði ég bara öskur og grát,“
segir Jóhannes um hina örlaga-
ríku nótt. Sautján ára fósturson-
ur hans hafði farið í hjartastopp
þar sem hann sat við tölvuna.
Ekki er vitað hvað gerðist eða hvað orsak-
aði að svona ungur maður fékk hjartastopp. „Þegar ég kom hlaupandi
niður sá ég konuna halda á því sem mér fannst vera lík. Hann bara stein-
lá.“ Halldór Elfar getur þakkað skjótum viðbrögðum og skyndihjálpark-
unnáttu Jóhannesar að ekki fór verr.
„Ég var sem betur fer nýbúinn að fara á skyndihjálparnámskeið. Olíu-
dreifing býður okkur að fara á svoleiðis námskeið, þannig að ég var búinn
að læra hjartahnoð.“
Nýdönsk
hneykslaði fram-
haldsskólanema
n Nemendur og skólayfirvöld Menntaskól-
ans á Akureyri hafa lagt fram kvörtun við
umboðsskrifstofuna Prime vegna ástands
tveggja meðlima hljómsveitarinnar Ný-
danskrar, sem lék fyrir dansi á árshátíð
skólans á dögunum. Þetta stað-
festi Jón Már Héðinsson skóla-
meistari í samtali við DV. Hann
sagði jafnframt að bæði skólayf-
irvöld og nemendur væru mjög
ósátt vegna framkomu meðlima
hljómsveitarinnar. „Það voru þarna með-
limir hljómsveitarinnar sem virtust vera undir einhvers konar áhrifum. Það
virtist vera sem Björn Jörundur væri annar af þeim og svo gítarleikari sem
var þarna með þeim. Þetta var vímulaus árshátíð og þetta er náttúrulega
niðurlægjandi fyrir þá sem eru heiðvirðir í svona hljómsveitarbransa að
kollegar þeirra hafi ekki manndóm eða þroska til að koma fram á vímu-
lausum samkomum. Þannig að við erum auðvitað mjög ósátt við það, þeg-
ar svo virðist vera sem hljómsveitarmeðlimir séu í þannig ástandi,“ sagði
Jón Már.
Sloppin frá
New York
n Máli slitastjórnar Glitnis á hendur Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni og viðskiptafélög-
um hans var vísað frá í New York. George
Ramos, dómari í málinu, taldi einungis lít-
inn hluta málsins ná til New York og að sá
hluti væri of lítill til að réttlætanlegt væri
að flytja málið fyrir dómstól-
um þar. Hann vísaði málinu frá
dómi í New York á þriðjudag.
„Hvernig get ég réttlætt það
að mál gegn íslenskum aðilum
og íslensku fyrirtæki sé flutt fyrir dóm-
stólum hér? Hvernig get ég réttlætt það
fyrir bandarískum skattborgurum sem
greiða mér laun?“ sagði Ramos dómari við réttarhaldið.
Dómari í málinu féllst á þau rök verjenda hópsins að málið ætti heima
fyrir íslenskum dómstólum þar sem málsaðilar væru allir íslenskir og
Glitnir hefði verið íslenskt fyrirtæki.
2
3
1
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
13.–14. desember 2010 144. tbl. 100. árg. leiðb. verð 395 kr. Mánudagur og þriðjudagur
n „Manndráps-
tilraun,“ segir
faðir piltsins
n Sautján ára fóstursonur fékk hjarta-
stopp um helgina n Jóhannes var ný-
búinn að læra skyndihjálp á námskeiði
Fjórtán ára barinn með golfkylfu á Arnarhóli:
„Skelfilegur
atburður“
FÓLKIÐ SEM BREYTIR STJÓRNARSKRÁNNI
Fréttir 11n Rétt viðbrögð ráða úrslitum
„VIÐ ERuM
JÓLABöRN“
Jólahlaðborð Vítisenglanna í Hafnarfirði:
endurskoðendur:
Fréttir 10
Neytendur 14–15
n Nemendum
gróflega misboðið
SKÓLA-
MEISTARI
KVARTAR
YFIR BIRNI
JÖRUNDI
Fréttir 4
Fréttir 6
leyndu hlut
björgólfs í
bankanum
Hittast
eftir 40 ár
n Litla stúlkan og
fyrsti nýrnagjafinn
Viðtal 22
Fréttir 3
bestu spilin
þessi jólin
Jóhannes á fóðurbílnum:
Bjargaði lífi
sonar síns
má ekki vera sá Sjálfstæðisflokkur sem
neitar að gera upp hrunið. Þannig að
Alþingi er fyllilega sá vettvangur þar
sem öll stjórnmálastéttin á Íslandi þarf
að koma saman og ræða þessi mál sem
önnur,“ sagði Þór Saari.
Fréttir | 3
Miðvikudagur 15. desember 2010
Flokkurinn þarf uppgjör „Hann gerði
tilraun til að gera hér upp hrunið fyrir um
einu og hálfu ári síðan og var hrakinn heim
með það aftur af Davíð Oddssyni sem nú
situr í Hádegismóum,“ sagði Þór Sari.
Mynd Sigtryggur Ari
Engar njósnir nú „Ég veit það þó að þær
eru allavega ekki viðhafðar núna, allavega
ekki þannig að mér sé kunnugt um það,“
sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir.
n Máli slitastjórnar glitnis gegn Jóni Ásgeiri og viðskiptafélögum vísað
frá n dómarinn gat ekki réttlætt málareksturinn fyrir bandarískum
skattborgurum n Lögmaður Jóns Ásgeirs ánægður með niðurstöðuna
George Ramos, dómari í máli slita-
stjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni og viðskiptafélögum
hans, taldi einungis lítinn hluta
málsins ná til New York og að sá
hluti væri of lítill til að réttlætan-
legt væri að flytja málið fyrir dóm-
stólum í New York. Hann vísaði
málinu frá dómi í New York í gær.
„Hvernig get ég réttlætt það að
mál gegn íslenskum aðilum og ís-
lensku fyrirtæki sé flutt fyrir dóm-
stólum hér? Hvernig get ég réttlætt
það fyrir bandarískum skattborg-
urum sem greiða mér laun?“ sagði
Ramos dómari við réttarhaldið.
tvö skilyrði dómarans
Máli slitastjórnar Glitnis gegn Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni, Pálma Har-
aldssyni, Þorsteini Jónssyni, Ingi-
björgu Pálmadóttur, Jóni Sigurðs-
syni, Hannesi Smárasyni, Lárusi
Welding og PwC á Íslandi var sem
fyrr segir vísað frá dómstólum í
New York. Dómari í málinu féllst á
rök verjenda hópsins um að mál-
ið ætti heima fyrir íslenskum dóm-
stólum þar sem málsaðilar væru
allir íslenskir og Glitnir hefði verið
íslenskt fyrirtæki.
Dómarinn setti tvö skilyrði
sem hann vildi fá skrifleg frá
stefndu. Hann vildi að þeir skrif-
uðu upp á skjal þess efnis að allir
myndu mæta í réttarsal á Íslandi
og myndu ekki mótmæla lög-
sögu íslenskra dómstóla í málinu.
Í öðru lagi setti hann það skilyrði
að stefndu lýstu því yfir að þau
myndu ekki mótmæla því að dóm-
ur sem félli á Íslandi væri aðfarar-
hæfur í New York og vísaði dómar-
inn þá til eigna stefndu í New York.
Málið átti heima í new york
vegna skuldabréfaútgáfu
Michael C. Miller, aðallögmaður
slitastjórnar Glitnis, færði fram
ýmis rök fyrir því að mál slitastjórn-
arinnar ætti heima fyrir dómstólum
í New York. Sagði hann til dæmis
að skuldabréfaútgáfa Glitnis í New
York haustið 2007 hefði verið fram-
kvæmd til að fjármagna lánveiting-
ar til Jóns Ásgeirs og viðskiptafé-
laga hans. Michael C. Miller sagði
að með þessari skuldabréfaútgáfu
hefði þessi fjáröflun gert Jóni Ás-
geiri og félögum kleift að halda
áfram að ræna Glitni innan frá.
„Og þessir einstaklingar komu
til New York til að kynna skulda-
bréfaútgáfuna fyrir hugsanlegum
fjárfestum og lögðu fram rangar
upplýsingar til fjárfesta – skýrslur
unnar af endurskoðunarfyrirtæk-
inu PwC gáfu ekki rétta mynd af
stöðu Glitnis á þeim tíma,“ sagði
hann fyrir dómi í New York.
Lögmaður Jóns Ásgeirs
ánægður
Lögmaður PwC sagði fyrir dómi
að íslenskir stjórnendur PwC á Ís-
landi væru tilbúnir að mæta fyrir
dómstóla á Íslandi.
Stephen P. Younger, aðallög-
maður Jóns Ásgeirs og félaga, sagð-
ist í samtali við DV vera ánægður
með niðurstöðu dómstólsins fyrir
hönd skjólstæðinga sinna.
„Ég er ánægður með að dóm-
arinn hafi úrskurðað að þetta mál
ætti að flytja fyrir íslenskum dóm-
stólum. Þarna er um íslenskt fyrir-
tæki að ræða og Íslendinga og því
engin ástæða til að flytja málið
fyrir dómstólum hér í New York,“
sagði Stephen.
Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar Glitnis, sagðist
að vissu leyti óánægð með úrskurð
dómarans. „Það er alveg ljóst að
við munum fylgja þessu máli eftir
og fyrst það var niðurstaða dóm-
stóla hér að málið ætti ekki heima
í New York þá munum við taka það
áfram annars staðar. Það er langt í
frá að þessu sé lokið,“ sagði Stein-
unn.
„Hvernig get ég
réttlætt það
að mál gegn íslensk-
um aðilum og íslensku
fyrirtæki sé flutt fyrir
dómstólum hér?
Jóhannes Kr. Kristjánsson
skrifar frá New York johanneskr@dv.is
„Langt í frá að
þessu sé lokið“
Vísað frá Steinunn
Guðbjartsdóttir og
Páll Eiríksson úr
slitastjórn Glitnis fyrir
framan dómhúsið í
New York ásamt
bandarískum
lögmönnum
slitastjórnarinnar.
Lögmaður Jóns Ásgeirs Stephen P. Younger, aðallögmaður stefndu, var ánægður með niðurstöðuna.
mYNDiR JóHaNNES KR. KRiStJÁNSSON
„Stórfellt
njóSnap ógramm“
reiðir borgarar Valhöll, höfuðstöðvar
Sjálfstæðisflokksins, voru ataðar
málningu í kjölfar bankahrunsins. Þór
Saari segir að flokkurinn verði að gera upp
persónunjósnir og bankahrun.
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
Þetta helst
n 25 ára barnshafandi í níu mánuði án þess að vita af því
n Barnið kom henni í opna skjöldu n Fæddi barnið heima með
hjálp meðleigjanda síns n Ættingi segir fæðinguna kraftaverk
Hitt málið
Verð aðeins 17.950 krónur
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
• Shiatsu nudd
• Infrarauður hiti
• Titringur
• Fjarstýring
Fjölnota
nuddpúði
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
4 | Fréttir 13. desember 2010 M
ánudagur
Lesendum DV gefst kostur á að tilnefna hetju ársins 2010:
Hetja ársins hjá DV
Hetja ársins hjá DV verður nú valin í
þriðja sinn. Lesendur eru beðnir um
að senda nafn eða nöfn þeirra sem
þeim finnst verðugir þess að bera
nafnbótina hetja ársins 2010 fyrir
eitthvað sem viðkomandi afrekuðu á
árinu sem nú er senn á enda.
Allir Íslendingar og þeir sem búa
hér á landi koma til greina í valinu
og er öllum frjálst að senda inn til-
nefningar. Engu skiptir hvort fólk er
þjóðþekkt, minna þekkt eða alls ekk-
ert þekkt; ríkt, fátækt eða þar á milli;
útrásarvíkingur, fiskverkakona eða
meindýraeyðir – allir eru gjaldgeng-
ir í kjörinu. Ef viðkomandi hefur ekki
komist í fréttirnar fyrir afrek sitt verð-
ur að fylgja með lýsing á því hvern-
ig hinn tilnefndi lét gott af sér leiða
á árinu. Ritstjórn DV velur hetjuna
og tekur þar mið af innsendum til-
nefningum, án þess þó að vera alfar-
ið bundin af því að velja hetjuna úr
hópi tilnefndra.
Bæði er hægt að senda tilnefning-
ar á netfangið hetjaarsins@dv.is og á
DV ehf. Tryggvagötu 11, 101 Reykja-
vík. Skilafrestur er til miðnættis 21.
desember en niðurstaða kosningar-
innar verður kunngjörð í kringum
áramótin.
Hetjur ársins hjá DV í fyrra Svava Snæberg og Sigurður Betúel Andrésson.
Handteknir fyrir húsbrot:
Ruddust vopn-
aðir inn á heimili
Þrír menn voru handteknir aðfara-
nótt sunnudagsins fyrir aðild að
vopnuðu ráni. Einn var handsamað-
ur við Rauðavatn en hinir tveir á Sel-
fossi. Mennirnir brutust inn á heim-
ili á Selfossi og ógnuðu heimilisfólki
og gestum með hnífum. Þeir höfðu á
brott með sér þýfi, en engan sakaði.
Mennirnir höfðu að sögn fréttastofu
RÚV á brott með sér tölvu og önn-
ur verðmæti. Lögreglan hóf leit að
mönnunum í gærkvöldi, en skömmu
eftir ránið sást til þeirra í bifreið á
Selfossi. Mennirnir yfirgáfu bifreið-
ina og komust undan lögreglu á
hlaupum. Upphófst þá víðtæk leit að
mönnunum.
Lögreglan handsamaði tvo þeirra
á Selfossi, en hinn þriðja við Rauða-
vatn. Þýfið fannst á Selfossi. Menn-
irnir þrír gistu allir fangageymslur á
Selfossi um nóttina, og voru þeir yf-
irheyrðir á sunnudag. Þeir hafa allir
þrír komið áður við sögu lögreglu.
Lögreglan á Selfossi naut aðstoð-
ar sérsveitar ríkislögreglustjóra og
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
við leitina að mönnunum.
Leiðinleg
gjaldeyrishöft
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri segir að framkvæmd gjald-
eyrishafta á Íslandi sé í hópi leið-
inlegustu verkefna sem hann hafi
tekið að sér á starfsferli sínum.
Már var gestur í Sprengisandi á
Bylgjunni á sunnudaginn. Hann
sagði hins vegar rétt sem fram
hefur komið í máli hagfræðinga
og hagsmunasamtaka að gjald-
eyrishöftin væru í raun skaðleg
fyrir viðskiptalífið og skaðinn
muni aukast með tímanum. Már
sagði hins vegar nauðsynlegt að
viðhalda gjaldeyrishöftunum í
einhvern tíma áfram.
Nemendur og skólayfirvöld
Menntaskólans á Akureyri hafa lagt
fram kvörtun við umboðsskrifstof-
una Prime vegna ástands tveggja
meðlima hljómsveitarinnar Ný-
danskrar, sem lék fyrir dansi á árs-
hátíð skólans á dögunum. Þetta
staðfestir Jón Már Héðinsson skóla-
meistari í samtali við DV. Hann seg-
ir jafnframt að bæði skólayfirvöld
og nemendur séu mjög ósátt vegna
framkomu meðlima hljómsveitar-
innar. „Það voru þarna meðlimir
hljómsveitarinnar sem virtust vera
undir einhvers konar áhrifum. Það
virtist vera sem Björn Jörundur væri
annar af þeim og svo gítarleikari
sem var þarna með þeim. Þetta var
vímulaus árshátíð og þetta er nátt-
úrulega niðurlægjandi fyrir þá sem
eru heiðvirðir í svona hljómsveitar-
bransa að kollegar þeirra hafi ekki
manndóm eða þroska í að koma
fram á vímulausum samkomum.
Þannig að við erum auðvitað mjög
ósátt við það, þegar svo virðist vera
sem hljómsveitarmeðlimir séu í
þannig ástandi,“ segir Jón Már.
Nemendum gróflega
misboðið
Jón Már segir ástand meðlima
hljómsveitarinnar þó ekki hafa ver-
ið mælt með áfengis- eða vímuefna-
mæli. Hann tekur einnig fram að
hann hafi ekki orðið vitni að vímu-
efnaneyslu umræddra meðlima
hljómsveitarinnar. „Þetta er bara
það sem augað sér en ég get ekki
sannað eitt eða neitt,“ segir hann.
Í þeim samningi sem gerður var
við Nýdanska kom skýrt fram að
hátíðin væri með öllu vímuefna-
laus og að öllum bæri að virða það.
Meðlimum hljómsveitarinnar hefði
því átt að vera það ljóst frá upphafi
að neysla áfengis væri ekki liðin á
skemmtuninni. Jón Már segir að
nemendum hafi verið gróflega mis-
boðið. „Nemendur leyfa sér þetta
ekki og leggja metnað sinn í að hafa
þetta með öllu vímuefnalaust. Þess
vegna fannst nemendum þetta
óvirðing við sig og voru bara reiðir
og sárir yfir því að það skyldi koma
fullorðið fólk og haga sér með þess-
um hætti.“
Dönsuðu gömlu
dansana í staðinn
Skólameistarinn segir árshátíð
skólans hafa tekist sérlega vel að
öllu öðru leyti. Allir hafi reynt að
gera það besta úr hlutunum þrátt
fyrir að Nýdönsk stæðist ekki
væntingar. „Það segir sína sögu
að það var annars staðar í hús-
inu verið að spila undir gömlum
dönsum. Þar voru miklu fleiri að
skemmta sér en nokkurn tíma
þarna fyrir framan hljómsveitina.
Ekki það að það hefur alltaf verið
góð þátttaka í gömlu dönsunum,
en það er sama, það hefur oftast
verið þannig að þetta hefur skipst
til helminga. Nú var alveg troðið á
gömlu dönsunum enda ekkert upp
á að bjóða á hinum staðnum.“ Jóni
Má finnst mjög slæmt að reynd-
ir tónlistarmenn ráði ekki við að
spila á skemmtun þar sem fólk er
allsgáð. „Nú eru í þessari hljóm-
sveit vandaðir tónlistarmenn eins
og Jón Ólafsson sem hefur mjög
gott orð á sér og er vandaður í hví-
vetna. Það er leiðinlegt fyrir hann
að lenda í svona slagtogi og þetta
setur hljómsveitina verulega nið-
ur,“ segir Jón Már að lokum.
DV hafði samband við Björn
Jörund sem brást ókvæða við
spurningum blaðamanns og þver-
tók fyrir að hafa verið undir áhrif-
um á árshátíð Menntaskólans á
Akureyri.
„Þess vegna
fannst nemend-
um þetta óvirðing við
sig og voru bara reiðir
og sárir yfir því að það
skyldi koma fullorðið
fólk og haga sér með
þessum hætti.
Kvarta yfir
Nýdanskri
n Kvartað yfir framkomu tveggja meðlima Nýdanskrar
n Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir nemendum
misboðið n „Virtust vera undir einhvers konar áhrifum“
Jón Már Héðinsson Skólameistari
segir nemendum skólans hafa verið
gróflega misboðið vegna framkomu
hljómsveitarinnar.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Björn Jörundur Friðbjörnsson
Nemendur og skólayfirvöld í MA eru
mjög ósátt við framkomu hljóm-
sveitarinnar Nýdanskrar á árshátíð
skólans á dögunum. Skólameistari
segir að tveir meðlimir hafi virst vera
í annarlegu ástandi.
Nýdönsk Spilaði á árshátíð
Menntaskólans á Akureyri.
25 ára íslensk kona sem búsett er í
Reykjavík gekk með barn undir belti
í níu mánuði án þess að gera sér grein
fyrir því að hún væri ólétt, samkvæmt
heimildum DV. Konan eignaðist
barnið, litla stúlku, á heimili sínu í
Reykjavík þann 29. nóvember síðast-
liðinn.
Þennan dag, 29. nóvember, leið
konunni eitthvað einkennilega og
brá sér því á salernið á heimili sínu.
Þá mun konan loksins hafa áttað
sig á því að hún væri með barni og
að komið væri að því að fæða það í
heiminn. Konunni gafst enginn tími
til að fara á sjúkrahús og fæða barnið
með hjálp ljósmóður og læknis eins
og venjan er. Þess í stað fæddi hún
barnið heima hjá sér.
DV hefur reynt að ná tali af kon-
unni til að ræða við hana um þessa
óvenjulegu fæðingu. Foreldrar stúlk-
unnar segja hins vegar að konan ætli
sér ekki að ræða fæðinguna og að-
draganda hennar í fjölmiðlum. Móð-
urinni og stúlkunni litlu mun þó báð-
um heilsast vel eftir því sem DV kemst
næst. „Þetta var kraftaverk en við vilj-
um ekki ræða um það í fjölmiðlum,“
segir annað foreldrið í samtali við DV.
Umrætt tilfelli er þeim mun ótrú-
legra þar sem móðirin er alls ekki
þéttholda heldur fremur grannvax-
in. Yfirleitt eru þær konur sem fæða
börn með þessum hætti fremur þétt-
vaxnar og stórgerðar en þá hylur hold
þeirra frekar barnið sem þær bera
undir belti og leynir óléttunni fyrir
umheiminum. Svo mun ekki hafa
verið í þessu tilfelli.
Meðleigjandinn klippti á
naflastrenginn
Konan mun þó ekki hafa fætt barn-
ið á heimili sínu ein og óstudd. Þeg-
ar hún áttaði sig á því að krankleiki
hennar stafaði af því að hún væri að
því komin að ala barn bað hún með-
leigjanda sinn um aðstoð. Meðleigj-
andi hennar, 26 ára karlmaður, að-
stoðaði konuna við að fæða barnið og
klippti meðal annars á naflastrenginn
eftir að barnið var komið í heiminn,
samkvæmt heimildum DV.
Móðurinni og stúlkunni litlu mun
báðum heilsast vel eftir því sem DV
kemst næst. Mæðgurnar eru farnar
austur á land til fjölskyldu móður-
innar yfir hátíðarnar en hún er ættuð
þaðan. Konan mun hafa tekið fæð-
ingunni af stillingu og grínast með
málið á Facebook-síðu sinni. Með-
al þess sem hún mun hafa sagt er að
hún hafi ólm viljað fjölga íbúunum í
litla plássinu á Austurlandi sem hún
er ættuð frá og þar sem fjölskylda
hennar býr.
Gerist einu sinni á ári
Ungur læknir sem DV ræddi við sem
unnið hefur á fæðingardeild segir að
það sé afar sjaldgæft að konur gangi
með barn undir belti í níu mánuði án
þess að gera sér grein fyrir því. Lækn-
irinn segir því til stuðnings að á þeim
tólf mánuðum sem hann starfaði á
fæðingardeild Landspítalans muni
hann ekki eftir því að slíkt tilfelli hafi
komið upp. Hann segir jafnframt að
muna verði eftir að aðskilja þessi til-
felli og tilvik þar sem kona leitar sér
læknisaðstoðar vegna kviðverkja sem
síðan kemur í ljós að orsakast af því
að hún er með barni.
Reynslumikill fæðingarlækn-
ir sem DV spurði líka um málið seg-
ir hins vegar að hans tilfinning sé sú
að það komi upp tilfelli sem þetta,
þar sem kona fæðir barn án þess að
hafa áttað sig á því meðan á með-
göngunni stóð að hún væri ólétt, um
það bil einu sinni á hverju ári. Fæð-
ingarlæknirinn undirstrikar þó að
þetta mat sé einungis byggt á tilfinn-
ingu hans en ekki vísindalegri athug-
un eða rannsókn.
Tvö þekkt dæmi
Tvö slík tilfelli hið minnsta hafa rat-
að í fjölmiðla hér á landi á síðustu
árum og áratugum eftir því sem DV
kemst næst. Fyrra tilfellið var þeg-
ar ung stúlka eignaðist barn í fram-
haldsskóla á landsbyggðinni fyrir um
25 árum. Sú stúlka gerði sér ekki grein
fyrir því að hún væri ólétt en eftir því
sem DV kemst næst var hún nokkuð
þéttvaxin.
Önnur slík fæðing átti sér stað
fyrir nokkrum árum og var greint frá
henni í fjölmiðlum. Þá fór ung stúlka
á salernið og eignaðist þar barn en
hún hafði sömuleiðis verið grunlaus
um eigin óléttu fram að því.
Fæddi barn sem
hún vissi ekki um
„Þetta var krafta-
verk en við viljum
ekki ræða um það í fjöl-
miðlum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Vissi ekki að hún væri
ólétt 25 ára kona fæddi
stúlkubarn í Reykjavík í lok
nóvember. Hún vissi ekki
að hún væri ólétt fyrr en
rétt áður að fæðingin fór af
stað. Myndin tengist efni
fréttarinnar ekki beint.