Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Page 4
4 | Fréttir 17.–19. desember 2010 Helgarblað Tveir Íslendingar dæmdir í fangelsi fyrir kókaínsmygl: Síbrotamaður í fangelsi á Spáni Opnunartími virka daga 12-18 laugardag 12-16 Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040 LAGERSALA www.xena.is Gönguskór St. 36-46 Verð áður 14.995 Verð nú 9.995 Héraðsdómur í Madríd á Spáni hef- ur dæmt tvo Íslendinga, þau Ein- ar Örn Arason, 19 ára, og Sólveigu Svanhildi Jónsdóttur, 20 ára, í sex ára fangelsi fyrir kókaínsmygl. Þetta kemur fram á fréttavef RÚV en Einar og Sólveig voru handtekin á flugvellinum í Madríd fyrir réttu ári, þann 16. desember 2009. Þau komust að samkomulagi við sak- sóknara um lágmarksrefsingu gegn því að játa brot sín. Íslendingarnir voru í raun dæmdir í níu ára fangelsi en vegna lagabreytinga sem í þessu tilfelli eru afturkræfar og taka gildi þann 23. desember næstkomandi er dóm- urinn mildaður. Í frétt RÚV kemur fram að dómurinn hafi ekki lagst gegn því að þau afpláni dóma sína hér á landi. Parið var með mörg kíló af kókaíni í fórum sínum þegar það var handtekið við komuna til Spán- ar frá Perú. Einar Örn hefur magsinnis kom- ið við sögu lögreglu hér á landi. Í lok síðasta árs var hann ákærður fyrir 43 afbrot sem framin voru frá septem- ber 2008 og fram á haust 2009. Meðal afbrota sem Einar var ákærður fyrir var þjófnaður á flatskjám, farsímum, dekkjum og rakspíra. Þá var hann ákærður fyrir líkamsárás í Engihjalla í fyrrasumar. Meðal annarra brota sem hann var ákærður fyrir, má nefna hann náðist ellefu sinnum á myndavél þar sem hann dældi bensíni á bíl sinn án þess að greiða fyrir. Í mörgum þess- ara tilvika hafði hann skipt um núm- eraplötur á bílunum. Þá hefur hann oft verið handtekinn fyrir fíkniefna- lagabrot, vopnalagabrot og umferð- arlagabrot. Sjálfboðaliðar vinna fyrir Sólheima: „Ná ekki andanum af hrifningu“ Vinir Sólheima er hópur fólks sem vinnur þessa dagana í sjálboðaliða- vinnu allan sólarhringinn við reyna að styrkja starfsemi Sólheima. Hópur- inn hefur sett upp jólamarkað í kjall- ara Iðu-hússins þar sem til sölu eru meðal annars listmunir gerðir af heimilsfólki á Sólheimum. Edda Björg- vinsdóttir leik- kona er í forsvari fyrir hópinn. Hún segir mikilvægt að starfsemin á Sól- heimum haldist í óbreyttri mynd. „Þetta er svo sérstakt og hefur heppn- ast svo vel,“ segir Edda. „Á hverju sumri er ég þarna eins mikið og ég mögulega get og það koma þarna alls konar prófessorar og doktorar alls staðar að úr heiminum og þeir ná ekki andanum af hrifningu yfir þessu ein- staka fyrirbæri sem á engan sinn líka.“ Hún segir helsta áhyggjuefnið vera að rekstarformið verði öðruvísi því þá sé hugmyndin, sem lagt var af stað með í upphafi, ónýt. Edda segir að ef Sólheimar verði gerðir að venjulegu sambýli þá verði það óbætanlegur skaði því þetta fólk eigi að hafa val. „Maður getur ekki annað en skorað á þá aðila sem taka við þessu að kynna sér starfsemina algjörlega í þaula til að sjá dýrgripinn sem þarna er.“ Edda Björgvins- dóttir Tveggja milljarða skuldir Eignarhaldsfélagið 7 hægri, einka- hlutafélag Kristjáns Arasonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Kaupþings, var úrskurðað gjaldþrota í Héraðs- dómi Reykjaness í síðustu viku. Lánasamningar félagsins eru allir í erlendri mynt og nema 2,1 millj- arði króna. Þetta kom fram í Fréttablaðinu á fimmtudag. Helgi Birgisson, lög- maður og skiptastjóri búsins, segir að engar eignir séu í búinu upp í skuldir. Skilanefnd Kaupþings er eini kröfuhafinn og hefur tvo mán- uði til að lýsa kröfum í búið. DV fjallaði mikið um málið í kjölfar efnahagshrunsins. Skuld- ir félagsins eru tilkomnar vegna láns sem Kristján tók til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi árið 2006. Um mitt ár 2006 námu lánveiting- ar Kaupþings til hans tæpum níu hundruð milljónum króna.  Fíkniefni Einar Örn og Sólveig Svanhildur voru með mörg kíló af fíkniefnum á sér. „Það þarf reyndar að hafa í huga að ekki þarf að breyta forsendum mik- ið til að þessi ávinningur verði lítill sem enginn,“ segir Þórólfur Matthí- asson hagfræðiprófessor um mis- muninn á þeim samningi um Ice- save-skuldbindingarnar sem nú liggja fyrir Alþingi og þeim samn- ingi sem borinn var undir atkvæði þjóðarinnar snemma árs í þjóðarat- kvæðagreiðslu. „Það er ekki vandalaust að bera samningana saman sem kalla mætti Icesave II og Icesave III. Það staf- ar meðal annars af því að þungi greiðslna samkvæmt nýja samningn- um fellur til fyrir árið 2016 en í eldri samningi og í því tilboði sem barst viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna var gert ráð fyrir að greiðsluþung- inn yrði eftir árið 2016. Það þarf því að beita núvirðingu til að bera samn- ingana saman,“ segir Þórólfur. 22 milljarða ávinningur Sé miðað við að endurheimtur úr búi Landsbankans dugi fyrir 90 prósent- um af forgangskröfum og ef miðað er við 6 prósenta reiknivexti er niður- staðan sú að mati Þórólfs að núvirtur kostnaður vegna Icesave II hafi ver- ið 190 milljarðar króna. Endurbætt- ur hefði kostnaðurinn numið 140 milljörðum króna. „Núvirtur kostn- aður vegna Icesave III – sem kennd- ur er við Lee Buchheit – nemur 138 milljörðum króna, en 118 milljörð- um ef tekið er tillit til eigna Trygg- ingarsjóðsins núna. Ávinningurinn af starfi samninganefndarinnar frá því eftir þjóðaratkvæðagreiðslu er þess vegna 22 milljarðar króna. Það er umtalsverður árangur, þó ekki sé hann eins mikill og Lee Buchheit hélt fram.“ Herkostnaðurinn Heildarskuldir þjóðarbúsins nema nú landsframleiðslunni í tvö ár, seg- ir Þórólfur. „Við getum gert ráð fyrir að það vantraust, sem erlendir fjár- festar hafa fengið á öllu því sem ís- lenskt er í kjölfar synjunar forseta Íslands á samningnum, endurspegl- ist í 50 punkta aukaáhættuálagi á lán til Íslands. Gerum jafnframt ráð fyrir að það taki 5 til 6 ár fyrir okkur að endurvinna traust á mörkuðum. Að þessu gefnu er kostnaðurinn að- eins vegna þessa 50 til 60 milljarð- ar króna. Við sjáum líka að það er mjög erfitt að laða erlenda fjárfesta til landsins. Írar eru í svipaðri stöðu og við en virðast ekki eiga í erfiðleik- um með þetta atriði. Verum varfærin og gerum ráð fyrir að hagvöxtur hér sé 1 prósenti minni í ár en verið hefði með Icesave-málin frágengin. Ger- um líka ráð fyrir að áhrifanna gæti á næsta ári og inn á það þarnæsta. Var- færið mat er að þjóðarbúið tapi tekj- um sem svara 30 til 40 milljörðum króna vegna þessa.“ Þórólfur segir að viðmið ráði því hversu mikill kostnaðurinn er vegna tafa á samningum um Icesave. „Ef við berum saman Icesave II og III og drögum frá kostnaðinn vegna hærra vaxtaálags og tapaðs hagvaxtar er nettókostnaðurinn um 10 til 30 millj- arðar króna. Ef við berum saman þann samning sem stóð til boða vik- una fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og Icesave III þá er kostnaðurinn af því að hafa ekki gengið frá málinu um 60 til 80 milljarðar króna. Taka ber fram að allar þessar tölur eru háðar for- sendum um endurheimtuhlutfall og eins forsendu um 6 prósenta reikni- vexti.“ Að gera ekkert Þórólfur segir að einn kosturinn í stöðunni nú sé að gera ekki neitt og bíða dómsniðurstöðu. Sumir bendi á stækkandi gjaldeyrisvarasjóð og ekki sé sama nauðsyn og áður á að hafa aðgang að erlendum fjármála- stofnunum. Þetta telur Þórólfur þó geta verið hættuspil fyrir fjármögn- un íslenskra fyrirtækja og stofnana. „Gleymum því ekki að stoðtækja- fyrirtækið Össur, sem var um þriðj- ungur verðmætis Kauphallarinn- ar, er farið til útlanda og hætt við að aðrir fari sömu leið. Gleymum ekki heldur að fyrirtæki á borð við Orku- veitu Reykjavíkur eru í verulegri þörf fyrir endurfjármögnun sinna lána. Enn fremur gætum við gleymt því að fleyta krónunni næstu 5 til 10 árin og það myndi mjög líklega leiða til þess að okkur yrði sparkað út úr EES-sam- starfinu. Yrði það raunin þá er víst að sá hagvöxtur sem við erum loksins farin að sjá myndi örugglega fjara út.“ Að fella samninginn Annar kostur er að fella samkomu- lagið og freista þess að ná betri samningi. „Við sjáum að árangurinn frá mars til desember var 22 millj- arðar króna gegn því að við tökum á okkur frekar óheppilegan greiðslu- feril. Ég á ekki von á að hægt verði að kreista meira út úr þessu eins og Lee Buchheit hefur lýst. Ef lækka á kostnaðinn hækkar hann hjá Bret- um og Hollendingum. Bretar yrðu að hækka skólagjöld í skólum sínum og draga enn meira úr fjárveitingum til heilbrigðiskerfisins. Sama á við í Hollandi. Hví skyldu þeir vilja það? Og hverjir ættu að sitja í samninga- nefndinni? Varla fengjust aðrir til þess en formenn stjórnarandstöðu- flokkanna. Ég sé ekki neinn ann- an kost í stöðunni en þann að sam- þykkja samninginn eins og hann er og reyna að fara að vinna að því að bæta orðspor landsins erlendis.“ „Ekkert hægt að kreista meira út“ n Ávinningurinn af töfinni á samningum um Icesave er hugsanlega 22 milljarðar króna n Ég á ekki von á að hægt verði að kreista meira út úr þessu eins og Lee Buchheit hefur lýst, segir hagfræðiprófessor n Kostnaður vegna tafa skiptir tugum milljarða króna Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is „Ávinningurinn af starfi samninga- nefndarinnar frá því eftir þjóðaratkvæðagreiðslu er þess vegna 22 milljarð- ar króna. Það er umtals- verður árangur, þó ekki sé hann eins mikill og Lee Buchheit hélt fram. Tekjutap vegna Icesave „Varfærið mat er að þjóðarbúið tapi tekjum sem svara 30 til 40 milljörðum króna vegna þessa,“ segir Þórólfur Matthíasson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.