Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Page 16
16 | Fréttir 17.–19. desember 2010 Helgarblað
Einar Már Kristjánsson lést árið
2009 eftir að hafa tekið of stór-
an skammt af morfíni. Einar barð-
ist við þunglyndi frá unga aldri en
hann var misnotaður kynferðislega
af nágranna sínum þegar hann var
sjö ára gamall. Móðir Einars, Ólöf
Jónsdóttir Pitts, reynir nú að safna
fyrir legsteini fyrir son sin með því
að selja ljóðabækurnar hans. Ein-
ar fann huggun í ljóðaskrifum og
tjáði tilfinningar sínar, bæði reiði og
gleði, í gegnum ljóðin. Ólöf stendur
ein í baráttunni fyrir því að minning
sonar hennar verði varðveitt. „Ég
geri þetta allt sjálf. Ég er bara ein í
þessu öllu saman,“ segir Ólöf.
Misnotaður
Einar var misnotaður kynferðislega
þegar að hann var aðeins sjö ára
gamall. Maður sem bjó í sömu blokk
og hann misnotaði hann. Ólöf móð-
ir hans segir að hann hafi aldrei náð
sér eftir það og strax þá hafi hann
byrjað að fjarlægjast. „Hann beið
þess aldrei bætur,“ segir Ólöf. „Hann
var misnotaður sjö ára gamall. Við
bjuggum á fyrstu hæðinni í Írabakk-
anum og þessi maður bjó á þriðju
hæð. Ég var að vinna á elliheimilinu
Grund og vinkona mín var að passa
hann. Svo kemst ég að því, eða Ein-
ar fer að segja mér hvað hann gerði.“
Ólöf tilkynnti málið til lögreglunnar
en manninum sem Einar sakaði um
misnotkun var sleppt. Maðurinn
flutti aftur inn í húsið eftir að hon-
um var sleppt en Ólöf hafði ekki tök
á því að flytja með son sinn í burtu
fyrr en tveimur árum síðar.
Lítið samband
Samband Einars við föður sinn var
lítið segir Ólöf. Allt frá því að hann
var lítill vildi faðir hans lítið eiga
samskipti við hann þrátt fyrir að
Einar hafi sjálfur leitað eftir því, seg-
ir hún. Samskiptin bötnuðu ekki
með árunum en einu tengslin við
föðurfjölskylduna sem Einar hélt
var við föðurömmu sína og föður-
systur. Ólöf lýsir því að hann hafi
náð góðum tengslum við þær og
að þær hafi alltaf staðið með hon-
um. „Hann byrjaði bara sjálfur þeg-
ar að hann hafði vit, þá byrjaði hann
sjálfur að eiga samskipti við föður-
fólkið sitt, en hann var reyndar allt-
af í miklu sambandi við föðurömmu
sína.“
Samskipti hans við móðurfjöl-
skylduna voru betri, segir Ólöf. Ein-
ar náði miklum og góðum tengslum
við móðurömmu sína, sem Ólöf seg-
ir að hann hafi haldið mikið upp á.
Of stór skammtur
„Það var engin gleði, hann vildi ekki
lifa. Það var svo mikil sorg í hon-
um,“ segir hún um Einar eftir að
hann varð þunglyndur. „Hann gat
ekki unnið, átti erfitt með samskipti,
hann var kominn með félagsfælni
og hann var farinn að nota fullt af
lyfjum og vildi bara ekkert lifa leng-
ur.“ Ólöf lýsir því að Einar hafi ver-
ið langt leiddur í áfengisdrykkju og
lyfjamisnotkun en Einar lést eft-
ir að hafa tekið of stóran skammt
af morfíni. Eftir andlát Einars fann
hún heima hjá honum bréf, dagsett
2005, um að óhófleg drykkja væri að
skemma í honum lifrina. Ólöf seg-
ir líka að alls konar lyf hafi fundist í
líkama hans, eins og kókaín og am-
fetamín, þegar að hann var krufinn.
Ljóðabókin
„Ég ætla bara að koma þessari bók
Selur ljóðabækur fyrir
legsteini sonar síns
n Vill klára verkefni sonar síns n Dó eftir of stóran skammt af morfíni n Misnotaður í æsku og beið þess aldrei bætur n Safnar fyrir legsteini
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Ég ætla bara að
koma þessari bók
út. Ég ætla bara að skila
þessu verkefni sem hann
náði ekki að klára.
Með ömmu Einar átti gott samband við
móðurömmu sína Magneu Huldu Magnúsdóttur.
Ólöf Jónsdóttir Pitts „Hann byrjaði bara sjálfur
þegar að hann hafði vit til, þá byrjaði hann sjálfur að eiga
samskipti við föðurfólkið sitt, en hann var reyndar alltaf
í miklu sambandi við föðurömmu sína.“