Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Page 17
Fréttir | 17Helgarblað 17.–19. desember 2010
salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík
Salka / M
EL
Hagnýtar
og skapandi
Hlýtt og
notalegt
Hlýjar hendur seldist tvisvar upp á
síðasta ári. Nú er hún komin aftur –
endurbætt og í gormi til hagræðis.
Bókin er með 53 fallegum og frumlegum
vettlingauppskriftum
í öllum stærðum. Frábær
gjöf fyrir
hannyrðafólk
Dagatalsbókin Konur eiga orðið allan ársins
hring er komin út fjórða árið í röð. Hnyttnar og
uppbyggilegar hugleiðingar eftir orðheppnar konur
og frábærar myndskreytingar.
Skapandi, skemmtileg og falleg
skipulagsbók í dagsins önn.
– og árið
verður einstakt
Glæsileg
gjöf handa
öllum konum
Grunaður um að misnota lyfseðla fyrir ávanabindandi lyfjum:
Geðlæknir ákærður fyrir skjalabrot
Selur ljóðabækur fyrir
legsteini sonar síns
n Vill klára verkefni sonar síns n Dó eftir of stóran skammt af morfíni n Misnotaður í æsku og beið þess aldrei bætur n Safnar fyrir legsteini
út. Ég ætla bara að skila þessu verk-
efni sem hann náði ekki að klára,“
segir Ólöf um ljóðabókina en með
henni vildi Einar koma sjálfum sér
og ljóðum sínum á framfæri. Hún
segir að hann hafi tjáð sig um til-
finningar sínar í gegnum ljóðin og
að ljóðin hafi verið hans leið til segja
hvað honum fyndist. Einar gaf út
þrjár ljóðabækur um ævina en ljóð-
in byrjaði hann að skrifa strax ellefu
ára gamall. Ljóðin í bókum Einars
eru mörg hver mjög opinská og lýsa
djúpum og viðkvæmum tilfinning-
um. Í einu ljóðanna lýsir hann skoð-
un sinni á kynferðisofbeldi, sem
bæði hann og móðir hans sættu í
æsku.
Vill klára verkefnið
Eftir að Einar byrjaði að veikjast
fór hann að gefa út ljóðabækurnar.
Fyrsta bók hans kom út árið 1993.
„Hún er ekki beint falleg, Í myrkum
heimi,“ segir Ólöf en bókin er til-
einkuð henni. Næsta bók sem hann
gaf út kom út ári seinna en svo gaf
hann ekki út ljóðabók fyrr en árið
2005, og er það sú bók sem Ólöf er
að selja til að safna fyrir legsteinin-
um. Hún byrjaði sölu í fyrra en þá
náði hún að safna fyrir jólakrossi og
tveimur englum til að setja á leiðið
hans. Því var hins vegar stolið að-
eins stuttu eftir að hún hafði kom-
ið því fyrir og því hóf hún söfnunina
aftur. „Ég hætti ekki fyrr en ég klára
þetta verkefni fyrir hann.“
Magnús Skúlason læknir hefur verið
ákærður fyrir skjalabrot en hann er
sakaður um að hafa fengið lækna til
að skrifa upp á rítalín og amfetamín
fyrir einstaklinga án þeirra vitundar.
Það var síðan vinur Magnúsar sem
sótti lyfin í lyfjaverslun, en Magnús
er grunaður um að hafa notað lyfin
sjálfur. Um er að ræða 2.800 töflur af
rítalíni en ekki er vitað nákvæmlega
um hversu mikið af amfetamíni er
að ræða.
Þetta mál er sambærilegt því sem
kom upp í maí 2008 en þá var Magn-
úsi vikið frá störfum fyrir sömu sak-
ir, en hann hafði starfað sem yfir-
læknir réttargeðdeildarinnar að
Sogni. Þá var hann sagður hafa not-
að nöfn fyrrverandi fanga sem lík-
legt var að þyrftu á slíkum lyfjum að
halda. Hann var tímabundið sviptur
lækningaleyfi í kjölfarið en fékk það
til baka að hluta til fyrir um það bil
ári. Það þýðir að hann má starfa sem
læknir og hefur leyfi til að skrifa upp
á öll lyf önnur en þau sem eru eftir-
ritunarskyld.
Fram kemur á heimasíðu Land-
læknisembættisins að til eftirrit-
unarskyldra lyfja teljist ávana- og
fíknilyf, ef þau vegna eiginleika
sinna geta haft í för með sér sérstaka
hættu á misnotkun. Eingöngu er um
fá lyf að ræða, einkum mjög sterk
verkjalyf, svo sem morfín og peti dín,
auk örvandi lyfja eins amfetamín og
rítalín
Magnús starfar nú á stórri
læknastofu í miðbænum en er að
sögn heimildarmanns DV ekki með
marga sjúklinga á sínum snærum
og er af mörgum talinn góður geð-
læknir. hanna@dv.is
Með læknaleyfi að hluta
Magnús Skúlason starfar sem
geðlæknir en má ekki ávísa
eftirritunarskyldum lyfjum.