Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 48
18. desember:
Tælandi augnaráð
Sendu makanum tælandi
augnaráð þvert yfir her-
bergið og reyndu að táld-
raga hann með augnaráð-
inu einu saman. Þú getur
auðvitað gert þetta hvar
og hvenær sem er en það
er aðeins meiri áskorun að
gera þetta þegar þið farið
saman út á lífið, hvort sem það er á jólahlað-
borð, tónleika eða í heimsókn til vina.
19. desember:
Hönd í hönd
Skellið ykkur í dagsferð í bæinn til þess að dást
að jólaskreytingunum saman. Haldist í hendur
og drekkið heitt kakó.
20. desember:
Bréf frá jólasveininum
Sendu makanum bréf frá
„jólasveininum“ þar sem
honum er lofað veglegri
umbun ef hann hagar sér
vel. Ef hann verður óþekk-
ur þá ... er þér reyndar líka
að mæta.
21. desember:
Spennandi skilaboð
Komið ykkur upp leyniorði
sem segir maka þínum að
þú getir ekki beðið eftir því
að hann fari höndum sín-
um um þig. Auk þess er
líka gaman að koma skila-
boðunum á framfæri með óvæntum aðferð-
um – skildu eftir skilaboð á baðherbergisspegl-
inum ... Hugsaðu út fyrir rammann og notaðu
varalit til að skrifa beint á spegilinn í stað „post-
it“-miða.
22. desember:
Stelið stund til að kyssast
Munið að kyssast. Takið ykkur tíma og kyssist
almennilega þegar allt er orðið klárt en áður en
þið kallið til sætis. Matmálstíminn verður mun
ánægjulegri fyrir vikið.
23. desember:
Láttu makann vita að þú
sért til í smáóþekkt
Jólagleði! Hengdu merkimiða á húninn á
svefnherbergishurðinni þar sem segir að þú
viljir enga truflun og skreyttu með rauðri silki-
slaufu til að gefa makanum til kynna að þú sért
til í smáóþekkt í kvöld.
24. desember:
Eftirminnileg aukagjöf
Þegar þið hafið tekið utan af
öllum gjöfunum skaltu láta
makann vita að ein gjöfin hafi
gleymst. Klæddu þig í falleg
undirföt og skreyttu þig með
slaufu. Kallaðu hann svo inn í
svefnherbergi og leyfðu hon-
um að njóta þess að losa hana
utan af þér. Besta gjöfin.
25. desember:
Kúrið saman
Kúrið saman. Liggið uppi í
rúmi saman og njótið félags-
skaparins. Biðjið krakkana um
að gefa ykkur smátíma fyrir
ykkur sjálf og halda sig frammi
í einn tíma eða tvo. Jafnvel
þótt þið séuð bara að lesa bók
og háma í ykkur konfekt.
26. desember:
Út að leika
Leikið ykkur. Ef það er frost farið þá í ullarsokka
og hlýja úlpu og skundið af stað niður að Tjörn
með kakó í brúsa. Það er fátt skemmtilegra en
að fara saman á skauta. Ef snjóar getið þið farið
út að leika ykkur í snjónum. Ef þið eruð ekki í
stuði fyrir ærslagang er alltaf jafn hressandi að
fara saman í stuttan göngutúr.
27. desember:
Verjið tíma með vinum
Gefið ykkur tíma til þess að
hitta vini ykkar. Búið til jóla-
glögg og bjóðið vinum ykkar
yfir í spil. Skoraðu á þá í þínu
uppáhaldsspili. Sigurvegarinn
sér svo um að halda næsta boð.
28. desember:
Notaleg sturtulok
Komdu makanum á óvart á
meðan hann er í sturtu. Hit-
aðu handklæði í þurrkaran-
um og legðu það svo á gólf-
ið. Þegar sturtunni er lokið
stígur hann þá á heitan og
notalegan stað en ekki kalt
gólfið.
29. desember:
Tjaldið öllu til
Farið í smá-„picnic“ saman heima í stofu. Fær-
ið sófana til og leggið teppi á gólfið. Búið ykk-
ur til nýtt, spennandi og kósí athvarf á gólfinu
með fullt af púðum, kertum og öðrum nota-
legheitum. Setjið svo góða tónlist á fóninn,
gæðið ykkur á góðum mat og spjallið. Ein eða
með börnunum, það skiptir ekki máli svo lengi
sem stundin verður skemmtileg tilbreyting frá
hversdagslegu amstri.
30. desember:
Láttu renna í freyðibað
Útbúðu heitt freyðibað með góðum olíum fyrir
makann. Dempaðu ljósin og dekraðu við hann.
Nuddaðu á honum axlirnar, skrúbbaðu líkam-
ann með kornakremi og þvoðu hárið á honum
með tilþrifum – eins og gert er á hárgreiðslu-
stofum. Þurrkaðu hann með mjúku handklæði
og vefðu hann í góðan slopp.
31. desember:
Full af ást
Skiptist á að hella
kampavíni í naflann
á makanum og sötra
það úr. Einnig er hægt
að nota piparmyntu-
snafs. Fyllið ykkur af
ást!
1. janúar:
Hressandi upphaf
á nýju ári
Hjálpið hvort öðru
af stað inn í nýtt ár
með því að vekja
ástina tilbúin með
heitt te fyrir hana
og girnilegan morg-
unverð. Það er alltaf
jafn notalegt að fá morgunmat í rúmið.
48 | Rómantík 17.–19. desember 2010 Helgarblað
Í öllu stressinu fyrir hátíðarnar er um að gera að stela stuttri stund hér og þar með
makanum. Koma hvort öðru á óvart og njóta þess að vera saman. Um leið verður
allt hitt miklu skemmtilegra.5 ástarráð fyrir hátíðarnar
UMSJÓN: INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR ingibjorg@dv.is